Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 18
VIÐSKIPTI 18 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ STJÓRNIR Austurbakka hf. og Thorarensen lyfja ehf. hafa ákveðið að hætta áformum um samruna og hefur viðræðum nú verið slitið. Samkomulag tókst í megin- atriðum um samruna félag- anna rétt fyrir miðjan des- ember en fjármálaráðgjöf Landsbankans hafði unnið að samrunaferlinu í samstarfi við félögin tvö. Samanlögð velta fyrirtækjanna hefði numið rúmlega fjórum milljörðum króna á ári en samkomulag um eignaskiptingu lá fyrir í desember. Strandaði ekki á skiptahlutfalli Stefán Bjarnason, framkvæmda- stjóri Thorarensen lyfja, segir að þegar á viðræðurnar leið hafi báðum aðilum þótt „kúltúr“ fyrirtækjanna ekki passa alveg saman. Viðræðum hafi fyrst og fremst verið slitið af þeim sökum. „Við vorum í raun ekki að rífast um neitt en auðvitað fara menn ekki í samruna af þessu tagi nema þeir sjái fram á betri tíð. Allt fór þetta fram í bróðerni en svona fer þetta stundum.“ Árni Þór Árnason, framkvæmda- stjóri Austurbakka, segir að vissu- lega hefði verið um mjög spennandi samruna að ræða ef allt hefði gengið upp. Hjá Thorarensen lyfjum starfi mjög gott fólk sem vinni að merki- legum verkefnum og það séu vissu- lega vonbrigði að þetta hafi ekki gengið upp. Bæði fyrirtækin hafi séð ákveðna hagræðingarmöguleika með samruna félaganna. Vanda- málið sé hins vegar að rekstrarfyr- irkomulagið hjá Austurbakka og Thorarensen lyfjum er nokkuð ólíkt og báðir hafi viljað halda í sitt fyr- irkomulag. Þá hafi húsnæðismálin einnig verið ákveðið vandamál: Thorarensen lyf séu að byggja stórt húsnæði og Austurbakki nýbúinn að reisa sér hús en ljóst hafi verið að ekki yrði hægt að koma sameinuðu fyrirtæki fyrir á öðrum hvorum staðnum. „Oft er erfiðast að ná fram samkomulagi um skiptahlutfall en það strandaði ekki á því nú. Aust- urbakki er skráður á hluta- bréfamarkað og stjórnendur hans og hluthafar gera kröfu um að við samruna við annað félag náist samlegðaráhrif til- tölulega fljótt. Staðreyndin er sú að það var ekki sjáanlegt að við æðum fram samlegð- aráhrifum á skömmum tíma þótt vissulega væri hægt að ná þeim þegar til lengri tíma er litið.“ Veltan jókst um 300 milljónir Aðspurður segir Árni að velta Austurbakka hafi vaxið verulega á liðnu ári. „Velta okkar var 1.604 milljónir árið 1999 án virðisaukaskatts en í fyrra fór hún í 1.903 milljónir. Það gerir tæplega 19% aukningu milli ára og við höfum vaxið verulega eða í kring- um 300 milljónir á ári undanfarin ár. Við tókum inn nokkur ný umboð með starfsmönnum á árinu, bæði í bjór og hráefni til iðnaðar og erum því á fullri siglingu. Við erum líkt og aðrir á markaðin- um alltaf að líta í kringum okkur eft- ir tækifærum enda er markaðurinn orðinn mjög lifandi. Markmið okkar er að stækka og verða betri en það er auðvitað spurning hversu dýru verði menn eru tilbúnir að kaupa stækk- unina. Að mínu viti hafa menn oft farið fram á alltof hátt verð en það kann ef til vill að breytast.“ Stjórnir Austurbakka hf. og Thorarensen lyfja ehf. Ekki verður af sameiningu Stefán Bjarnason Árni Þór Árnason „VIÐ bjóðum upp á tvíþætt kerfi í flutningum til og frá Bandaríkjun- um,“ segir Ólafur Ólafsson, for- stjóri Samskipa, í samtali við Morg- unblaðið vegna samstarfs Atl- antsskipa og Samskipa í flutningum til Bandaríkjanna. „Annars vegar bjóðum við vikulega þjónustu frá flestum aðalhöfnum Bandaríkjanna til Íslands í gegnum Rotterdam. Þessir flutningar eru með Maersk, sem er stærsta skipafélag heims. Hins vegar vorum við með sam- starfssamning við Eimskipafélagið og sá samningur hljóðaði upp á sigl- ingar aðra hverja viku frá Íslandi til Norfolk. Samkeppnisstofnun ógilti samning okkar við Eimskip og við höfum siglt sjálfir til Bandaríkj- anna frá því í ágúst,“ segir Ólafur. Hann segir flutningstíðnina hafa verið lægri þann tíma sem félagið hefur sjálft séð um þessar siglingar, en eftir samninginn við Atlantsskip bjóði Samskip aftur siglingar frá Íslandi til Norfolk aðra hverja viku. Spurður að því hvort viðskipta- vinir Samskipa mundu finna fyrir einhverjum breytingum vegna þessa samnings, svo sem á verðskrá, sagðist Ólafur ekki reikna með að svo yrði. Eina breyt- ingin fyrir viðskiptavini félagsins yrði í raun sú að nú yrðu aftur boðnar siglingar til Bandaríkjanna á tveggja vikna fresti, eins og verið hefði fram til ágústs síðastliðins. Ameríkuflutningar Samskipa Flutningstíðnin eykst á ný SÖLUAUKNING í smásöluverslun- um í Bandaríkjunum í desember var sú minnsta í mörg ár og stórar keðj- ur hafa þurft að loka hluta verslana sinna vegna samdráttar. Verslunar- keðjan Bonus Dollar Stores, sem er að hálfu í eigu Baugs hf., hyggur á skráningu á markað um mánaðamót- in febrúar/mars. Tryggvi Jónsson, aðstoðarforstjóri Baugs, var spurður að því hvort þessar markaðsaðstæð- ur hefðu haft áhrif á Bonus Dollar Stores og þau áform að fara með keðjuna á markað. Tryggvi sagði að þessi samdráttur í smásölu í Banda- ríkjunum hefði fyrst og fremst haft áhrif á verslanir sem selja fatnað, tæki og þess háttar, en síður á doll- arabúðirnar. Ein dollaraverslun, sem skráð sé á markað, hafi þó til- kynnt um samdrátt. „Við erum hins vegar með sölu- aukningu, búð á móti búð,“ sagði Tryggvi. Þetta sagði hann að væri fyrir utan söluaukningu vegna opn- unar nýrra verslana. Söluaukning hjá Bonus Dollar Stores
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.