Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 60

Morgunblaðið - 09.01.2001, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um öryggismál vegfarenda á Reykjanesbraut allt frá tilkomu hennar til dagsins í dag. Það er rétt að töluverður fjöldi slysa hef- ur þar orðið og enn fleiri hugs- anlegum slysum verið afstýrt á síðustu stundu. Margir eiga um sárt að binda vegna umferðarslysa þar og annars staðar á Íslandi. Umræðan nú síðustu mánuði hefur töluvert snúist um þá ósk margra að Reykjanesbrautin verði tvöföld- uð. Um nokkurt skeið var þrýst á um að fá hana raflýsta og er svo nú, en þrátt fyrir raflýsinguna verða slysin. Ég las nýverið bréf til blaðsins frá lesanda í Reykjanesbæ, sem ræðir um hraðahindranir á braut- inni ásamt virkara eftirliti. Ég held að það sé hugsanlega ein af lausnunum. Tvöföldun ein og sér held ég að muni bæta ástandið hvað slysatíðni varðar að nokkru leyti. Tvöföldun brautarinnar er nauðsynleg, framkvæmd sem mun koma, en hún er engin töfralausn. Við verðum að meta aðstæðurnar eins og þær eru akkúrat núna og reyna að vinna úr þeim með raun- sæjum hætti. Starfs míns vegna fer ég oft um Reykjanesbrautina, jafnvel eitt hundrað sinnum í hvora áttina ár- lega og hef því miður eins og margir komið að nokkrum slysum. Nýlega var ég með þeim mörgu sem komu að slysi á Reykjanes- braut þar sem sex ungmenni höfðu velt bíl sínum og lá hann á hvolfi fyrir utan veg og var bílstjórinn fastur í flakinu. Margir þeirra sem að slysi þessu og væntanlega að öðrum slíkum hafa komið voru með farsíma og gátu því strax haft samband við neyðarlínuna, sem kom hjálparbeiðnum áfram. Þótt hringt hafi verið og beðið um hjálp er ekki þar með sagt að hjálpin sé þá þegar á staðnum. Það getur lið- ið þó nokkur tími þangað til sjúkrabifreiðir, tækjabifreiðir, lög- gæzla og aðrir sem starfa við þessi mál koma á vettvang. Sá tími er oft langur að líða og það var svo sannarlega í þessu sem og í öðrum svipuðum tilfellum sem ég hefi séð. Þegar til dæmis bifreiðaslys verður og slasaðir eru margir og kalt er í veðri, snjór og rok, þarf fljótt að finna til skjólflíkur, teppi og allt annað sem gæti orðið til hjálpar og hlúa eins og bezt verður að hinum slösuðu áður en aðstoð lærðra sjúkraflutningamanna og lækna berst. Hinn almenni vegfar- andi vinnur oft ómetanlegt starf við slysaaðstæður og kemur þá greinilega í ljós að fjölmargir hafa sótt skyndihjálparnámskeið og búa að þeim. Það er mitt álit að feng- inni reynslu við að koma að þó nokkrum slysum, bæði á Reykja- nesbraut og annars staðar, að menn verða að meta vandlega hvað hægt er að gera til úrbóta, hvernig hægt er að vinna úr þeim aðstæðum sem eru fyrir hendi. Reykjanesbrautin er hættuleg vegfarendum af nokkrum ástæð- um. Fyrst skal nefna of hraðan akstur miðað við aðstæður. Nagla- dekk grafa víða djúpar raufir í veginn og þar leggst vatn og myndast þá ís í raufarnar þegar frost er og hættan augljós. Frekar lítið eftirlit virðist vera á veginum að undanskildum einstaka hraða- mælingum. Allir þeir sem vinna við lög- gæzlu, sjúkraflutninga og aðra neyðarhjálp eiga skilið meiri skiln- ing og hjálp við sín störf. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort ekki væri við hæfi að stað- setja einn sjúkrabíl í Vogunum. Það myndi stytta aðkomu fyrstu hjálparinnar um einhverjar mín- útur, enda hafa mörg slys orðið á þeim slóðum. Þá tel ég að það yrði fyrirbyggjandi aðgerð að koma upp litlum neyðarskýlum líkum þeim sem víða eru við hálendisvegi og meðfram ströndum landsins. Í þessum neyðarskýlum væru teppi og annar hlífðarbúnaður sem veg- farendur gætu sótt til þess að geta hlúð betur að hinum slösuðu þang- að til önnur hjálp berst. Það væri ódýr og ómetanleg aðgerð til þess að bæta ástandið þegar menn koma á slysstað. Ef reist yrðu fjögur til fimm slík skýli meðfram veginum og ein lögreglubifreið yrði ávallt höfð í ferðum til þjón- ustu reiðbúin og til þess að minna ökumenn á að halda akstri sínum innan löglegra marka held ég að slysum myndi snarfækka. Skýlin yrðu til staðar í neyð með hlífð- arbúnaði og skýlin myndu einnig minna menn á þá dauðans alvöru sem akstur er og þá ábyrgð sem fylgir því að hafa ökuskírteini und- ir höndum. Tökum höndum saman og hug- leiðum þessa hugmynd í alvöru. Margir eiga um sárt að binda vegna tíðra umferðarslysa. Sýnum þeim öllum virðingu og vinnum að því að bæta allt akstursumhverfi Reykjanesbrautar, sem og alls staðar um vegakerfi lands okkar. FRIÐRIK ÁSMUNDSSON BREKKAN Hringbraut 75, Hafnarfirði. Neyðarskýli við Reykjanesbraut Frá Friðriki Á. Brekkan: Morgunblaðið/Gunnlaugur Það yrði fyrirbyggjandi aðgerð, að mati greinarhöfundar, að koma upp litlum neyðarskýlum við Reykjanesbraut.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.