Morgunblaðið - 30.01.2001, Síða 22
ÚR VERINU
22 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Nokkur frábær fyrirtæki
1. Til sölu nýtt þjónustufyrirtæki í nýju risahvefi. Sælgætissala,
skyndibitamatur, samlokur, myndbandaleiga, spilakassar og ís-
sala. Sæti fyrir 23 manns fyrir utan standborð. Húsnæðið jafnvel til
sölu en það er einnig nýtt. Stöðugt vaxandi eins og hverfið. Fyrir-
tæki sem bíður uppá mikla möguleika og er mjög snyrtilegt enda
hannað af fagfólki. Opið til kl. 10 á kvöldin.
2. Lítið framköllunarfyrirtæki til sölu á einstaklega góðu verði sem
ekki hefur sést áður. Góð vinna fyrir einn starfskraft. Vertu eigin
húsbóndi fyrir lítinn pening en getur samt haft góðar tekjur.
3. Lítil innrömmunarstofa til sölu við hliðina á mörgum litlum lista-
galleríum á góðum stað í borginni. Listrænt umhverfi. Það var ein-
hver að spyrja um svona fyrirtæki. Vonandi les hann þessa aug-
lýsingu eða annar áhugasamur.
4. Einstaklega fallegur og notalegur matsölustaður á Akureyri til
sölu. Selur sælkeramat. Lítil og falleg koníaksstofa. Öll leyfi. Góð
staðsetning og frábært eldhús. Snyrtimennska í fyrirrúmi.
5. Til sölu salatframleiðslufyrirtæki með mjög fjölbreytilega fram-
leiðslulínu. Er einnig með sölu á heimilismat og selur yfir 200 mat-
arskammta á dag. Mikið af tækjum. Stöðug aukning á hverju ári.
Vel þekkt fyrirtæki. Einstakt tækifæri fyrir duglega aðila.
Mikið af fyrirtækjum á skrá. Þú ert ávallt velkominn.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
TÆPLEGA 2.000 lesta skuttogari
hefur legið við bryggju í höfninni í
Bolungarvík frá því 19 desember sl.
þar sem starfsmenn Vélsmiðjunnar
Mjölnis hafa verið að vinna að ýms-
um lagfæringum og viðhaldsverkum
um borð í skipinu.
Skipið sem heitir Olga er í eigu
Eystrasalt h/f, sem er fyrirtæki í
eigu Íslendinga en er gert út frá
Kaliningrad í Rússlandi en þar hef-
ur skipið veiðiheimildir í Barents-
hafi og á Flæmingjagrunni. Yfir-
menn í áhöfn skipsins eru
Íslendingar en aðrir í áhöfninni eru
Rússar.
Skipið landaði rúmum 300 lestum
af iðnaðarrækju á Ísafirði fyrir jólin
sem fór til vinnslu þar og á Hólma-
vík.
Að sögn Finnboga Bernódusson-
ar, framkvæmdastjóra Vélsmiðj-
unnar Mjölnis, hafa starfsmenn
hans verið í ýmiskonar viðhalds- og
viðgerðarverkefnum um borð í skip-
inu. Við gerum ráð fyrir að skipið
fari til veiða fljótlega, enda erum við
senn að ljúka þeim verkefnum sem
við tókum að okkur.
Forsvarsmenn Vélsmiðjunnar
Mjölnis hafa verið iðnir við að afla
sér verkefna og hafa víða leitað
fanga, t.d hefur fyrirtækið tekið að
sér verkþætti í íslenskum skipum
sem hafa farið erlendis til breytinga
og hafa starfsmenn þess þá farið er-
lendis og unnið verkið um borð í
skipunum þar.
„Við erum í góðum samböndum
við ýmsa aðila um að taka að okkur
stærri og minni verk,“ sagði Finn-
bogi, „verkefnin koma stundum með
skömmum fyrirvara en við erum
undir það búnir að bregðast við
slíku.
Þetta hefur gengið vel hjá okkur
það sem af er, þannig var t.d síðasta
ár stærsta árið í sögu fyrirtækisins
hvað verkefnastöðu varðar og mátt-
um við hafa okkur alla við að anna
því sem til okkar barst.“
Morgunblaðið/Gunnar
Finnbogi Bernódusson, framkvæmdastjóri Mjölnis, lengst til vinstri. Með honum eru þrír skipverjar úr áhöfn
skipsins, Mamed vinnslustjóri, Iurij 3. vélstjóri og Michel bátsmaður, en þeir hafa annast skipið á meðan á við-
gerð hefur staðið í höfninni í Bolungarvík síðustu vikurnar.
Morgunblaðið/Gunnar
Togskipið Olga er nú í viðgerð í Bolungarvík en búist er við að þeim ljúki innan tíðar.
Tvö þúsund lesta togari
í viðgerð í Bolungarvík
Vélsmiðjan Mjölnir leitar víða eftir verkefnum
Bolungarvík. Morgunblaðið.
NORÐMENN óttast nú að sala á
frystri loðnu til Rússlands geti
reynzt erfið. Þeir telja ástæðuna
miklar birgðir í Rússlandi og líkur á
ódýrri framleiðslu Rússa sjálfra.
Þetta kemur fram í norska
blaðinu Fiskeribladet, en það leitaði
upplýsinga um stöðuna hjá Alex-
ander Scherbakov í fyrirtækinu
Troms Pelagic. Hann styðst við
upplýsingar frá Rússlandi, þar sem
fram kemur að í janúar buðu 14 fyr-
irtæki í Múrmansk nýfrysta loðnu
til sölu á bilinu 18 til 45 krónur kíló-
ið. Meðal verksmiðjanna eru nokkr-
ar stórar sem eiga eigin skip til
veiðanna. Það bendir til þess að allt
að 10.000 tonn af frystri loðnu kunni
að vera í birgðum í Rússlandi.
Scherbakov bendir á að ljóst sé að
rússneski flotinn muni landa miklu
af loðnu í Múrmansk á þessu ári,
meðal annars vegna þess að síld-
arkvóti skipanna er nú minni en í
langan tíma. Þetta getur því valdið
erfiðleikum fyrir Norðmenn við söl-
una, því þeim hefur oft gengið illa
að selja loðnu til Rússlands þar til
birgðir Rússa eru uppurnar.
Í fyrra fluttu Norðmenn út um
8.200 tonn af loðnu til Rússlands á
meðalverðinu 22,60 krónur íslenzk-
ar. Rússneski markaðurinn er að-
eins þriðjungur af þeim japanska og
þar fæst einnig tvisvar til þrisvar
sinnum hærra verð.
Efasemdir um sölu
á loðnu til Rússlands
VÍKINGUR AK kom með um 1.200
tonn af loðnu til Akraness í gær-
kvöldi en góð nótaveiði var á loðnu-
miðunum fyrir austan land aðfara-
nótt sunnudags.
„Rúntað“ um miðin
í þrjá sólarhringa
Viðar Karlsson, skipstjóri á Vík-
ingi, segir að loðnan hafi fengist á
skömmum tíma en nótin hafi sprung-
ið og því hafi hann ekki alveg náð
fullfermi. „Nótabátarnir voru lausir
við trollarana, voru austar og fengu
ágætis veiði en svo var friðurinn úti á
sunnudagskvöld,“ segir Viðar og
bætir við að hann hafi „rúntað“ um
miðin í þrjá sólarhringa án þess að fá
nokkurn skapaðan hlut. „Við vorum
orðnir heldur vondaufir en hún fer í
hringi. Hún fer suður eftir og svo
norður og austar og við náðum henni
meðan hún rann eftir mjög skörpum
hitaskilum en síðan dreifir hún sér
aftur.“
Ekki nóg
fyrir alla
Hann segir að meðan ekki sjáist
meiri loðna en raun ber vitni sé ekki
nóg fyrir alla. „Þeir vilja ná þessu
með trollinu og við viljum ná þessu í
nótina og þetta passar ekki saman.
Hins vegar er ekki óeðlilegt að lítil
nótaveiði sé á þessum tíma og í raun
er mesta furða hvað hún er. Við von-
um að hún komi upp í fjörurnar 7.
eða 8. febrúar en yfirleitt hefur þetta
verið alveg dautt hjá okkur síðustu
10 dagana áður en hún kemur upp
þannig að ég á ekki von á neinu fram
að þeim tíma, nema þá fyrir togskip-
in.“
Mikil loðna fyrir vestan
Vart hefur verið við mikla loðnu út
af Vestfjörðum en rannsóknaskipið
Árni Friðriksson er þar í loðnuleið-
angri. Hjálmar Vilhjálmsson leið-
angursstjóri segir að veðrið hafi gert
mönnum erfitt fyrir þar til á sunnu-
dag en spáin sé ágæt. Byrjað var á
því að fara vestur í Barðagrunnið og
kantinn þar en síðan eftir honum
suður í Víkurál, vestur af Látra-
bjargi. „Það er töluverð loðna á
þessu stykki sem er um 40 mílur á
lengdina,“ segir Hjálmar. „Þetta er
stór og falleg loðna sem virðist síga
suðvestur eftir og fer því örugglega
ekki austur.“ Hjálmar segir að
stundum komi fyrir að stofninn sé
tvískiptur en langt sé síðan svona
mikið hafi verið af loðnu út af Vest-
fjörðum.
Viðar segist vera spenntur fyrir
loðnunni út af Vestfjörðum en þar sé
bara alltaf brjálað veður. „Ef við
fáum gott veður verðum við að skoða
þetta en oft hefur verið loðna út af
Vestfjarðamiðum sem við höfum
aldrei getað notað vegna veðurs.
Hætt er við að hún fari inn á flákann
eða hrygni út af Vestfjörðum og þá
er hún okkur eiginlega glötuð. Hún
verður að koma hérna með fjörunum
til að það verði einhver vertíð af viti.“
Í gær hafði verið tilkynnt um
75.000 tonna loðnuafla á vetrarver-
tíðinni eða alls um 200.000 tonn en
heildarkvótinn, sem á eftir að endur-
skoða, var tæplega 420.000 tonn.
Góð loðnuveiði
í hringnótina
FÆREYINGAR stefna nú að því
að taka upp eftirlit með skipum
innan lögsögu sinnar frá gervi-
hnetti. Telja þeir sig með því bæði
geta fylgzt betur með ólöglegum
veiðum skipa og eins geta betur
tryggt öryggi þeirra og brugðizt
skjótar við bjáti eitthvað á. Jörgen
Niclasen, sjávarútvegsráðherra
Færeyja, segir í samtali við fær-
eyska blaðið Dimmalætting, að
það sé bara spurning um tíma hve-
nær þessu eftirliti verði komið á.
Umræður um fiskveiðieftirlit
við Færeyjar hafa verið töluverð-
ar að undanförnu vegna þess að
nýtt varðskip þeirra, Brimill, er
fast í Noregi og hefur verið það í
þrjá mánuði. Fyrir vikið hefur eft-
irlit verið lítið og eru uppi ýmsar
ásakanir um ólöglegar veiðar fær-
eyskra skipa. Niclasen segir að
með eftirliti um gervihnött sé
hægt að taka af allan vafa um slík-
ar fullyrðingar. Á færeysku heitir
gervihnöttur fylgisveinn.
Taka upp eftirlit
um gervihnött