Morgunblaðið - 09.01.2001, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Menning í Víetnam
Mörg einka-
fyrirtæki hafa
verið stofnuð
FYRIR skömmu héltKatrín Thuy Ngoerindi á málstofu í
Miðstöð nýbúa í Skelja-
nesi. Í fyrirlestri sínum
fjallaði Katrín um menn-
ingu heimalands síns, Víet-
nam. Katrín var innt eftir
því hvað hún hefði fjallað
um í erindi sínu um þetta
áhugaverða efni.
„Ég byrjaði á að segja
frá landinu almennt. Víet-
nam er stórt land og íbúar
þess eru um 73 milljónir.
Áttatíu og átta prósent eru
af Kinh-þjóðerni (Víet-
namar) en íbúar eru ann-
ars af fimmtíu og fimm
þjóðernum. Aðaltrúar-
brögð landsins eru búdd-
ismi og kaþólsk trú.“
– Er trúfrelsi í landinu?
„Já, núna ríkir trúfrelsi þar en
svo var ekki, það voru t.d. ekki
kennd nein trúarbrögð í skólakerfi
landsins fram undir þetta.“
– Er mikil áhersla lögð á
kennslu í listgreinum?
„Já, við lærum tónlist í almenn-
um skólum, bæði að syngja og
leika á hljóðfæri, og einnig er
kennd ýmiss konar handmennt.
Dans var ekki kenndur í almenna
skólakerfinu. Ég ólst upp í gamla
kerfinu og þá var þetta svona en
nú hafa orðið ýmiss konar breyt-
ingar. Skólakerfið er byggt þannig
upp að þar ríkir mikill agi, miklu
meiri agi en í íslenskum skólum.
Skólaskylda er ekki lögboðin að
því er ég best veit, hún var það all-
tént ekki vegna stríðsins. Núna
stunda um 70% barna nám en um
30% ekki – eru ólæs, það á einkum
við um þá sem búa þar sem langt
er í skóla. Góð kennsla er í borgum
en í sveitum eru fáir skólar.“
– Hvað með framhaldsmennt-
un?
„Þeir sem vilja fara í framhalds-
nám verða að taka inntökupróf á
vegum framhaldsskólanna. Flest-
ir háskólar eru í borgum.“
– Þú ert kennari að mennt, ertu
háskólagengin?
„Já, ég lærði sögu og bókmennt-
ir í Víetnam en svo tók ég nám-
skeið í móðurmálskennslu hér á
Íslandi. Ég kenndi bókmenntir og
sögu áður en ég flutti til Íslands.“
– Hvernig er atvinnuástand í
Víetnam?
„Það er mjög misjafnt. Núna
eru yfirvöld opin fyrir því að er-
lend fyrirtæki komi með starfsemi
sína inn í landið, þannig var það
ekki áður. Nú geta Víetnamar
stundað alls konar viðskipti sem
áður var erfitt. Þeir hafa stofnað
mikinn fjölda einkafyrirtækja en
slíkt var bannað áður. Það eru
margir atvinnulausir í Víetnam og
þar ríkir víða fátækt. Í Norður-Ví-
etnam mátti fólk ekki vera ríkt
þegar ég var að alast upp, ríkið tók
þá yfir eignirnar. Fátækt var til en
ekki munur á milli hinna ríku og
fátæku. Til er mjög ríkt
fólk í Víetnam og einnig
er þar til mikil fátækt.“
– Hvers vegna fluttir
þú til Íslands?
„Ég er flóttamaður
og kom í síðasta hópn-
um sem flutti hingað
frá Víetnam árið 1991.“
– Fannst þér mjög mikill munur
á lífinu hér og þar sem þú varst áð-
ur?
„Já, það má segja það. Hér hef-
ur fólk meiri réttindi. Einstæðar
mæður í Víetnam eiga t.d. erfitt,
þær fá ekki mæðralaun og aðeins
meðlag ef faðirinn vill borga, ann-
ars fá þær ekkert meðlag. Stund-
um geta menn ekki borgað en þá
borga almennar tryggingar ekki
eins og hér á Íslandi.“
– Er mikið um einstæðar mæð-
ur í Víetnam?
„Ekki eins mikið og hér á Ís-
landi. Konur í Víetnam hafa flest-
ar mun lægri laun en karlar, jafn-
vel þótt þær hafi sömu menntun
og sömu reynslu.“
– Hvar eiga konur í Víetnam
mesta atvinnumöguleika?
„Mjög fáar konur vinna í hinum
hefðbundnu karlastörfum, rétt
eins og hér. Þær vinna mikið í
þjónustustörfum og við sauma-
skap. Ekki eru til lífeyrissjóðir
þannig að fólk á oft í erfiðleikum
með að hætta að vinna ef það get-
ur ekki safnað í sjóði sjálft. Yfir-
leitt sjá börn um aldraða foreldra
sína í Víetnam.“
– Hvernig er heilbrigðiskerfið í
Víetnam?
„Fólk kaupir þar þjónustu og
þar er mjög dýrt t.d. að leggjast á
spítala. Mæðraskoðun og ung-
barnaskoðun er ekki ókeypis eins
og hér og hefur aldrei verið. Að-
eins bólusetningar eru ókeypis.
Almennar tryggingar voru stofn-
aðar nýlega en fáir eiga aðild
ennþá.“
– Hvað með húsnæðismál?
„Mjög lítið er um leiguhúsnæði í
Víetnam. Ef fólk getur ekki keypt
sér eigin íbúð þá verður það að búa
hjá ættingjum sínum. Þess vegna
eru stórfjölskyldur algengar,
einkum meðal verkafólks.“
– Hvað með hátíðahöld og at-
hafnir?
„Fólk fær frí 1. maí.
Hinn 2. september er
þjóðhátíðardagur og
hinir kaþólsku halda
jól. Áramót í Víetnam
eru reiknuð út á sér-
stakan hátt (reiknað
eftir tungli) og nú 23.
janúar er gamlárskvöld þar. Við
höldum áramót eins og á Íslandi
og allir fá frí í þrjá daga.“
– Haldið þið Víetnamar á Ís-
landi ykkar siðum?
„Nei, það er mjög erfitt, við að-
lögum okkur að mestu leyti því
sem gerist hér.
Katrín Thuy Ngo
Katrín Thuy Ngo fæddist 1963
í Haiphong í Norður-Víetnam.
Hún lauk prófi frá kennarahá-
skóla í heimalandi sínu og starf-
aði sem kennari í Hong Kong í
flóttamannabúðum. Hún kom til
Íslands árið 1991 og hefur starf-
að í efnalauginni Hvíta húsinu en
vinnur nú sem verkefnisstjóri í
móðurmálskennslu fyrir útlend
börn á Íslandi. Katrín á tvö börn.
Til er mjög
ríkt fólk í
Víetnam en
einnig er til
þar mikil
fátækt
AUGLÝST hafa verið fargjöld í svo-
nefndu Flugfrelsi til 10 áfangastaða
í Evrópu og hækkar farmiðaverð
kringum 30%. Fargjald milli Kefla-
víkur og Kaupmannahafnar verður
9.900 kr. en var í fyrra 7.400 og er
átt við fargjald aðra leiðina án flug-
vallarskatta. Þrír áfangastaðir frá
síðasta sumri detta út og þrír aðrir
eru teknir upp í staðinn.
Guðjón Auðunsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar,
sem stendur að Flugfrelsi, segir að
sætaframboð í ár verði 12 til 15 þús-
und en í fyrra var það um 25 þús-
und. Flugfélagið Atlanta annast
flugið að mestu en einnig eru fengin
sæti hjá LTU og Flugleiðum. Hann
segir tíðni ferða svipaða en notaðar
verða minni vélar en í fyrra.
Áfangastaðir í ár eru Kaupmanna-
höfn, Rimini, Benidorm, Mallorca,
Berlín, Frankfurt, München, Glasg-
ow, Rhodos og Faro í Portúgal en
þrír síðastnefndu staðirnir eru nýir.
Koma þeir í stað Lundúna, Zürich
og Basel. Guðjón segir mikið sæta-
framboð á London en Glasgow sé
vaxandi enda margt að sækja í
skoska hálendið og því hafi verið
ákveðið að taka hana með í Flug-
frelsi.
Verð aðra leiðina milli Glasgow og
Keflavíkur er 8.500 kr., til áfanga-
staða í Þýskalandi 12.400 kr., til
Ítalíu, Portúgals og Spánar 22.900
og til Rhodos 24.900. Flugvallar-
skattar eru á bilinu 1.805 til 2.730
kr.
Bókanir eru þegar hafnar og seg-
ir Guðjón sama frelsið og í fyrra að
verðið gildi hvenær sem flogið sé
eða bókað. Þá megi áfram fljúga til
eins áfangastaðar og heim frá öðr-
um. Í auglýsingunni var vísað á Net-
ið undir nafninu flugfrelsi.is en sé
bókað símleiðis er tekið 499 kr.
aukagjald. Nafn Samvinnuferða-
Landsýnar kemur ekki fram í aug-
lýsingunni og segir Guðjón það til að
undirstrika að Flugfrelsi sé sérstakt
fyrirkomulag á sölu ferða og þjón-
usta tengd því sé ekki veitt nema í
bókunarsíma og gegnum Netið.
Go byrjar í lok mars
Breska flugfélagið Go hefur til-
kynnt að flug þess milli Keflavíkur
og Lundúna hefjist 27. mars. Far-
gjald báðar leiðir verður 15 þúsund
krónur og er flugvallaskattur inni-
falinn. Jón Hákon Magnússon, tals-
maður Go á Íslandi, segir flugið hafa
gengið það vel í fyrra að ákveðið
hafi verið að byrja tveimur mán-
uðum fyrr. Flogið verður alla daga
vikunnar og stendur flugið út sept-
ember. Hlutur íslenskra farþega í
ferðum Go í fyrra var um fjórð-
ungur og segir Jón Hákon farþega
félagsins einkum viðbót fremur en
að það taki frá öðrum félögum.
Fargjöld í Flugfrelsi
hækka um nálega 30%
BYGGINGAR í hinu nýja Þúsaldarhverfi í Grafarholti
þjóta upp hver á fætur annarri þessa dagana. Samfara
þeim framkvæmdum er unnið að gatnagerð en ekkert
hverfi rís án þess að hafa brunahana. Starfsmaður
Orkuveitu Reykjavíkur prófar hér einn hana og er ekki
annað að sjá en að hann virki eins og vera ber.
Morgunblaðið/Golli
Brunahani prófaður