Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Námskeið í sjálfsstyrkingu
Vilja efla ein-
stæða foreldra
Í BYRJUN febrúar feraf stað hópnámskeið ísjálfsstyrkingu fyrir
félagsmenn í Félagi ein-
stæðra foreldra. Þrír
félagsráðgjafar standa að
námskeiðinu, Oktavía
Guðmundsdóttir, Sigríður
Jenný Guðmundsdóttir og
Sigurlaug Hauksdóttir,
allar starfandi á Landspít-
alanum – háskólasjúkra-
húsi. Oktavía Guðmunds-
dóttir var spurð um
markmið þessa nám-
skeiðs.
„Hugmyndin spratt út
frá því að ég hef starfað
fyrir Félag einstæðra for-
eldra síðastliðin sex ár,
þar sem félagsmönnum í
félaginu stendur til boða
ráðgjöf hjá félagsráðgjafa
og/eða lögfræðingi. Það hefur
lengi verið í farvatninu að setja á
laggirnar námskeið af þessu tagi
fyrir félagsmenn þar sem talið
hefur verið að þörf hafi verið fyr-
ir slíkt.“
– Hvers vegna er þessi þörf
fyrir hendi fyrir þennan hóp sér-
staklega?
„Markmiðið með sjálfsstyrk-
ingarnámskeiðinu er það að hver
maður taki eins mikla ábyrgð á
lífi sínu og kostur er. Unnið verð-
ur með að gefa innsýn í hvaða
þættir það séu sem hafi áhrif á
sjálfstraust, hvernig hægt sé að
byggja upp sjálfstraust og hverj-
ar séu helstu leiðir til þess að
hindra það að fólk missi sjálfs-
traust. Eins og orðið sjálfsstyrk-
ing felur í sér er merking þess að
einstaklingur styrki sjálfan sig til
að stuðla að betri lífsgæðum. Ein-
stæðir foreldrar hafa alltaf fleiri
verkefni á sinni könnu en þar sem
báðir foreldrar eru til að deila
með sér ábyrgð, verkefnum og
það að taka stærri ákvarðanir.
Það getur svo leitt til þess að ein-
stæðir foreldrar einangrist, ekki
síst þeir sem hafa lítinn stuðning
frá hinu foreldri barnsins, frá
stórfjölskyldu eða annars staðar
frá. Það er því t.d. mikilvægt að
ná til þeirra og fyrir þá að hitta
aðra foreldra í svipaðri aðstöðu.
Það getur reynst þeim gagnlegt
og jafnvel leitt af sér að að fundn-
ar verði nýjar leiðir til að byggja
sig upp.“
– Hvernig er svona námskeið
byggt upp?
„Sálræn styrking er rauði
þráðurinn í sjálfsstyrkingarnám-
skeiði og stuðlað verður að því að
betri árangur náist í lífinu og í
samskiptum við annað fólk.
Sjálfsþekking og sjálfsöryggi eru
mikilvægir þættir í sjálfsstyrk-
ingu. Það er nauðsynlegt að
þekkja bæði kosti sína og galla,
styrk sinn og veikleika og líka að
hugleiða hvaða áhrif hegðun okk-
ar og viðbrögð hafa á öll okkar
samskipti við aðra. Það getur
aldrei verið annað en gagnlegt að
staldra við og hugleiða hlut sinn í
samskiptum við aðra, hvað mann-
eskjan er ánægð með og hvað
valdi óánægju og
kvíða. Að vinna með
það að tileinka sér
breytta lífssýn og já-
kvæðan hugsunarhátt
er mikilvægt til þess
að öðlast sjálfsstyrk.
Það er einnig mikil-
vægt að setja sér
markmið eftir að hafa gert sér
grein fyrir hverju sé sóst eftir og
vinna að þeim markmiðum hægt
en ákveðið.“
– Þið eru þrír félagsráðgjafar
sem standið að þessu námskeiði,
hvernig skiptið þið með ykkur
verkum?
„Námskeiðið hefst eins og fyrr
sagði í byrjun febrúar og verður
á laugardögum milli klukkan 11
og 12.30, átta skipti alls, á Lauga-
vegi 3 á II. hæð. Við skiptum með
okkur verkum á þann hátt að við
vinnum allar undirbúningsvinn-
una en verðum mest megnis tvær
og tvær hverju sinni. Við höfum
allar mjög langa starfsreynslu
sem getur nýst okkur við þennan
undirbúning. Þetta er fyrsta
námskeiðið okkar saman í sjálfs-
styrkingu en allar höfum við áður
unnið með hópa. Við sóttum um
styrk til stjórnar Félags ein-
stæðra foreldra til þess að geta
látið þetta námskeið verða að
veruleika. Félagsmenn í Félagi
einstæðra foreldra fá námskeiðið
því niðurgreitt og greiða kr. 4.000
fyrir allt námskeiðið.“
– Leita margir félagsmenn til
félagsráðgjafa?
„Ráðgjöfin er opin einu sinni í
viku milli kl. 17 og 20 á þriðjudög-
um. Það er nánast alltaf fullbók-
að. Félagsmenn sem búa úti á
landsbyggðinni geta hringt og
pantað símaviðtal.“
– Hvað er fólk helst að ráðfæra
sig við þig um?
„Algengast er að fólk komi út
af húsnæðismálum, fjárhagsörð-
ugleikum og ágreiningsmálum
varðandi umgengni barna við það
foreldri sem ekki hefur forsjá
barnsins. Þá er kallað á það for-
eldri sem ekki hefur forsjána og
reynt er að hjálpa fólki að gera
umgengnisréttarsamning. Að
þessum málum koma bæði ég og
lögfræðingur félags-
ins.“
– Hafa margir ein-
stæðir foreldrar skert
sjálfstraust?
„Einstæðir foreldr-
ar sem hafa leitað til
mín eru margir hverjir
alveg óskaplega dug-
legt fólk en lífið hjá þessu fólki er
oft mjög erfitt, það þarf af fjár-
hagsástæðum að vinna mjög mik-
ið og hefur því lítinn tíma fyrir
sjálft sig og börn sín. Svo eru aðr-
ir sem fara aðra leið, fá félagslega
aðstoð sem að mínu mati er ekki
heppileg í langan tíma í senn.“
Oktavía Guðmundsdóttir
Oktovía Guðmundsdóttir
fæddist 9.9. 1951 í Reykjavík.
Hún lauk félagsráðgjafanámi frá
Danmörku 1983. Hún hefur
starfað sem félagsráðgjafi síðan,
bæði í Kaupmannahöfn en lengst
af í Reykjavík. Hún starfar nú á
Landspítalanum – háskóla-
sjúkrahúsi á barna- og unglinga-
geðdeild auk þess sem hún sinnir
ráðgjöf við félagsmenn í Félagi
einstæðra foreldra. Oktavía er
gift Ólafi Torfasyni kerfisfræð-
ingi og eiga þau samtals fimm
börn.
Sjálfsþekking
og sjálfs-
öryggi eru
mikilvægir
þættir í sjálfs-
styrkingu
Þið hafið aldeilis tekið ykkur á hjá póstinum, svarið bara komið og ég ekki hálfnaður að
skrifa bréfið.
EF kemur til verkfalls flugumferð-
arstjóra munu 32 úr þeirra hópi ann-
ast lágmarksflugumferðarþjónustu.
Samþykkt hefur verið að boða til
verkfalls en óvíst hvænær af því
verður.
Í flugstjórnarmiðstöðinni í
Reykjavík, þaðan sem alþjóðaflug-
inu er stýrt, myndi um fjórðungur
starfsmanna annast þjónustu en þar
yrðu ellefu flugumferðarstjórar á
vöktum í verkfalli. Verkfall hefði
veruleg áhrif á alþjóðaflug og myndi
leiða af sér ýmsar tafir og hindranir
á því.
Tíu flugumferðarstjórar yrðu í
flugturninum í Reykjavík, í Vest-
mannaeyjum tveir til þrír, í Keflavík
fimm og fjórir á Akureyri.
Verkfall flug-
umferðarstjóra
Lágmarks-
þjónusta
verður veitt
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis-
ins var í gær kvatt að nýbyggingu í
Spönginni í Grafarvogi. Kveikt hafði
verið í tunnu með svokallaðri móta-
olíu upp við húsið. Af varð mikill
reykur en litlar skemmdir.
Slökkviliðinu barst tilkynning
skömmu eftir hádegi um að spreng-
ing hefði orðið við húsið og þar væri
mikill reykur. Bílar frá öllum stöðv-
um slökkviliðsins voru kallaðir út en
fljótlega varð ljóst að eldurinn var
minniháttar og var þá flestum bíl-
unum snúið við. Eldurinn var að
mestu kulnaður þegar slökkviliðið
kom á staðinn.
Spöngin
í Grafarvogi
Mikill reyk-
ur þegar
kveikt var
í mótaolíu
♦ ♦ ♦