Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 65

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 65
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 65 BRASILÍSKI söngvarinn og gítar- leikarinn Max Cavalera á ansi glæsi- legan feril að baki og þá sérstaklega með hljómsveitinni Sepultura, sem hann og Igor, bróðir hans, stofnuðu snemma á níunda áratugnum. Sepult- ura átti stóran þátt í að koma hrash/ death-metal-tónlistinni á hærra flug. Eftir að hafa slegið allrækilega í gegn með hinni ógurlegu Beneath The Remains árið 1989 létu þeir ekki á sér standa og sendu frá sér hvert meist- arastykkið á fætur öðru, Arise, Chaos A.D. og síðast en ekki síst Roots en það er síðasta plata Max með Sepult- ura. Hún er af mörgum talin vera upphafið á ný-metal-stefnunni sem á gríðarlegum vinsældum að fagna um þessar mundir. Eftir að Max sagði skilið við Sepult- ura stofnaði hann fljótlega hljóm- sveitina Soulfly. Hljómsveitin sendi sína fyrstu plötu frá sér fyrir tveimur árum og á henni mátti finna ágætis spretti þó svo að ekki sé hægt að tala um að hún sé eitthvert meistaraverk. Orðið „hljómsveit“ hæfir sennilega ekki Soulfly þar sem mikið hefur ver- ið um mannabreytingar og gesta- söngvarar skipað stóran sess á plöt- um sveitarinnar. Nýlega kom út önnur plata Soulfly og ber hún nafnið Primitive. Platan er troðfull af gestasöngv- urum og við fyrstu kynni er ekkert sér- lega góð lykt af stykk- inu. Back To The Primi- tive er fyrsta lag plötunnar og er, að mér finnst, ekkert sérlega spennandi. Gítarleikur lags- ins er leiðinlega óspennandi en það var jú hann sem maður féll einna helst fyrir á gullaldarár- um Sepultura. Fátt annað en blóts- yrði kemur fram í texta lagsins sem er heldur hallærislegt. Í laginu „Pain“ má heyra Grady Avenell, söngvara hljómsveitarinn- ar Will Haven, og Chino Moreno úr Deftones. Lagið hefur því miður ekki uppá margt að bjóða en þeir Grady og Chino komast þó vel frá sínu. Þá er það „Bring It“. Einfalt, kraft- mikið lag með rólegum millikafla sem brýtur lagið skemmtilega upp. Tví- mælalaust betra en lögin tvö á undan. Corey Taylor, söngvari Slipknot, mætir til leiks í „Jumpdafuckup“. Taylor kemur ágætlega út í laginu sem skilur heldur ekki mikið eftir sig frekar en hin lögin á undan. Mjög dæmigert ný-metal-lag. Melódískt vers og öskur-viðlag. Formúlulag nánast frá a til ö. Einn og einn kafli sem stendur upp úr en heildarmynd lagsins engan veginn fullnægjandi. Með laginu „Mulambo“ birtir loks aðeins til á Primitive. Skemmtilega útfært vers þó að viðlagið nái ekki al- veg flugi. Hér syngur Max ásamt The Mulambo Tribe á móðurmáli sínu, portúgölsku. „Son Song“ er næst og þar má, sem fyrr, finna gestasöngvara. Það er Sean Lennon sem hingað til hefur ekki haft mikil afskipti af þungarokki. Hér má heyra stemningu sem er töluvert frábrugðin hinum lögunum. Hljóðfæraleikur er aðeins afslappaðri en þó ekki um of. Auk þess að syngja leikur Sean á gít- ar, píanó og orgel og kemur það ágæt- lega út. Skásta lag plötunnar til þessa og bandið sýnir á sér nýja hlið. Við tekur lagið „Boom“ sem nær ekki að rífa Soulfly upp úr meðal- mennskunni og er litlu skárra en upp- hafslög plötunnar. Enn á ný fáum við vænan skammt af orðinu „fuck“ í texta lagsins. Það er sjálfur Tom Ar- aya, söngvari hljómsveitarinnar Slay- er, sem hjálpar til í laginu „Terrorist“. Lagið er ágætt, mikið um kaflaskipti og loksins eitthvað að gerast á gít- arnum. Terrorist er langbesta lag Primitive og það er ekki síst fyrir til- stilli Tom Araya. „The Prophet“ má setja undir sama hatt og upphafslög plötunnar, þunnt ný-metal-lag þar sem fátt er um fína drætti. „Soulfly II“ er instrumental- lag leikið á slagverk, píanó og strengjahljóðfæri. Vel útfært og ljúft lag. „In Me- mory of...“ er lag til heiðurs nokkrum föllnum félögum og ætti frekar heima á hip- hop-plötu en hér en er þó alveg ágætt. Hér eru þrír meðlimir Cutthroat Log- ic mættir Max til stuðnings. „Flyhigh“ er ágætis lag ef undan- skilið er hörmulegt viðlag sem passar engan veginn inn í. Þar heyrum við kvenmannsrödd syngja línu sem gæti sómt sér vel í R’n’B-lagi! Ekki veit ég alveg hvað Max er að fara með þessu lagi. Ég vona að Max Cavalera hætti þessum eilífa eltingaleik við peninga og komi með alvörurokkplötu næst. Hann hefur sýnt það og sannað að hann er með betri lagasmiðum sem komið hafa fram í rokkinu undanfar- inn áratug og gaman væri að sjá hann nýta þá hæfileika til fullustu. Ég þyk- ist nokkuð viss um að þessi lög eigi eftir að sóma sér vel á tónleikum en Soulfly hefur getið sér gott orð fyrir kraftmikla spilamennsku á tónleikum og vakti m.a. mikla athygli á Ozzfest- hátíðinni í Bandaríkjunum í sumar. Primitive er því miður langlakasta plata Max Cavalera til þessa og ég vona að hann rífi sig upp úr þessu rugli. Hann hef- ur upp á margt að bjóða þegar hann tek- ur sig til. ERLENDAR P L Ö T U R Smári Jósepsson, útvarps- og tónlistarmaður, skrifar um Primitive með Soulfly.  Cavalera í ruglinu Primitive er önnur plata Soulfly, hljómsveitar Sepultura- söngvarans fyrrverandi Max Cavaleras. VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 4507-4100-0006-6325 4548-9000-0056-2480 4543-3700-0027-8278 4507-4500-0028-0625 4507-2800-0004-9377                                  !  "# "$% & '    ()( )$$$ Opið frá kl. 10.00 til 18.00 Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. ALVÖRU ÚTSALA Ótrúlega lágt verð 70-80% afsláttur H E F S T Í D A G Dæmi um verð Áður Nú Bolur 2.600 600 Vatterað vesti 3.400 900 Bómullarpeysa 5.800 900 Dömuskyrta 4.500 900 Turtleneck-bolur 3.500 800 Slinky-sett 5.900 1.200 Sítt pils 3.200 900 Dömugallabuxur 4.600 1.300 Herraflíspleysa 4.300 1.200 Herraskyrta 4.300 900 Einnig fatnaður í stærðum 44-52

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.