Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 43

Morgunblaðið - 09.01.2001, Side 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 43 „Minningaröldur Sjómannadagsins“ fást á Hrafnistuheimilunum Sími: 585 9500 / 585 3000 Minningarkort ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstofa Íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. Sverrir Olsen útfararstjóri. Sverrir Einarsson útfararstjóri, sími 896 8242 Elskulegur föður- bróðir, Guðbrandur Einar, hlaut hægt andlát á gamlársdag. Það hvíldi friður yfir svip hans. Hann hafði ekki þrek til að hefja nýtt ár, nýja öld. Kærar minningar lifa og þær rifj- um við systurnar upp á góðum stundum. Okkar fyrstu minningar um Guðbrand eru vissulega um frændann í Svíþjóð. Sumar gjafirn- ar undir jólatrénu okkar báru með sér framandi, spennandi blæ. Þær voru sýnilega ekki keyptar í Kaup- félaginu í Borgarnesi. Nánari urðu kynnin þegar Guð- brandur og Herder fluttu til Ís- lands árið 1963 og bjuggu sér myndarlegt og fágað heimili fyrst á Ásvallagötu 1. Þar héldu þeir mér svo veglega fermingarveislu vorið 1964 að það verður lengi munað. Ég var stolt af hinum myndarlega föð- urbróður mínum og ánægð með að hann skyldi vilja vera svaramaður minn þegar að því kom. Guðbrandur var glaður í góðra vina hópi. Hann hafði gaman af að segja frá. Þannig hefur hann gefið okkur systrum hlutdeild í minning- um sínum frá bernsku- og æskuár- unum á Akureyri og gefið okkur skýrari mynd af fjölskyldu föður okkar, sem við misstum svo fljótt. Það var ljóst að þessar minningar voru honum mjög kærar. Fjöl- skyldan var stór og athafnasöm. Það var spilað og sungið á heimilinu og feðgarnir sungu allir í kórum. Samheldnin var mikil og ég minnist þess hve ég var stundum undrandi sem barn á samskiptunum í fjöl- GUÐBRANDUR E. HLÍÐAR ✝ Guðbrandur E.Hlíðar fæddist á Akureyri 9. nóvem- ber 1915. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 31. des- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogs- kirkju 8. janúar. skyldunni. Þar var allt eins og leikur og hver einstaklingur hafði sitt hlutverk þar sem amma var leikstjórinn. Nú hafa þau öll sam- einast í annarri tilveru og geta haldið leiknum áfram. Guðbrandur skemmti okkur systr- um og fjölskyldum okkar oft með söng og voru þá stúdentafagn- aðir í fjölskyldunni sérstök tilefni, nú síð- ast þegar nafni hans, Einar, og Anna Kristín settu upp sínar hvítu húfur fyrir rúmu ári. Elsku Herder, við vottum þér okkar innilegustu samúð um leið og við þökkum alla þá ást og um- hyggju sem þú hefur sýnt Guð- brandi og þá alúð sem þú lagðir við umönnun hans nú síðustu árin. Við systurnar, Guðrún Ingibjörg, Brynja, Hildigunnur, Jónína Vil- borg og Sigríður, og fjölskyldur okkar kveðjum Guðbrand með söknuði og þakklæti fyrir liðin ár. Hann lagði sitt af mörkum til að kenna okkur að ekkert er betra en góð fjölskyldubönd. Sigríður Hlíðar. Fáum árum eftir að ég gekk í Dýralæknafélagið var Guðbrandur Hlíðar, sem nú er kvaddur hinstu kveðju, kosinn formaður félagsins. Hann var þá nýlega kominn heim frá Svíþjóð þar sem hann hafði unn- ið um árabil við rannsóknastörf. Þar áður hafði hann verið héraðs- dýralæknir í Norðlendingafjórð- ungi og síðar í Skagafirði þegar þar var stofnað sérstakt umdæmi en af heilsufarsástæðum neyðst til þess að láta af embætti. Hann hafði nú tekið að sér forstöðu Rannsókna- stofu Mjólkursamsölunnar, sem þá hafði verið komið á fót fyrir fáum árum. Því starfi gegndi hann af vís- indalegri nákvæmni þar til hann lét af störfum fyrir aldurssakir. Það sem einkum vakti athygli var hvað Gubrandur flutti mál sitt af mikilli fágun og sannfæringar- krafti. Í hans formannstíð komu margskonar mál til umræðu. Meðal annars litu ný dýralæknalög dags- ins ljós, sem urðu dýralæknum, bændum og öðrum dýraeigendum til farsældar. Þó ber hæst á hans formannsferli þegar hann gekkst fyrir því að hér var haldið norrænt dýralæknaþing þjóðhátíðarárið 1974. Þetta hafði engum dottið í hug áður að væri nokkur vegur enda þótti mörgum mikið í fang færst,var þá óþekkt að ráðstefnur með 800 þátttakendur væru haldn- ar hérlendis. Guðbrandur lét ekk- ert aftra sér, hefur sjálfsagt vitað sem var að hann hafði góð sambönd í Skandinavíu og var þingið haldið hér með miklum glæsibrag með öllu því sem slíkri samkomu þykir til- heyra og býr DÍ enn þann dag í dag að þessu framtaki. Á hátíðum félagsins var Guð- brandur hrókur alls fagnaðar og var þá gjarnan forsöngvari enda tónelskur vel. Guðbrandur hafði mikinn metnað fyrir hönd sinnar stéttar enda af dýralæknum kominn í báðar ættir og munum við ætíð minnast hans sem góðs kollega og hins mætasta manns. Gunnlaugur Skúlason. Guðbrandur Einar Hlíðar dýra- læknir er látinn á 86. aldursári. Guðbrandur var félagi í dýralækna- félagi Íslands frá því hann kom heim úr námi 1944 og allt til dauða- dags. Guðbrandur var mikilvirkur dýralæknir og félagsmálamaður, mikill söng- og ræðumaður og hrókur alls fagnaðar á mannamót- um og leiddi þá gjarnan fjöldasöng. Hann vann mikið og gott starf fyrir dýralæknafélagið og var kosinn heiðursfélagi í viðurkenningar- skyni fyrir þau störf. Guðbrandur var formaður félagsins frá 1964– 1970. Meðal hugðarefna hans var stofnun Vísindasjóðs DÍ, sem síðan hefur styrkt dýralækna til fram- haldsnáms og hafa allnokkrir dýra- læknar fengið úthlutun úr sjóðnum og fært til landsins sérfræðiþekk- ingu sem dýr og dýraeigendur hér á landi hafa notið góðs af. Guð- brandur var framkvæmdastjóri fyrir norrænt dýralæknaþing 1974, hið fyrsta sem haldið var á Íslandi og má þakka honum að þingið þótti takast afburða vel. Fyrir hönd Dýralæknafélags Ís- lands vil ég votta aðstandendum samúð okkar við fráfall Guðbrands. Dýralæknar munu minnast hans með virðingu og þakklæti fyrir allt það starf sem hann innti af hendi fyrir félagið. Ólafur Valsson, formaður DÍ.                       !"  #                                    $   %  %  & '  ( '   ) ' * %  '   + ( '  (% , %  % -  )#  '   + ( %  %   .  ,' %  '      %  '   +  / 0% + ( ( %  '  1 +* * 2 '    %  % ) ' ) ' '   +  * %  %   /* )  ('   %  %  '   3 ( + (4#5 % 4  45  % 4  4  45 *                                              !"# $"%&#' ((# $#)&& +# ' ((# #&# , ## & & -#.  +# ' ((# +# "# +# & #/& 0&&1  && ' ((# &# (&#.2 &  #.34# (&#.2 ' ((# 5 . #&' ((# $"%& ' 6 & & $#   52# , #  # !7)#%                                                               " #  $#   %   %   $ & '     &   !  "  #$%&  (%("&& ") $ ("&& "*  + $&  ) *  $                   !""#" $% &' "#!(  " ) "#")% *' +,                   !" "    "! $+ # - $ %" # - ." # - /  0 1 " 2 3 "& $ %"  + %") "$ %"2                                              !   "      !"#$%%   !" &   %' "( & #$%%  " )"& ( *" "*+ ,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.