Morgunblaðið - 17.01.2001, Side 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK.
SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum hefur
verið lokað í viku sakir snjóleysis.
Svæðið var opið fyrstu sex daga
ársins en hefur verið lokað síðan.
Grétar Þórisson, rekstrarstjóri
skíðasvæðisins, sagði að vissulega
vantaði skíðasnjóinn og ekki hjálp-
aði hvassviðri síðustu daga til þar
sem sá litli snjór sem þó félli fyki
þegar í burtu.
„Við vorum með snjó í lágmarki
en hann er mestallur farinn enda
máttum við ekkert við hláku og
hvað þá asahláku eins og gerði á
dögunum. Núna gengur á með élj-
um og slyddu og það er nú ekki
æskilegasta ofankoman. En þetta
hefur oft verið svona, leiðinlegur
janúar og stundum enn leiðinlegri
febrúar en við höfum engar
áhyggjur af þessu.“
Grétar sagði að vel hefði gengið
fyrstu opnunardagana á nýju ári,
það hefði verið mikil aðsókn og
„rífandi stemmning“ í fjallinu.
Grétar sagði að útlitið næstu
daga væri annars þokkalegt og
hann hefði trú á því að það færi
senn að snjóa og lyfturnar yrðu
opnaðar skíðaþyrstum höfuðborg-
arbúum.
„Annars hef ég nú sagt að það
sé bara ágætt að gamla snjóinn
hafi tekið upp, þetta var nátt-
úrlega snjór frá síðustu öld og nú
viljum við bara fá nýjan og betri
snjó, við höfum mikla trú á nýald-
arsnjónum.“
Morgunblaðið/RAX
Þeir eru fáir sem kjósa að renna sér í brekkunum eftir langan hlýindakafla í Bláfjöllum.
Auð jörð í Bláfjöllum eftir asahláku
Vilja nýaldarsnjó
KOSTNAÐUR við uppbygg-
ingu flugvallar fyrir innan-
landsflug, í Vatnsmýrinni í
Reykjavík eða annars staðar,
er áætlaður 4 til rúmlega 13
milljarðar króna, að því er fram
kemur í greinargerð sem unnin
hefur verið fyrir samvinnu-
nefnd um svæðisskipulag höf-
uðborgarsvæðisins.
Stefnt er að atkvæðagreiðslu
meðal borgarbúa um framtíð
flugvallarins 17. mars, að því er
fram kom hjá Ingibjörgu Sól-
rúnu Gísladóttur borgarstjóra
á blaðamannafundi í gær þegar
greinargerðin var kynnt.
Dýrast á Lönguskerjum
Af þeim kostum sem bornir
eru saman í greinargerðinni er
ódýrast að flytja innanlands-
flugið til Keflavíkurflugvallar
og byggja upp Reykjavíkur-
flugvöll samkvæmt núgildandi
skipulagi í Vatnsmýrinni. Dýr-
ast er að byggja nýjan flugvöll
á Lönguskerjum í Skerjafirði.
Þegar tekið er tillit til þess
ábata sem verður vegna lands
sem hægt verður að taka til
annarra nota við flutning
Reykjavíkurflugvallar eða
breytingar á honum og viðbót-
arkostnaðar vegna flutnings
farþega til Keflavíkurflugvallar
breytist samanburðurinn nokk-
uð. Þá verður ódýrast að
byggja upp núverandi Reykja-
víkurflugvöll. Nokkru dýrara
er að flytja allt flug til Keflavík-
ur, byggja upp nýjan flugvöll
sunnan Hafnarfjarðar og færa
aðra flugbraut Reykjavíkur-
flugvallar út í Skerjafjörð.
Áfram er langdýrast að byggja
nýjan flugvöll úti í Skerjafirði.
Nýr flug-
völlur
kostar sex
til þrettán
milljarða
Flugvöllur/6
Á VEGUM Viðskiptaháskólans á
Bifröst er stefnt að því að unnt
verði að hefja þriggja ára nám í
viðskiptalögfræði í haust. Um er
að ræða nýja námsbraut þar sem
nemendur geta útskrifast með
prófgráðu í viðskiptalögfræði.
Að sögn Runólfs Ágústssonar,
rektors Viðskiptaháskólans á Bif-
röst, er markmiðið með náminu
fólgið í að mennta stjórnendur
með sérþekkingu á lagalegum
þáttum viðskipta og rekstrar fyrir
atvinnulíf og samfélag.
„Með þessari nýjung er leitast
við að svara þörf atvinnulífsins
fyrir stjórnendur, sem bæði kunna
skil á lögfræðilegum atriðum við-
skipta og reksturs sem og við-
skipta- og stjórnunarlegum atrið-
um reksturs,“ segir Runólfur.
Hann segir að nemendur, sem hafi
lokið sambærilegu námi frá Við-
skiptaháskólanum í Kaupmanna-
höfn, hafi einkum farið í störf hjá
fjármálafyrirtækjum og fyrirtækj-
um á sviði upplýsingatækni, auk
þess að vinna að ýmiss konar
samningsgerð fyrir fyrirtæki. Seg-
ir hann mikla eftirspurn hafa verið
eftir nemendum með þessa mennt-
un frá Kaupmannahöfn.
Á vegum Viðskiptaháskólans á
Bifröst starfar nú sérstakur sjö
manna þróunarhópur, sem á m.a.
að gera tillögur um innihald lög-
fræðinámsins og á hann að skila
þeim af sér til háskólastjórnar
Viðskiptaháskólans á Bifröst fyrir
1. mars nk. Í hópnum eru auk
Runólfs sjálfs, Bjarki Diego, lög-
fræðingur hjá Kaupþingi, Bjarni
Benediktsson, lögmaður hjá Lex
ehf., Inga Þöll Þórgnýsdóttir,
sjálfstætt starfandi lögmaður,
Magnús Árni Magnússon, hag-
fræðingur hjá Viðskiptaháskólan-
um á Bifröst, Ólafur Nilsson, lög-
giltur endurskoðandi hjá KPMG,
og Ólöf Nordal, lögfræðingur hjá
Verðbréfaþingi.
Runólfur tekur fram að þótt
Viðskiptaháskólinn boði með nýju
námsbrautinni ákveðna samkeppni
við lagadeild Háskóla Íslands, sé
þó ekki um að ræða stutta útgáfu
af hefðbundnu laganámi. „Það
verður lögð áhersla á viðskipta-
tengd fög, jafnhliða fögum á svið-
um lögfræði. Það verður t.d. tæp-
lega kenndur refsiréttur heldur
einblínt á viðskiptarétt í víðu sam-
hengi ásamt úrvali af grunnfögum
í viðskiptafræði.“
Nám í viðskipta-
lögfræði verður
í boði á Bifröst
MATVÆLARÁÐ kemur saman í
dag þar sem verður rætt um inn-
flutning nautalunda frá Írlandi fyr-
ir jól og um drög að nýrri ramma-
löggjöf um matvæli í Evrópu, sem
tengist m.a. kúariðu sem komið hef-
ur upp í Evrópu, að sögn Sjafnar
Sigurgísladóttur, forstöðumanns
matvælasviðs Hollustuverndar rík-
isins. Í ráðinu eiga sæti fulltrúar
Hollustuverndar, Fiskistofu og
embættis Yfirdýralæknis. Einnig
mun Haraldur Briem sóttvarna-
læknir sitja fundinn.
Við utandagskrárumræður á Al-
þingi í gær gagnrýndu stjórnarand-
stæðingar harðlega innflutning
nautalunda frá Írlandi, vegna kúa-
riðu sem greinst hefur þar í landi,
og sögðu Guðna Ágústsson land-
búnaðarráðherra bera pólitíska
ábyrgð á því að sá innflutningur
hefði verið heimilaður. Ráðherrann
lagði áherslu á að hann myndi á
næstu dögum fara yfir lög og reglur
sem giltu um innflutning matvæla
til landsins með þeim aðilum sem
málið varðaði. Þegar því væri lokið
myndi hann væntanlega leggja
fram tillögur um úrbætur fyrir rík-
isstjórn og landbúnaðarnefnd
þingsins.
Stjórnvöld sögð taka
mikla og óþarfa áhættu
Bændasamtökin afhentu land-
búnaðarráðherra í gær bréf þar
sem skorað er á hann að stöðva,
a.m.k. tímabundið, allan innflutning
á nautakjöti og unnum matvælum
frá þeim löndum þar sem kúariða
hefur greinst.
Aðspurður hvort stjórnvöld verði
við kröfum um stöðvun innflutnings
á nautakjöti, sagði landbúnaðarráð-
herra að fara þurfi að málinu með
gát.
Margrét Guðnadóttir, prófessor í
veirufræðum við Háskóla Íslands,
segir að miðað við bestu fáanlegu
upplýsingar sem fyrir liggi hér á
landi geti íslenskir neytendur
óhræddir keypt kjöt frá innlendum
framleiðendum. Hún telur stjórn-
völd hins vegar vera að taka mikla
og óþarfa áhættu með því að heim-
ila innflutning á nautakjöti frá Ír-
landi, sem og að flytja inn fóstur-
vísa úr norskum kúm. Rangt sé að
leika sér að eldinum á meðan ekki
liggi fyrir meiri þekking um kúa-
riðu og þann sjúkdóm, sem hún
valdi.
Innflutningur nautakjöts ræddur á Alþingi
Matvælaráð fjallar
um innflutninginn
Ólíklegt/32–33
Segja/10