Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
AÐALFUNDUR Skipstjóra- og
stýrimannafélags Norðlendinga
samþykkti að fram fari póstaf-
greiðsla meðal starfandi félags-
manna um boðun ótímabundins
verkfalls félagsmanna á fiskiskipum
er hefjist þann 15. mars nk. hafi
samningar ekki tekist fyrir þann
tíma. Atkvæðagreiðslan stendur til
15. febrúar nk.
Í umræðum um kjaramál á aðal-
fundinum voru útvegsmenn hvattir
til að virða reglur lýðræðisins og
hefja nú þegar raunverulegar samn-
ingaviðræður. Þá lýsti fundurinn
áhyggjum yfir framkomnu frum-
varpi samgönguráðherra um áhafnir
íslenskra skipa, sem felur í sér rót-
tæka breytingu á atvinnuréttindum
skipstjórnarmanna og þar með
fækkun réttindamanna um borð í
fiskiskipum. Jafnframt telur fundur-
inn flest rök mæla gegn þessum
breytingum og hvetur stjórn félags-
ins að fylgjast vel með framgangi
málsins.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, var gestur
fundarins og flutti hann fróðlegt er-
indi um haf- og fiskirannsóknir.
Hann skýrði einnig grunninn að fisk-
veiðiráðgjöf stofnunarinnar og lagði
áherslu á mikilvægi þess að eiga gott
samstarf við skipstjórnarmenn.
Árni Bjarnason formaður
Samþykkt var tillaga þess efnis að
skora á sjávarútvegsráðherra að
opna nú þegar þau reglugerðarhólf
sem banna togveiðar á Vestfjarða-,
NV- og NA-miðum. Fulltrúar
Hampiðjunnar mættu einnig á fund-
inn og kynntu þróun og helstu nýj-
ungar í veiðum og veiðafæragerð.
Í stjórn Skipstjóra- og stýri-
mannafélags Norðlendinga sitja 9
manns en formaður er Árni Bjarna-
son, stýrimaður á Akureyrinni EA.
Samþykkt aðalfundar Skipstjóra- og
stýrimannafélags Norðlendinga
Atkvæði greidd
um boðun ótíma-
bundins verkfalls
FÉLAG hjartasjúklinga á Eyja-
fjarðarsvæðinu hefur afhent Heilsu-
gæslustöðinni á Akureyri hjartalínu-
rita. Gísli Eyland, formaður
félagsins, greindi frá aðdraganda
þess að ráðist var í kaup á fullkomnu
og dýru tæki, en söguna má rekja til
þess að Pétur Pétursson, yfirlæknir
Heilsugæslustöðvarinnar á Akur-
eyri, heimsótti félagsmenn á afmæl-
isdegi þess á liðnu hausti. Þar fór
hann með gamanmál en kvaddi
félaga með þessum vísum:
Enn ég safna meiri mör
því margt ég fékk að smakka.
Heim er best að flýta för
og fyrir sig að þakka.
Ef þið sýnið á því lit
að auðga mína ferð
helst ég kysi hjartarit
af Hewlett Packard-gerð.
Gísli sagði þessar vísur Péturs
með dýrustu vísum sem kveðnar
hefðu verið, því vitanlega hefðu
menn strax hafist handa við að safna
fyrir tækinu, sem kostaði um 700
þúsund krónur. Gísli vildi ekki vera
eftirbátur Péturs og sendi honum
aðlokum þessa kveðju:
Þó ástæðuna enginn viti
við ætlum þig að styrkja
með Hewlett Packard-hjartariti,
svo hættir þú að yrkja.
Pétur þakkaði höfðinglega gjöf og
sagði aðdragandann hafa verið
ánægjulegan og ekki hefði sér tekist
að semja betur við nokkra aðra.
Hann sagði stofnun eins og heilsu-
gæslustöðinni mikilvægt að eiga
góða að, líkt og nú hefði komið á dag-
inn með félagsmenn í Félagi hjarta-
sjúklinga.
Morgunblaðið/Kristján
Pétur Pétursson, yfirlæknir á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, tók við
hjartalínuritanum. Með honum á myndinni eru Margrét Guðjónsdóttir,
hjúkrunarforstjóri Heilsugæslustöðvarinnar, og Gísli Eyland, formaður
Félags hjartasjúklinga, sem afhenti gjöfina.
Félag hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæð-
inu og Heilsugæslustöðin á Akureyri
Dýrt kveðnar vís-
ur færðu stöðinni
hjartalínurita
Mývatnssveit - Golfklúbbur Mý-
vatnssveitar og Björgunarsveitin
Stefán gengust fyrir brennu og
flugeldasýningu á Ytri-Höfða við
Reykjahlíð á þrettándadagskvöld
og einnig voru þeir með flug-
eldasýningu á Álftabáru vestan
við Skútustaði síðar þetta sama
kvöld.
Veður var meinlaust í sveitinni
á þrettándanum, ólíkt því sem
verið hafði á gamlársdag, en þá
var versta norðan hríðarveður og
alls ekkert flugeldaveður. Af
þeim sökum hafði þessum þætti
áramótagleðinnar verið frestað
þar til nú.
Ef undan er skilinn hríð-
arhvellur á gamlársdag má segja
að tíð hafi verið meinlaus um jól-
in. Skýjað flesta daga og mein-
laus norðanátt með smáéljum.
Snjór er ekki mikill í byggð en
meiri til fjalla. Færð er yfirleitt
góð á vegum.
Morgunblaðið/BFH
Eldurinn á Ytri Höfða speglast í vök á vatninu
Þrettándinn í Mývatnssveit
Áramóta-
flugeldum
loks skot-
ið á loft
Höfn - Sinueldur kviknaði út
frá flugeldi í Nesjahverfi á
Hornafirði rétt fyrir kl. 6 á
þrettándakvöld. Jörð er
mjög þurr á Hornafirði
núna og þar sem nokkuð
hvasst var breiddist eldur-
inn mjög hratt út. Slökkvi-
liðið var fljótt á vettvang og
gekk greiðlega að slökkva
eldinn.
Svæðið sem brann er á að
giska 1 hektari að stærð.
Eldurinn fór mjög nálægt
Hæðargarði, þar sem standa
um 20 einbýlishús, en að
sögn lögreglunnar voru þau
ekki í verulegri hættu, því
vindátt var hagstæð.
Sinueldur á Höfn á þrettánda
Morgunblaðið/Sigurður Hannesson
Grindavík - Mikið fjölmenni var á
þrettándagleði Grindvíkinga enda
veðrið mjög gott þótt kalt væri.
Eins og undanfarin ár voru álfa-
kóngur og álfadrottning í far-
arbroddi mikillar göngu en að
þessu sinni var álfabrennan, söng-
urinn og flugeldasýningin á hafn-
arsvæðinu því hús eru risin á þeim
stað sem áður var notaður fyrir
þessa uppákomu. Flugeldasýningin
var hin glæsilegasta en hún var í
boði fyrirtækja í Grindavík en í um-
sjón Björgunarsveitarinnar Þor-
björns.
Þennan dag nota börnin í bænum
tækifærið til að klæða sig upp í alls
konar búninga og greinilegt var að
margir höfðu lagt sig fram um að
gera sig sem óþekkjanlegastan.
Þegar börnin eru komin í búning-
inn er farið í hópum um bæinn og
bankað upp á í flestum húsum til að
fá eitthvað gott í pokann. Þessar
„sníkjuferðir“ eru alltaf jafn-
vinsælar hjá börnunum og ekki er
laust við að eitthvað verði að gera
hjá tannlækninum ef taka á mið af
öllu því sælgæti sem börnin fengu í
pokana sína.
Morgunblaðið/GPVÞessi litli jólasveinn heitir örugglega Stúfur.
Þrettánda-
gleði í
Grindavík