Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TALSVERÐAR skemmdir urðu í
gamla Hafnarfjarðarbíói við
Strandgötu í fyrrinótt er hitavatns-
lögn á efstu hæð hússins gaf sig og
vatn lak um allt húsið. Óhappið var
tilkynnt til lögreglunnar í Hafn-
arfirði laust fyrir kl. 7 í gærmorg-
un. Bæjarstarfsmenn dældu vatni
úr húsinu sem er í eigu Hafn-
arfjarðarbæjar. Húsið hefur staðið
autt í nokkurn tíma, nema jarðhæð
þar sem rekið er smíðaverkstæði.
Guðmundur Guðjónsson hjá
Hafnarfjarðarbæ segir að líklega
hafi frosið í lögnum í risi hússins
og þær sprungið þegar fór að þíða.
Húsið er þrjár hæðir og fór vatn
um allt húsið. Guðmundur segir að
þetta sé gamalt hús sem hafi lítið
verið notað. Á jarðhæð var hár-
greiðslustofa sem er nýflutt og
einnig var þar smíðaverkstæði þar
sem einna mesta tjónið varð. Það
hefur staðið til að rífa húsið og til
stendur að byggja þar nýtt hús sem
samkvæmt skipulagi á að tengjast
verslunarmiðstöðinni Firði. Guð-
mundur segir að vonast sé til þess
að þetta óhapp verði til þess að
flýta þessum framkvæmdum.
Mikill vatnsleki í gamla Hafnarfjarðarbíói
Stendur til að rífa húsið
Morgunblaðið/Þorkell
TILBOÐ í framkvæmdir við 11,3 km
langan kafla á Vestfjarðavegi um
Dalafjall, veg sem í daglegu tali er
nefndur Brattabrekka, voru opnuð
hjá Vegagerðinni í gær. Arnarfell ehf
á Akureyri átti lægsta tilboð í tilhög-
un A og B, eða 330.897.200 kr. í fram-
kvæmd skv. tilhögun A, en
288.725.500 kr. í framkvæmdir skv.
tilhögun B. Verkinu skal að fullu lokið
1. september 2003.
Kostnaðaráætlun Vegagerðinnar
vegna framkvæmdanna hljóðar upp á
428 milljónir kr. fyrir tilhögun A og
tæplega 253 milljónir kr. fyrir tilhög-
un B.
Fjögur fyrirtæki buðu eilítið hærra
í tilhögun A en Arnarfell, Hjarðarnes-
bræður ehf á Höfn í Hornafirði,
Fjörður sf. á Sauðárkróki, Suðurverk
hf í Reykjavík og Ingileifur Jónsson,
Svínavatni. Í tilhögun B bauð Suður-
verk í Reykjavík tæpum tveimur
milljónum meira en Arnarfell, en þar
á eftir kom Héraðsverk ehf á Egil-
stöðum með ríflega 298 milljónir kr.
Nýi vegurinn liggur á sömu slóðum
og núverandi vegur. Hann mætir
Hringveginum í Norðurárdal við nú-
verandi vegamót en sveigir vestur
fyrir bæinn Dalsmynni. Gert er ráð
fyrir byggingu 100 m langs ræsis rétt
austan við núverandi brú á Bjarnar-
dalsá. Í útboðinu er þó gert ráð fyrir
tilhögun B sem miðar við að gerð ræs-
isins verði frestað en nýja leiðin tengd
inn á gömlu brúna sem raunar er ekki
hægt að breikka. Þegar útboð í fram-
kvæmdir var kynnt kom fram að til-
boð í verkið myndu ráða því hvor
kosturinn yrði valinn. Má því gera ráð
fyrir að tilhögun B verði fyrir valinu.
Framkvæmdum við fyrri áfanga
leiðarinnar, það er að segja veginn í
Miðdölum og að fjallveginum, lauk sl.
haust. Byrjað verður á síðari áfanga
framkvæmda Dalamegin á þessu ári
en unnið Borgarfjarðarmegin 2002.
Gamla þjóðleiðin milli Borgarfjarð-
ar og Miðdala lá um Bjarnardal og
Bröttubrekku. Þegar bílvegur var
lagður í Dali árið 1932 var farin önnur
leið og byggðar brýr á Bjarnardalsá
og Miðdalsgil. Nafn gömlu leiðarinn-
ar færðist á nýju leiðina þótt hún lægi
ekki lengur upp Bröttubrekku. Í
Framkvæmdafréttum Vegagerðar-
innar er lögð áhersla á að nýr vegur
skuli heita Vestfjarðavegur um Dala-
fjall því það sé réttara.
Í Morgunblaðinu nýlega var birt
bréf frá Ómari Arasyni þar sem nafn-
gift Vegagerðarinnar var mótmælt
með þeim orðum að Dalafjall sé
hvergi að finna á umræddri leið, en
nafnið Brattabrekka hafi hins verið
við lýði í sjötíu ár og eigi þess vegna
að hafa það um vegarkaflann.
Arnarfell
með lægstu
tilboðin
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur rannsakað
þá erfiðleika sem urðu á böggladreifingu hjá Ís-
landspósti á höfuðborgarsvæðinu fyrir jólin.
Segir stofnunin að aðalvandamálið virðist hafa
verið það, að póstmiðstöðin í Reykjavík réð ekki
við það magn böggla sem barst síðustu vikuna
fyrir jól.
Í greinargerð sem Íslandspóstur sendi stofn-
uninni segir að um 100.000 bögglar hafi verið
póstlagðir síðustu vikuna fyrir jól. Þetta hafi
verið mun meira en áætlað var. Talið er að ekki
hafi tekist að afhenda um 2,5% af þeim bögglum
fyrir jól eða alls um 2.500 böggla.
Erfiðleikarnir hugsanlega
komnir fram nokkuð fyrir jól
„Íslandspóstur hf. viðurkennir í greinargerð
sinni að í álagi síðustu viku fyrir jól hafi margir
flöskuhálsar komið fram í meðhöndlun böggla í
póstmiðstöðinni í Reykjavík og einnig áberandi
veikleiki í flokkun sendinga sem ekki tókst að
afhenda við fyrstu heimsendingu,“ segir í
fréttatilkynningu frá stofnuninni. Póst- og fjar-
skiptastofnun telur þó að erfiðleikarnir hafi
hugsanlega verið komnir fram vikuna þar á
undan og vísar til kvörtunar Ólafs Guðmunds-
sonar, en hann óskaði eftir því að opinber rann-
sókn færi fram á þjónustu Íslandspósts.
Ábyrgðarbréf til Ólafs var fjóra daga í dreif-
ingu innanbæjar. Í bréfinu var mynt sem Ólaf-
ur hafði pantað hjá Íslandspósti og ætlaði að
sækja sjálfur á afgreiðslu Íslandspósts. Honum
var hins vegar ekki tilkynnt að hún væri tilbúin
til afhendingar en þess í stað send með ábyrgð-
arbréfi. Það fól í sér aukakostnað fyrir Ólaf og í
stað þess að geta nálgast myntina 10. desember
barst hún honum fyrst 16. desember. Íslands-
póstur hefur viðurkennt mistökin og tilkynnt að
gjald vegna ábyrgðarsendingar verði endur-
greitt.
Ólafur kvartaði einnig yfir mistökum við af-
hendingu bögguls sem póstlagður var á Sauð-
árkróki 18. desember en barst ekki til hans fyrr
en hinn 27. desember. Böggullinn var fyrst
sendur heim til Ólafs 20. desember.
„Ólafur telur að ekki hafi verið hringt dyra-
bjöllu eða bankað á dyr en tilkynningu stungið
inn um bréfarifu um böggulinn. Ekki voru á
miðanum upplýsingar um hvar hægt væri að
nálgast böggulinn. Ólafur fór næstu daga ítrek-
að á pósthúsið í Kópavogi en böggulinn fannst
ekki þrátt fyrir margar símhringingar í póst-
miðstöð Íslandspósts hf.,“ segir í fréttatilkynn-
ingunni. Bílstjórinn sem fór með böggulinn seg-
ist þó hafa hringt dyrabjöllu og bankað án
árangurs.
„Íslandspóstur hf. hefur gefið skýringar á því
hvers vegna böggullinn er fyrst tilbúinn til af-
hendingar á pósthúsinu í Kópavogi 27. desemb-
er 2000. Þegar böggullinn kom til baka úr ár-
angurslausri heimsendingu 20. desember eru
gerð þau mistök að hann er settur með bögglum
sem áttu eftir að fara í útkeyrslu. Þar liggur
böggullinn þangað til kl. 16.46 hinn 22. desemb-
er þegar hann er skráður í útkeyrslu á ný og
það uppgötvast að útkeyrsla hafi þegar átt sér
stað en án árangurs. Böggullinn er nú settur
með öðrum bögglum sem fara áttu í pósthúsið í
Kópavogi og er að lokum afhentur Ólafi þar 27.
desember eins og fyrr segir. Þar sem pósthúsið
í Kópavogi var lokað 23. desember skiptir það
hér ekki öllu máli að böggullinn var ekki sendur
þegar í stað í pósthúsið þegar mistökin upp-
götvast, eins og þó hefði verið eðlilegt.“
Póst- og fjarskiptastofnun hefur komið
tveimur ábendingum á framfæri við Íslands-
póst. Í fyrsta lagi að kannað verði hvernig bæta
megi fyrirkomulag við flokkun böggla í póst-
miðstöðinni. Í öðru lagi fer stofnun þess á leit
við fyrirtækið að það íhugi að halda uppi starf-
semi laugardaginn 22. desember og á Þorláks-
messu sem á þessu ári ber upp á sunnudag.
Póst- og fjarskiptastofnun telur ekki ástæðu til
frekari aðgerða stofnunarinnar að þessu sinni.
Póst- og fjarskiptastofnun um erfiðleika í póstdreifingu Íslandspósts hf. fyrir jólin
Flöskuhálsar í póst-
miðstöð og veikleik-
ar í flokkun sendinga
NORÐURLJÓS hf. stöðvuðu út-
sendingar útvarpsstöðvarinnar
Gullsins 90,9 á gamlársdag. Jón
Axel Ólafsson, yfirmaður útvarps-
sviðs Norðurljósa, sagði ástæðu
lokunarinnnar vera uppstokkun og
endurskipulagningu á rekstri.
„Stöðin einfaldlega borgaði sig
ekki. Við erum að vinna að því að
reka þetta fyrirtæki í harðri sam-
keppni við aðra auglýsingamiðla
og getum augljóslega ekki haldið
úti stöðvum eða rekstri sem ber
sig ekki – það eina sem við höfum
á að byggja eru tekjur frá auglýs-
endum og ef auglýsendur vilja
ekki auglýsa á ákveðnum stöðvum
af einhverjum ástæðum eða hlust-
endur skila sér ekki í skoðana-
könnunum þá getum við ekki hald-
ið þeim úti,“ sagði Jón Axel.
Gullið lék eldri dægurtónlist og
var eina slíka stöðin eftir að
Stjarnan FM 102,2, einnig í
rekstri Norðurljósa, hætti útsend-
ingum í nóvemberlok 2000. Þegar
Stjarnan hvarf úr loftinu voru út-
sendingar útvarpsstöðvarinnar
Rokk FM 97,7 einnig stöðvaðar
„tímabundið“ eins og Halldóra
Ingimarsdóttir, verkefnisstjóri út-
varpssviðs Norðurljósa, sagði við
það tækifæri. Ekkert hefur síðan
heyrst í Rokk FM. Spurður um af-
drif stöðvarinnar sagði Jón Axel
Rokk FM hafa verið „hálfgerðan
bastarð sem varð aldrei nein út-
varpsstöð“ og það hefði aldrei
staðið til að halda rekstri hennar
áfram.
Þegar stöðvarnar tvær hættu
útsendingum sagði Halldóra að
engar fleiri skipulagsbreytingar
væru framundan hjá útvarpssviði
Norðurljósa en annað hefur nú
komið í ljós. Spurður hvort hlust-
endur mættu eiga von á að fleiri
stöðvar Norðurljósa myndu hætta
á næstunni svaraði Jón Axel svo
ekki vera enda hefðu þær stöðvar
sem eftir væru góða markaðsstöðu
bæði meðal auglýsenda og hlust-
enda.
Í fréttatilkynningu frá 21. júní
2000 segir að það sé ætlun Norð-
urljósa að halda áfram þeirri upp-
byggingu sem orðið hefur á út-
varpsmarkaðinum og ná enn betur
til hlustenda og þar með til auglýs-
enda. Síðan hefur þremur stöðvum
verið lokað og tvær verið samein-
aðar í eina. Spurður hvort fækkun
stöðva væri hluti þessarar upp-
byggingar svaraði Jón Axel ját-
andi og sagði félagið vera að
styrkja dreifikerfi þeirra stöðva
sem nú væru í rekstri um allt land.
„Við erum að gera reksturinn hjá
okkur þannig að við séum með
hæft fólk í öllum störfum, fólk sem
við viljum hlúa vel að. Við viljum
frekar gera færri stöðvar góðar
heldur en margar af veikari mætti.
Það er augljóslega miklu hag-
kvæmara fyrir okkur að efla þær
stöðvar sem við erum með í sam-
keppni við Ríkisútvarpið, sem er
með lögbundin afnotagjöld, þannig
að hlustendur okkar njóti betri
dagskrár og auglýsendur betri ár-
angurs auglýsinga sinna.“
Gull hætt að útvarpa
MAÐUR, sem réðst á annan mann
við flatbökustað í Fákafeni í Reykja-
vík á föstudagskvöld og stakk hann
með hnífi í háls og brjóstkassa, hefur
verið úrskurðaður í 30 daga gæslu-
varðhald.
Maðurinn var yfirheyrður hjá lög-
reglu á laugardag en hann vildi ekki
kannast við að hafa verið á staðnum
þegar atburðurinn átti sér stað, sam-
kvæmt upplýsingum hjá rannsókn-
ardeild lögreglunnar í Reykjavík.
Þetta mun vera í annað skiptið
sem maðurinn er sagður ráðast að
fórnarlambinu. Í fyrra skiptið réðst
hann að honum með skærum en
meiðslin reyndust ekki þá jafn alvar-
leg. Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítala – háskólasjúkrahúsi var
líðan mannsins, sem var stunginn,
eftir atvikum góð og hann telst ekki í
lífshættu.
Í gæsluvarðhald í 30
daga vegna hnífstungu
RANNSÓKN lögreglunnar á Ísa-
firði og rafmagnsöryggisdeildar
Löggildingarstofu hefur ekki leitt í
ljós hvers vegna eldur varð laus í úti-
húsum að bænum Tröð í Önundar-
firði þann 13. desember.
Í frétt frá lögreglunni á Ísafirði
segir að ekki hafi tekist að útiloka að
kviknað hafi í út frá rafmagni. Ekki
hefur heldur tekist að útiloka að
kviknað hafi í út frá gastækjum sem
notuð voru til að þíða frosið vatn í
vatnsleiðslu í fjósinu.
Skemmdir urðu mestar á fjósinu á
bænum og tengibygging eyðilagð-
ist.Tvær kvígur brunnu inni en
bóndanum tókst að hleypa út fé og
nautgripum, alls 120 gripum.
Bruninn í útihúsunum að Tröð
Óvíst um eldsupptök