Morgunblaðið

Dagsetning
  • fyrri mánuðurjanúar 2001næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    31123456
    78910111213
    14151617181920
    21222324252627
    28293031123
    45678910

Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Iðnaðarhúsnæði, um 919 fm, þar af um 750 fm á jarðhæð. Húsnæðið er staðsett í hinum nýja versl- unarkjarna Akureyrar. Eignin býður uppá mikla möguleika varðandi verslunarrekstur eða hvers kyns miðlæga þjónustustarfsemi. Allar frekari upplýsingar veitir Björn Guðmundsson Til sölu Dalsbraut 1 Strandgötu 29, Akureyri, símar 462 1744 og 462 1820, fax 462 7746 Til sölu eða leigu glæsilegt verslunar-, þjónustu- og skrifstofuhús- næði á einum besta stað á Akureyri Fasteignin Hvannavellir 14 er til sölu eða leigu. Um er að ræða hús- næði á þremur hæðum og eru tvær neðri hæðir hússins lausar til af- nota nú þegar. Stærð hússins er 2.861,6 fm. Þriðja hæðin er í útleigu með langtímaleigusamningi. Fjölmörg bílastæði eru við húsið og hentar það vel til reksturs fyrir hvers konar verslunar-, þjónustu- eða skrifstofustarfsemi. Með eigninni fylgir lóð og grunnur, ásamt teikningum, fyrir 1.000 fm hús. Mögulegt er að kaupa eða leigja eignina í minni einingum. Allar frekari upplýsingar veitir Björn Guðmundsson, Fasteignasalan BYGGÐ, Strandgötu 29, Akureyri. Símar 462 1744 og 462 1820, fax 462 7746 Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. verður haldinn í kaffistofu félagsins á Gleráreyrum, Akureyri, mánudaginn 15. janúar 2001 og hefst fundurinn kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.04 í samþykktum félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins.  Tillaga til breytingar á gr. 2.01 um heimild stjórnar til að auka hlutafé félagsins í allt að kr. 200.000.000,- með útgáfu nýrra hluta og að víkja frá lögboðnum áskriftarrétti hluthafa.  Tillaga til breytingar á gr. 2.01 er kveður á um vernd réttinda eiganda skuldabréfs með breytirétti í hlutafé við hækkun hlutafjár í félaginu með útgáfu jöfnunar- hlutabréfa.  Tillaga til breytingar á gr. 5.01 er kveður á um fjölda stjórnarmanna 3. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum. 4. Önnur mál, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Stjórn Skinnaiðnaðar hf. Aðalfundur FJÖLDI fólks lagði leið sína á hina árlegu þrettándagleði Íþrótta- félagsins Þórs á félagssvæðinu við Hamar sl. laugardag. Þórsarar hafa staðið fyrir þrettándagleði í tæp 60 ár og nýtur hún jafnan mikilla vinsælda og þá ekki síst meðal yngstu kynslóðarinnar. Dagskráin var með hefðbundnu sniði, þar sem töluvert var um söng. Kirkjukór Glerárkirkju söng jólalög og ungur söngvari, Hafþór Magni, tók einnig lagið, að ógleymdum jólasveinunum, sem nú hafa haldið til síns heima. Þá steig Glanni glæpur úr Latabæ á svið og lét ófriðlega. Glanni til- kynnti framboð sitt til embættis bæjarstjóra á Akureyri og reyndi hann m.a. að kaupa atkvæði barnanna með sælgæti. Hann lof- aði börnunum sælgæti á hverjum degi næði hann kjöri, þau mættu vera óþæg á kvöldin og þyrftu aldrei að bursta tennurnar. Þessi kosningaloforð gengu þó ekki í börnin, þótt sælgætið hafi verið vel þegið, enda laugardagur nammidagur á Akureyri eins og annars staðar á landinu. Álfakóngur og álfadrottning, púkar og tröll voru fyrirferð- armikil á svæðinu að venju, kveikt var í myndarlegum bálkesti og í lokin var boðið upp á glæsilega flugeldasýningu. Morgunblaðið/Kristján Púkar voru fyrirferðarmiklir á þrettándagleði Þórs og létu öllum illum látum. Hér stíga nokkrir þeirra létt dansspor við eitt af tröllunum en uppi á palli sungu jólasveinarnir af lífs og sálar kröftum. Fjölmennt á þrettándagleði Þórs VALDIMAR Brynjólfsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðis- eftirlits Norðurlands eystra, sagði að Egill Jónsson tann- læknir á Akureyri yrði að fá undanþágu frá umhverfisráðu- neytinu vegna ónógrar lofthæð- ar í tannlæknabíl sínum, áður en heilbrigðisnefnd kjördæmisins getur veitt honum starfsleyfi til tannlækninga í bílnum. Lofthæðin uppfyllir ekki sett skilyrði Valdimar sagði að lofthæðin í tannlæknabílnum uppfyllti ekki þau skilyrði sem sett væru um almennar tannlæknastofur. Ekki giltu neinar sérstakar reglur um tannlæknastofur í bifreiðum og því flokkaðist sú starfsemi undir reglur um aðrar tannlæknastof- ur. Hann sagði mörg dæmi þess að veittar hafi verið undanþágur vegna lofthæðar í tengslum við atvinnustarfsemi. Eins og fram kom í Morg- unblaðinu fyrir helgi sættir Eg- ill sig ekki við að geta ekki feng- ið tilskilin leyfi hjá yfirvöldum á Akureyri. Valdimar sagði lögum um hollustuhætti og mengunar- varnir hafa verið breytt árið 1998 og að heilbrigðisnefndin gæti ekki veitt undanþágu frá ákvæðum reglugerða. Egill þurfi því að sækja um undan- þágu vegna lofthæðar til ráð- herra og fáist sú undanþága ætti heilbrigðisnefnd að geta gefið út starfsleyfið. Þetta hafi því ekkert með það að gera að menn vilji ekki afgreiða málið heima í héraði. Valdimar sagði að Egill hafi enn ekki sótt um undnaþáguna til ráðherra en hefði hann gert það strax væri trúlega búið að afgreiða málið í ráðuneytinu. Því verður bið á því að tann- læknabíllinn verði tekinn í notk- un. Ráðherra getur veitt undanþágu vegna lofthæðar í tannlæknabílnum Enn ekki verið sóttum undanþágu KYNNINGARFUNDUR vegna út- boðs á einkaframkvæmd vegna byggingar og reksturs rannsókna- og nýsköpunarhúss við Háskólann á Akureyri verður haldinn í dag, þriðjudaginn 9. janúar, í stofu L201 í Háskólanum á Akureyri á Sólborg við Norðurslóð. Fimm ráðherrar mæta á fundinn, þ.e. ráðherrar menntamála, iðnaðar, landbúnaðar, sjávarútvegs og umhverfis. Á fundinum verður gerð grein fyr- ir markmiðum verkefnisins og fulltrúar í nefnd menntamálaráð- herra um byggingu rannsókna- og nýsköpunarhúss kynna aðferðafræði og áætlun um framkvæmd þess. Háskólinn mun ásamt um 20 rík- isstofnunum leigja allt að 4.000 fer- metra aðstöðu í húsinu en að auki er gert ráð fyrir að fyrirtækjum, sem vegna eðlis starfsemi sinnar hafa hag af staðsetningu í rannsókna- og þróunarumhverfi, gefist kostur á að leigja aðstöðu þar. Húsnæðið verður í eigu og rekið af einkaaðilum. Gert er ráð fyrir að eigandi húsnæðisins sjái leigjendum fyrir ýmiss konar stoðþjónustu en lögð verður áhersla á samnýtingu ýmissa þátta er rekst- urinn varðar og hagkvæmni í nýt- ingu rýma. Ríkisstjórnin samþykkti skömmu fyrir jól að ráðist yrði í byggingu rannsóknahússins en slíkt hefur lengi verið til umræðu. Þar verða sem áður segir um 20 stofn- anir sem starfa á hinum ýmsu svið- um, þannig að segja má að í húsinu verði öflugur þekkingar- og tækni- iðnaður þar sem sinnt verður fjöl- breyttum rannsóknum. Stofnanirnar sem um er að ræða eru: Raunvísindakennsla Háskólans á Akureyri, HA, Matvælasetur HA, Ferðamálasetur HA, Rannsókna- stofnun HA, Byggðarannsókna- stofnun Íslands, Hafrannsókna- stofnun Íslands, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, Orkustofnun, rann- sóknasvið, Frumkvöðlasetur á veg- um iðnaðarráðuneytis, Veiðistjóra- embættið, Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarsetur, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, CAFF, PAME, útibú Veðurstofu Íslands, Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, Veiðimálastofnun, Skógrækt ríkis- ins, Norðurlandsskógar, Yfirkjöt- mat og Búnaðarsamband Íslands. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir geti hafist síðar á þessu ári og þeim verði lokið á árinu 2003. Starfsemi á vegum Háskól- ans og 20 stofnana í húsinu Útboð vegna rannsókna- og nýsköpunarhúss DREGIÐ hefur verið í áramótaleik félagsmanna KEA, en leikurinn fólst í því að svara fimm spurningum og finna svarið í síðasta tölublaði KEA- fregna. Þátttaka var góð, en um 900 svör bárust. Þeir sem duttu í lukku- pottinn eru: Kolbrún Pálsdóttir, Dal- vík; Snjólaug Kristindóttir, Ólafsfirði; Lilja Guðlaugsdóttir, Húsavík; Guð- mundur St. Jacobsen, Akureyri; og Anna S. Helgadóttir, Vöglum I, Fnjóskadal. Vinningshafar hafa feng- ið send gjafabréf upp á 15.000 krónur hver og er um að ræða vöruúttekt að eigin vali í Nettó, Strax eða Úrvali. Dregið í ára- mótaleik félagsmanna KEA ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað: 6. tölublað (09.01.2001)
https://timarit.is/issue/248631

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

6. tölublað (09.01.2001)

Aðgerðir: