Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 23

Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 23
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 23 Verslunin Svalbarði Framnesvegi 44 Sérverslun með íslenskt góðmeti Mikið úrval af harðfiski og hákarli. Saltfiskur, flattur og flök, sólþurrkaður, útvatnaður, mareneraður. Saltfiskrúllur og saltfiskbollur. Plokkfiskur. Orðsending til þorrablótsnefnda: Eigum harðfisk og hákarl í þorratrogin og útbúum einnig þorrabakka. Sendum um land allt. Pantanasími: 562 2738, fax 562 2718 TILBOÐ Í DAG Nýr rauðmagi Kúttmagi Glæ ný hro gn og lifu r Línuýsa (verð áður 250 kr.) FISKBÚÐIN VÖR Höfðabakka 1 sími 587 5070 FISKBÚÐIN HAFBERG Gnoðarvogi 44 sími 588 8686 kr. kg.95 NÝLEGA auglýsti bílaumboð að það myndi borga fyrstu þrjár afborgan- irnar ef viðkomandi tæki bílalán til sjö ára og borgaði að lágmarki 30% útborgun. Samkvæmt útreikningum Ráðgjafastofu um fjármál heimil- anna nemur kostnaður við kaup á bíl sem kostar 1.637.000 þúsund krónur alls 471.337 krónum ef miðað er við að lánið nemi 1.145.900 kr. og útborg- un sé 30%. Heildarverð bílsins er þá orðið 2.108.337 krónur. Bílaumboðið tekur að sér að borga fyrstu þrjár af- borganirnar sem nema 84.995 krón- um. Þegar bíllinn er orðinn sjö ára er hann metinn á um 130.950 krónur en þá er miðað við 20% afföll fyrstu tvö árin og 12% árin eftir það. Jórunn Jónsdóttir, ráðgjafi hjá Ráðgjafastofu um fjármál heimil- anna, segir að því sé vandsvarað hvort það sé vit í því að taka lán til að kaupa bíl þegar borið er undir hana hvernig það komi út fjárhagslega fyrir fólk að taka bílalán til sjö ára með þessum hætti. Hún segir það m.a. fara eftir greiðslugetu einstak- lingsins. „Ef miðað er við að tekið sé lán í banka til að staðgreiða bílinn þá eru almennir vextir af bankalánum hærri en þeir vextir sem almennt eru á bíla- lánum. Þannig að það má draga þá ályktun að bílalánin séu aðeins hag- stæðari miðað við það sem sett er fram í þessu tilviki, þ.e. fastir 9% vextir.“ Jórunn bendir á að það að taka lán til að kaupa nýjan bíl þýði mikla útgjaldaaukningu hjá viðkom- andi og að það vilji stundum gleym- ast að reikna með hvað það er sem bætist við í mánaðarleg útgjöld heim- ilisins. „Það þarf að gera ráð fyrir tryggingum en þegar bílar eru með bílalánum er þess oftast krafist að tekin sé kaskótrygging sem getur þýtt 120.000 krónur á ári fyrir utan að eðlilegur kostnaður við að reka bíl á mánuði er um 20.500 krónur. Þann- ig að til viðbótar við tæpa 30.000 króna afborgun af bílaláni þarf að gera ráð fyrir um 32.500 króna kostn- aði vegna reksturs og trygginga á bílnum. Þannig má gera ráð fyrir að kostnaður heimilis sem er með bíla- lán sé um 60.000 á mánuði í heildina,“ segir Jórunn. Helsti gallinn við bílalán er að sögn Jórunnar sá að ef fólk lendir í vanda með afborganir af þeim þá er í flest- um tilfellum ekki hægt að breyta þeim til að koma þeim í skil. „Það er með bílalán eins og öll önn- ur lán að þau eru veitt með ávöxt- unarkröfu lánveitanda í huga. Fólk þarf að finna út hvort það hefur efni á að taka bílalán og gera sér grein fyrir því að söluverð bílsins og eftirstöðvar láns haldast ekki alltaf í hendur. Það gæti komið upp sú staða að verðmæti bílsins væri orðið minna en áhvílandi lán.“ Reikna þarf dæmið til enda Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri FÍB, segir að ekki megi líta framhjá því að bíll er og verður ávallt nytjahlutur og hér sé því um neyslu- lán að ræða. „Grundvallarþátturinn er að reikna dæmið til enda. Tökum sem dæmi bíl á svipuðu verði og bíl- arnir í umræddri auglýsingu en þetta eru bílar á í kringum 1.500.000 til 2.000.000 krónur. Ef við tökum bíl sem kostar eina og hálfa milljón þá er verið að tala um lágmarksútborgun 450.000 krónur. Afgangurinn er síð- an bílalán til sjö ára og samkvæmt þessu eru fyrstu þrjár afborganirnar í kringum 65.000. Á þessum sjö árum er bílalántakandi að borga 350.000 til 400.000 krónur umfram þá peninga sem hann fékk lánaða,“ segir Run- ólfur. „Í núverandi efnahagsumhverfi eru neyslulán dýr. Þau bera 9% vexti og verðbætur að auki ásamt greiðslu- kostnaði. Hér er um ákveðinn valkost að ræða og þar sem bílaumboð mis- muna væntanlega ekki viðskiptavin- um sínum er ekki ólíklegt að fyrir- tækið bjóði þeim viðskiptavinum afslátt líka sem kjósa að staðgreiða.“ Að sögn Runólfs er algengara en ekki að tekin séu bílalán þegar fólk fjárfestir í nýjum bílum. „Bílalán bjóðast á svipuðum kjörum og bankalán en það sem þau hafa kannski umfram bankalánin er að hægt er að ganga frá hlutunum á staðnum. Bílar eru farnir að falla í verði meira en áður þannig að ef skyndilega þarf að selja bílinn er hætt við að fólk sitji uppi með afborg- anir.“ Þegar Runólfur er inntur eftir því hvort mikill munur sé á þeim kjörum sem í boði eru almennt vegna fjár- mögnunar bílakaupa segir hann nán- ast sömu kjör vera í boði hjá öllum aðilum á markaðnum. Kostnaður við sjö ára bílalán upp á 1.145.900 krónur nemur 471.337 krónum Neyslulán eru dýr                                                ! "#!$ %    & '# (& "$ ! ! "#!$  !)$ *!"" *#!* " ! + !)! ,      $ '- *! -!  .  +                                  !       " # $!  %         &    '("  ) "*+ (   +)+ "*+ '("  +,  (( '*+ ) "*+                          Morgunblaðið/Þorkell

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.