Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 25
LÖGREGLAN í Indónesíu
skaut í gær táragasi að náms-
mönnum, sem reyndu að ryðj-
ast inn í þing-
húsið, en þar
ákváðu þing-
menn að
halda áfram
rannsókn á
spillingar-
málum tengd-
um Abdurr-
ahman
Wahid, for-
seta landsins. Bíður þingheim-
ur skýrslu frá sérstakri rann-
sóknarnefnd og hyggst ræða
niðurstöður hennar á fimmtu-
dag. Almennt er búist við, að
skýrsla verði mikill áfellisdóm-
ur yfir forsetanum. Wahid,
sem er íslamskur klerkur, ger-
ir hvað hann getur til að tefja
fyrir rannsókninni en hún
snýst um mikinn fjárdrátt.
Vestrænt fé
í NTV?
JEVGENÍ Kíseljov, yfirmað-
ur NTV, óháðrar stjónvarps-
stöðvar í Rússlandi, sagði í
gær, að Vladímír Pútín, forseti
Rússlands, væri hlynntur því,
að stöðinni yrði bjargað með
vestrænni fjárfestingu. Sagði
hann, að Pútín hefði skrifað
Ted Turner, stofnanda CNN-
fréttastöðvarinnar banda-
rísku, en hann, bandarískir
fjármálamaðurinn George
Soros og fleiri hafa boðið í 25%
hlutafjárins í NTV. Eitt helsta
skilyrðið er, að Pútín ábyrgist,
að Moskvustjórnin hafi engin
afskipti af ritstjórnarstefnu
sjónvarpsstöðvarinnar.
Maídrottn-
ingin látin
MARIA Jose, sem kölluð var
Maídrottningin vegna þess, að
hún var drottning Ítala í maí
árið 1946, lést
í Genf um
helgina 94
ára að aldri.
Maria, rithöf-
undur og dá-
lítið veik fyrir
kommún-
isma, var
ekkja Um-
bertos II
Ítalíukonungs og dóttir Al-
berts I Belgíukonungs. Ríkti
hún í 27 daga frá 9. maí 1946
eða þar til Ítalir ákváðu að
breyta konungdæminu í lýð-
veldi. Var ástæðan fyrst og
fremst reiði þeirra vegna und-
irlægjuháttar og samstarfs
Victors Emmanuels III við
Mussolini.
Vinirnir
bregðast
Estrada
AÐ minnsta kosti einn af nán-
ustu félögum Josephs Estr-
ada, fyrrverandi forseta Fil-
ippseyja, hefur ákveðið að
vitna gegn honum. Dagblaðið
Philippine Star sagði í gær, að
um væri að ræða Mark Jim-
enez en hann á yfir höfði sér
að vera framseldur til Banda-
ríkjanna. Þar er hann sakaður
um póstsvik, skattsvik og um
ólögleg framlög í kosninga-
sjóði Demókrataflokksins.
STUTT
Áfram
rannsókn
á Wahid
Wahid
Maria Jose
„HRIKALEGT“ og „skekjandi“
eru orðin, sem Alan Milburn heil-
brigðisráðherra hefur notað und-
anfarna daga um skýrslu, sem
hann leggur fyrir breska þingið í
dag. Skýrslan fjallar um meðferð
3.500 líffæra, sem fjarlægð voru úr
látnum börnum á breska barna-
spítalanum Alder Hey í Liverpool.
Í óháðri skýrslu, skrifaðri af Liam
Donaldson, prófessor í læknis-
fræði, er komist að þeirri niður-
stöðu að á meira en helmingi
breskra sjúkrahúsa hafi tíðkast að
fjarlægja líffæri úr látnu fólki,
enda sé það í þágu læknavísind-
anna. Hins vegar verði það að ger-
ast með upplýstu samþykki.
Milburn hefur einnig lagt
áherslu á að læknar verði að afla
upplýsts samþykkis ef fjarlægja
eigi líffæri úr látnu fólki. Ýmsir
læknar hafa áhyggjur af því að
áköf umræða um þessi mál í Bret-
landi undanfarið torveldi krufn-
ingu, sem oft er nauðsynleg til að
ganga úr skugga um dánarorsök.
Bent er á að búast megi við að í
um 15 prósent tilfella sé dánaror-
sök rangt greind og krufning sé
nauðsynleg til að taka af allan
vafa. Einnig hefur verið bent á að
nauðsynlegt sé að fá að geyma vef-
sýni, því þau séu mikilvæg heimild
fyrir síðari tíma rannsóknir.
Margt í skýrslunni þykir skelfi-
legt, svo óttast er að hún veki hörð
viðbrögð. Sagt er að þar komi
fram að jafnvel höfuð ungbarna
hafi fundist í krukkum. „Yfirgrip
þess sem fram fór á Alder Hey og
hryllingur þess var þannig að
mann flökrar,“ er haft eftir einum
starfsmanni spítalans. Milburn
boðaði í gær lagabreytingar í kjöl-
far málsins. Þær ættu að styrkja
samstarf lækna og sjúklinga, ekki
ýta undir tortryggni. Alder Hey-
sjúkrahúsið hefur þegar sett upp
símalínur til að svara fyrirspurn-
um og búist er við að fleiri sjúkra-
hús geri slíkt hið sama.
Líffærum safnað án
vitundar aðstandenda
Alder Hey-hneykslið kom upp á
yfirborðið haustið 1999 þegar líf-
færi, sem forráðamenn spítalans
sögðust ekki hafa vita af, fundust í
rannsóknarstofu háskólans í Liv-
erpool. Heilar, hjörtu, lungu og
önnur líffæri höfðu verið tekin úr
látnum börnum, sett í krukkur og
stóðu nú þarna og rykféllu. Það
vakti óhug að þarna fundust 3.000
líffæri, sem enginn gat gert grein
fyrir hvaðan væru komin eða
hvernig. Stjórn spítalans hafnaði
því að hafa vitað nokkuð af safn-
inu.
Við nánari eftirgrennslan hefur
komið í ljós að á árunum 1947–
1988 átti spítalinn aðeins lítið safn
líffæra, líkt og tíðkaðist á sjúkra-
húsum. Á árunum 1988–1995 hrúg-
uðust líffærin hins vegar upp og
þessi mikla söfnun er rakin til hol-
lensks læknis, Dick van Velzen,
sem starfaði þá á Alder Hey-spít-
alanum.
Hann flutti síðan til Kanada og
þaðan til Nýfundnalands, þar sem
hann staraði Halifax í Nova Scotia
og þar hefur verið gefin út hand-
tökuskipan á hendur honum eftir
að mikið magn líffæra og líkams-
hluta fannst þar í geymslu innan
um búslóð læknisins. Hann er nú
með stöðu í Haag, en er í ótíma-
bundnu leyfi frá henni. Hann var
áður fyrr einn helsti sérfræðingur
í heimi um vöggudauða.
Læknirinn talar ekki við fjöl-
miðla, en talsmaður hans segir að
ekkert sé óeðlilegt við líffærasafn-
ið. Það sé rangt að stjórn spítalans
hafi ekki verið kunnugt um safnið.
Það hafi á sínum tíma einfaldlega
ekki fengist fé til að ganga al-
mennilega frá því og það hafi
stjórn spítalans verið fullkunnugt
um. Auk þess sem skýrslan tekur
þátt hans fyrir er það gagnrýnt að
stjórn spítalans skyldi láta þessa
starfsemi ganga óáreitta.
Eftir þessar fréttir var ákveðið
að nefnd skyldi kanna málið og
það er skýrsla hennar, sem Mil-
burn leggur fyrir þingið í dag.
Undanfarna daga hafa hins vegar
komið fram ýmsar nýjar fréttir um
það sem fram fór Alder Hey.
Meðal annars voru fréttir um að
lyfjafyrirtækið Aventis Pasteur
hefði keypt líffæri úr börnum frá
spítalanum. Síðan kom hins vegar í
ljós að fyrirtækið hafði greitt 10
pund, um 1.200 íslenskar krónur,
fyrir hvert sýni og sú greiðsla var
í raun fyrir meðhöndlun sýnanna,
svo það gaf tæpast rétta mynd að
slá því upp að sjúkrahúsið hefði
selt líffæri í hagnaðarskyni, auk
þess sem líffærunum hefði ella
verið fargað.
Óáreiðanlegar upplýsingar
til aðstandenda
Foreldrar barna, sem látist hafa
á spítalanum undanfarin ár, kvarta
mjög undan samskiptum við stjórn
spítalans. Forstöðumenn hans hafi
svarað fyrirspurnum bæði seint og
illa og þar með bætt enn frekari
harmi ofan á sorgina af barns-
missi. Lögfræðingur yfir 150 fjöl-
skyldna barna er létust á spít-
alanum hefur sagt í viðtali við
Sunday Times að málið snúist ekki
aðeins um vefsýni, heldur hafi
fjöldinn allur af veigamiklum líf-
færum barnanna aldrei komið í
leitirnar. Líffærin voru fjarlægð
úr börnunum látnum án leyfis for-
eldra.
Í viðtali við Independent segir
móðir, sem missti dóttur í fæðingu
á spítalanum 1987 að þegar frétt-
irnar um líffærasafnið birtust 1999
hafi hún haft samband við spít-
alann til að spyrja hvort líffæri úr
dóttur hennar væru meðal þeirra,
sem fundust. Hún fékk þá að vita
að líffæri hefðu verið fjarlægð úr
barninu, en þeim hefði síðan verið
eytt. Síðar hefur komið á daginn
að þetta var ekki rétt og hvorki
þessi móðir né aðrir aðstandendur
álíta sig hafa fengið endanlegar og
áreiðanlegar upplýsingar um afdrif
líkamshluta barnanna.
Upplýst samþykki – ekki
aðeins krossar á eyðublaði
Í skýrslu sinni kemst Donaldson
að því að það sem tíðkaðist á Alder
Hey-sjúkrahúsinu var ekkert eins-
dæmi, heldur hafi svipað tíðkast á
um helmingi breskra sjúkrahúsa,
einkum þar sem kennsla fari fram.
Hann áætlar að um 40 þúsund lík-
amshlutar séu nú í vörslu breskra
sjúkrahúsa. Það sem gerir hins
vegar Alder Hey-málið nokkuð
einstakt er að þar var svo mikið af
líffærum fjarlægt og þau geymd
við óheppilegar aðstæður. Það sem
var einnig rangt var að svo virðist
sem líffærin hafi verið fjarlægð á
laun og án þess að foreldrar væru
upplýstir um hvað gert hefði verið
við lík barna þeirra.
Bæði einstakir læknar og sam-
tök þeirra hafa látið í ljós að það
sé nauðsynlegt í þágu læknavís-
inda að fjarlægja líffæri úr látnu
fólki en hins vegar sé mikilvægt að
það sé gert eftir settum reglum og
öllum sé ljóst, hvað sé á ferðinni.
Ekki sé hægt að tala um að fleiri
líffæri séu tekin en nauðsynlegt sé
því þau séu hluti af gagnabanka,
sem gagnist ekki aðeins samtím-
anum, heldur einnig síðari tímum.
Milburn undirstrikaði í gær að það
þyrfti að tryggja raunverulega
upplýst samþykki, ekki aðeins að
fólk fengi eyðublöð til að krossa
við á.
Fyrir sex mánuðum voru teknar
í notkun nýjar reglur, settar í ljósi
Alder Hey-málsins. Þær hafa leitt
til færri krufninga og að minna er
tekið af líffærum úr látnu fólki en
áður. Ýmsir hafa áhyggjur af að
þar með fáist ekki nægar upplýs-
ingar, til dæmis um dánarorsök.
Þegar til lengdar lætur geti það
bitnað á rannsóknum og á end-
anum á umönnun sjúklinga.
Líffærasafn úr látnum börn-
um vekur ugg í Bretlandi
Skýrsla um líffæri tekin úr látnum börnum
á breskum barnaspítala hefur hneykslað
Breta, segir Sigrún Davíðsdóttir, en ýmsir
óttast einnig að um of hafi verið þrengt að
læknisfræðirannsóknum í kjölfar málsins.