Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 17.01.2001, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ +0 1CG1 10"+. A%( (1671 10"+. A%( +0 16H1 1(  A% (16@1 1(  A% +0 161+ 1(  A%                ! Litla svið - VALSÝNING ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab Fim 18. jan kl. 20 Lau 20. jan kl. 19 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Stóra svið SKÁLDANÓTT e. Hallgrím Helgason Fös 19. jan kl. 20 Lau 27. jan kl. 19 Lau 3. feb kl. 19 Stóra svið MÓGLÍ e. Rudyard Kipling Sun 21. jan kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 28. jan kl. 14 – ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 28. jan kl. 17 - AUKASÝNING Sun 4. feb kl. 14 - ÖRFÁ SÆTI LAUS Sun 11. feb kl. 14 – NOKKUR SÆTI LAUS Litla svið ABIGAIL HELDUR PARTÍ e. Mike Leigh Lau 3. feb kl. 19 552 3000 Á SAMA TÍMA SÍÐAR KL. 20 fim 18/1 Aukasýning örfá sæti fös 19/1, G&H kort gilda UPPSELT lau 27/1 I kort gilda, UPPSELT lau 27/1 kl. 23 miðnætursýning sun 28/ örfá sæti laus sun 4/2 laus sæti fim 8/2 laus sæti SJEIKSPÍR EING OG HANN LEGGUR SIG lau 20/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 26/1 kl. 20 örfá sæti laus lau 3/2 kl. 20 örfá sæti laus lau 10/2 kl. 20 laus sæti fös 16/2 kl. 20 530 3030 SÝND VEIÐI lau 20/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 26/1 kl. 20 laus sæti lau 3/2 kl. 20 laus sæti TRÚÐLEIKUR fös 19/1 kl. 20 örfá sæti laus fim 25/1 kl. 20 laus sæti lau 27/1 kl. 20 örfá sæti laus fös 2/2 kl. 20 laust sæti Miðasalan er opin kl. 12-18 virka daga, kl. 14-18 um helgar og fram sýningu alla sýningardaga. Hópasala fyrir leikhús og/eða veitingahús er í síma 530 3042, opið kl. 10-16 virka daga. Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning hefst. midasala@leik.is — www.leik.is ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200 Stóra sviðið kl. 20.00:        )#-9  8:9   #898 !"#$%!  &'' $  8 9 -$  8;9  $ #8<9 $  98  8$  98 ( ) ! "" !!  * & +  )$  89,-.,// 89'  :  '98' Smíðaverkstæðið kl. 20.00:  0 &  $ %"      ) 9  8 9  89  8;9 #8<9 89  9  98  98 )&"1!2 3 &&&4(  5 6  )#-9  8:9 Litla sviðið kl. 20.30: ) !$ ! 1 789' :   )$ #8<9 8:9 #898 ;;;,  *,  < *=  *, % 4        Miðasalan er opin mán.-þri. kl. 13-18, mið.-sun. kl. 13-20.   Í HLAÐVARPANUM Eva bersögull sjálfsvarnareinleikur 7. sýn. fim. 18. jan kl 21:00 8. sýn. þri. 23. jan kl 21:00 9. sýn. lau. 27. jan. kl. 21.00 „...textinn er bæði skemmtilegur og sannur í allri sinni tragi-kómik...ég skora á [konur]að fjölmenna og taka karlana með...“ (SAB Mbl.) Föstudag 19. janúar Sólheit sambasveifla á bóndadaginn með hljómsveitinni Felicidae Háaloft - geðveikur svartur gamaneinleikur 20. sýn laugardag 20. jan kl 21:00 21. sýn. fös. 26. jan. kl. 21 uppselt 22. sýn. þri. 30. jan. kl. 21.00 „Áleitið efni, vel skrifaður texti, góður leikur og vönduð umgjörð.“ (SAB Mbl) „... undirtónninn sár og tregafullur.“ (HF DV) Stormur og Ormur 23. sýn. sun. 21. jan. kl 15:00 Allra síðasta sýn. í Kaffileikhúsinu „Halla Margrét fer á kostum“. (GUN Dagur) „Óskammfeilni ormurinn...húmorinn hitti beint í mark...“ SH/Mbl        & #&# >>-?/>> NÝÞUNGAROKKIÐ (Nu-metal) er sú tegund rokktón-listar sem á hvað mestum vinsældum að fagna um þessar mund- ir. Nýþungarokk á sér nokkuð langan aðdraganda þó svo að æðið hafi ekki byrjað að fullu fyrr en á allra síðustu árum. Stefna þessi er í raun mjög einföld: rokk og hip-hopp blandað saman. Ýmsar rokksveitir hafa sett mark sitt á upphaf numetalsins og má þar helst nefna Anthrax sem snemma á sínum ferli gerðu rokkrapplagið „I’m The Man“ og seinna „Bring The Noise“ þar sem þeim til fulltingis voru rapphetjurnar í Public Enemy. „Bring The Noise“ er án efa eitt af fyrstu nýþungarokklög- unum. En hver var ástæð- an fyrir því að Anthrax réðust í þessar frumlegu framkvæmdir? Jú, Scott Ian, gítar- leikari og forsprakki sveitarinnar, var mikill unnandi rapptónlistar og ákvað að sjóða hana saman við sína eigin tónlist. Hann segist þó fullur eftirsjár í dag. Telur sig hafa skapað ófreskju sem nú eigi sér sjálfstætt líf og segir að hann hefði sleppt þessu hefði hann séð afleiðingarnar fyrir fram. Hljómsveitin Korn er sú fyrsta sem kemur í hugann sem upphafssveit ný- þungarokksins en þeir slógu svo eft- irminnilega í gegn með frumburði sínum, Korn, árið 1994. Einnig má nefna göfugt starf upptökustjórans Ross Robinson með Korn (og fleiri sveitum) en hann setti mark sitt svo um munaði á hljóm sveitarinnar á sín- um tíma. Fjölmargar sveitir skutu upp kollinum í kjölfar vinsælda Korn og margar stórgóðar plötur litu dags- ins ljós. Ein af þeim var án efa frum- burður hljómsveitarinnar (hed)p.e. sem kom út árið 1997. Vinaband Korn, Limp Bizkit, er án efa eitt vinsælasta nýþungarokkband dagsins í dag. Bandið skipa fyrrum House Of Pain-plötusnúðurinn Leth- al, John Otto sem leikur á trommur, Sam Rivers bassaleikari, gítarleikar- inn Wes Borland og söngvarinn/rapp- arinn Fred Durst. Limp Bizkit sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu árið 1997 sem heitir Three Dollar Bill Y’all$ og kom áðurnefndur Ross Rob- inson einmitt þar við sögu sem upp- tökustjóri. Á henni má meðal annars finna gamla George Michael smellinn „Faith“ en segja má að hljómsveitin hafi komið sér á kortið með því lagi. Platan Significant Other kom svo tveimur árum seinna og voru þá straumar bandsins aðeins teknir að kyrrast. Terry Date var hér sestur í upptökustjórasætið. Vinsældir bandsins jukust jafnt og þétt. Nýlega sendi Limp Bizkit frá sér sína þriðju breiðskífu og heitir hún því sérkennilega nafni Chocolate Starfish & The Hot Dog Flavored Water. Fyrsta lag plötunnar heitir „Hot Dog“. Ágætis lag sem líður fyrir frekar súra textagerð („Shame that you can’t say fuck, fuck’s just a word and its all fucked up like a fucked up punk with a fucked up mouth“). Text- inn veldur því að maður á hálferfitt með að spá í hvað sé eiginlega í gangi. Við tekur „My Generation“ sem er strax öllu skárra. Það byrjar á kraft- miklum kafla að hætti hins frábæra Wes Borland. Hljóðfæraleikur lags- ins er alveg með ágætum og er fram- vinda lagsins alveg tiltölulega í takt við það sem Limp Bizkit hafa verið að gera. Upp úr stendur skemmtilegur millikafli fyrir síðasta viðlagið. „Full Nelson“ fer afslappað af stað en byrjar svo að höggva í eyrun með frábæru viðlagi. Kraftmikil spila- mennska þar sem heyra má skemmti- lega útfærðan gítarleik frá Borland. „My Way“ byrjar á rispum frá Dj Lethal, þéttum „offbeat“-takti frá Otto og brotnum hljómum frá Bor- land. Fred Durst er, þegar hér er komið sögu, búinn að vera fulleinhæf- ur og mér finnst ég oft heyra sömu tónlykkjurnar frá honum en hann á þó ágætis spretti. Í „Rollin’ (Air Raid Vehicle)“ er ekki mikið að gerast, ósköp dæmigert Limp Bizkit-lag sem skilur ekki mikið eftir og því fátt um það að segja. „Livin’ It Up“ er næst. Þéttur trommuleikur að vanda frá John Otto og mjög svo áhugaverðar gítarlínur frá Borland. Skemmtileg stemmning myndast yfir laginu í millikafla fyrir síðasta viðlagið og setur ágætis heild- armynd á lagið. „The One“ er með betri lögum plöt- unnar þótt það sé í léttari kantinum. Áhugaverður gítarleikur ofan á þétt- an undirleik hrynparsins og Fred Durst sýnir hér á sér nýja hlið í söngnum, syngur um leitina að hinni „einu réttu“ og kemst mjög vel frá sínu. Lagið er í poppaðri kantinum og minnir um margt á gömlu poppsveit- ina Tears For Fears á köflum. Frá- bært lag. Í lok lagsins má heyra inn- ganginn að því næsta. Þar syngur Durst yfir forritaðan trommutakt og snarstefjun á skemmtara. „Getcha Groove On“ er alveg magnað lag og mjög sennilega ætlað Tvíhöfða-aðdáendum! Menn geta nefnilega sungið ofursmellinn „I Miss My Bitch“ við undirleik lagsins. Eitthvað sem á ekki alveg heima á þessari plötu og þar sem R’n’B tónlist er eitthvað sem ég hef yfir höfuð ekki miklar mætur á þá læt ég eiga sig að finna því eitthvað til foráttu. Það er þó á hreinu að „Getcha Groove On“ lækkar plötuna töluvert í áliti. Þá er það „Take A Look Around“, endurgerð Mission Impossible-stefs- ins. Hljóðfæraleikur er ágætlega útfærður en kemst þó ekki nálægt frumútgáfunni. Enn á ný kemur lakur söngur Dursts hljómsveitinni góðu í vand- ræði. Í „It’ll Be OK“ er ljúft vers með áhugaverðum bassaleik frá Rivers, og einnig má heyra Wes Borland gera góða hluti. Ágætlega útfært lag hjá Limp Bizkit en útsetning lagsins er leiðinlega keimlík öðrum lögum plöt- unnar. „Boiler“ er einmitt líka eitt af þessum lögum sem flokka mætti und- ir sama hatt. Vers, viðlag, vers, lagið brotið upp, uppbygging, viðlag og endir. Svona vinnubrögð skila sér bara ekki nógu vel. Platan hressist aðeins við næsta lag þar sem Scott Weiland, söngvari Stone Temple Pilots, mætir til leiks í ballöðunni „Hold On“og svei mér þá ef þeim tekst ekki að rífa stemmn- inguna upp. Lagið er ljúft og umfram allt laust við alla tilgerð. Í „Rollin (Urban Assault Vehicle)“ nýtur Durst aðstoðar frá DMX, Method Man og Redman sem rappa yfir þunnt undirspil. Hugmynd undir- leiksins er þó alveg ágæt – bragur gamla skólans ekki langt undan. Lag- ið nær þó ekki flugi þrátt fyrir ágæta gesti. Á heildina litið er Chocolate Star- fish ...ekkert sérlega góð plata. Mikið af veikum lögum inn á milli þess sem heyra má ágæta spretti. Platan er tvímælalaust stökk niður á við frá Significant Other. Hápunktar: „Full Nelson“, „The One“og „Hold On“. ERLENDAR P L Ö T U R Smári Jósepsson útvarps- og tónlistarmaður fjallar um metsöluplötu Limp Bizkit, Chocolate Starfish & The Hot Dog Flavored Water.  Haltrandi kexkökur Limp Bizkit er án efa ein allra vinsælasta rokksveitin í heiminum í dag. ÞEIR Þráinn Árni Baldvinsson og Bragi V. Skúlason gítarleikarar eru í vígreifu skapi. Hljómsveitin þeirra, Kalk, áður Klamedía X, fær nú loksins tækifæri til að spila á hljómleikum á nýjum og breyttum Gauki á Stöng í kvöld. „Gaukurinn er búinn að opna faðm sinn fyrir okkur,“ segir Bragi kankvís á svip. Það hefur helst borið til tíðinda síðan við heyrðum síðast í Kalki að Örlygur Benediktsson hljómborðs- leikari yfirgaf sveitina á síðasta ári til að elta drauma sína í Rússlandi. Skarðið fyllir fyrrverandi bassa- leikari ballsveitarinnar Áttavillt, Guðni nokkur Bragason, en til gamans má geta að hann var ein- mitt bassaleikari Klamedíu X er sú sveit var að stíga sín fyrstu skref hér í árdaga. Einnig var sveitin að opna nýtt og glæsilegt vefsetur á dögunum, hannað af Braga, en slóðin er www.kalk.is. Kalk mun leika ein og að sögn þeirra félaga verður víða komið við. Lög af fyrstu, og líklega einu, plötu Klamedíu X, Pilsner fyrir kónginn, verða leikin, svo og lög af næstu plötu sem kallast mun Tíma- spursmál, en það er tímaspursmál hvenær hún verður gefin út. Einnig verða leikin spánný lög og einhver tökulög fá að fljóta með, a.m.k. eitt með hinni geð- þekku bárujárnssveit frá Þýska- landi Helloween. Tónveisluhöldin byrja stundvís- lega kl. 22. Kalk spilar á Gauki Nýtt Kalk á nýjum Gauki Morgunblaðið/Ásdís Kalk mun flytja nýtt efni á Gauki á Stöng. á Stöng í kvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.