Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ BORGARRÁÐI Reykjavíkur og starfsmönnum Strætisvagna Reykjavíkur var í gær kynnt skýrsla Skúla Bjarnasonar, hrl. og ráðgjafa borgarstjóra, þar sem lagt er til að stofnað verði sameignarfélag í eigu allra sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu til að annast strætisvagna- samgöngur í öllum sveitarfélögun- um. Félagið taki til starfa 1. júlí nk. og ákvörðun um stofnun þess verði tekin fyrir 1. mars nk. Fram kemur í niðurstöðum skýrsl- unnar að gera megi ráð fyrir 130 m.kr. sparnaði í rekstri í kjölfar sam- einingar SVR og AV og útboða á hluta starfseminnar í áföngum. „Þá er eftir að taka tillit til ýmissa þátta svo sem minni kostnaðar í yfirstjórn vegna minnkaðs rekstrarumfangs,“ segir í skýrslunni. Fram kemur að áætluð gjöld SVR á þessu ári verði 1.170 m.kr. og að þar af verði 611 m.kr. fjármagnaðar með framlagi úr borgarsjóði en fargjöld nemi 572 m.kr. Lagt er til að í tilraunaskyni verði fylgt þeirri þróun í nágrannalöndun- um að skilja að hluta til stefnumótun og þjónustukaup annars vegar og rekstur samgöngutækja hins vegar. Boðnir verði út í auknum mæli til reynslu einstakir rekstrarþættir, svo sem tiltekinn hluti af akstrinum til að auka aðhald og kostnaðarvitund og búa þannig til raunhæfan saman- burðargrundvöll. Sá sparnaður sem næðist með sameiningu og aukningu útboða yrði nýttur til þess að efla starfsemina að öðru leyti. Þá er lagt til að framlög til almenningssam- gangna verði aukin, a.m.k. tímabund- ið, til að gera starfsemina meira að- laðandi, áreiðanlega og samkeppn- ishæfa við annan samgöngumáta. Framlög til almenningssamgangna séu ekki glatað fé heldur leiði til beins sparnaðar ef rétt er á málum haldið. Megintillaga skýrsluhöfundar er að stofnað verði sameignarfélag í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu. Hlutverk þess verði að ann- ast í umboði eigenda umsjón og eða framkvæmd almenningssamgangna á höfuðborgarvæðinu. Félagið starfræki almennings- vagnaþjónustu á svæðinu á einu leiðakerfi og leiti hverju sinni að hag- kvæmustu leiðum í rekstri og starf- rækslu þess hvort heldur það notar til þess eigin vagnflota eða aðkeypta þjónustu. Undirbúningur að stofnun félags- ins hefjist þegar fyrir liggur formlegt samþykki væntanlegra eigenda og skuli stefnt að stofnun eigi síðar en 1. mars nk. og að fyrirtækið taki til starfa 1. júlí nk. Það verði sjálfstæð- ur aðili með eigin stjórn og skuli inn- viðir fyrirtækisins vera með sem lík- ustum hætti og í hlutafélagi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins verði eins miðsvæðis á höfuðborgarsvæð- inu og við verður komið og hag- kvæmt þykir og skuli ákvörðun um staðarval verða óháð umdæmamörk- um. Tryggður verði réttur allra sam- eigenda til að ákvarða umfang og tíðni þjónustu innan hvers sveitar- félags. Starfsmönnum auðvelduð þátttaka í útboði Hvað varðar útboð í tilraunaskyni, sem fyrr var rakið, er lagt til að starfsmönnum verði auðvelduð þátt- taka ef þeir kjósa, enda verði um samkeppnishæft verð að ræða. Að fenginni reynslu og samanburði á út- boðum og eigin akstri verði mörkuð útboðsstefna og hagkvæmasti kost- urinn valinn. Tryggt skuli að enginn einn verktaki nái þeirri stöðu gagn- vart fyrirtækinu að leiði til fákeppni eða útiloki aðra alveg frá þátttöku. Í því sambandi skuli sérstaklega metið hvort sá hluti núverandi vagnaflota, sem fyrirtækið mundi ekki nýta, yrði leigður eða seldur verktökum í heild eða að hluta. Núverandi starfsmenn verði áfram starfsmenn viðkomandi sveit- arfélags nema þeir óski eftir öðru, enda verði gerður samningur milli fyrirtækisins og sveitarfélagsins um það. Nýir starfsmenn verði hins veg- ar ráðnir hjá fyrirtækinu sjálfu. Áhersla á samráð og upplýsingar til starfsmanna Jafnframt segir að við stofnun fyr- irtækisins skuli núverandi starfs- mönnum SVR gefinn kostur á að flytja sig til fyrirtækisins þannig að þeir njóti sambærilegra kjara í hví- vetna, eða að minnsta kosti ekki lak- ari kjara en nú er. Áhersla er lögð á að starfsmenn skuli hafðir með í ráð- um um hvernig best verði staðið að framkvæmd sameiningarinnar og að mikilvægt sé að halda þeim ávallt upplýstum. Fram kemur í skýrslunni að starfsmannavelta fyrirtækisins sé mjög mikil. 31% starfsmanna SVR hafi aðeins 1-2 ára starfsaldur að baki og 52% hafi starfað þar í fimm ár eða skemur. Hröð starfsmannavelta auki möguleika á að breyta rekstrarformi og feta í áföngum braut útboða án þess að raska stöðu þeirra sem kjósa að búa við óbreytt umhverfi. Hvað varðar stofnefnahagsreikn- ing hins nýja félags, sem í skýrslunni hefur vinnuheitið StórReykjavíkur- Strætó (SRS), segir að við gerð hans skuli við það miðað að eignir SVR í vélum, tækjum og aðstöðu verði ým- ist lagðar inn sem stofnframlag, leigðar eða seldar félaginu með hag- stæðum kjörum þannig að tryggt yrði að upphafsfjármögnun mundi hvorki íþyngja félaginu né eigendum þess. Sérstök matsnefnd úrskurði um verðmæti eigna. Núverandi að- staða og fasteignir SVR verði seldar eða látnar ganga til borgarinnar með öðrum hætti þegar fyrirtækinu hafa verið fundnar nýjar höfuðstöðvar. Samstarfsaðilar fái skamman frest Þýðingarmikið er talið að undir- búningur að stofnun félagsins hefjist um leið og fyrir liggur formlegt sam- þykki væntanlegra eigenda og skuli að því stefnt að það verði eigi síðar en 1. mars nk. og fyrirtækið taki til starfa 1. júlí. „Rétt er að undirstrika að vænt- anlegum samstarfsaðilum verði gef- inn eins skammur frestur og unnt er til ákvarðanatöku um aðild, allar frumforsendur eiga að liggja fyrir. Því virðist ekki ástæða til þess að fara nú í langar og flóknar undirbún- ingsviðræður, heldur væri rétt þegar í upphafi að draga helstu útlínur fyr- irtækisins á blað [og] láta sveitar- félögin undirrita eins fljótt og tök eru á samhljóða viljayfirlýsingu en hefja skipulagða vinnu við stofnun fyrir- tækisins þegar í kjölfarið,“ segir í til- lögukafla skýrslunnar. Nýtt leiðakerfi án umdæmamarka Þá segir að setja þurfi sem fyrst í gang þá umfangsmiklu vinnu að búa til nýtt heildstætt leiðakerfi fyrir fyr- irtækið. Kerfið verði hugsað frá grunni en ekki þannig úr garði gert að splæst sé saman því sem fyrir er. Hugsa þurfi kerfið án allra umdæma- marka þannig að allir möguleikar verði nýttir. „Þannig mætti e.t.v. hugsa sér að einhverjir „Kópavogs- bílar“ ækju einnig einhverja hluta af Breiðholti, Fossvogi eða Hlíðum,“ segir í tillögunum. Jafnframt segir að engir séu betur fallnir til þessarar vinnu en starfsmenn fyrirtækjanna sjálfir enda gjörþekki þeir aðstæður. Þá segir að þótt ekki náist sam- komulag við eitt eða fleiri sveitar- félaganna á svæðinu sé allt að einu hægt að stofna fyrirtækið, enda geti nýir eigendur gengið inn eða út ef skilyrði og forsendur breytast. Jákvæð mismunun til að fjölga konum Meðal annarra tillagna skýrsluhöf- undar er að gengið verði frá sér- merkingu akreina fyrir almennings- samgöngur, tekin verði upp umferðarstýrð ljós á þeim gatnamót- um þar sem strætisvagnar þurfa oft- ast að bíða eftir annarri umferð og að leitað verði leiða til að yngja vagna- flotann svo um munar. Ennfremur verði gert átak í því að fjölga konum hjá fyrirtækinu undir formerkjum jákvæðrar mismununar til að byrja með ef þurfa þyki. Þá er gerð tillaga um bílastæða- stýringu þar sem segir m.a.: „Reynsla annarra þjóða segir okkur að árangursríkast sé í baráttunni við hömlulausan einkabílisma að svelta menn á möguleikum til þess að geyma bílinn nærri vinnustað.“ Lagt til í skýrslu að nýtt almenningssamgöngufélag taki til starfa 1. júlí nk. 130 m.kr. sparnaður af útboði í áföngum Morgunblaðið/Golli Starfsmönnum SVR voru kynntar tillögurnar á fundi í gær. Í nýrri skýrslu til borgarstjóra er lagt til að ákvörðun um nýtt félag um almenn- ingssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu verði stofnað fyrir 1. mars nk. og það taki til starfa um mitt sumar. ÁSGEIR Ingólfsson, blaðamaður og þýðandi, er látinn, 66 ára að aldri. Ásgeir fæddist í Reykjavík 26. júlí 1934. Hann lauk prófi í við- skiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1960. Hann starfaði fyrst sem blaðamaður á dag- blaðinu Vísi frá 1960– 1961 og á Morgun- blaðinu til ársins 1967. Hann var fréttamaður og þulur á fréttastofu Sjónvarps 1967–1971 og á fréttastofu Útvarps 1973–1975. Árið 1987 gerðist hann þýðandi hjá Íslenska útvarps- félaginu og vann þar til dauðadags. Ásgeir þýddi um 55 bækur á íslensku, eink- um úr ensku, og eftir hann liggur ein bók, Elliðaárnar, sem út kom 1986. Á starfsferli sín- um var Ásgeir jafn- framt framkvæmda- stjóri Stangaveiðifélags Íslands frá 1972–1973 og starfaði fyrir Norð- ur-Atlantshafslaxasjóð- inn síðustu tíu æviár sín. Ásgeir lætur eftir sig tvo uppkomna syni, sem hann eign- aðist með fyrrverandi eiginkonu sinni, og eitt barnabarn. Andlát ÁSGEIR INGÓLFSSON GESTUR Jónsson hæstaréttarlög- maður sem annast hefur málefni fyrir ráðherra og Þingvallanefnd vegna fyrirhugaðrar sölu Hótels Valhallar segir alrangar þær ásak- anir sem fram komi í fréttatilkynn- ingu Jóns Ragnarssonar, aðaleig- anda hótelsins, um að einhver sé að reyna að torvelda honum viðskipt- in. Fram kom í Morgunblaðinu í gær að Jón hefur gengið að kaup- tilboði bresks kaupsýslumanns í hótelið með fyrirvara um atriði sem Jón segir að erfitt hafi reynst að fá á hreint hjá yfirvöldum. „Lögmaður Jóns Ragnarssonar hefur beint erindum til Þingvalla- nefndar og stjórnvalda varðandi öll þessi atriði sem hann nefnir. Þeim erindum hefur öllum verið svarað og sinnt á eðlilegan hátt að mínu mati,“ segir Gestur. Hann segir að fyrir liggi beiðni Jóns um að ríkið aflétti þinglýsingu á viðbyggingu en því hafi einfald- lega verið hafnað. Menn hafi hins vegar sagst vera reiðubúnir að at- huga erindi Jóns varðandi gerð lóðarsamnings. Ekkert hafi heldur verið útilokað og raunar verið tekið vel í ósk um að stækka eða end- urbæta hótelið en engar ákveðnar tillögur hafi hins vegar verið lagð- ar fram hvað þessi tvö atriði varð- ar. Tillögum um stækkun eða end- urbætur á hóteli verði m.a. að fylgja teikningar og útfærslur svo hægt sé að taka afstöðu til þess. „Það verða að sjálfsögðu engar framkvæmdir heimilaðar á jafn viðkvæmum stað og Þingvöllum án þess að farið sé mjög nákvæmlega í gegnum það,“ segir Gestur. Frjálst að semja ef fylgt er gildandi leikreglum Aðspurður segist Gestur ekki geta svarað því hvort frágangur þessara mála sé forsenda þess að Jón geti gengið frá sölu hótelsins. „Við höfum aldrei séð þessi kaup- tilboð og kaupsamning, enda er ríkið ekki með nokkrum hætti aðili að þessum viðskiptum. Þarna er Jón Ragnarsson að eiga viðskipti við aðila sem hann hefur einhvers staðar haft upp á og honum er auð- vitað frjálst að semja við þann aðila ef hann bara fylgir þeim leik- reglum sem um það gilda,“ sagði hann. Rangt að verið sé að reyna að torvelda viðskiptin Gestur Jónsson hrl. um ágreining vegna sölu Hótels Valhallar SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN og Framsóknarflokkurinn hafa tapað fylgi, samkvæmt skoðana- könnun sem DV birti í gær. Fylgi Sjálfstæðisflokks mældist 37,4% af þeim sem afstöðu tóku í könnun- inni en var 44,2% í síðustu könnun blaðsins sem gerð var í október. Fylgi Framsóknarflokks mælist nú 9,7% en var 12,9% í síðustu könnun. Fylgi stjórnarflokkanna er því samtals 47% samkvæmt könnuninni. Fylgi bæði Samfylk- ingarinnar og Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs eykst verulega. Fylgi Samfylkingar mældist 27% í könnun DV nú en var 18,8% í síðustu könnun. Fylgi VG mælist nú 24% en var 20,1% í síðustu könnun. Fylgi Frjálslynda flokksins mælist nú 1,4% en var 3,8% í síðustu könnun. Ef þingsætum yrði útdeilt miðað við þessa niðurstöðu fengi Sjálf- stæðisflokkurinn 24 þingmenn, Framsóknarflokkurinn 6, Sam- fylkingin 17, Vinstrihreyfingin 16 en Frjálslyndi flokkurinn engan þingmann. Könnunin var gerð sl. föstudags- kvöld, 12. janúar. Úrtakið var 600 manns og tóku 70,5% afstöðu. Fylgiskönnun DV Stjórnarflokk- arnir tapa fylgi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.