Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 12

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipholti 35  sími 588 1955 King Koil Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með King Koil heilsudýnunum. Amerískar lúxus heilsudýnur Útsala Útsala STJÓRN Læknafélags Íslands hefur samþykkt ályktun þar sem mótmælt er harðlega reglugerð sem tók gildi um áramótin um þátttöku Trygg- ingastofnunar í kostnaði svonefndra S-merktra lyfja, þ.e. lyfja sem fást eingöngu á sjúkrahúsum og heilsugæslustöðvum. Samkvæmt reglugerðinni mun Tryggingastofnun hætta að greiða þessi lyf niður og verður fjármagn flutt til viðkomandi sjúkrahúsa þar sem ákvörðun um meðferð er tek- in. Stjórn Læknafélagsins telur að breytingin muni þrengja aðgengi að fjölmörgum lyfjum sem leiði til mismununar milli fólks eftir því hvaða sjúkdómum það er haldið og hvar það býr á land- inu. Telja læknarnir engin rök hafa komið fram af hálfu hins opinbera sem réttlætir þetta og átelja þeir að ekkert samráð hafi verið haft við samtök sjúklinga, lækna eða lyfjafræðinga í svo veiga- miklu máli. Sigurður Björnsson krabbameinslæknir á sæti í stjórn Læknafélagsins. Hann sagði við Morgun- blaðið að málið væri grafalvarlegt og snerti stóran hóp sjúklinga sem væri nú í mikilli óvissu. Um væri að ræða 650-700 lyf sem Tryggingastofnun hefði áður tekið þátt í að greiða fyrir fólk utan sjúkrahúsin. Nú þyrftu sjúklingar að leita til apó- teka á stóru sjúkrahúsunum, sem væru tvö hjá Landspítalanum í Reykjavík og eitt á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri. Sigurður sagðist ekki vera lögfróður maður en efaðist þó um að reglu- gerðin stæðist lög. „Það er verið að mismuna fólki eftir sjúkdóm- um. Ég stunda aðallega fólk sem er með krabba- mein og nær öll lyf sem tengjast krabbameins- meðferð eru allt í einu komin í þennan S-merkta flokk sem aðeins má nota inni á sjúkrahúsum. Núna eru krabbameinssjúklingar teknir út og eru allt öðruvísi tryggðir en annað fólk á Íslandi. Þetta fólk þarf að eiga það undir fjársveltum sjúkra- húsum hvort það fær lyfin sem með þarf, á meðan aðrir þegnar landsins geta fengið sín lyf úr apó- tekum og greidd af Tryggingastofnun,“ sagði Sig- urður og bætti því við að reglugerðin mismunaði fólki einnig eftir búsetu. Þeir sem ekki byggju í Reykjavík eða Akureyri ættu erfiðara um vik að nálgast þessi lyf. Ekkert samráð haft Sigurður sagði rökstuðning af hálfu hins op- inbera ekki hafa komið fram ennþá. Ekki dygði að segja að lyfin væru flókin og kölluðu á svo erfiða og vandaða meðferð að hún gæti aðeins farið fram á sjúkrahúsum. Sig- urður sagði að með þessu væri verið að gefa í skyn að læknisfræði utan sjúkrahúsa væri annars flokks; án öryggis, varkárni og sérfræðiþekking- ar. „Þessi röksemdafærsla nægir engan veginn til að réttlæta þessar breytingar,“ sagði Sigurður. Eins og áður sagði átaldi stjórn Læknafélagsins að ekkert samráð hefði verið haft um þessar breytingar. Um þetta sagði Sigurður að fyrir einu og hálfu ári hefði spurst út að svona breytingar stæðu fyrir dyrum, einkum er varðaði lyfjameð- ferð við krabbameini. Þá hefðu nokkrir sérfræð- ingar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, nú Landspítalan- um í Fossvogi, ritað greinargerð sem borist hefði heilbrigðisyfirvöldum. Meðal annars hefði stjórn sjúkrahússins tekið undir með sérfræðingunum með þeim orðum að apótek sjúkrahússins væri á engan hátt í stakk búið til að taka þessa þjónustu að sér. „Þessar bréfaskriftir fóru bara í aðra áttina, frá okkur til stjórnar sjúkrahússins og einnig til Tryggingastofnunar og heilbrigðisráðuneytisins. Við fengum aldrei svar, vorum aldrei beðnir um að koma til viðræðna og lásum fyrst um þessar breyt- ingar í blöðunum. Apótekin á sjúkrahúsunum og almenn apótek voru heldur ekki höfð með í ráð- um,“ sagði Sigurður. Stjórn Læknafélagsins mótmælir harðlega nýrri reglugerð um S-merkt lyf Mismunar fólki eftir sjúkdómum og búsetu ÞRÍR gamalreyndir starfsmenn Sjálfstæðisflokksins létu af störf- um hjá flokknum um síðustu ára- mót og var þeim haldið kveðjuhóf í Valhöll á laugardaginn þar sem haldnar voru ræður og þeim færðar gjafir vegna tímamótanna. Davíð Oddsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, ávarpar hér þau Má Jóhannsson, Kristínu Guðjóns- dóttur og Hilmar Guðlaugsson. Á milli Más og Kristínar stendur Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins. Morgunblaðið/Gunnar Vigfússon Gamalreyndir starfsmenn kvaddir BETUR fór en á horfðist þegar 14 ára piltur lenti með báða fætur undir snjótroðara á skíðasvæði Tindastóls um hádegið á sunnu- dag. Að sögn lögreglunnar á Sauð- árkróki var ökumaður snjótroð- arans að útbúa stökkball fyrir snjóbrettakappa. Pilturinn renndi sér í slóð troðarans en missti jafnvægið og datt. Ökumaðurinn sá ekki drenginn og bakkaði yfir báðar fætur hans. Það varð drengnum til happs að ökumað- urinn beygði af einhverjum ástæðum frá drengnum en að öðrum kosti hefði hann ekið beint yfir hann. Þá hafði snjóað á skíðasvæðinu og fætur piltsins grófust því niður í mjúka fönnina. Einnig er talið að snjóbrettið og góður skóbúnaður hafi hlíft hon- um. Að sögn lögreglu brugðust starfsmenn skíðasvæðisins fljótt og vel við og hlúðu að piltinum þar til sjúkrabifreið kom á stað- inn. Pilturinn var fluttur á Heil- brigðisstofnunina á Sauðárkróki. Hann reyndist tognaður, marinn á fótum og skrámaður en að öðru leyti ómeiddur. Skíðasvæði Tindastóls á Sauðárkróki Snjótroðari bakk- aði yfir fætur á pilti TVEIR karlmenn á þrítugsaldri hafa viðurkennt að hafa stolið og skemmt tvær jeppabifreiðar frá bænum Hvalnesi í Lónssveit í Aust- ur-Skaftafellssýslu aðfaranótt sunnudags. Annar mannanna er grunaður um að hafa kveikt í íbúðar- húsinu í Hvalnesi fyrir um tveimur vikum. Jepparnir, sem mennirnir tóku ófrjálsri hendi, voru í geymslu við bæinn og hvorugur þeirra er með skráningarnúmer. Annar jeppanna var reyndar óökufær og því brugðu mennirnir á það ráð að láta hinn jeppann draga hann. Mennirnir óku þeim um tún og eftir vegaslóðum í kringum bæinn. Fór svo að lokum að jeppinn, sem var í togi, valt í stór- grýti utan vegar og gjöreyðilagðist. Nokkrar skemmdir urðu einnig á hinum jeppanum. Brenndu sig við íkveikjutilraun Við rannsókn lögreglu fundust ummerki um íkveikjutilraun. Menn- irnir virðast hafa brennt sig við þessa tilraun sína en þeir yfirgáfu slysstað og leituðu sér báðir aðstoð- ar á Heilbrigðisstofnun Suðaustur- lands á Höfn í Hornafirði vegna brunasára. Nokkru síðar fékk lög- reglan á Höfn tilkynningu um skemmdarverk við Hvalnes og bár- ust böndin fljótlega að mönnunum tveimur. Þeir hafa játað á sig bíl- stuldinn og telst málið upplýst. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni eru þessi menn grunaðir um fleiri afbrot í sýslunni. Skemmdarverk við bæinn Hvalnes Eyðilögðu jeppa og reyndu íkveikju TÆPLEGA tvítugur piltur stal fólksbifreið í Ólafsvík um kl. 8 að morgni sunnudags. Pilturinn, sem er grunaður um ölvun við akstur, ók bílnum út af undir Ólafsvíkurenni stuttu síðar. Bíllinn lenti þar í grjót- urð og telur lögreglan í Ólafsvík að pilturinn hafi sloppið vel miðað við aðstæður. Fólksbíllinn er að sögn lögreglu gjörónýtur. Vegfarandi kom að slysstað stuttu síðar en þá var pilturinn kominn út úr bílnum. Hann ók með piltinn á Heilsugæslustöðina í Ólafsvík þar sem var gert að meiðslum. Stal bíl og ók honum út af TVEIR grímuklæddir menn rændu söluturn við Grundarstíg í Reykjavík um kl. 23.30 á laugardagskvöld. Þeir ruddust inn í söluturninn og ógnuðu afgreiðslumanni með hnífi. Afgreiðslumanninn sakaði ekki en mennirnir komust á brott með inni- hald peningakassans, um 40-50.000 krónur. Mennirnir eru ófundnir. Ógnuðu afgreiðslu- manni með hnífi ♦ ♦ ♦ SLÖKKVILIÐ höfuðborgar- svæðisins var tvisvar sinnum kallað út á sunnudagskvöld vegna elds í ruslagámum. Laust eftir klukkan 22 fór slökkvilið að gámastöð Sorpu við Sævarhöfða en þar var búið að kveikja í ruslagámi. Tæp- lega klukkustund síðar var slökkviliðið kallað að Gylfaflöt í Grafarvogi en þar var einnig búið að kveikja í ruslagámi. Logaði glatt í honum þegar slökkvilið kom á staðinn. Í báð- um tilfellum gekk vel að slökkva eldinn og hlutust ekki frekari skemmdir af. Talið er fullvíst að um íkveikjur hafi verið að ræða. Íkveikjur hafa færst í vöxt und- anfarið og veldur það slökkvu- liði áhyggjum. Kveikt í rusla- gámum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.