Morgunblaðið - 30.01.2001, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 30.01.2001, Qupperneq 19
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 19 að baki árangurstengingu launa en auðvitað spili það inn í að fyrirtæki á markaði hafi verið að fara þessa leið og því telji menn eðlilegt að veita starfsmönnum Eimskips sömu möguleika. „Við erum með gott starfsfólk og teljum mikils vert að halda í það með því að bjóða upp á kaupréttarsamninga.“ Aðspurður segir Ingimundur að eftir sé að útfæra þessa kaupréttar- samninga frekar, fyrst sé að afla heimildar og það þurfi að gera með góðum fyrirvara en það sé síðan aðal- STJÓRN Hf. Eimskipafélags Ís- lands hefur samþykkt að leggja til við aðalfund félagsins, sem haldinn verður 8. mars næstkomandi, að hlutafé í félaginu verði aukið um allt að 10%. Þar af verði allt að helming- ur, eða 5%, nýttur til gerðar kaup- réttarsamninga við starfsmenn Eim- skips. Ingimundur Sigurpálsson, for- stjóri Eimskips, segir að ástæðan fyrir því að stefnt sé að því að gera kaupréttarsamninga við starfsmenn séu þau almennu markmið sem búi fundarins að taka endanlega ákvörð- un um þetta. „Hinn tilgangurinn með aukningu hlutafjár er að gera félaginu auðveld- ara um vik að ráðast í framkvæmdir og frekari vöxt á næstu árum. Við er- um með ýmislegt í bígerð og leggjum út í umtalsverðar fjárfestingar á þessu ári sem eiga að efla hag félags- ins og hlutafjáraukningin er liður í að treysta þá þróun. Það verður síðan stjórnarinnar að ákveða hvenær þessi heimild verður nýtt, hvort það verður á þessu ári eða síðar.“ Fyrirhuguð aukning hlutafjár í Eimskip Annað tveggja skipa Eimskips sem tekin voru í notkun í október sl. ● DREGIÐ hefur úr hagnaði Henn- es & Mauritz-verslanakeðjunnar þrátt fyrir gott gengi á Bandaríkja- markaði sem H&M tók með trompi á síðasta ári. Hagnaðurinn árið 2000 nam tæplega 40 milljörðum ísl. kr. sem er um 16% lægra en árið 1999. Veltan jókst um 9% og var um 350 milljarðar ísl. kr. Skýr- ingin sem gefin hefur verið á minni hagnaði er kostnaður við að ýta úr vör verslunum í Bandaríkjunum og á Spáni. Hyggja eigendur fyrirtæk- isins á enn frekari landvinninga á þessu ári. Er stefnt að því að opna um 100 verslanir úti um allan heim árið 2001. Auk austur- strandar Bandaríkjanna er horft til Ítalíu og Portúgal en svo verður stefnan væntanlega tekin á Aust- ur-Evrópu, að því er segir í Dagens Næringsliv. Eftir fimm til tíu ár gera stjórnendur H&M svo ráð fyrir því að markaðurinn verði mettur í Evrópu og því eru þeir nú þegar farnir að huga að því hvar bera eigi niður eftir það. H&M opnaði fyrstu verslun sína í Bandaríkjunum í mars á síðasta ári og fóru móttökurnar fram úr öllum vonum. Mikil umfjöllun og auglýs- ingaherferð var í fjölmiðlum vestan hafs er H&M opnaði stórverslun með 250 starfsmenn í New York. Mynduðust langar raðir við versl- anirnar fyrstu dagana og varð að senda um 95 starfsmenn frá Sví- þjóð og öðrum Evrópulöndum til að létta undir með bandaríska af- greiðslufólkinu, svo mikil var ösin. Alls voru 7 H&M verslanir opnaðar í Bandaríkjunum á síðasta ári. Ástæða velgengninnar vestan hafs er sögð sú að H&M hafi reynst nýjung á markaðnum. Aðrar verslanakeðjur sem henni hefur verið líkt við, t.d. Gap, leggi ekki eins mikla áherslu á nýjustu tísku, heldur sé varningurinn sígildari, að því er Kurt Barnard, hjá Barnard’s Retail Trend Report, segir í sam- tali við Dagens Nyheter. Telur hann að svo fremi sem hönnuðum H&M verði ekki alvarlega á í mess- unni megi búast við um 3 til 4% söluaukningu í Bandaríkjunum í ár. Dregur úr hagn- aði hjá H&M Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ● NORSKA olíufyrirtækið Statoil er á meðal þeirra sem lýst hafa áhuga á því að kaupa hið ríkisrekna danska olíu- og gasfyrirtæki, DONG, að því er fullyrt er í dag- blaðinu Børsen. Segir þar að verðið sem sett sé upp fyrir DONG nemi um 300 milljörðum ísl. kr. en til stendur að hefja einkavæðingu þess. Telur forstjóri DONG, Holger Lavessen, að fyrirtækinu verði skipt upp í tvö eftir þrjú til fjögur ár. Lavessen vill ekki tjá sig um vænt- anlegt söluverðmæti DONG en seg- ir að það sé í lykilstöðu á evrópska orkumarkaðnum sem er óðum að komast í hendur einkafyrirtækja. Það er á valdi danskra stjórnvalda að taka ákvörðun um einkavæð- ingu og hefur Sven Auken orku- málaráðherra lýst sig andvígan slíku. Hins vegar minnir blaðið á að stjórnin hafi einkavætt Tele- Danmark og að andstaða við einka- væðingu geti breyst hratt komist borgaraleg stjórn til valda í næstu kosningum eins og skoðanakann- anir bendi til. Lavessen býst við að þetta gerist innan fjögurra ára og segir ljóst að þegar það verði boðið til sölu muni hlutirnir vafalaust ganga hratt fyrir sig. Nú þegar hafa Statoil og Shell lýst áhuga á því að kaupa DONG en hjá hvorugu fyrirtækinu vildu menn tjá sig frekar um málið. Þá segir í Børsen að enn einn líklegur kaupandi sé þýska orkufyrirtækið Ruhrgas sem á nú þegar í sam- vinnu við danska fyrirtækið, m.a. um lagningu gasleiðslu til Póllands. Statoil og Shell vilja kaupa danska ríkisorkufyr- irtækið Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.