Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 45

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 45
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 45 STÓRÚTSALA Skipholti 35 - sími 553 5677 Opið kl. 10-18 Opið laugardagakl. 10-14 Gardínuefni frá 100 kr. metrinn Rúmteppaefni á 995 kr. metrinn Öll jólaefni á 200 kr. metrinn Stórísar, blúndur, vóal og kappar 20—70% afsláttur og nákvæm röðun ríkja kunni að taka einhverjum breytingum í fram- tíðinni eftir því sem hin nýja vísitala er þróuð betur, þá er það ljóst að Ís- land skipar sér á bekk með þeim þjóðum sem fremst standa í um- hverfismálum og ábyrgri nýtingu náttúrunnar. Sú staðreynd minnir okkur á að standa vörð um það sem vel er gert en er um leið hvatning til okkar um að hægt sé að gera betur. Ísland verði í fararbroddi Það er metnaður okkar að vera ekki aðeins á „topp tíu“ lista hvað sjálfbæra þróun samfélagsins varð- ar, heldur eigum við að reyna að vera í fararbroddi á sem flestum sviðum. Við erum háðari gæðum náttúrunn- ar en flestar aðrar þjóðir og eigum að vera fyrirmynd í sjálfbærri nýt- ingu þeirra. Árangur Íslendinga á sviði ábyrgrar fiskveiðistjórnunar og nýtingar endurnýjanlegra orkugjafa hefur vakið athygli víða um heim. Bylting hefur orðið í meðferð úr- gangs á liðnum árum og stór skref verða stigin í náttúruverndarmálum á næstu misserum með stofnun nýrra þjóðgarða og gerð samræmdr- ar náttúruverndaráætlunar. Þátt- taka í gerð umhverfisáætlana í sveit- arfélögum undir merkjum Staðardagskrár 21 hefur verið fram- ar vonum. Þannig mætti lengi telja. Það er gróandi í umhverfismálum á Íslandi. Í lok þessa mánaðar verður haldið Umhverfisþing, hið annað í röðinni, þar sem farið verður yfir árangur undanfarinna ára og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. Kynnt verða drög að nýrri áætlun Íslands um sjálfbæra þróun. Með henni er ætl- unin að skerpa áherslur Íslendinga og framtíðarsýn í umhverfismálum og auka enn lýðræðislega umfjöllun um hvert við viljum stefna og hvern- ig við viljum ná markmiðum okkar. Hin nýja umhverfisvísitala ætti að vera okkur góð hvatning á þeirri vegferð. Höfundur er umhverfisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.