Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 44

Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 44
MINNINGAR 44 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Það er sárt að sjá á eftir góðum vinum, hann Halli á Garðstöð- um var góður vinur minn sem ég hef þekkt alla mína ævi, eða síðan ég fyrst man eftir mér, en nú er guð búinn að kalla þig heim, kæri vinur. Ég kvaddi þig í vor þegar ég kom heim. Ég mun sakna þín mikið, og það munu margir aðrir gera, bæði vinir og vandamenn. Vinkona mín sem er systurdóttir þín kom alltaf að sækja mig og þá var brunað út í Garð í heimsókn til þín, Imba lagaði alltaf kaffi fyrir okkur, og svo var sest niður og talað um gömlu góðu dagana í Leirunni ásamt mörgu öðru, til dæmis bíóferðunum á sunnudagskvöldum til Keflavíkur. Við skoðuðum gamlar myndir, þá minnist ég á mynd sem tekin var af okkur, þú, ég og bíllinn þinn, hún var pínulítil, en guð, þú vildir endilega gefa mér hana, sagðir að þú værir búinn að eiga hana í 25 ár og nú ætti ég að eiga hana. Við hlökkuðum allt- af til að hittast, við áttum svo marg- ar góðar minningar bæði úr Leir- HALLDÓR JÚLÍUS INGIMUNDARSON ✝ Halldór JúlíusIngimundarson, Garðstöðum í Garði, fæddist 14. júní 1912. Hann lést á heimili sínu 3. janúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Út- skálakirkju 13. jan- úar. unni, Garðinum og Þingvöllum. Þú vannst í mörg ár fyrir hann afa minn, Sigurjón Einars- son frá Litla-Hólmi í Leiru I, vegavinnu, þar vann hann pabbi minn einnig (Teitur) ásamt mörgum öðrum ungum mönnum. Þarna var búið í tjöldum, og á kvöldin keyrðir þú all- an hópinn niður í Hótel Valhöll. Þetta voru dýrðlegar stundir, það var eins og skemtilegt sumarfrí, það var ein- mitt þar sem þú kenndir mér að keyra bíl, ég var aðeins 15 ára, en tók aldrei bílpróf, enda alltof ung, ég tók bílpróf mörgum árum seinna í New York. Imba sagði mér eitt sinn að hún færi með þig út að keyra ann- að lagið og að hún hefði farið með þig niður að Litla-Hólmi og þið hefð- uð labbað þar um í rólegheitum, og þá hefðir þú sagt að þetta hlyti að vera fallegasti staður sem til er, mér þótti indælt að heyra þetta, því mér hefur alltaf þótt vænt um gamla bóndabýlið okkar í Leirunni. Þegar ég hugsa til baka þá sé ég Halla á vörubílnum sínum með svarta kask- eitið sitt og bros á vör eins og venju- lega. Hulda og Bob. Elsku Halli minn! Núna ertu farinn frá okkur og kominn á betri stað þar sem þér á eftir að líða vel, en ég á eftir að sakna þín og muna allar stundirnar okkar saman. Ég man eftir því þegar þú kenndir mér að spila, fyrst var það tunna svo steliþjófur og síðan ólsen ólsen, bara svona til að byrja með. Síðan þegar ég varð eldri var það kasjón og pók- er en við notuðum þá gömlu krón- urnar og aurana og það var rosalega spennandi að spila með gamla pen- inga frá gamla tímanum. Ætli þú hafir ekki kennt flestöllum krökk- unum í ættinni að spila, ég held það. Ég man líka eftir Hallakakó og Hallakexi, það var bara venjulegt heitt kakó og mjólkurkex sem var bara alltaf svo miklu betra heima hjá þér heldur en hjá okkur. Ég man líka svo vel eftir því þegar ég og Birgitta Jóna vorum í skóla og við áttum einn til tvo tíma frí og máttum fara heim á milli, en þá var ekki farið heim heldur til þín til að fá sér annaðhvort kakó og kex eða búð- ing. Maður fór víst ekki frá þér nema að fá sér einhvað að borða og spila við þig. Veistu Halli minn, ég gæti setið hérna endalaust og skrifað. Minn- ingarnar eru svo margar. Ég veit að þér líður vel núna og guð geymi þig, góða nótt, kæri frændi. Þín frænka, Hildur Guðný. Elsku Halli minn. Nú er ég kveð þig í hinsta sinn minnist ég allrar hlýjunnar og elskunnar sem þú sýndir mér alla tíð. Sögurnar þínar og viskan sem þú miðlaðir til mín á okkar fjölmörgu yndislegu samveru- stundum munu geymdar í hjarta mínu um ókomna tíð. Hjartans þökk fyrir allt, elsku Halli minn. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma. Öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matth. Joch.) Guð blessi þig og megi minning þín lifa. Ástarkveðja. Þín Sigríður Andradóttir (Sirrý). Við Gylfi Ásmundsson hittumst í 12 ára bekk G í Austurbæjarskól- anum. Við vorum báðir nýir menn í grónum bekk og það er ekki alltaf létt hlutskipti. Gylfi hafði flutt úr vesturbænum í Hlíðarnar og var mjög ósáttur við það, hann saknaði vesturbæjarins og vinanna þar enda birtist þar strax sterkur eðlisþáttur hans, tryggðin. Honum leið ekki vel í þessu nýja umhverfi en hann tókst á við sinn vanda. Þegar við hittumst aftur sem nýnemar í Menntaskól- anum í Reykjavík, var Gylfi yfirveg- aður og mætti nýjum aðstæðum þar GYLFI ÁSMUNDSSON ✝ Gylfi Ásmunds-son fæddist í Reykjavík 13. sept- ember 1936. Hann lést úr krabbameini á Landspítala 4. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Kópavogs- kirkju 12. janúar. Í Morgunblaðinu 16. janúar birtist eft- irfarandi grein á bls. 44, en vegna mistaka féll annað höfundar- nafn niður. Hlutað- eigendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum. af því öryggi sem ein- kenndi framkomu hans æ síðan. Hann var hlýr og smáglettinn , þéttur fyrir en laus við ágengni. Hann var prýðilegur námsmaður og vinsæll félagi. Árgangurinn okkar lauk stúdents- prófi 1956, í bekkjar- deild okkar Gylfa , B bekk máladeildar, vor- um við aðeins 17 og nú eru þrír okkar fallnir frá. Þá um haustið hófst ævintýrið okkar Gylfa. Við fórum utan í fyrsta sinn og stóreygir skoð- uðum við Kaupmannahöfn og síðan París ásamt bekkjarsystur okkar Kristínu Gústavsdóttur, sem var okkur til halds og trausts, enda sigld manneskja. Þetta voru ógleyman- legir dagar. Síðan hef ég víða farið, margt séð og reynt – og mörgu gleymt. En atburðir fyrstu utan- ferðarinnar eru lifandi í minni, þess- ar vikur skópu fjársjóð minninga sem við þrjú höfum löngum ausið af. Í París skildi leiðir um skeið. Kristín fór til Grenoble en við Gylfi til Caen í Normandie, þar sem glæsilegur háskóli hafði bókstaflega risið úr rústum heimsstyrjaldarinnar síðari. Það var kannski við því að búast að Fransmennirnir sæju lítinn mun á Asmundsson og Gudmundsson enda kom á daginn að þeir töldu að þar væri um einn mann að ræða sem hafði verið úthlutað herbergiskytru hjá frú Levergeois. Í húsnæðisekl- unni máttum við þakka fyrir að fá húsaskjól og þarna bjuggum við félagar og höfðum einn stól, eitt borð, eitt rúm og sváfum til skiptis á gólfinu! Í slíku nábýli kynnast menn vel. Aldrei varð okkur sundurorða enda ekkert aukavesen í kringum hlutina. Og þar varð mér ljóst hví- líkan mann, hvílíkan úrvalsmann, Gylfi hafði að geyma. Gylfi var snemma ákveðinn í að læra sálfræði. Íslenskir sálfræðing- ar voru þá fáir og fylltu varla tuginn. Hann hafði kynnt sér aðstæður og taldi að Frakkland byði upp á besta námið. Hinsvegar kom fljótt greini- lega í ljós að franskan okkar leyfði ekki mjög alvarlega stúdíu, það tæki árið að minnsta kosti að ná viðhlít- andi tökum á málinu. Þetta var löngu fyrir daga Lánasjóðsins og Gylfi var raunsær maður, a.m.k oft- ast! Hann flutti sig til Edinborgar eftir áramótin og komst þar á beinu brautina í námi sínu sem hann lauk þar með myndarskap. En það var tómlegt í kytru frú Levergeois þeg- ar Gylfi var farinn. Síðan hófst lífsstarfið heima og leiðir okkar lágu nokkuð samhliða þótt aldrei yrðum við beinir sam- starfsmenn. En umræðuefnin skorti aldrei. Hann bar mikla virðingu fyr- ir kristinni kirkju enda alinn upp á heimili þar sem trúin var iðkuð. Þess vegna var fróðlegt að ræða um trúmál og kirkju við Gylfa, því að hann leit til þeirra mála af þekkingu og jákvæðri gagnrýni út frá fersk- um sjónarhól. Og ekki versnaði samfélagið þeg- ar konurnar okkar komu til sögunn- ar, Erla er einstök kona sem bregð- ur birtu yfir umhverfi sitt. Hún skildi vel bónda sinn, enda naut hann sín innan fjölskyldunnar. Starfsferill hans sýnir hvílíks trausts hann naut innan heilbrigð- isgeirans og hljóta aðrir að greina frá því hér. En við kynntumst per- sónulega hæfni hans sem sálfræð- ings er fleiri en einn af okkur ná- komnum leituðu til hans og fengu slíka hjálp að aðstæður þeirra gjör- breyttust og þau eignuðust gott líf. Slíkar sögur trúi ég að margir geti sagt um Gylfa. Þar er hans bauta- steinn sem sálfræðingur Við sáumst sjaldnar síðustu árin vegna dvalar minnar erlendis. En við hittumst ítrekað nú í desember. Þá var Gylfa augljóslega brugðið, en vináttuhlýjan, yfirvegunin og smá- glettnin var þar sem endranær. Hann hvatti mjög til að við tækjum upp þráðinn að nýju og við mæltum okkur mót. En öllu er ásköpuð stund og nú er Gylfi farinn. Ég kveð hann hryggur og í djúpri þökk, þar fór maður sem engin svik eru í, örlátur vinur sem átti djúpan skilning á manneskjunni og mikið umburðar- lyndi. Sé hann falinn góðum Guði sem gaf honum lífið og hefur nú tekið þann góða dreng í sína arma. Erlu og börnunum biðjum við Rannveig blessunar Guðs á erfiðum stundum. Bernharður Guðmundsson. Í upphafi nýrrar aldar andaðist Gylfi Ásmundsson sálfræðingur, starfsfélagi okkar og vinur. Andlát hans kom flestum á óvart þó að um illvígan sjúkdóm væri að ræða því að Gylfi kvartaði aldrei eða fjölyrti um heilsu sína. Lýsir það nokkuð þessum hægláta og prúða manni. Gylfi var fágaður, yfirvegaður og hæverskur í framgöngu, án allra öfga. Árið 1965 var hann ráðinn fyrsti sálfræðingur við Kleppsspítala, varð síðan yfirsálfræðingur og forstöðu- sálfræðingur við geðdeild Landspít- ala og byggði upp sálfræðiþjónustu. Það var gott að eiga Gylfa að og leita til því ekki aðeins var hann glöggur og vel menntaður fagmaður heldur einnig drengur góður, traustur og tryggur. Margir minnast föðurlegr- ar handleiðslu hans. Gylfi sagði starfi sínu lausu fyrir ári og sneri sér alfarið að rekstri eigin sálfræði- stofu og tengdum verkefnum. Hann var dósent í sálarfræði við lækna- deild HÍ frá 1974 til 1994. Að auki stundaði hann ýmis kennslustörf, fræðslu og rannsóknir í sínu fagi. Gylfi þýddi og staðfærði MMPI- prófið auk margra annarra sálfræði- prófa. Fjöldi greina um sálfræðileg efni liggur eftir hann og er skemmst að minnast svara hans við lesenda- bréfum í Morgunblaðinu þar sem hann fræddi og útskýrði málin á sinn einstaka hátt. Gylfi gegndi mörgum trúnaðar- störfum fyrir sálfræðinga og má nefna að hann átti sæti í nefnd á vegum heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytis til að meta umsóknir sál- fræðinga um sérfræðingsviðurkenn- ingu, var fyrsti formaður náms- matsnefndar SÍ og svo má lengi telja. Gylfi tók virkan þátt í starfi Geðverndarfélags Íslands og sat í stjórn þess um áraraðir og í ritnefnd Geðverndar um skeið. Gylfi naut hvarvetna trausts og var virtur og vel látinn í starfi. Hann var gagnmenntaður með langa klín- íska reynslu og margir eru þeir skjólstæðingar sem nutu hjálpar hans bæði á sjúkrahúsi og á stofu. Gylfi var hjartahlýr, laus við hleypi- dóma og hafði ríka samkennd með náunganum. Skemmtilegur félagi var hann, glaður á góðri stund og höfðingi heim að sækja. Gylfi var víðlesinn, unni góðum bókmenntum og listum, einkum myndlist. Hann hafði yndi af að ferðast um landið og þekkti vel til staðhátta. Hann var gæfumaður í sínu fjöl- skyldulífi, átti góða konu, Erlu Lín- dal sjúkraliða. Þeirra tengsl voru traust og hlý til hinstu stundar. Börnum sínum fjórum hefur Gylfi gefið dýrmætt veganesti. Megi minningin um góðan dreng og ljúfar samverustundir vera ást- vinum hans styrkur í framtíðinni. Við sálfræðingar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi minnumst Gylfa með virðingu, þakklæti og söknuði. Fyrir hönd sálfræðinga á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi, Guðrún Theodóra Sigurðardóttir og Eiríkur Örn Arnarson. !     ! 2   34 '& &"( 67     "#    $% &$+("! & " '  !"  +("! & " ' 1 !                   ,5 112  5 8 %$" *"+  %(*+ "+") &  #    '  (  #  $% 9& ")(":1() 0" #$%%" 2 "1,'& '  () 0"&( #$%%" &" 1,'&#$%%" ,'&"1,'& '  3 #,14")" #$%%" 9(",12 " '  "  0" '& "  "  0" 1 ! ,;: <= > 3 #"&0%(6 &(+")    )    *              ,     #  -   '  ) *#        * ()" <?%(" #$%%" *#$"& <?%(" #$%%"1                                       !   "#  #           !!    "!#

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.