Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 18

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 18
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 18 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALLS lögðu fimmtán þúsund börn leið sína í sunnudaga- skóla þjóðkirkjunnar haustið 2000. Bjarni Karlsson, sóknar- prestur í Laugarnessókn, sagði að messan og sunnu- dagaskólinn væri fyrir alla ald- urs- og heilsufarshópa og að í Laugarneskirkju myndaðist gjarnan nokkurs konar hverf- isstemmning á sunnudags- morgnum, þegar nágrannarn- ir hittust, ræddu málin og slöppuðu af á meðan börnin lékju sér. Nýtt fræðsluefni er samið fyrir barnastarf kirkjunnar á hverjum vetri og er yfirskrift- in núna: „Hendur Guðs, okkar hendur“. Fjallað er um um- burðarlyndi, hjálpsemi og sjálfsvirðingu og efnið lagað að mismunandi aldurshópum. El- ín Elísabet Jóhannsdóttir kennari er höfundur efnis og hefur verið það mörg undan- farin ár. Að auki lögðu sex þekktir listamenn hönd á plóg við myndskreytingu að þessu sinni og gerðu myndir fyrir límmiðana sem börnin safna í hvert sinn sem þau koma í kirkjuna. Þessir listamenn eru Brian Pilkington, Búi Krist- jánsson, Halla Sólveig Þor- geirsdóttir, Ólöf Kjaran, Sig- rún Eldjárn og Soffía Sæmundsdóttir. Fræðsluefnið er þrískipt og gert fyrir mismunandi aldurs- hópa. Talsvert fer eftir að- stæðum hvort kirkjunni tekst að skipta sunnudagaskólanum upp í aldurshópa en það er þó víða gert. Að auki er víða sér- stakt barnastarf fyrir 8–10 ára og 10–12 ára börn á virkum dögum. Dyrnar víkkaðar og þröskuldurinn lækkaður Bjarni var beðinn um að lýsa því í hverju undirbúning- ur fyrir dæmigerða messu í Laugarneskirkju fælist og hvernig hann gengi fyrir sig. „Þegar messa er í Laugar- neskirkju er reiknað með öll- um aldri og það er sá metn- aður sem við leggjum í starfið í almennu guðsþjónustunni. Við segjum að allir aldurs- og heilsufarshópar eigi að vera saman, því við leggjum áherslu á aðgengi líka og annað slíkt, viljum víkka dyrnar og lækka þröskuldinn, í bæði eiginlegum og óeiginlegum skilningi, þannig að það sé ljóst að mess- an er fyrir alla,“ sagði Bjarni. „Hún þarf að vera rík að inni- haldi, það verður að vera raun- veruleg andleg næring, en um leið mega ekki vera neinar girðingar, engin ytri mörk, bara ljósmiðja, sem er Jesús Kristur. Við erum að reyna að rífa niður alla þessa ósýnilegu múra, sem gera það að verkum að fólk nær ekki að komast til kirkjunnar, vegna þess að ann- aðhvort er hún of fín, eða þá að hún talar allt of skrýtið mál, eða notar allt of undarlega tón- list, er væmin eða eitthvað annað í þeim dúr.“ Skipulagður her „Starfsfólkið í kirkjunni er skipulagður her, með skýrri verkskiptingu, sem allt bygg- ist á. Messa á ekki að vera ein- leikur prests eða dúett prests og organista. Við hittumst allt- af klukkutíma fyrir athöfn. Kosturinn við það er sá, að þá eru allir komnir í hús á sama tíma, allir sem hafa lykilhlut- verkum að gegna. Þar er farið yfir málin, athugað hvort allir séu með sitt á hreinu, og síðan ljúkum við þessu stutta sam- félagi með bæn. Börn og ung- lingar eru líka oft með okkur þarna í undirbúningnum, því þetta er opinn samstarfshóp- ur. Með því að finna sig með- tekin í röðum hinna fullorðnu, í þessari undirbúningsvinnu, verður þeim það eðlilegt að þjóna í kirkjunni sinni, það verður hluti af sjálfsmynd þeirra. Og það er gott. Klukkan 11 byrja allir sam- an uppi í kirkju, börn og full- orðnir, af því að við viljum leggja áherslu á, að allir ald- urshópar komi saman og eigi sameiginlega stund, sem er á forsendum barnanna á sama tíma og hún er hefðbundin. Enda segjum við það alveg blákalt, að markhópur okkar sé ungt fólk með börn og ef sá markhópur næst, þá njóta all- ir. Það er líka staðreynd að það fer ekkert fjölskyldufólk að eyða tíma einhversstaðar þar sem börnunum líður ekki vel.“ Fara niður í safnaðar- heimili á ákveðnum tíma í messunni „Á ákveðnum tíma í mess- unni fara börnin niður í safn- aðarheimili, en hinir fullorðnu sitja eftir uppi í kirkju. Áður er tekið ljós af altarinu og það borið niður í safnaðarheimili, þannig að sama ljósið er á tveimur hæðum. Og þar er ákveðinn hópur sem heldur úti sunnudagaskóla, undir forystu djáknans, Hrundar Þórarins- dóttur. Þegar við erum með fullskipað lið er sunnudaga- skólinn hjá okkur fjórskiptur, eftir aldri barnanna. Svo þegar messan er búin er hún í raun ekki búin, því að þá er messukaffi og samfélag í kringum það, þar sem börnin fá eitthvað gott að drekka og ærslast svo og leika sér eða lita og njóta þess að vera til, en hinir eldri sitja og spjalla og drekka kaffi. Það er því nokk- urs konar hverfisstemmning eða kaffihúsastemmning hér, nágrannar hittast og slappa af og ræða um daginn og veginn. Síðustu kirkjugestir eru þá oftar en ekki að fara um klukkustund eftir að messu lýkur.“ Búið að vera með þessu sniði í 10 ár Þetta er semsagt það sem við erum að fást við. Þetta er orðið langþróað hér í sókninni, messurnar eru búnar að vera með þessu sniði í áratug eða svo. Við erum lítill söfnuður í miðju hverfi og lítum á það sem ábyrgð okkar að sjá til þess, að það fólk sem býr hérna finni að það eigi alvöru aðgengi að þessari kirkju, að þetta sé ekki eign eins eða fárra manna, sem séu guð- rækilegar manneskjur, heldur sé hún raunverulega opinn vettvangur sem allir eigi að- gang að. Að enginn sé skil- greindur út og enginn inn, heldur að hún sé girðingalaus. Og ég veit að í öðrum söfnuð- um er markvisst verið að vinna að þessu sama, að koma til móts við fólkið með því að reyna að brjóta niður þessa ósýnilegu múra, sem allt of lengi hafa staðið íslensku þjóð- kirkjunni fyrir þrifum,“ sagði Bjarni að lokum. Sunnudagaskólinn ekki bara fyrir smábörnin „Við viljum að öll fjölskyld- an geti komið saman á sunnu- degi og leggjum þess vegna mikla áherslu á, að sunnudaga- skólinn sé ekki bara fyrir minnstu börnin, heldur fyrir öll börn upp að fermingu,“ sagði Hrund Þórarinsdóttir djákni, en hún leiðir sunnu- dagaskólann í Laugarnes- kirkju, með dyggraðstoð nokk- urra vel þenkjandi ungmenna. „Í sumum kirkjum er guð- spjallið lesið eða tónað, en hjá okkur er það endursagt og þá gjarnan með hjálp einhvers myndefnis, til þess að börnin geti verið með og skilið það betur. Þau koma líka upp og syngja fyrir söfnuðinn, sem þau hafa mjög gaman af og ekki síður hinir fullorðnu. Eft- ir þetta förum við niður í safn- aðarheimili með börnin, því þegar hér er komið eru þau búin að fá hinn nauðsynlega grunn, og með þessu gerum við þau messuvön. Stundum tekur drjúgan tíma að koma þeim öllum niður í safnaðarheimili, því oft getur verið um 100 börn að ræða eða jafnvel fleiri, og þá syngjum við nokkur lög á meðan þau eru að tínast niður. Þegar í Gryfjuna er komið hefst ákveðið ritúal; við kveikjum á kertum með ljósinu sem fengið var á altari kirkjunnar, og signum okkur og förum með morgunbænir. Síðan er mikið sungið og oftar en ekki ein- hverjir hressilegir söngvar, sem gaman er að syngja í stórum hópi. Og yfirleitt er svo brúðuleikhús með Axel og Ösp, eða þá biblíusaga, og fugl- inn Konni lítur einnig gjarnan í heimsókn. Í þessum atriðum koma unglingar okkur til að- stoðar, sem og í ýmsu öðru. Sú aðstoð þeirra er okkur mjög dýrmæt. Flestir eru úr 8. bekk en geta þó verið úr öðrum bekkjum líka, og margir hverj- ir eru ákaflega duglegir að mæta og hjálpa til og eru með í undirbúningnum. Skipt í fjóra hópa Að þessu loknu er börnun- um skipt í hópa, sem yfirleitt eru fjórir; 0–4 ára börn eru þá kyrr í Gryfjunni, 5–6 ára börn fara yfir í gamla safnaðarheim- ilið, 7–9 ára börn fara í Smug- una og 10–12 ára börn yfirleitt á skrifstofu prestsins. Með því að gera þetta svona fá allir þá fræðslu og söngva sem henta viðkomandi aldri. Þegar klukkuna vantar 5 mínútur í 12 komum við öll saman í Gryfjunni á ný og syngjum einn bænasöng sam- an, förum með Faðirvorið og blessunarorðin, og syngjum svo Vinalagið. Eftir það fá öll börnin límmiða í bækurnar sínar, en þeir hafa að geyma biblíumyndir eftir íslenska listamenn. Við leggjum mikla áherslu á að byrja um leið og grunnskól- inn byrjar, í september. Á þeim tíma eru ýmsir aðilar teknir að bjóða nánast hvað sem er, og því mikilvægt að kirkjan geti komið þar líka með tilboð. Aðsóknin hjá okk- ur er líka mest á haustin en dettur yfirleitt aðeins niður í janúar. Í fyrra héldum vð þessu samt nokkuð vel og ágætlega núna. Svo höldum við okkar striki alveg til loka maí.“ Um 15.000 börn lögðu leið sína í sunnudagaskóla þjóðkirkjunnar haustið 2000 Morgunblaðið/Árni Sæberg Hrund Þórarinsdóttir djákni segir frá því í máli og myndum þegar Jesús gekk á vatninu. Hverfisstemmning í Laugarneskirkju Morgunblaðið/Árni Sæberg Brúðuleikhúsið í fullum gangi. Laugarneshverfi Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Gryfjunni er mikið sungið og leikið og börnin eru vel með á nótunum. FRIÐRIK Garðarsson sat við eitt borðið í safnaðarheimili Laugarneskirkju, ásamt Þór- bergi syni sínum, 7 ára göml- um. Aðspurður sagðist Frið- rik koma stundum í Laugarneskirkju á þessum nótum, en þó ekki alltaf. Raunar var hann mættur þarna með börnin sín þrjú, Þórberg, Láru Björgu 8 ára og Ívar Svein 11 ára, en þau tvö höfðu brugðið sér frá til að komast nær hringiðunni. Öll virtist fjölskyldan skemmta sér konunglega, enda mikið um að vera í söng og leik. Blaðamaður gaf sig á tal við Þórberg og spurði hvort honum fyndist gaman í sunnudagaskólanum. „Það er ágætt,“ sagði Þór- bergur, dálítið feiminn. Syngurðu alltaf með í öll- um lögunum? „Nei, ég kann þau ekki al- veg öll.“ Áttu þér eitthvert upp- áhaldslag? „Nei.“ „Hann segir nú kannski ekki mikið, en hugsar þeim meir; er mikið að pæla,“ skaut faðir hans inn í. Og það fór ekkert á milli mála, því áhuginn leyndi sér ekki í svip hans þar sem hann fylgdist með því, úr fjarlægð og í öruggri návist pabba, sem var að gerast niðri í Gryfjunni þar sem brúðuleikhús með Axel og Ösp í aðalhlutverkum var í fullum gangi. Kann ekki alveg öll lögin Morgunblaðið/Árni Sæberg Friðrik og Þórbergur koma oft í sunnudagaskólann í Laugarneskirkju, en þó ekki alltaf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.