Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 37

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 37 narar til- i kennslu- ára starf Elna sagði ri þessi af- að grunn- mar á viku. ára starf ra starf 22 dur yrði og við 60 arar gætu elja þessi n frekari Kennslu- mar að 55 stundir og 9 stundir. boða sami urum sem num í dag. kkaði um r og fimm hins vegar kks hækk- f, samtals t við aðrar m væru eða sam- verulegar gerðar á ins. Í síð- erið farin ra en áður nutíma og nn hefðu um að sú nægilega væri fallið ðst í ríkari erðir um ekki væri undvallar- ennara. a úr úsund það væri rif samn- . Launa- ar en hún mynd um að nefna kennslu í BA- eða ð rúmlega unarlaun. num yrðu nur. Í lok 04 myndu þúsund á kennara slu myndu nd á mán- s. Meðal- kólakenn- samnings ur á mán- ilvægt að a kennara eð þessum ldarlauna dagvinnu breyting- áramótin fall upp í samning- inn væru skrifaðar sömu launa- breytingar og á almenna markaðin- um, þ.e. 3,9%, 3% og 3%. Síðasta hækkunin, sem kæmi til fram- kvæmda 1. janúar 2004, væri 1,5%. Samningurinn rynni úr gildi 1. apríl 2004. Hún sagði að kennarar hefðu kosið að fá meiri hækkanir í lok samningstímans en það hefði ekki náðst fram. Laun í sumar lækka ekki þrátt fyrir verkfallið Kennarar vinna að nokkru leyti af sér vinnu sem þeir ættu að inna af hendi yfir sumartímann með vinnu meðan kennsla stendur yfir í skólum. Með öðrum orðum er dag- vinnuvika kennara að vetri til ekki 40 stundir eins og flestra annarra stétta heldur u.þ.b. 47 stundir. Verkfall kennara, sem stóð í tvo mánuði, hefði af þessum sökum átt að leiða til umtalsvert lægri launa- greiðslna til kennara í sumar. Elna Katrín sagði að samið hefði verið um að þessi sumarskerðing kæmi ekki til framkvæmda gegn því að kennarar bættu við sig tiltekinni vinnu við að koma skólunum í gang að nýju að loknu verkfalli. Jafn- framt hefði verið samið um að bæta við starfstíma skólanna nokkrum dögum í vor svo að unnt væri að ljúka kennslu á þessu skólaári. „Í gegnum ýmsar breytingar á störfum og því að kennarar eru að taka á sig aukna ábyrgð tekst á samningstímanum að breyta dag- vinnulaunum þeirra og hlut þeirra í heildarlaunum. Það er mjög mik- ilvægt, meðal annars með tilliti til sumarlauna kennara og með tilliti til eftirlaunagrundvallar kennara. Þannig að það má segja að við erum að ná þarna mjög langþráðu tak- marki að komast upp úr láglauna- skurði dagvinnulaunanna,“ sagði Elna Katrín. „Að okkar mati eru kostnaðar- áhrifin af þessum samningi sam- bærileg og samningar á hinum al- menna vinnumarkaði byggðust á. Hins vegar eru líka í samningnum miklar kerfisbreytingar, annars vegar á mati á vinnutíma og hins vegar á launakerfinu,“ sagði Gunn- ar Björnsson, formaður samninga- nefndar ríkisins. „Við erum að fara úr mjög nið- urnegldu og miðstýrðu launa- ákvörðunarkerfi yfir í heldur opn- ara kerfi. Launakerfi framhalds- skólakennara byggðist fyrst og fremst á því að þeir fengu launa- hækkun á grundvelli mats á alls konar menntun, bæði námskeiðum og öðru. Þessu erum við að hverfa algjörlega frá og förum yfir í ein- faldara kerfi þar sem stjórnendur hafa meiri áhrif varðandi launa- setningu. Áhrif stjórnenda eru ekki eins mikil og við hefðum kosið en þetta er ásættanlegt að okkar mati. Forstöðumenn fá meiri áhrif á hvernig kennarar skila sínu vinnu- framlagi og okkur finnst mikill ávinningur af því. Í þessu felst sveigjanleiki,“ sagði Gunnar. Á síðasta ári greiddi ríkissjóður samtals um 4 milljarða í laun til framhaldsskólakennara. Gunnar vildi ekki gefa upp hver þessi tala yrði á þessu ári eftir gerð þessa samnings. Aukin lífeyris- réttindi Gunnar sagði ljóst að sú breyting á grunnlaunum kennara sem samið var um í samningnum fæli í sér hækkun á lífeyrisgreiðslum til kennara sem eru í B-deild Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins. Þetta ætti bæði við um þá sem þegar hefðu hafið töku lífeyris og eins kennara sem væru enn við kennslu og væru að vinna sér inn lífeyris- réttindi. Í B-deildinni taka lífeyr- isgreiðslur mið af launum eftir- manns í starfi. Í A-deildinni fara lífeyrisréttindin eftir iðgjalda- greiðslum sjóðsfélaga. Iðgjöldin, sem eru samtals 15,5%, eru greidd af heildarlaunum en þau hækka minna en grunnlaunin. Gunnar kvaðst ekki hafa ná- kvæmar upplýsingar um hvað margir kennarar væru í B-deildinni og því lægi ekki fyrir hvað útgjöld ríkissjóðs hækkuðu mikið af þess- um sökum. ar - a Morgunblaðið/Ásdís Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, og Elna Katrín Jónsdóttir, formaður Félags framhaldsskólakennara, takast í hendur eftir að hafa undirritað nýjan kjarasamning á sunnudagskvöld. Milli þeirra stendur Þórir Einarsson ríkissáttasemjari. Alls voru haldnir 60 fundir í deilunni. na sl. nn- tar lækk- m eru GEIR H. Haarde fjár- málaráðherra segist ánægður með að kenn- araverkfallinu skuli vera lokið og að skólastarfið sé komið í gang á ný. „Samningurinn er von- andi báðum aðilum til góðs. Í honum er gert ráð fyrir miklum skipulags- breytingum og tilfærslum launaliða. Þessi samn- ingur er alveg í takt við þau samningsmarkmið sem við höfðum sett okk- ur,“ sagði Geir. Geir telur að samning- urinn gefi skólastjórn- endum meira svigrúm og hægt verður að sníða starfið betur eftir hverjum skóla fyrir sig. „Ég tel að þessi samningur komi sér vel fyrir skólana og skólastjórnendur.“ Fjármálaráðherra sagði að líf- eyrisskuldbinding vegna þessa hóps myndi aukast eins og hjá öðrum ríkisstarfsmönnum. Hann sagðist telja að það hefði verið hægt að komast að þessari sömu niðurstöðu í samningunum án verkfalls. „Það er gott að þess- ari launadeilu skuli nú vera lok- ið. Ég vona að samningurinn sé góður fyrir báða aðila. Kennarar fá svipaða hækkun og var í samningum Verka- mannasambandsins. Þetta er því samningur sem er í takt við al- menna kauphækkun í landinu. Að vísu er þessi samningur lengri, eða til vorsins 2004,“ sagði fjármálaráðherra. Geir sagði að ekki væri búið að reikna út hvað þessi samn- ingur kostaði ríkið umfram þann gamla. Miklar breytingar að mati menntamálaráðherra „Stefnt er að því að ljúka skólastarfinu með skikkanlegum hætti miðað við það rof sem varð á því vegna verkfallsins,“ segir Björn Bjarnason mennta- málaráðherra. Hvorki er stefnt að því að kenna á laugardögum né lengra fram á sumarið. Samningarnir fela í sér viða- miklar breytingar á skólastarfi og m.a. mun sjálfstæði hvers og eins skóla aukast. Björn segir samninginn sem undirritaður var í gærkvöldi vera gífurlega breytingu. „Það er samið til langs tíma og um ákveðna þætti í skólastarfinu sem munu þróast með allt öðrum hætti en verið hefur í tíð fyrrverandi kjarasamninga og það verður tekið öðru vísi á málum,“ segir Björn. Hann segist ekki vera ósáttur við samninginn. Hann segir að nú verði unnið að framkvæmd á markmiðum samningsins því þau séu fleiri en breyt- ingar á launalið. Ráðherra vill ekki tjá sig um verkfallið sem slíkt og segir að nú sé unnið að því hörðum höndum í ráðu- neytinu að koma skólastarfinu af stað og leggja grunn að því að ljúka skólaárinu, auk þess að breyta reglugerðum í samræmi við kjarasamninga. Hann segir að breytingar á skólastarfinu muni verða nem- endum auðsjáanlegar. Hann seg- ir að þeir nemendur sem hafi íhugað að hætta námi séu sér- staklega hvattir til að mæta í skólann og kynna sér hvernig skólameistarar leggi það upp, hver á sínum stað, hvernig skólaárinu verði lokið, en það verður mismunandi eftir skólum. Björn bætir við að í samningnum núna muni sjálfstæði skólanna aukast og svigrúm skólameist- ara vaxa til að stýra sínum skól- um. Hann segir að breytingar á skólastarfinu muni hefjast núna fyrir sumarfrí skólanna. Fjármálaráðherra um nýjan samning framhaldsskólakennara Geir H. Haarde Björn Bjarnason Í takt við samnings- markmið ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.