Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
UM 3.500 lítrar af gasolíu láku út
um gat á neðanjarðarolíuleiðslu við
höfnina í Keflavík í hádeginu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá Heil-
brigðiseftirliti Suðurnesja fór mest-
ur hluti olíunnar í jarðveg um-
hverfis lögnina en eitthvert magn
mun hafa farið í sjóinn.
Olíumengaður jarðvegur var
grafinn upp og sendur til förgunar
en ekki þótti ástæða til frekari að-
gerða. Litlir flekkir mynduðust í
sjónum en Guðjón Ómar Hauksson
umhverfisfulltrúi hjá Heilbrigð-
iseftirlitinu segir að gasolían muni
að öllum líkindum gufa hratt upp
og ekki sé tilefni til þess að álíta að
umhverfinu stafi hætta af.
Tæringargat kom á olíulögnina
þegar verið var að dæla olíu úr
olíuflutningaskipinu Lauganesi í
olíubirgðastöð Olíudreifingar ehf.
við Vatnsnes. Starfsmenn rafiðn-
aðarfyrirtækis við höfnina urðu
fyrstir varir við lekann og til-
kynntu um hann. Dælingu úr skip-
inu var þegar hætt en samkvæmt
upplýsingum frá Olíudreifingu
hafði hún aðeins staðið í skamma
stund.
Ástand lagnarinnar kannað
Gestur Guðjónsson, umhverfis-
og öryggisfulltrúi hjá Olíudreifingu
hf., segir gatið sem kom á lögnina
aðeins hafa verið um 5 mm. Mikill
þrýstingur sé hinsvegar á slíkum
lögnum og því hafi svo mikið magn
lekið út. Gert verður við lögnina í
dag og jafnframt mokað upp meiri
jarðvegi ef ástæða þykir til.
Samkvæmt upplýsingum frá heil-
brigðiseftirlitinu er olíubirgðastöð-
in í Vatnsnesi nokkuð gömul og
ekki búin þeim mengunarvörnum
sem reglugerð um varnir við ol-
íumengun í landi gerir ráð fyrir.
Olíufélögin hafi frest til ársins 2005
til þess að koma öllum olíubirgða-
stöðvum í viðunandi horf. Heil-
brigðiseftirlitið mun kanna ástand
lagnarinnar og hún metin með
þykktarmælingum og þrýstiprófi.
Tæringargat á olíulögn við Keflavíkurhöfn
Um 3.500
lítrar af
gasolíu
láku út
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Jarðvegur umhverfis olíulögnina var fjarlægður og sendur til förgunar.
DAGLEGAR reykingar Íslendinga
hafa aldrei verið minni en á árinu
2000. Samkvæmt þremur könnunum
PricewaterhouseCoopers voru dag-
legar reykingar í aldurshópnum 18-
69 ára 25%, sem er það minnsta frá
upphafi mælinga. Þetta kemur fram
í fréttatilkynningu frá tóbaksvarnar-
nefnd. Reykingar karla mældust
25,5% en kvenna 24,4% og er þetta í
fyrsta skipti frá árinu 1997 sem kon-
ur reykja minna en karlar. Úrtak í
könnununum var 1.400 manns og
náði yfir allt landið.
!!
"
Minnstu reyk-
ingar frá upp-
hafi mælinga
Skv. fréttatilkynningu frá Flugleið-
um í gær hefur viðhaldsstöðinni ekki
tekist að tryggja erlend viðhalds-
verkefni eins og ráð hafði verið fyrir
gert en fimmtungur starfseminnar
er byggður á slíkum verkefnum.
Samdráttur í starfseminni sé neyð-
arúrræði og harmar félagið það ef
grípa þarf til jafn margra uppsagna
og horfur eru nú á. „Miðað við
rekstrarstöðu í alþjóðaflugi og stöð-
una á alþjóðlegum viðhaldsmarkaði
telur félagið hins vegar ekki aðra
kosti mögulega. Komi til uppsagna
verður farið eftir starfsaldri hvað
flugvirkja varðar í samræmi við
kjarasamninga,“ segir í tilkynning-
unni.
Að sögn Guðjóns Valdimarssonar,
formanns Flugvirkjafélags Íslands,
er flugvirkjum mjög brugðið vegna
þessara tíðinda. Hann segir að lítið
sé hægt að segja um málið enn sem
komið er. Haldinn hafi verið einn
samráðsfundur með félaginu og ann-
ar boðaður eftir viku. „Það er ekki
komið í ljós ennþá hvort við getum
gert eitthvað til að breyta þessari
stöðu en eins og er þá lítur þetta
svona út,“ sagði hann.
Aðstoða við atvinnuleit
hér á landi og erlendis
Guðjón segir litla atvinnumögu-
leika fyrir flugvirkja á Íslandi en
mikil eftirspurn sé eftir flugvirkjum
erlendis. Haft er eftir Sigurði Helga-
syni, forstjóra Flugleiða, í tilkynn-
ingu félagsins í gær að Flugleiðir
muni kappkosta að aðstoða þá sem
missi vinnuna í atvinnuleit bæði á Ís-
landi og erlendis. „Við kynntum
stöðu mála fyrir trúnaðarmönnum í
viðhaldsstöðinni í gær og þar kom
fram vilji hvorra tveggja að sameina
kraftana til að draga sem verða má
úr áfallinu sem þessu óhjákvæmilega
fylgir,“ er haft eftir Sigurði.
Miklar kostnaðarhækkanir í flug-
rekstri undanfarin misseri leiða til
þess að Flugleiðir hafa verið að gera
breytingar á flugáætlun sinni. Meðal
annars hefur verið dregið úr vetr-
arflugi um 10–15%. Flugvélarnar
eru því tiltækar til viðhalds á lengra
tímabili yfir veturinn. Í fréttatil-
kynningu félagsins segir að þetta
eigi sinn þátt í að tryggja hag-
kvæmni þess að hafa stórskoðanir
eigin flota áfram hér innanlands.
Félagið hefur einnig skipulagt sum-
aráætlun sína þannig að unnt er að
sinna reglubundnum skoðunum á
sumrin í dagvinnu í stað næturvinnu
áður, sem gerir það hagkvæmt að
sinna þeim þætti hér á landi.
Engin verkefni
fyrirliggjandi 2001
Flugleiðir opnuðu viðhaldsstöðina
á Keflavíkurflugvelli árið 1993, en
þar starfa um 220 manns. Megin-
verkefni stöðvarinnar hefur verið
viðhald eigin flugflota. Félagið hefur
hins vegar sótt inn á erlendan við-
haldsmarkað til að styrkja starfsem-
ina og á undanförnum árum samið
við ýmis erlend flugfélög um við-
haldsverkefni og hafa flugvirkjar
Flugleiða sinnt þessu í Keflavík.
Vegna breyttra ytri aðstæðna hefur
þrengt að á markaðnum undanfarin
tvö ár og nú eru engin verkefni fyr-
irliggjandi á árinu 2001. „Ástæðan er
stóraukin samkeppni um viðhalds-
verkefni, kostnaðarhækkanir hér
innanlands og fjarlægð frá markaði,“
segir í fréttatilkynningu félagsins.
Flugleiðir kynna samdrátt í starfsemi viðhaldsstöðvar á Keflavíkurflugvelli
Útlit fyrir að 48 starfs-
mönnum verði sagt upp
STJÓRNENDUR Flugleiða kynntu í gær starfsfólki í tæknistöð félags-
ins á Keflavíkurflugvelli breytingar sem félagið telur að gera þurfi á
starfsemi viðhaldsstöðvarinnar vegna verkefnaskorts. Eins og staðan er
nú telur félagið horfur á að fækka þurfi um 48 stöðugildi í viðhaldsstöð-
inni, sem myndi þýða að 38 flugvirkjum og 10 almennum starfsmönnum
viðhaldsstöðvarinnar yrði sagt upp störfum.
ODDEIRSHÓLAVEGUR í
Hraungerðishreppi var opn-
aður fyrir umferð í gær eftir
tveggja daga lokun vegna
flóðanna í Hvítá. Vegurinn er
þó enn grófur og ekki ráðlagt
að aka hann á smábílum.
Langholtsvegur er hins
vegar enn lokaður þar sem
enn flæðir yfir hann við Suð-
urlandsveg.
Vegagerðin á Selfossi hóf
lagfæringar á vegunum í gær.
Mjólkurbíll og skólabíll kom-
ust leiðar sinnar eftir Odd-
geirshólavegi og er lífið farið
að færast í eðlilegt horf að
sögn Ragnheiðar Jónsdóttur á
Litlu-Reykjum. Eftir er þó að
fara nánar yfir tjón til að unnt
sé að ákvarða tryggingabæt-
ur.
Oddgeirs-
hólavegur
opnaður á ný
FORMENN stjórnarandstöðuflokk-
anna á Alþingi sendu Halldóri
Blöndal, forseta Alþingis, bréf í gær
þar sem þeir krefjast þess að forseti
úrskurði hvort vísa beri frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um breytingar á
lögum um almannatryggingar frá.
Halda þeir því fram að frumvaprið sé
óhæft til afgreiðslu á Alþingi þar
sem það brjóti í bága við stjórnar-
skrána.
„Þetta stjórnarfrumvarp er lagt
fram af ríkisstjórninni með lögform-
legum og venjulegum hætti og hefur
verið staðfest með undirskrift for-
seta Íslands, samanber 25. grein
stjórnarskrárinnar. Það eru því eng-
ar forsendur fyrir því að ég hafi vald
til þess að vísa málinu frá, síður en
svo. Það er Alþingi sjálft sem ræður
örlögum lagafrumvarpa eftir að þau
hafa verið lögð fram,“ sagði Halldór
Blöndal í samtali við Morgunblaðið.
Segja að frumvarpið
sé með öllu óþinglegt
Í bréfinu, sem Sverrir Her-
mannsson, formaður Frjálslynda
flokksins, Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, og Össur Skarp-
héðinsson, formaður Samfylkingar-
innar, skrifa undir, segir að það sé
álit þeirra að frumvarpið sé með öllu
óþinglegt með þeim rökum, að frum-
varpið, ef það verður að lögum,
hrindi dómi Hæstaréttar sem byggð-
ur sé á ákvæðum stjórnarskrár lýð-
veldisins, en ákvæði stjórnarskrár-
innar hafi þingmenn lagt við
drengskap sinn að virða, enda frá-
leitt að bera fram frumvarp til laga á
Alþingi sem innihaldi lagaákvæði
sem brjóti í bága við stjórnarskrá.
Því sé frumvarpið með öllu óþinglegt
og beri að vísa því frá sem óhæfu til
afgreiðslu á hinu hæfa Alþingi.
Frumvarpið verður tekið til fyrstu
umræðu á Alþingi í dag kl. 10.30.
Stjórnarandstöðuflokkar vilja að
öryrkjafrumvarpinu verði vísað frá
Forseti Alþingis
segir enga for-
sendu frávísunar
PILTURINN, sem fannst lát-
inn í höfninni á Suðureyri á
sunnudaginn, hét Sigurður Páll
Jórunnarson. Hann var átján
ára gamall, fæddur 18. febrúar
1982. Hann var búsettur á Suð-
ureyri.
Útför Sigurðar Páls verður
gerð frá Grafarvogskirkju í
Reykjavík mánudaginn 22.
janúar kl. 14.
Fannst
látinn