Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 57

Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 57 Ingólfsstræti 3 2. hæð sími 552 5450 www.afs.is Viltu alþjóðlega menntun? Meira sjálfstraust? Ertu á aldrinum 15 - 18 ára? Erum að taka á móti umsóknum til fjölmargra landa. Brottför júní - september 2001. Ársdvöl, hálfsársdvöl og sumardvöl. Alþjóðleg fræðsla og samskipti Viltu öðlast meiri víðsýni? Langar þig til að kynnast annarri menningu? Viltu kanna ókunn lönd? Nám í grunndeild matvælagreina Innritun stendur yfir Nánari upplýsingar veitir kennslustjóri hótel- og matvælagreina á skrifstofutíma milli kl. 9.00 og 15.00 til 26. janúar næstkomandi. Kennsla hefst 5. febrúar. HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI v/Digranesveg  200 Kópavogi Sími 544 5530  Fax 554 3961  Netfang mk@ismennt.is Tækifæri til að kynnast spennandi atvinnugreinum! „ÉG er leikkona og byrjaði að skrifa leikrit því mér fannst ekki nógu mik- ið af góðum hlutverkum fyrir kon- ur,“ segir Marie Jones höfundur leikritsins Með fulla vasa af grjóti sem nú er sýnt á Smíðaverskstæði Þjóðleikhússins. „Fyrstu leikritin voru því aðallega um konur. Hlutverkin voru ekki endilega sérlega feminísk, heldur góð, fyndin, lífleg og sterk hlutverk fyrir konur. Það vantaði alveg.“ Og viðbrögðin við leikritum Marie létu ekki á sér standa. Hún og leik- félagið hennar sýndu í tíu ár og ferð- uðust með sýningarnar um heiminn, og nú er Marie höfundur tveggja vinsælustu leikrita sem sýnd hafa verið á Norður-Írlandi, auk þess sem hún hefur hlotið fjölda verð- launa og viðurkenninga. Leikarinn Ian McElhinney er eiginmaður og samstarfsmaður Marie og hann leik- stýrir verkinu hér á landi. Húmor frá Írlandi Með fulla vasa af grjóti fjallar um tvo írska náunga sem taka þátt í upptökum á bandarískri stórmynd í írsku smáþorpi. Það eru leikararnir Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson sem leika öll 14 hlutverkin. „Ég skrifa alltaf um Írland og Íra, því þaðan kem ég, þar bý ég, þaðan eru málið mitt og húmorinn minn upprunninn, auk þess sem ég hef áhuga á minni þjóð. Ég myndi aldrei geta skrifað verk um amerískt fólk, ég myndi ekki einu sinni ná tungu- málinu rétt,“ segir Marie. En þetta verk hennar hefur verið þýtt á sautján tungumál, og það er verið að sýna það í West End í London, auk þess sem það verður frumsýnt í Torronto og Sydney hinn 17. janúar og á Broadway hinn 1. apríl. „Þetta hefur verið ótrúlegur smellur sem kom okkur alveg í opna skjöldu, þetta er bara gerist. Verkið hóf göngu sína sem lítil uppfærsla í Belfast en var sífellt færð í stærra húsnæði. Þeir tveir leikarar sem byrjuðu sýninguna þar eru þeir sömu og munu leika á Broadway. Og nú hefur Ian leikstýrt verkinu á ótal tungumálum, sænsku, íslensku...,“ segir Marie stolt og glöð. Hollywood í sjávarþorpi – Fékkstu hugmyndina að þessu leikriti þegar þú varst sjálf að leika í kvikmynd? „Já, reyndar. Ég hef leikið í þó- nokkrum kvikmyndum og sjón- varpsþáttum, og maðurinn minn, sem er aðallega leikari, hefur leikið í mörgum kvikmyndum. Og við nýtt- um okkur alla þá sameiginlegu reynslu okkar fyrir verkið. Mjög margar kvikmyndir eru teknar upp á Írlandi vegna skatta- lækkana, þannig að nú orðið þekkja margir þann veruleika þegar stór- mynd kemur inn í smábæ og næst- um umturnar öllu. Írland er fyrst og fremst menningarland og við erum stolt af smábæjunum okkar og sjáv- arþorpunum, svo þegar Hollywood- heimurinn ryðst þangað inn getur maður ekki annað en velt því fyrir sér hvernig þessum tveimur sam- félögum tekst að búa saman þennan tíma, vinna saman og reyna að skilja hvort annað. En þeim tekst það ekki vel, árekstrar og átök koma upp sem stundum eru fyndin, en stundum líka sorgleg og það er leikritið að- allega um.“ – Já, leikritið er einmitt svo sterkt því maður er skellihlæjandi og svo skyndilega skellur sorgin á manni... „Já, einmitt. Og Hilmir Snær og Stefán Karl gera þetta svo vel að jafnvel þótt ég skilji ekkert í ís- lensku vissi ég alveg hvað þeir voru að segja. Þeir virðast vera mjög fær- ir leikarar, því mér fannst þeir alveg frábærir og er rosalega ánægð með þá.“ Forréttindi að hafa rödd – En ertu að gagnrýna þennan yf- irborðskennda Hollywood-heim? „Nei, verkið er aðallega um fólk sem stjórnar ekki eigin lífi og örlög- um. Það er stóra sagan. Í bakgrunn- inum eru svo amerísku yfirráðin. Sagan er um lítið fólk sem hefur engin völd og lætur þá sem hafa valdið misnota sig. Þetta fólk hefur engan rétt, en í gegnum reynsluna sem þeir öðlast ná þeir meiri völd- um. Það er eiginlega sameiginlega þemað í öllum mínum verkum, og það er mjög alþjóðlegt. Lítilmagninn sem öðlast völd og stjórn á lífi sínu.“ – Er það þín eigin lífsreynsla? „Það er bakgrunnur minn. Kannski ekki minn persónulega en pabbi minn vann með asbest í skipa- smíðastöð og dó ótímabærum dauð- daga af asbest eitrun af því að hann hafði engan rétt. Og sömuleiðis hafði mamma það erfitt í verksmiðjunni sem hún vann í. Þetta er bakgrunn- ur míns samfélags, og það sem ég er að koma til skila í verkunum mínum er eitthvað sem skiptir mig miklu máli. Mér finnst ég er í forréttinda- stöðu að vera að skrifa og hafa rödd, hafa þetta svigrúm og ég það er mér mikilvægt að nota það vel.“ „Og svo elska ég líka hlátur, hlæj- andi fólk. Við Írar erum líka aldir upp við yndislega sagnahefð. Enn þegar fjölskyldan mín kemur saman heyrist ekkert nema hlátur,“ segir Marie brosandi. Kraftmikil tilfinning „Ég elska að segja sögur og elska húmor og að sameina þetta tvennt gefur mér svo mikið. Það er ekkert yndislegra en að sitja inni í leikhúss- al fullum af hlæjandi fólki, það er svo kraftmikil tilfinning, og eiginlega ástæða þess að ég hef aldrei skrifað neitt fyrir hvorki sjónvarp né kvik- myndir.“ – Þetta leikrit er sannarlega áskorun fyrir leikarana... „Já, en ef leikarar fá að velja á milli þess að leika eitt hlutverk eða fimmtán, þá velja þeir fimmtán. Þá geta þeir geta sýnt hversu fjölhæfir þeir eru. Sýnt sig svolítið... Þannig að góðir leikarar elska að leika Með fulla vasa af grjóti,“ segir Marie Jones, höfundur verksins, sem áhorfendur elska að sjá. Lítilmagninn öðlast völd Morgunblaðið/Kristinn Marie finnst Hilmir Snær og Stefán Karl frábærir í hlutverkum Charlie, Jake og allra hinna. „Það er ekkert yndislegra en að sitja í leikhússal fullum af hlæjandi fólki,“ segir Marie Jones við Hildi Loftsdóttur sem hitti leikritaskáldið farsæla. Með fulla vasa af grjóti á Smíðaverkstæðinu Flísar og parketBorgartúni 33, Reykjavík • Laufásgötu 9, Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.