Morgunblaðið - 17.01.2001, Page 48

Morgunblaðið - 17.01.2001, Page 48
KIRKJUSTARF 48 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 18. janúar nú á nýbyrjuðu ári er heim- ilisfólki af sambýlum í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi og þeim sem vilja koma með þeim boðið til nýárs- gleði í Hafnarfjarðarkirkju. Hún hefst með stuttri helgistund í kirkjunni kl. 19. Síðan er boðið til kaffisamsætis í safnaðarheimilinu Strandbergi og harmonikuballs þar á eftir til kl. 21. Petrína Óskarsdóttir mun leika á flautu í helgistundinni og harmonikusveit leikur undir dansi í Hásölum Strandbergs. María Ei- ríksdóttir kennari og sr. Gunnþór Ingason sóknarprestur sjá um mót- tökur og dagskrá. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Eftirmiðdagar fjölskyldunnar Á vorönn 2001 býður Dómkirkjan upp á eftirmiðdaga fyrir nýbakaðar mæður og feður í safnaðarheimilinu við tjörnina (gengið inn Vonarstræt- ismegin). Stundirnar verða á fimmtudögum frá kl. 14–16 og hefst sú fyrsta hinn 25. janúar næstkom- andi. Fyrir utan veglegt hlaðborð á miðhæð hússins, sem foreldrum og börnum er velkomið að þiggja á mjög vægu verði, þá mun Gerður Bolladóttir söngkona bjóða upp á tónlistarnámskeið, einkum fyrir börn á aldrinum 0–2 ára. Hún hefur góða reynslu á því sviði. Tónlistar- námskeiðið er foreldrum alveg að kostnaðarlausu og hefst kl. 15 og tekur um hálfa klukkustund. Sé þessi eftirmiðdagstími óheppilegur fyrir foreldra skólabarna, þá skal það tekið fram að þau eru að sjálf- sögðu velkomin líka og þeim mun ekki leiðast. Góðir gestir munu líta inn þegar reynsla er komin á stund- irnar. Umsjónarmaður um eftirmið- dagana er Bolli Pétur Bollason, fræðari safnaðarins. Því má bæta við að þessir eftirmiðdagar koma í stað mömmumorgna, sem voru á mið- vikudagsmorgnum í safnaðarheimili Dómkirkjunnar fyrir áramót/alda- mót. Þetta verður gaman, en þá þarf að koma saman. Andlegt ferðalag í Fríkirkjunni í Hafnarfirði Nk. fimmtudagskvöld, 18. janúar, verður lagt af stað í andlegtferðalag ef svo má að orði komast í safnaðar- heimili Fríkirkjunnar í Hafnarfirði. Þetta ferðalag hefur það markmið að opna fólki leið til þess að bæta líðan sína og er sérstaklega ætlað full- orðnum einstaklingum sem í upp- vexti sínum hafa orðið fyrir neikvæð- um áhrifum af umhverfi sem ekki byggði það upp eða nærði nema síð- ur væri. Byggt er á hinum þekktu 12 reynslusporum AA-samtakanna og Biblíunni en það er löngu sannað að sporin 12 nýtast fleirum en þeim sem eiga við áfengisvanda að stríða. Þátttakendum gefst kostur á að kaupa verkefnabók sem ber heitið: „Tólf sporin – andlegt ferðalag sem er persónuleg leiðsögn til þess að öðlast skilning á andlegum krafti 12 sporanna út frá kristnum viðhorfum. Þetta verkefni eða ferðalag fór fyrst af stað í Laugarneskirkju fyrir nokkrum árum og hlaut frábærar viðtökur en það eru einmitt leiðbein- endur úr Laugarneskirkju sem munu fylgja okkur af stað og verða okkur innan handar fyrstu vikurnar. Næstu fjögur fimmtudagskvöld fer fram opin kynning á ferðatilhög- un og þangað eru allir velkomnir til þess að kynna sér það sem í boði er. Samverustundirnar eru í safnað- arheimili Fríkirkjunnar í Hafnar- firði að Linnetsstíg 6 og hefjast kl. 20 og lýkur kl. 22. Allar nánari upplýs- ingar hjá Einari Eyjólfssyni presti. Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur málsverður á eftir. Bústaðakirkja. Starf aldraðra í safn- aðarheimili Bústaðakirkju kl. 13.30. Þar verður spilað, föndrað, sungið, spjallað og boðið upp á kaffi. Allir velkomnir. Grensáskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12. Allar mæður velkomnar með lítil börn sín. Samvera eldri borgara kl. 14. Biblíulestur, bæna- stund, kaffiveitingar og samræður. TTT-starf (10–12 ára) kl. 16.30. Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir for- eldra ungra barna kl. 10–12. Háteigskirkja. Opið hús kl. 10–16 í Setrinu, neðri hæð safnaðarheimilis- ins fyrir eldri borgara. Bænastund. Súpa og brauð í hádegi fyrir 200 kr. Upplestur, föndur o.fl. Nánari upp- lýsingar gefur Þórdís Ásgeirsdóttir, þjónustufutrúi Háteigssafnaðar, í síma 551-2407. Kvöldbænir og fyr- irbænir í dag kl. 18. Langholtskirkja. Kyrrðar- og fyrir- bænastund er kl. 12–12.30. Fyrir- bænaefnum má koma til sóknar- prests og djákna. Létt máltíð gegn vægu gjaldi á eftir í safnaðarheim- ilinu. Samvera eldri borgara er kl. 11– 16. Spjall, kaffisopi, heilsupistill, létt hreyfing, slökun og kristin íhugun er á dagskránni kl. 11–12. Bænagjörð, sálmasöngur og orgelspil í kirkjunni kl. 12–12.30. Síðan er létt máltíð (500 kr.) í safnaðarheimilinu. Frá kl. 13 er spilað, hlustað á upplestur eða málað á dúka og keramik. Kaffisopi og smákökur eru í boði kirkjunnar kl. 15.20. Stundinni lýkur með söng- stund á léttu nótunum undir stjórn Jóns Stefánssonar organista. Um- sjón hefur Svala Sigríður Thomsen djákni. Áskirkja. Opið hús, Kaffispjall. Bibl- íulestur kl. 20. Fjallað verður um bréf Páls postula. Laugarneskirkja. Morgunbænir í kirkjunni kl. 6.45–7.05. Kirkjuprakk- arar (6–7 ára) kl. 14.30. Æfing DKL kl. 17. Fermingartími kl. 19.15. Ung- lingakvöld Laugarneskirkju, Þrótt- heima og blómavals kl. 20. Neskirkja. Orgelandakt kl. 12. Starf fyrir 7 ára börn kl. 14–15. Opið hús kl. 16. Kaffiveitingar. Bænamessa kl. 18. Sr. Halldór Reynisson. Seltjarnarneskirkja. Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur málsverður á eftir í safnaðarheimilinu. Starf fyr- ir 11–12 ára börn kl. 17. Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr- aðra. Opið hús í dag kl. 13–16. Hand- mennt, spjall og spil. Fyrirbæna- 0guðsþjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt að koma til prestanna. Breiðholtskirkja. Messa kl. 20. Hr. Karl Sigurbjörnsson biskup setur Sr. Gísla Jónasson inn í embætti pró- fasts í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Hr. Karl Sigurbjörnsson pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt hinum nýja prófasti og sr. Sigurjóni Árna Eyjólfssyni héraðsprestri. All- ir velkomnir. Digraneskirkja. Æskulýðsstarf KFUM og Digraneskirkju fyrir 10– 12 ára drengi kl. 17.30. Unglinga- starf KFUM&K og Digraneskirkju kl. 20. Fella- og Hólakirkja. Kyrrðar- og bænastund kl. 12. Léttur hádegis- verður í safnaðarheimilinu eftir stundina. Opið hús fyrir fullorðna til kl. 15. Bæna- og þakkarefnum má koma til Lilju djákna í síma 557-3280. Látið einnig vita í sama síma ef óskað er eftir keyrslu til og frá kirkju. Starf fyrir 9–10 ára stúlkur kl. 15–16. Bibl- íulestur kl. 17.30 í umsjón sr. Hreins Hjartarsonar. Helgistund í Gerðu- bergi á fimmtudögum kl. 10.30. Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Altarisganga og fyr- irbænir. Boðið er upp á léttan há- degisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi 9–12 ára kl. 16.30– 17.30. Kirkjukrakkar í Engjaskóla kl. 18–19. Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17. Kópavogskirkja. Samvera 8–9 ára barna í dag kl. 16.45–17.45 í safn- aðarheimilinu Borgum. TTT sam- vera 10–12 ára barna í dag kl. 17.45– 18.45 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum, allir velkomnir. Léttur kvöldverður að stund lokinni. Tekið á móti fyrir- bænaefnum í kirkjunni og í síma 567- 0110. Vídalínskirkja. Foreldramorgnar, starf fyrir foreldra ungra barna kl. 10–12 í safnaðarheimilinu. Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 14–16.30. Helgistund, spil og kaffi. Hafnarfjarðarkirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Hugleiðing, altarisganga, fyr- irbænir, léttur málsverður á eftir í Ljósbroti, Strandbergi kl.13. Boðunarkirkjam, Hlíðasmára 9, Kópavogi. Námskeið dr. Steinþórs Þórðarsonar „Lærum að merkja biblíuna“ byrjar aftur kl. 20. í kvöld. Mjög spennandi efni verða tekin fyr- ir og biblían verður aðgengilegri. Kletturinn, kristið samfélag. Bæna- stund kl. 20. Allir velkomnir. Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í kirkjunni kl. 12:10. Samverustund í Kirkjulundi kl. 12:25 – súpa, salat og brauð á vægu verði – allir aldurs- hópar. Umsjón: Ásta Sigurðardóttir. Alfanámskeið í Kirkjulundi kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22. Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 12–12.20 kyrrðar- og fyrirbæna- stund í hádeginu. Kl. 20 opið hús fyr- ir unglinga í KFUM&K húsinu við Vestmannabraut. Nýir þátttakendur velkomnir. Ytri-Njarðvíkurkirkja. Spilakvöld aldraðra, fimmtudaginn 18. janúar kl. 20. Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18. Kennsla kl. 19, krakkaklúbbur, ung- lingafræðsla, grunnfræðsla, kennsla fyrir enskumælandi og biblíulestur. Bænastund kl. 20. Allir hjartanlega velkomnir. Nýársgleði sam- býlinga í Hafnar- fjarðarkirkju Safnaðarstarf SJÁVARÞORPIÐ Wijk aan Zee er margrómað hjá skákmönnum fyr- ir að halda eitt sterkasta skákmót hvers árs. Mótið á sér áratugahefð sem sést m.a. á því að á lokahátíð mótsins er boðið upp á baunasúpu, líkri þeirri sem keppendur snæddu á árum seinni heimsstyrjaldarinnar. Garry Kasparov tefldi í fyrsta skipti í Wijk aan Zee fyrir tveimur árum og vann þá mótið glæsilega. Hann end- urtók leikinn ári síðar og er nú mættur aftur til leiks en að þessu sinni án nokkurrar heimsmeistara- tignar. Hins vegar eru tveir aðrir keppendur sem geta státað af slíkri tign en það eru Vladimir Kramnik, er bar sigurorð af Kasparov í einvígi í nóvember sl., og FIDE-heims- meistarinn Viswanathan Anand. Áhugavert verður að fylgjast með keppni þessara þriggja en ljóst er að Kasparov mun leggja allt í sölurnar til að sýna sig og sanna eftir ófar- irnar gegn Kramnik. Hann fer vel af stað með fullt hús eftir örugga sigra með svörtu gegn stigalægstu kepp- endunum í tveimur fyrstu umferð- unum. Heimsmeistararnir koma í humátt á eftir með 1½ vinning hvor. Annar þeirra sýndi mátt sinn og megin í skák gegn heimamanninum Loek Van Wely. Hvítt: Vladimir Kramnik Svart: Loek Van Wely 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rxc3 6. bxc3 Bg7 7. Rf3 c5 8. Be3 Da5 9. Dd2 Rc6 10. Hc1 cxd4 11. cxd4 Dxd2+ 12. Kxd2 O-O 13. d5 Hd8 14. Ke1!? Þessi staða kom upp í nýafstöðnu atskákeinvígi þeirra Kramnik og Ungverjans Pet- er Leko. Þótt hún virðist yfirlætis- laus við fyrstu sýn er mikil stöðubar- átta sem fer fram. Hvítur hefur sterkt peðamiðborð sem svartur vill sýna fram á að sé í raun veikt. Hvít- ur hefur meira rými og vald á opinni c-línu sem svartur ætlar í báðum til- fellum að uppræta. Grundvöllur þess byggist á að halda sem flestum mönnum inni á borðinu og brjóta upp peðamiðborð hvíts. (Sjá stöðu- mynd I) 14...Ra5!? Athyglisverð hugmynd. Leko lék 14...Re5 og eftir 15. Rxe5 Bxe5 16. f4 Bd6 17. Kf2 e5 18. Bc5 Bxc5+ 19. Hxc5 exf4 20. Kf3 stóð hvítur betur að vígi. Þó að textaleik- urinn setji riddarann út á kant hefur hann þar ákveðnu hlutverki að gegna. Hann valdar c4 og b7 punkt- ana sem eru allmikilvægir í stöðunni. 15. Bg5! Bd7! Ágætlega leikið hjá báðum keppendum. 15...h6 hefði ver- ið lakara fyrir svartan sökum 16.Bxe7 He8 17.d6 Bf8 18.Bb5. Ekki er gáfulegt fyrir hvítan að taka á e7 núna sökum 16...He8 17. d6 Bf8 og svartur stendur betur. 16.Bd3 Hdc8 17.Ke2 e6 18.Be3 exd5 19.exd5 Mik- ilvægasta augnablik skákarinnar þar sem svartur verður að hafa skýra hugmynd um hvernig ber að halda áfram, að öðrum kosti stendur hvítur betur. (Sjá stöðumynd II) 19...b6? Afar gróf stöðuleg mis- tök. Svartur ekki aðeins veikir sjö- undu reitaröðina sína með þessu heldur leyfir hvítum að virkja sinn lélegasta mann, hvítreita biskupinn. Mun betra var 19...He8! og hvítur stendur frammi fyrir erfiðu vali sök- um þess að svartur hyggst næst leika Had8 og sækja síðan að d-peði hvíts. Til að mynda er 20.Hc5 b6 21.Hc7 Ba4 ekki mjög björgulegt þar sem svartur leikur næst Had8 og hefur þá a.m.k. jafnt tafl. 20.Ba6! Að sjálfsögðu! Nú stendur hvítur betur. 20... Hd8 21.Hhd1 Bc8?! Nauðsynlegt var að halda hvítreita biskupnum inni á. 21...Ba4 hefði því t.d. verið skárri kostur. Nú skiptir hvítur upp í afar vænlegt endatafl. 22.Bxc8! Haxc8 23.Hxc8 Hxc8 24.Rd4! Bf8 25.Rb5 a6 Eftir mistök svarts í 19.leik hefur staða hans versnað með hverjum leik. Næsti leikur hvíts er sem rothögg. (Sjá stöðumynd III) 26.d6! Hc2+ Ef svartur hefði tekið riddarann hefði hann lent í miklum vandræðum: 26...axb5 27.d7 Hd8 28.Bxb6 Rc6 29.Bxd8 Rxd8 30.Hd5! og hvítur stendur til vinnings þar sem t.d. 30...b4 er svarað með 31.He5 og hvítur verður skiptamuni yfir. 27.Kd3! Hxa2 28.d7 Rb7 29.Rc3! Hb2 30.Rd5 Hb5 31.Kc2! Bc5 32.Bh6! f6 33.Rc7 og svartur gafst upp enda staða hans að hruni komin. Í síðustu viku birtist í Morgun- blaðinu athyglisverð umfjöllun Sveins Guðjónssonar þar sem m.a. var komið inn á tengsl skákhæfileika og annarra hæfileika hjá börnum. Þeir sem hafa fylgst lengi með skák- lífinu hér á landi þekkja fjölmörg dæmi, gömul og ný, um skákmenn sem hafa náð góðum árangri í stærð- fræði í skóla. Það er t.d. athyglisvert, að í hópi þeirra sem náðu bestum ár- angri í stærðfræðikeppni framhalds- skólanema þetta skólaár eru a.m.k. fjórir skákmenn, þeir Andri H. Kristinsson, Birkir Örn Hreinsson, Matthías Kormáksson og Sigurður Páll Steindórsson. Birkir Örn varð reyndar í 1.-2. sæti á neðra stigi. All- ir þessir skákmenn unnu sér rétt til þátttöku í lokakeppninni sem haldin verður nú á vormisseri. Margir skákmenn hafa reyndar sýnt frábæran námsárangur al- mennt en ekki bara í stærðfræði. Það má þó ekki gleyma því að eitt er að hafa hæfileikann og annað að þroska hann og hagnýta sér. Fjölmargar skemmtilegar sögur eru til af andlegum afrekum skák- manna. Margir þeirra hafa ótrúlega gott minni og í þeirra hópi var Harry Nelson Pillsbury (1872-1906). Hann var firnagóður skákmaður og tók m.a. þátt í skákmótinu í Hastings 1895, 22 ára að aldri. Mótið var sann- kallað „ofurmót“ og það má jafnvel líkja því við Wijk aan Zee-skákmótið sem nú stendur yfir. Meðal þátttak- enda voru t.d. heimsmeistarinn Em- anuel Lasker, fyrrverandi heims- meistari Wilhelm Steinitz og fjöldi annarra sterkustu skákmanna heims. Lasker var í ótrúlega svipaðri stöðu og Kramnik og Anand eru nú. Hann hafði unnið heimsmeistara- tignina af Steinitz árið fyrir mótið. Þetta var hans fyrsta stórmót eftir það og hann vildi gjarnan sýna fram á að hann væri verðugur heims- meistari. Einnig má segja að Steinitz hafi verið í svipaðri stöðu og Kasp- arov er nú, nýbúinn að missa heims- meistaratitilinn. Það var þó hvorki heimsmeistarinn né fyrrverandi heimsmeistari sem sigraði í Hast- ings, heldur Harry Nelson Pillsbury. Eins og áður segir var minni Pills- bury ótrúlegt. Hann tefldi gjarnan blindskák og eitt sinn tefldi hann blindskák við 21 andstæðing. Öðru sinni var honum fenginn listi með u.þ.b. 30 orðum. Nokkrum mínútum síðar hafði hann lagt allan listann á minnið og gat þulið hann afturábak og áfram. Þetta voru ekki auðveld orð eins og sjá má af eftirfarandi dæmum: Antiphlogistine, perios- teum, takadiastase, Piet Potgelter’s Rost, Salamagundi, Oomisellecootsi o.s.frv. Skákþing Reykjavíkur Eins og fram kom í skákþættinum í gær er Björn Þorfinnsson efstur á Skákþingi Reykjavíkur með fjóra vinninga eftir jafnmargar umferðir. Fimmta umferð verður tefld í kvöld og helstu viðureignir kvöldsins verða: Benedikt Jónass.- Björn Þorfinnss. 2. Lenka Ptácníková - Davíð Kjartanss. 3. Páll A. Þórarinss.- Stefán Kristjánss. 4. Sævar Bjarnason - Dagur Arngrímss. 5. Sigurður Steindórss.- Arnar Gunnarss. Teflt er í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur og hefst taflið kl. 19:30. Áhorfendur eru velkomnir. Skytturn- ar þrjár SKÁK W i j k a a n Z e e 13.-28.1 2001 CORUS-SKÁKMÓTIÐ Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson Stöðumynd I Stöðumynd II Stöðumynd III

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.