Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 11
SLÖKKVILIÐ höfuðborgar-
svæðisins var kallað út vegna
eldsvoða í íbúðarhúsi í Skipa-
sundi sl. laugardagskvöld. Þar
eyðilagðist íbúð og var íbúi í hús-
inu fluttur á slysadeild vegna
gruns um reykeitrun. Fjölskyld-
an sem í íbúðinni bjó var ekki
heima og ekki vitað hvar hún var
niðurkomin fyrr en hálfri annarri
stundu eftir að í kviknaði.
Eldurinn kom upp í anddyri
hússins, sem er hæð og ris, og
hafði ekki breiðst út er slökkvilið-
ið kom á vettvang. Slíkur hiti
hafði hins vegar myndast innan-
dyra að við eldsprengingu lá. Þá
hafði sót og reykur borist um alla
íbúðina, sem talin er ónýt af þess
völdum og hitans. Maður, sem
búsettur er í annarri íbúð í hús-
inu, hafði farið inn í íbúðina á
undan slökkviliðinu og var fluttur
á slysadeild vegna gruns um rey-
keitrun. Slökkviliðinu gekk greið-
lega að slökkva eldinn í húsinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Miklar skemmdir urðu í húsinu af völdum sóts og hita.
Eldur í íbúð
í Skipasundi
EFTIR athugun starfsmanna
Landssímans um helgina varð ljóst
af hverju sæstrengurinn Cantat 3
bilaði sl. föstudagskvöld og Inter-
netsamband Símans til Bandaríkj-
anna lá niðri í tæpa tvo tíma. Ljós-
gjafi í magnara, miðja vegu á milli
Íslands og Kanada, slökkti á sér af
ókunnum ástæðum. Eftir að orsök-
in var ljós var magnarinn settur
aftur í gang og reyndist hann þá í
lagi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Símanum munu tæknimenn skoða
næstu daga hvað olli því að ljósgjaf-
inn bilaði. Ekki er talin ástæða til
þess að það gerist aftur.
Samkvæmt fyrstu upplýsingum
frá Kanada var talið að um tækja-
bilun í Vestmannaeyjum hefði verið
að ræða en svo reyndist ekki vera.
Bilunin í Cantat 3
Ljósgjafi í
magnara
slökkti á sér
MAÐUR sem ógnaði hópi fólks með
haglabyssu var handtekinn í Sand-
gerði aðfaranótt sl. sunnudags.
Maðurinn miðaði vopninu á mann
og barði hann síðan í höfuðið með
vopninu. Að sögn lögreglunnar í
Keflavík var tilkynnt um slagsmál á
hlaði húss í Sandgerði. Þar var hóp-
ur manna samankominn og einn
maður sem veifaði þar haglabyssu.
Byssan var óhlaðin. Maðurinn var
handtekinn og yfirheyrður. Hald var
lagt á vopnið.
Miðaði hagla-
byssu á mann
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-
LÍF, sótti veikan mann til Patreks-
fjarðar í fyrrakvöld. Hann var með
alvarlega sýkingu í öndunarfærum.
Þyrlan fór í loftið í Reykjavík
klukkan 21:30 og lenti aftur með
sjúklinginn við Landspítalann í
Fossvogi tveimur klukkustundum
síðar.
Tveir læknar voru með í för þyrl-
unnar. Jón B. Garðarsson, yfir-
læknir á sjúkrahúsinu á Patreks-
firði, segir að sjúkdómur mannsins
hafi verið þess eðlis að ekki hafi
verið vogandi að flytja hann í
venjulegri sjúkraflugvél. Pláss hefði
verið fyrir einn lækni auk sjúk-
lingsins og það hefði ekki verið nóg
í þessu tilfelli. Af þeim ástæðum
var beðið um þyrluna. Jón segir að
þetta hafi ekki haft með neitt annað
að gera en rýmið til að athafna sig.
Hægt hefði verið að flytja sjúkling-
inn í þeim vélum sem Flugfélag Ís-
lands hefur en vonlaust sé fyrir tvo
lækna að fylgja sjúklingi í þeirri vél
sem hafi þjónað Patreksfirði und-
anfarin ár.
Ekki rúm fyrir tvo
lækna í sjúkraflugi
Þyrla Gæslunnar sótti veikan mann
SKRIFAÐ verður undir fyrsta
samninginn um sjúkraflug á allra
næstu dögum, að sögn Dagnýjar
Brynjólfsdóttur, deildarstjóra í heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
inu. Fyrsti samningurinn verður
gerður við Flugfélag Íslands. Hann
er lengst kominn og er auk þess
viðamestur. Um leið verður und-
irritaður samningur stuðningur við
áætlunarflug fyrir Norðurland við
Flugfélag Íslands. Dagný segir að í
framhaldinu verði skrifað undir
samninga við önnur flugfélög um
sjúkraflug.
Skrifað undir
á næstu dögum
Sjúkraflugið
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
tilkynnt um alvarlegt umferðarslys
við Sundlaugaveg og Reykjaveg á
sjötta tímanum á sunnudag. Tals-
verður viðbúnaður var af hálfu lög-
reglu en í ljós kom að um gabb var að
ræða og lítur lögreglan málið alvar-
legum augum.
Tilkynnt var um slys til sendibíla-
stöðvar í gegnum opið talstöðvarkerfi
sendibíls og hafði starfsmaður sendi-
bílastöðvar strax samband við neyð-
arlínuna.
Þrír lögreglubílar og að minnsta
kosti tveir sjúkrabílar voru sendir á
staðinn en þá kom í ljós að um gabb
var að ræða. Kannaðist starfsmaður
sendibílastöðvarinnar ekki við rödd
þess sem hafði samband í gegnum tal-
stöðvakerfið og tókst lögreglu ekki að
hafa upp á þeim sem stóð fyrir gabb-
inu. Að sögn lögreglu er talið líklegt
að einhver hafi komist inn í opinn
sendiferðabíl í borginni og logið til um
slys, en lögreglan segir að slíkt sé litið
alvarlegum augum og sé refsivert.
Mikill viðbúnaður vegna gabbs
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦