Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 17.01.2001, Qupperneq 46
MINNINGAR 46 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Nú ertu farinn elsku Stulli minn og kemur ekki aftur. Ég hélt ég myndi aldrei hætta að gráta þegar ég frétti að þú værir dáinn því þótt þú hefðir ver- ið veikur þá var ég svo óviðbúin þessu. Ég var einmitt búin að finna gamlar myndir af okkur sem ég ætl- aði að koma með til þín og sýna þér. En síðan þegar mér tókst að hemja táraflóðið tóku að rifjast upp fyrir mér allar þær góðu stundir sem við áttum saman og hve þakklát ég er fyrir að hafa fengið að þekkja þig. Ég fór að hugsa um þegar ég sá þig fyrst. Þú varst nýbyrjaður í skólanum og ég tók strax eftir þér. Mér fannst þú svo sætur með rauðu húfuna þína. Ég held reyndar að allur skólinn hafi tekið eftir þér því að þú varst einn af fáum busum sem voguðu sér inn í eldribekkjaálmurnar. Ég man eftir ferðinni sem við fór- um með félagsmiðstöðinni til Vest- mannaeyja. Þú varst svo fyndinn og skemmtilegur og varst alltaf að stela inniskónum mínum. Svo þegar allir voru sofnaðir læddumst við um og klíndum tannkremi framan í hina krakkana. Ég man líka eftir því að þú fylgdir mér alltaf út í biðskýli þegar ég var að fara heim frá þér á kvöldin, sama hversu dimmt eða kalt var orðið. Þú varst alltaf svo óeigingjarn á stóru, bláu dúnúlpuna þína. Svo í eitt skiptið faðmaðir þú mig svo mikið að stræt- isvagnabílstjórinn fékk nóg af að bíða og keyrði í burtu og ég missti af síð- asta vagninum. Svo man ég þegar þú komst til mín klukkan fimm um morguninn og kast- aðir steini í gluggann minn af því að ég var að fara norður seinna um morguninn og þig langaði ekki að ég færi. Ég man þegar þú gafst mér bux- urnar þínar þegar mér var svo kalt. Ég man hvað ég var glöð og hrærð þegar þú gafst mér ljóðið þitt. Ég man líka hvað ég var vond við þig þeg- STURLA ÞÓR FRIÐRIKSSON ✝ Sturla Þór Frið-riksson fæddist í Reykjavík 10. maí 1983. Hann andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans í Foss- vogi 1. janúar síðast- liðinn og fór útför hans fram frá Foss- vogskirkju 10. jan- úar. ar þú sagðir að ég væri með bólu og elsku Stulli þú veist ekki hvað ég sé eftir því. Þótt við værum ekki eins náin undir lokin og þegar við vorum yngri vona ég að þú hafir allt- af vitað hvað mér þótti innilega vænt um þig. Þín er sárt saknað. Ingunn Agnes Kro. Elsku Sturla, ástin okkar. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að núna sértu farinn frá okkur. Það er ólýsandi að hægt sé að taka frá manni eitthvað sem er svona dýrmætt og fullt af lífsgleði. Svo margar ljúfsárar minningar sitja eftir um stundir okk- ar saman og öll þau sniðugu og skemmtilegu uppátæki sem þér datt í hug að framkvæma. Þú ert einstakur og þótt við vitum að þú sért farinn þá munt þú lifa með okkur um alla eilífð. Við verðum ævinlega þakklát fyrir að kynnast manneskju sem var jafn hlý og yndisleg og þú. Vertu sæll, kæri vinur. Kæru Kristín og Friðrik, um leið og við samhryggjumst ykkur yfir þessum missi viljum við þakka ykkur fyrir þann styrk sem þið veittuð okk- ur. Þið stóðuð ykkur eins og klettar í gegnum allt og létuð hvergi bilbug á ykkur finna. Um leið vonum við að við höfum getað veitt ykkur brot af því sem þið gáfuð. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft reyndist strengur í brjósti sem brast við biturt andsvar gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Ben.) Rún, Kristín, Katla og Kristín Bergs. Vanalega hefur fyrsti janúar verið fagnaðardagur í lífi okkar, nýtt ár komið og á það alltaf að vera betra en þau liðnu. En undantekningar eru til á flestu og var mánudagurinn 1. jan- úar 2001 einn af þeim. Þetta var ekki lengur dagur fagnaðar heldur sorgar, þetta er dagurinn sem mjög kær vin- ur okkar, Sturla, lést. Við ætlum að þakka þér, Stulli, fyr- ir þann tíma sem við fengum að eyða með þér og allar þær stundir sem þú komst með hlátur og gleði í líf okkar. Lífsgleði þín smitaði svo frá sér og þegar maður var í kringum þig var allt eitthvað svo skemmtilegt og létt. Og ég held að þér sé best lýst með því að segja að þú hafir verið skemmtilegur, glaður og duglegur strákur. Við munum alltaf muna eftir þér. Með bestu kveðjum til Kristínar, Friðriks og Trausta. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Hávamál.) Sigrún Einarsdóttir, Steinunn Guðmundsdóttir og Íris Anna Aðalbjörnsdóttir. Miðvikudaginn 10. janúar var til moldar borinn ungur maður, Sturla Þór. Ég kynntist Sturlu fyrst þegar hann var aðeins nokkurra mánaða gamall og hef fylgst með uppvexti hans síðan. Það sem einkenndi Sturlu þá var hve lítill og grannur hann var en þó svo sterkur og hraustur. Hann var með mikið skap og fór sínar eigin leið- ir. Það var ekki alltaf jafnauðvelt fyrir okkur sem sáum um uppeldi drengs- ins en fyrir vikið er hann minnisstæð- ur sem lítill drengur, með mikla kímnigáfu, skapandi lífskraft og stórt hjarta. Hann var með sterka réttlætis- kennd og mikill barna- og dýravinur. Þessir eiginleikar hans héldust eftir því sem árin liðu. Hann fylgdi ekki fjöldanum varðandi tísku, klæddi sig á sinn persónulega hátt og hannaði herbergið sitt þannig að í ljós komu skapandi eiginleikar og frumleiki. Ákveðnin kom sér vel þegar hann barðist hetjulegri baráttu gegn dauð- anum eftir hið hræðilega flugslys, en þá sýndi hann þvílíka þrautseigju og seiglu að undrun sætti. Að lokum fór þó svo að Sturla varð að lúta í lægra haldi. Hann andaðist á nýársdag. Það er sárt þegar ungur maður sem hefur svo margt til brunns að bera er hrif- inn burt frá okkur svo snemma. Það er erfitt að hugsa til þess að fá ekki að sjá hann vaxa og dafna. Kristín, Lilló, Trausti og fjöl- skylda! Ykkar harmur er stór, en minningin um góðan dreng með stórt hjarta lifir. Bergljót Guðmundsdóttir (Systa). !    %                   233 2  * /"( C " #      #  3 4%  0 2 .   -       ,   1  %    ,      '  5      *   2    6 22    !3 4%   0 2    <?%("()$ '   '&+0 # 1 /    .       .     $     *   # > D3 $ #) ()("/)1 5& % +. #$%%" % +.  &(" A ' '&+0 #1 5#    * *$*   ##      ! 42 5 +".( 4+( %)"#" "+") ) %  %%(".*"+  %( 1 ) *#     & #(" E '&!" # #$ #A%("1 /    .       .     $      *   #                  # :   3!> > ." %&6  1 &   .     &  7   7     *    8+ 3 4%   0 2  1 2  # " %  1*+) '  *+)," # " % '  *#$"" % " % #$%%"() ( #(" ":$" '  3."( 3."( '   $  " #$%%" '& "  0" 1 "#    F>F> > 4      *       8   '  () ( #("9# " '  & 0"&9# " #$%%" ,"  + &("9# " ' 1 /    .       .      $      *$*    #           F * > +%/) ().""$1 &  .      2  6   (  4    1%  ! .        0 2           #   1 2  #  + #$%%"   2 " '  () E$/ #$%%"'&+0 # "$/ #$%%"'&+0 #  "<?%(" ' 1 Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Ég var ekki há í loft- inu en man samt vel eftir fyrsta skiptinu sem ég átti að fara til ömmu og afa í Vest- mannaeyjum. Mikil tilhlökkun og eftirvænting var yfir því að hitta ömmu og afa, fara til Vestmanna- eyja, sem ég hafði aldrei heimsótt áður, og síðast en ekki síst að fara í flugvél. Mamma var búin að und- irbúa ferðalagið fyrir mig, pakka of- an í töskur, strauja sparifötin sem ég ætlaði að fara í og allt var klárt fyrir ferðina. Nú var bara að bíða morguns en þá átti ferðalagið að ÁSTA RUT GUNNARSDÓTTIR ✝ Ásta Rut Gunn-arsdóttir fæddist í Vestmannaeyjum 26. janúar 1914. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 22. des- ember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Landa- kirkju í Vestmanna- eyjum 13. janúar. hefjast. Ég vaknaði nokkrum sinnum yfir nóttina uppfull af spenningi og tilhlökk- un. Ég vaknaði snemma um morgun- inn en þá hafði afi hringt og sagt mömmu og pabba frá því að amma hefði veikst þá um nóttina og því varð að fresta ferðinni. Ég, litla daman, varð von- svikin yfir þessu öllu saman en náði mér þó fljótt. Það var svo tveimur árum síðar að ég komst loks til Eyja að hitta ömmu og afa. Þar var ég í góðu yfirlæti. Ég lærði ýmislegt af hjónunum í Hólshúsi, amma sagði mér sögur af ættingjum sem flutt- ust vestur um haf við upphaf síðustu aldar, afi fór með mig inn í Dal til að fræða mig um hinar ýmsu fuglateg- undir sem þar dvöldu, en fræðslan náði nú ekki alltaf eyrum mínum þar sem ég ærslaðist um allan Dalinn. Amma fræddi mig um Eyjarnar, sagði mér sögu þeirra, kenndi mér kennileiti og sagði mér frá mark- verðustu stöðunum. Þetta voru skemmtilegir tímar og var amma óþrjótandi sagnabrunnur. Amma var alltaf lesandi og fórum við nöfnurnar nokkrar ferðir upp á bókasafn að ná í skemmtilegar og fræðandi bækur. Þarna vaknaði áhugi minn á bókum og hefur hald- ist æ síðan. Á meðan amma hafði sjón til las hún nánast allt sem hún gat komist yfir. Ég heimsótti ömmu og afa nokkur skipti til Vestmannaeyja og gáfu þau ætíð af sér hlýju, góðvild og fullt af góðum ráðum. Það var ekki nóg með að amma læsi heilu farmana af bókum, heldur skrifaði hún sjálf álíka mikið. Í mörg ár hélt hún dagbók auk þess sem hún skrifaðist á við Paulu og barna- börnin í Færeyjum, hún átti penna- vini í Danmörku, Noregi og víðar. Þegar ég fór sem skiptinemi til Bandaríkjanna (fyrir Internettíma) naut ég góðs af þessum skrifum hennar því á nokkurra vikna milli- bili fékk ég löng og greinargóð bréf uppfull af fréttum frá Íslandi. Elsku amma mín, ég þakka allar góðu stundirnar og allt það sem ég lærði hjá þér, um lífið og tilveruna, um bækur og sögu. Nú veit ég að þú og afi eruð saman á ný. Kæri pabbi, ég sendi þér og bræðrum þínum, Inga, Gísla og Ingvari, mínar inni- legustu samúðarkveðjur. Ásta Rut Jónasdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.