Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 55

Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 55 DAGBÓK Vörður — fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Aðalfundur Vörður — Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Aðalfundur verður haldinn í Sunnusal Hótels Sögu laugardaginn 20. janúar næstkomandi kl. 13.15. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Ræða varaformanns Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Geirs H. Haarde. Stjórnin Opið frá kl. 10.00 til 18.00 Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. ALVÖRU ÚTSALA Ótrúlega lágt verð 70-80% afsláttur Dæmi um verð Áður Nú Sítt pils 3.900 900 Skyrta 3.900 600 Slinky bolur 3.300 900 Herrabuxur 4.900 1.200 Herraskyrta 4.300 900 Og margt fleira Einnig fatnaður í stærðum 44-52 Bó nu s Kauptu eina flík og fáðu aðra fría Það er álitamál hvort segja beri slemmu á spil NS hér að neðan, en þegar útspilið er tromp upp á drottningu er enginn vafi á því að sagn- hafi er ánægður með samn- inginn: Norður ♠ 985 ♥ D76 ♦ KG874 ♣86 Suður ♠ ÁKG1063 ♥ Á10 ♦ Á ♣KDG9 Hvernig á nú að ljúka verkinu eftir þessa þægilegu byrjun? Örn Arnþórsson í sveit Skeljungs stóð frammi fyrir þessu viðfangsefni í níundu umferð Reykjavíkurmóts- ins. Helsta taphættan er augljóslega sú að gefa tvo slagi á lauf. Ef trompið er 3-1 má ekki spila því strax, því þá getur vörnin hugsan- lega trompað aftur út inni á laufás. Örn valdi því að spila laufkóng í öðrum slag og tryggja sér eina laufstungu í blindum. Rökrétt spila- mennska, en ekki vel heppn- uð: Norður ♠ 985 ♥ D76 ♦ KG874 ♣86 Vestur Austur ♠ 74 ♠ D2 ♥ KG8 ♥ 95432 ♦ D10 ♦ 96532 ♣Á75432 ♣10 Suður ♠ ÁKG1063 ♥ Á10 ♦ Á ♣KDG9 Vestur tók á laufásinn og gaf makker stungu!!! Einn niður. Slemman var sögð á fleiri borðum og fór yfirleitt niður eftir laufásinn út í byrjun og meira lauf. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson TAFLFÉLAG Reykjavíkur er 100 ára gamalt. Það hefur verið vagga íslenskrar skák- listar í heila öld en á síðustu árum hefur vægi þess farið minnkandi. Sumir telja það óheillavænlega þróun en aðrir fagna því að meiri fjöl- breytni sé til staðar. Hvað sem því líður heldur félag- ið á hverju ári tvö af mikilvæg- ustu mótum landsins. Annað þeirra er nýhafið en staðan kom upp á Skák- þingi Reykjavíkur á milli Tóm- asar Björns- sonar (2250) og Halldórs Pálssonar (1890). 16. Bxf6! Bxf6 16...gxf6 kom ekki til greina sökum 17. Dh5 Rg5 18. Rxf7 og hvítur vinnur. 17. Bxh7! Kf8 17...Kxh7 er vel svarað með 18.Dh5+ Kg8 19.Dxf7+ Kh7 20.He3! og hvítur stendur vel að vígi. 18.Dg4 Rg5?? hrikaleg mis- tök í vondri stöðu. Svartur gafst upp um leið þar sem eftir 19.Rd7+ verður hann drottningu undir. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. LJÓÐABROT EBBADÆTRAKVÆÐI Ebbi sigldi í leiðangur konunginn að finna; eftir skildi hann dætur tvær, bað þær engan ginna. Þar sem öðlingar fram ríða. Ungir voru Ívarssynir, báru saman ráð: „Við skulum ríða í Ebba garð, vinna meyjum háð. Við skulum okkr í hæga loft, vinna meyjum mein; þar er ei eftir hefndir að taka nema einn ungur sveinn. Þar er ei til hefndir að taka nema einn smásveinn; þó það verði röskur maður, hann vinnur ei okkur einn“. Herra Pétur klappar á lásinn og á loku: „Hvort gjörið þið, stolts-jómfrúrnar, vakið eða sofið?“ „Ekki er okkur svefnsamt, vakað höfum við enn; hver er fyrir loftsdyrum? kenni eg ekki menn“. - - STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake STEINGEIT Afmælisbarn dagsins: Þú ert gæddur góðum leikarahæfi- leikum og átt auðvelt með að létta öðrum stundina en átt oft erfitt með að beita at- hyglinni lengi í senn. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú þarft að gæta þess að ganga ekki fram af þér með vinnu. Reyndu að skipuleggja tíma þinn sem best og gefðu sjálfum þér tíma líka. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vilji er allt sem þarf og hálfn- að er verk þá hafið er. En út- haldið má ekki bresta og þess þarft þú að gæta sérstaklega. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu ekki einhvern ókunnug- an plata þig upp úr skónum. Farðu þér því hægt og hafðu alla fyrirvara uppi þegar þér eru gerð einhver tilboð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þér berast þýðingarmikil skilaboð eftir furðulegum leið- um en láttu það ekki slá þig út af laginu heldur kannaðu mál- ið vandlega áður en þú grípur til aðgerða. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Reiðin er af hinu illa og því skaltu varast að hleypa henni að þótt þér finnist þú eiga erf- itt nú um stundir. Öll él birtir upp um síðir. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þér tekst að jafna gamalt deilumál og mátt vel við nið- urstöðuna una. Reyndu ekki að eyðileggja málið með því að þykjast geta sóst eftir meiru. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þótt þú viljir láta undan örlæti þínu skaltu samt muna að þú þarft fyrst og fremst að hugsa um þig og þína nánustu, aðrir koma ekki fyrr en þar á eftir. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Veröldin er ekki alltaf eins og við helst vildum hafa hana en það er ekkert við því að gera og þú verður bara að laga þig að þeim aðstæðum sem þér eru búnar. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Leyfðu ímyndunaraflinu að leika lausum hala stundar- korn því eitt og annað nýtilegt kann að koma út úr því þótt þú sjáir ekki afrakstur þess í fljótu bragði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að rannsaka vand- lega allar hliðar mála áður en þú gerir upp hug þinn, annars áttu á hættu að lenda á villi- götum sem leiða til ófarnaðar. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú verður sjálfur að sjá um þitt öryggi því að aðrir gera það ekki fyrir þig. Mundu að þú ert sjálfur gæddur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Samræður sem virðast í fljótu bragði ósköp venjulegar geta leynt á sér og verið lykillinn að nýjum og skemmtilegum hlutum. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Árnað heilla 70 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 17. janúar er sjötug Ólína Jóns- dóttir, Háholti 11, Akra- nesi. Af því tilefni tekur hún á móti gestum í sal Grunda- skóla laugardaginn 20. jan- úar kl. 15 síðdegis. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 23. september sl. í Háteigskirkju af sr. Sigurði Arnarsyni Guðrún Elísabet Árnadóttir og Vilbergur Flóvent Sverrisson. Með þeim á myndinni er dóttir þeirra Kristín Helga. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynning- ar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík   Það má ekki taka mark á manninum mínum þegar hann hefur smakkað það. Hermann, þú spillir hundinum með eft- irlæti. Bridsfélag Hreppamanna Starfsemi félagsins hefir verið með hefðbundnum hætti í haust og þátttaka svipuð og undanfarin ár. Gunnar Martreinsson og Viðar Gunngeirsson sigruðu í hausttví- menningnum, hlutu 212 stig. Karl Gunnlaugsson og Jóhannes Sig- mundsson urðu í öðru sæti með 203 stig og Magnús Gunnlaugsson og Pétur Skarphéðinsson þriðju með 200 stig. Sextán einstaklingar tóku þátt í einmenningnum í haust en þar varð lokastaðan þessi: Gunnar Jóhannesson 207 Viðar Gunngeirsson 200 Karl Gunnlaugsson 197 Jóhannes Sigmundsson 190 Topp 16 var spilað 2. janúar sl. en þar urðu úrslitin þessi: Jóhannes Sigmundsson 111 Karl Gunnlaugsson 105 Sigurður Sigmundsson 101 Ásgeir Gestsson 96 Gunnar Marteinsson 96 BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Íslandsmót í parasveitakeppni um aðra helgi Íslandsmótið í parasveitakeppni verður spilað helgina 27.–28. janúar. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og undanfarin ár. Spilaðar eru 7 umferðir með 16 spila leikjum og raðað í umferðir með Monrad-fyr- irkomulagi. Spilamennska hefst kl. 11.00 báða dagana. Skráning er haf- in í síma 587 9360 eða bridge@brid- ge.is. Félag eldri borgara í Kópavogi Mjög góð þátttaka var þriðjudag- inn 9. janúar en þá mættu 29 pör. Lokastaðan í N/S: Eysteinn Einarss. - Jón Stefánsson 351 Einar Markússon - Steindór Árnas. 342 Sigtr. Ellertss. - Sigurþór Þorgrss. 341 Hæsta skor í A/V: Albert Þorsteinss. - Sæmundur Björnss. 400 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddss. 380 Ingibj. Halldórsd. - Kristín Karlsd. 339 Nítján pör mættu á sl. föstudag en þá urðu úrslit þessi í N/S: Rafn Kristjánss. - Oliver Kristófss. 271 Ólafur Ingimundars. - Jón Pálmason 247 Guðjón Kristjánss. - Magnús Halldórss. 226 Hæsta skor í A/V: Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnas. 254 Ingibj. Stefánsd. - Þorsteinn Davíðss. 240 Garðar Sigurðss. - Vilhjálmur Sigurðss. 239 Meðalskor á þriðjudag var 312 en 216 á föstudag. Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 11.janúar var spil- að annað kvöldið af þrem í tvímenn- ingi Kebabhússins. Bestu skori kvöldsins náðu í N-S (meðalskor var 216): N-S Þórður Björnss. - Bernódus Kristinss. 263 Ármann J Láruss. - Gísli Þ. Tryggvas. 243 Jón Hilmarss. - Jón Baldvinss. 224 A-V Freyja Sveinsd. - Sigríður Möller 250 Ester Jakobsd. - Dröfn Guðmundsd. 238 Loftur Péturss. - Garðar V Jónss. 233 Guðlaugur Bessas. - Jón St. Ingólfss. 233 Staðan er þá þessi eftir tvö kvöld. Þórður Björnss. - Bernódus Kristinss. 481 Ester Jakobsd. - Dröfn Guðmundsd. 478 Loftur Péturss. - Garðar V Jónss. 474 Kebabhússkeppnin heldur áfram fimmtudaginn 18.janúar og hefst spilamennska kl.19.45. Spilað er í Þinghól við Hamra- borgina. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK Gullsmára spil- aði tvímenning á níu borðum mánu- daginn 15. janúar. Miðlungur 216. Beztum árangri náðu: NS Dóra Friðleifsd. og Guðjón Ottóss. 266 Sigurður Gunnlss. og Sigurpáll Arnas. 265 Guðm. Pálss. og Kristinn Guðmundss 260 AV Sigurj. H. Sigurjónss og Stefán Ólafsson 278 Valdimar Láruss. og Jón P. Ingibergss. 251 Leó Guðbrandss. og Aðalst. Guðbrands 221 Eldri borgarar spila í Gullsmára mánudaga og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.