Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 25
Umboðs- og heildverslun
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
www.isold.is
N E T V E R S L U N - w w w . h i l l u r . i s
F A G L E G R Á Ð G J Ö F - L E I T I Ð T I L B O Ð A
Hjólaskápar
Mátunarklefar
Brettarekkar
Stillanleg vinnuborð
Raf-og handlyftarar
Afgreiðsluborð Plastkassar Þungavörurekkar Skrifborð/Sérsmíði Lagerhillur Hillurekkar
Vinnuborð Afgreiðsluborð Skjalasöfn Borð/Sérsmíð Verslanainnréttingar
Smellt saman Metalsistem Tepparekkar Milligólf/Lagerhillur Vinnuborð/Sérsmíði
Afgreiðsluborð Bílainnréttingar Starfsmannaskápar Panelrekkar Verslanainnréttingar
Afgreiðsluborð Fatarekkar Afgreiðsluborð Brettarekkar á brautum Armarekkar
MilliloftSérsmíði/Hjólaborð Kerrur/Vagnar Einfalt í samsetn.
Mikil burðargeta
K
O
R
T
E
R
ÆÐSTI dómstóll Kúveit, stjórnlaga-
dómstóllinn, hafnaði í gær beiðni um
að veita konum kosningarétt. Þeir
sem berjast fyrir jöfnum pólitískum
rétti kynjanna hétu því að halda bar-
áttunni fyrir kosningarétti kvenna
áfram og njóta þar stuðnings emírs-
ins í Kúveit.
Málinu var áfrýjað til dómstólsins
eftir átján mánaða meðferð en það
var karlmaður frá Kúveit sem höfðaði
það. Dómararnir gáfu ekki skýringar
á dómnum í gær. „Ég bjóst við þess-
um úrskurði vegna þess að bókstafs-
trúarmenn ráða lögum og lofum í rík-
isstjórninni og þeir hafa áður hafnað
tillögunni í þinginu,“ sagði Adnan
Hussein al-Issa, sem lagði fram kær-
una, í samtali við AFP.
Í júlí á síðasta ári vísaði sami dóm-
stóll fjórum hliðstæðum málum frá.
Það voru konur sem höfðuðu þau mál
á þeim forsendum að lögin sem banna
konum að kjósa brjóti í bága við
stjórnarskrá. Málunum var vísað frá
á grundvelli galla í málsmeðferð
vegna þess að eingöngu ríkisstjórnin,
þingið og aðrir dómstólar geta vísað
máli til stjórnlagadómstólsins.
Issa höfðaði mál á hendur innanrík-
isráðuneytinu sl. vor vegna þess að
það meinaði konum að skrá sig á kjör-
skrá. Sérstakur kosningadómstóll
skoðaði málið en ákvað síðan að vísa
því til stjórnalagadómstólsins. Konur
sem berjast fyrir kosningarétti fylgd-
ust með réttarhöldunum og hétu því
að berjast áfram. Þær sögðu að þær
myndu reyna, líkt og í fyrra, að skrá
sig á kjörskrá í innanríkisráðuneytinu
og höfða mál ef þeim verður vísað frá.
Jafnrétti kynjanna er tryggt í
stjórnarskrá Kúveit en í fyrstu grein
kosningalaga segir hins vegar að ein-
göngu karlmenn njóti pólitískra rétt-
inda. Sjeik Jaber al-Ahmad al-Sabah,
emírinn í Kúveit, gaf í maí 1999 út til-
skipun þess efnis að konur ættu að
njóta pólitískra réttinda og var rík-
isstjórnin hlynnt því en bandalag
þingmanna úr röðum heittrúaðra
sunníta og hirðingja kom í veg fyrir
lagabreytingu.
Kúveit er hið eina af hinum sex
íhaldssömu arabísku einvaldsríkjum
við Persaflóann sem hefur kjörið
þing. Síðustu þingkosningar voru
haldnar í júlí 1999 og hefur aukinn
kraftur færst í baráttu kvenna fyrir
kosningarétti síðan þá.
Stjórnlagadómstóllinn í Kúveit kemst að niðurstöðu í kærumáli
Kúveit. AFP.
Konum ekki veitt-
ur kosningaréttur
ÍTÖLSK heilbrigðisyfirvöld
staðfestu í gær að kúariðu
hefði orðið vart í landinu í
fyrsta sinn síðan 1994. Land-
búnaðarráðherra Spánar til-
kynnti einnig í gær að grunur
léki á að tvær kýr í norðurhluta
landsins bæru sjúkdóminn, en
hingað til hafa fimm tilfelli
kúariðu verið staðfest á Spáni.
Norðmenn á
þýsk sjúkrahús
ÞRÍR Norðmenn komu í gær
til Þýskalands til að gangast
undir aðgerð á hné. Um hundr-
að þúsund manns bíða eftir
læknisaðgerðum í Noregi og
gerðu stjórnvöld nýlega samn-
ing um að veita einum milljarði
norskra króna (um 9,7 milljörð-
um ísl. kr.) til að greiða fyrir
læknisaðgerðir erlendis, í þeim
tilgangi að stytta biðlistana.
Sérfræðingar höfðu hvatt til
þess að sjúklingar yrðu frekar
sendir úr landi en að meiru fé
yrði veitt til norska heilbrigð-
iskerfisins, þar sem það gæti
valdið verðbólgu.
Engar vís-
bendingar um
úranhættu
FORMAÐUR heilbrigðis-
nefndar Atlantshafsbandalags-
ins (NATO) skýrði frá því í gær
að greining heilbrigðisupplýs-
inga frá aðildarríkjunum hefði
ekki leitt í ljós neinar vísbend-
ingar um að leifar úranhúðaðra
skotfæra yllu krabbameini eða
svonefndu „Balkan-heilkenni“.
Jafnframt var tilkynnt að frek-
ari rannsóknir yrðu gerðar
vegna ásakana um að úranhúð-
uð skotfæri, sem herir NATO
notuðu meðal annars í Kosovo,
hefðu valdið heilsutjóni.
Edith Cresson
þjáist af
krabbameini
EDITH Cresson, fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands
og meðlimur í framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins,
hefur greint frá því að hún hafi
þjáðst af krabbameini. Hún
hafi gengist undir miklar að-
gerðir á árunum 1997 og 1998,
en sé um þessar mundir við
góða heilsu.
Cresson var fyrst kvenna til
að taka við embætti forsætis-
ráðherra í Frakklandi árið
1991. Hún fór með vísinda- og
menntamál í framkvæmda-
stjórn ESB frá 1995 til 1999, en
það ár neyddist öll fram-
kvæmdastjórnin til að segja af
sér í kjölfar ásakana um spill-
ingu og óstjórn.
Orkuviðvörun
í Kaliforníu
YFIRVÖLD í Kaliforníu gáfu í
gær út viðvörun af hæsta stigi
vegna orkuskorts, en þó er
ekki útlit fyrir að grípa verði til
skömmtunar í bráð. Aldrei hef-
ur verið eins mikill skortur á
raforku og olíu til raforkufram-
leiðslu í ríkinu. Tvisvar áður
hefur verið gefin út viðvörun af
hæsta stigi, en í bæði skiptin
tókst að afstýra kreppunni áð-
ur en grípa hefði þurft til
skömmtunar.
STUTT
Kúariða
greinist
á Ítalíu