Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 14

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 14
LANDIÐ 14 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Ísafirði - Skíðagöngukonan unga Katrín Árnadóttir hlaut titilinn Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2000. Úrslitin voru tilkynnt við há- tíðlega athöfn sem haldin var í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði á sunnudag. Tíu íþróttamenn voru til- nefndir og hlutu þeir viðurkenning- ar í hófinu sem íþróttafólkinu og gestum var haldið. Titillinn Íþrótta- maður Ísafjarðarbæjar helst í fjöl- skyldunni þrátt fyrir nýtt kjör vegna þess að Katrín tekur við hon- um af bróður sínum. Katrín Árnadóttir er tæpra átján ára að aldri, fædd 11. maí 1983, dótt- ir hjónanna Kristínar Gísladóttur og Árna Traustasonar. Sonur þeirra og bróðir Katrínar, skíða- göngumaðurinn og langhlauparinn Ólafur Thorlacius Árnason, hlaut titilinn Íþróttamaður Ísafjarðar- bæjar í fyrra. Hann er rúmum tveimur árum eldri en Katrín og verður tvítugur í næsta mánuði. Þau systkinin eru því á þeim aldri að eiga mikið eftir í íþrótt sinni á komandi árum en eru samt komin í allra fremstu röð. Einstök íþróttafélög tilnefna hvert um sig einn úr sínum hópi sem skarað hefur fram úr á liðnu ári. Einar Ólafsson skíðamaður er sá einstaklingur sem oftast hefur hlot- ið nafnbótina „Íþróttamaður Ísa- fjarðar/Ísafjarðarbæjar“ á þeim lið- lega tuttugu árum sem liðin eru frá því valið fór fram í fyrsta skipti, eða fimm sinnum. Helga Sigurðardóttir sundkona hefur fjórum sinnum orð- ið fyrir valinu og Ásta S. Halldórs- dóttir skíðakona hefur tvívegis hlot- ið nafnbótina. Guðmundur Jóhannsson skíða- maður var fyrstur manna kjörinn Íþróttamaður Ísafjarðar árið 1980. Árið 1981 varð Einar Ólafsson skíðamaður fyrir valinu, árið 1982 var Stella Hjaltadóttir skíðakona valin, árið 1983 var Einar Ólafsson skíðamaður kjörinn í annað sinn, ár- ið 1984 var Ingólfur Arnarson sund- maður valinn og árið 1985 var Einar Ólafsson skíðamaður kjörinn í þriðja sinn. Árið 1986 var Helga Sigurðar- dóttir sundkona valin, árin 1987 og 1988 varð Einar Ólafsson skíðamað- ur aftur fyrir valinu. Árin 1989 til 1991 varð Helga Sigurðardóttir sundkona fyrir valinu, árið 1992 var komið að Ástu S. Halldórsdóttur skíðakonu, árið 1993 var Daníel Jakobsson skíðamaður valinn, árið 1994 var Pétur Þór Grétarsson golf- ari kjörinn og árið 1995 var Ásta S. Halldórsdóttir skíðakona kjörin í annað sinn. Árið 1996 varð Arnór Þ. Gunn- arsson skíðamaður fyrir valinu, árið 1997 var Friðrik E. Stefánsson körfuboltamaður kjörinn, Sigríður B. Þorláksdóttir skíðakona var kjörin árið 1998 og Ólafur Th. Árna- son skíðamaður varð fyrir valinu sem Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 1999. Samtals hafa því tólf íþróttamenn hlotið þennan titil frá upphafi. Katrín Árnadóttir skíðakona tók við af bróður sínum Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Níu af þeim tíu íþróttamönnum sem tilnefndir voru til heiðurstitilsins Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2000 og viðurkenningar hlutu. Frá vinstri: Katrín Árnadóttir, Heiðar Ingi Marinósson, Tinna Björk Sig- mundsdóttir, Árný Herbertsdóttir, Óskar Hálfdánarson, Anna Elín Hjálmarsdóttir, Þór Líní Sævarsson, Magnús Gíslason og Jens Magnússon. Á myndina vantar Svölu Björk Einarsdóttur. Grímsey - Félagar í Kiwanis- klúbbnum Grími í Grímsey sendu á dögunum frá sér dagatal í alla smá- báta landsins. Þetta hafa þeir gert nú til nokkurra ára og er útgáfa dagatalsins ein aðalfjáröflunarleið þeirra. 28 fyrirtæki kaupa auglýs- ingar á dagatalinu og auglýsa þannig vörur sínar eða þjónustu. Grímur er með kraftmeiri klúbb- um landsins og stendur ótrúlega vel að sinni fjáröflun. Fjáröflunarleiðir eru margar. Kiwanismenn standa fyrir sjóstangveiðimótum ásamt félögum úr Sjóvak í Eyjafirði. Um og yfir 100 gestir úr landi hafa tek- ið þátt síðustu tvö sumur. Gríms- félagar selja alla nauðsynlega hluti um jól og áramót, allt frá límbandi til flugelda. Félagarnir sjá um alla sorphirðu fyrir hreppinn. Að auki sjá þeir um bingókvöld, skötuhátíð á Þorláksmessu, ýmsar samkomur og fleira og fleira. Allir nema einn Kiwanis-klúbburinn Grímur var stofnaður 1978 og sögð er sú saga í Kiwanis-heiminum, að þegar hann var stofnaður hafi allir karlmenn eyjarinnar gengið í hann, nema einn! Þessi eini er enn að reyna að stofna Lions-klúbb. Klúbbmeðlimir hafa stundum velt því fyrir sér hvort klúbburinn eigi ekki nokkur met innan sinnar hreyfingar. Hér koma nokkrir möguleikar: 1) Þátt- taka í klúbbnum miðað við fjölda karlmanna hér, eða um 90%? 2) Mesta fjáröflun miðað við höfðatölu byggðar? 3) Getur nokkur annar klúbbur státað af nýjum forseta á hverju ári frá stofnun? 4) Er núver- andi forseti, Bjarni Gylfason, 23 ára gamall, yngsti forsetinn í hreyfingunni? Meginverkefni Kiwanis- hreyfingarinnar er að styðja við og styrkja ýmis málefni í heimabyggð, í heimalandi og á heimsvísu. Félag- arnir í Grímsey hafa ekki aldeilis legið á liði sínu á þessum vettvangi. Á undanförnum árum hafa þeir m.a. lagt lið við að vinna á joð- skorti í heiminum, veitt styrki til geðverndarmála á Íslandi, styrkt í mörg ár Íþróttafélag fatlaðra, gef- ið gjafir ásamt öðrum klúbbum á Norðurlandi eystra til dagdeildar, geðdeildar og barnadeildar Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri. Fjölmörg verkefni í heimabyggð Í heimabyggð hefur Grímur stutt við fjölmörg verkefni eins og við- hald á Miðgarðakirkju og félags- heimilinu Múla, tölvuvæðingu grunnskólans, uppsetningu á minn- ismerki um dr. Fiske, velgjörð- armann Grímseyinga, persónulega styrki og samhjálp á mörgum svið- um mannlífsins. Þess má geta að á síðustu fimm árum hefur Grímur fengið fjöl- margar viðurkenningar frá um- dæminu Ísland-Færeyjar. Má þar nefna fjölmiðlabikar og viðurkenn- ingar fyrir: besta forsetann, besta ritarann,bestu fjáröflunina og fleira. Af þessari upptalningu má sjá að það er litlu byggðarlagi eins og Grímsey ómetanlegt að hafa jafn- öflugt félag starfandi sem Kiwanis- klúbburinn Grímur er. Kraftmiklir Kiwanismenn í Grímsey Sendu dagatal í alla smábáta landsins Morgunblaðið/Dónald Jóhannesson Félagar í Grími hafa jafnan verið duglegir við fjáraflanir. Selfossi - Mótorcrossfélag Árborgar hefur fengið úthlutað svæði á Selfossi undir æfinga- og keppnisbraut í vél- hjólatorfæru. Þetta athafnasvæði hins nýstofnaða félags er í næsta ná- grenni við gámasvæðið utan Ölfusár á Selfossi. Þar hyggst félagið að leggja brautir fyrir torfæruvélhjól og standa fyrir æfingum og keppnishaldi. „Mótorcrossfélagið gerði samning til 5 ára við sveitarfélagið um athafna- svæðið. Í félaginu eru 10 manns sem eru upphafsmenn að þessu, en félagið er opið og við gerum ráð fyrir að fá marga til liðs við okkur í þessari íþrótt. Það er rosalegur áhugi á þessu og við teljum þetta góða viðbót við annars mikla íþróttastarfsemi í sveit- arfélaginu,“ sagði Hafsteinn Þorvalds- son talsmaður félagsins, en hann og Haukur bróðir hans hafa mikið unnið að þessu máli. Hann sagði félagið þeg- ar hafa fengið vilyrði frá fyrirtækjum um aðstoð við að leggja brautirnar. „Við byrjum strax að líta á þetta um helgar en við gerum ráð fyrir að braut- irnar verði tilbúnar í sumar.“ Hafsteinn sagði mikla aðsókn að æf- ingum og keppni þar sem slíkar braut- ir væru til staðar, s.s. í Ólafsvík og hann ætti von á að svo yrði einnig með brautina á Selfossi. Hann sagði miklar öryggiskröfur gerðar til slíkra brauta og þessa mótorhjólaaksturs. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Frá undirritun samnings um svæði Mótorcrossfélags Árborgar. Haukur Þorvaldsson, Snorri Sigurfinnsson, umhverfisstjóri Árborgar, Hafsteinn Þorvaldsson og Sverrir Sigurjónsson. Nýtt svæði á Selfossi fyrir vélhjólatorfæru TAFLFÉLAG Stokks- eyrar hélt upp á afmæl- isdag sinn 22. janúar sl. en félagið var stofnað ár- ið 1938 og mun það vera næstelsta starfandi tafl- félag á landinu, segir í fréttatilkynningu. Í til- efni af því var efnt til keppni við Taflfélag Reykjavíkur sem er elsta starfandi félag landsins, 100 ára gamalt. Keppnin fór fram á 8 borðum og var tefld tvö- föld umferð. Keppnin hófst á því að Guðni Ágústsson, landbún- aðarráðherra lék fyrsta leiknum í skák heima- mannsins Jóns Gunnars Ottóssonar gegn Guð- mundi G. Þórarinssyni. Þeirri skák lauk með sigri Guðmundar. Leikar fóru þannig að heima- menn fengu 42,5 v. en gestirnir 85,5 v. Bestum árangri heimamanna náði Magnús Gunn- arsson, 10 v. af 16 og Páll Leó Jónsson, 8 af 14. Bestum árangri gest- anna náði Ingvar Þór Jóhannesson með 15 v. af 18 og Sigurður Daði Sigfússon með 14,5 v. af 18. Teflt var á veit- ingastaðnum Við fjöru- borðið við góðan við- urgjörning heimamanna. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra lék fyrsta leikinn fyrir heimamanninn Jón Gunnar Ottósson gegn Guðmundi G. Þórarinssyni. Næstelsta starfandi taflfélag landsins Taflfélag Stokkseyrar heldur upp á afmælið Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2000 Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar var kjörin Katrín Árnadóttir, skíða- kona í Skíðafélagi Ísfirðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.