Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 27
við getum talið upp hluta af kostum nike
handboltaskónna, eins og zoom air í hæl og tábergi,
sérstakan viðnámssóla, DRAG ON yfirbyggingu fyrir
stöðugleika og hvað þeir eru léttir, en bestu
meðmælin eru samt hverjir spila í þeim:
guðjón valur sigurðsson
ólafur stefánsson
patrekur jóhannesson
ragnar óskarsson
við hefðum talið nike leikmennina í öðrum
landsliðum á HM upp líka, en það er ekki pláss
fyrir þá alla í þessari auglýsingu.
air zoom pivot
SJÖ kvikmyndir hlutu vilyrði til
framleiðslu árið 2002. Hæsta styrk,
þ.e. 40 milljónir hvor, hlutu Sögn
ehf. til framleiðslu á kvikmyndinni
Hafið í leikstjórn Baltasars Kor-
máks og Íslenska kvikmyndasam-
steypan til framleiðslu á kvikmynd-
inni Kaldaljós í leikstjórn Hilmars
Oddssonar. Þá hlutu Zik Zak kvik-
myndir 35 milljónir til framleiðslu á
kvikmyndinni Næsland í leikstjórn
Friðriks Þórs Friðrikssonar. Aðrar
kvikmyndir, sem framleiddar verða
árið 2002 í kjölfar úthlutunar, eru
Stormy Weather í leikstjórn Sól-
veigar Anspach, Ís-lending sem
Hallur Helgason leikstýrir, Diffe-
rences Alike í leikstjórn Peter
Ringgaard og 1.0 sem Marteinn
Þórsson mun leikstýra.
Þá hlutu tvö ný verkefni styrk til
framleiðslu árið 2001, en það eru Nói
Albínói í leikstjórn Dags Kára Pét-
urssonar framleidd af Zik Zak kvik-
myndum og Maður einsog ég sem
Róbert Douglas leikstýrir og fram-
leidd er af Kvikmyndafélagi Íslands.
Hæstu styrkirnir
Hilmar Oddsson hlaut styrk til
framleiðslu á kvikmyndinni Kalda-
ljós sem byggð er á samnefndri
skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur.
Hilmar hefur unnið að handritinu frá
því árið 1988 í samvinnu við Frey
Þormóðsson. „Vigdís hefur síðan
fylgst með úr fjarlægð,“ segir Hilm-
ar. Hann segir þennan langa melt-
ingartíma þó hafa komið sér vel, því
vandasamt hafi verið að færa bókina
yfir í kvikmyndaform. „Kaldaljós er í
tveimur hlutum sem gerast með tíu
ára millibili. Við tókum þá stefnu að
vinna fyrst og fremst út frá fyrri
hlutanum, sem lýsir æsku aðalper-
sónunnar. Í lok kaflans eiga sér stað
miklar hörmungar. Við fjöllum um
það sem tekur við og leitumst þannig
við að lesa inn í eyðuna í skáldsög-
unni. Þannig verður kvikmyndin í
dálítið sérstöku sambandi við skáld-
söguna,“ segir Hilmar. Myndin verð-
ur að sögn Hilmars dýr í framleiðslu,
og er enn verið að leita eftir fjár-
mögnun. Áætlað er að tökur hefjist
árið 2002.
Baltasar Kormákur hlaut styrk til
að leikstýra annarri mynd sinni, en
hún er lauslega byggð á leikritinu
Hafið eftir Ólaf Hauk Símonarson.
„Þetta er fjölskyldudrama, bæði
fyndið og dramatískt, sem gerist í af-
skekktu sjávarplássi. Þar mætast
kynslóðir auk þess sem komið er inn
á málefni á borð við landsbyggðar-
flótta og kvótamál,“ segir Baltasar.
Hann segir leikritið hafa höfðað til
sín þar sem það á brýnt erindi við ís-
lenskan samtíma. „Efnið lýsir mjög
sterkt því sem er að gerast á Íslandi.
Þegar ég las leikritið aftur áttaði ég
mig á því að það sem verið er að
fjalla um þar er jafnvel enn brýnna
en það var árið 1992 þegar leikritið
var skrifað.“ Þeir Baltasar og Ólafur
Haukur hafa unnið að því að endur-
skrifa leikritið í ljósi þróunar síðustu
ára í handriti. Tökur munu hefjast á
næsta ári en nú stendur frekari fjár-
mögnun yfir, en verkefninu hefur að
sögn Baltasars verið sýndur mikill
áhugi erlendis.
Friðrik Þór Friðriksson mun leik-
stýra kvikmyndinni Næsland en
Huldar Breiðfjörð hefur unnið að
gerð handritsins undanfarið ár.
„Handritið er unnið út frá þremur
myndum sem komu upp í hugann á
mér, það voru ungt par, beyglað
hjólhýsi og dúfa. Sagan fjallar um
tvo mjög sérstaka náunga sem gera
með sér samning um að hjálpa hvor
öðrum í því að finna út úr stóra sam-
henginu. Ætli þetta sé ekki bara ást-
arsaga í mjög marvíslegri merkingu
þess orðs,“ segir Huldar. Þegar
Friðrik Þór fékk handritið til lestrar
hreifst hann strax af því og vildi
gjarnan taka það að sér. „Þetta get-
ur orðið mjög skemmtileg og mann-
leg mynd,“ segir segir Friðrik Þór,
en tökur hefjast á næsta ári.
Kvikmyndasamsteypan hlaut 25
milljónir í styrk til framleiðslu kvik-
myndarinnar Ís-lending sem verður
að sögn Halls Helgasonar, væntan-
legs leikstjóra myndarinnar, ramm-
íslenskur háfjallarealismi með
spennuívafi. „Þetta er spennumynd
sem gerist að mestu leyti uppi á jökli
og á hálendi Íslands.“ Pétur Sigurðs-
son ritaði handritið og Ágúst Jak-
obsson mun annast kvikmyndatöku.
Hallur segir styrkinn hafa hleypt
verkefninu duglega af stað, og eru
aðstandendur að kanna frekari fjár-
mögnunarleiðir. „Myndin verður
tekin upp á hálendinu og líklega á
Langjökli. Annars erum við að
þreifa fyrir okkur með tökustaði.
Tökur hefjast svo fljótt sem auðið er
en það er háð veðráttu,“ segir Hall-
ur.
Þá hlaut Sögn ehf. 26 milljóna
króna vilyrði vegna myndarinnar
Stormy Weather sem verður
franskt/íslenskt samvinnuverkefni í
leikstjórn Sólveigar Anspach. Sól-
veig segir það ánægjulegt að fá
stuðning að heiman, en styrkurinn
kemur framleiðslunni af stað. Mynd-
in fjallar um ást, sálarlíf og veður-
fregnir. Þar segir frá tveimur stúlk-
um og berst sagan frá Manhattan til
Vestmannaeyja. „Það verður áhuga-
vert að vinna með þessar andstæður,
ekki síst sjónrænt. Það var mikil
innilokun í síðustu mynd minni,
Hertu upp hugann, en í þessari verð-
ur víðátta og vont veður,“ segir Sól-
veig. Frekari fjármögnun stendur
nú yfir og hefjast tökur í New York í
september.
Kristinn Þórðarson ritaði handrit-
ið að kvikmyndinni Differences
Alike en henni verður leikstýrt af
hinum þekkta danska leikstjóra Pet-
er Ringgaard. Magus hlaut 10 millj-
ónir til framleiðslu hennar. Myndin
gerist á tímum þorskastríðsins, sem
myndar bakgrunn sögunnar. Þar
segir frá sambandi íslensks manns
og enskrar konu sem sogast inn í
hina pólitísku deilu. Leitast er við
varpa ljósi á atburði frá sjónarhóli
beggja deiluaðila. „Mesta dramað
átti sér einkum stað í Hull og þess-
um bresku fiskiþorpum, sem misstu
sitt lífsviðurværi þegar Íslendingar
unnu í málinu,“ segir Kristinn.
Myndin verður á ensku og verður
leitast við að fá þekkta breska leik-
ara í aðalhlutverkin.
Marteinn Þórsson mun leikstýra
tæknitryllinum 1.0 ásamt félaga sín-
um Jeff Renfroe en þeir hafa starfað
saman við gerð auglýsinga og tón-
listarmyndbanda undanfarið. Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan hlaut
10 milljón króna vilyrði til fram-
leiðslunnar. „Myndin fjallar um
mann sem tekur þátt í tilraun sem
stórfyrirtæki er að gera með nýja
tegund af auglýsingum. Það reynist
eitthvað vera að þessari auglýsinga-
tækni, því veruleikinn fer í kjölfarið
úr skorðum,“ segir Marteinn. Mynd-
in verður tekin upp á ensku, með er-
lendum leikurum, en líklegt er að
Hilmir Snær Guðnason leiki aðal-
hlutverkið. Um íslenskt/kanadískt
samvinnuverkefni er að ræða, en
tökur hefjast í Kanda í apríl.
Zik Zak kvikmyndir hlaut 25 millj-
ónir til framleiðslu Nóa Albínóa árið
2001. Hún er fyrsta myndin í fullri
lengd sem Dagur Kári leikstýrir en
hann skrifaði jafnframt handritið.
Þar segir frá Nóa, sem er vandræða-
unglingur í litlu þorpi úti á landi.
„Þetta er hugmynd sem ég er búinn
að vera með í kollinum síðan ég var
16 ára en ég hef unnið markvisst að
henni undanfarin 2–3 ár. Myndin
gerist í miklum snjó og fjallar mikið
um innilokunarkennd,“ segir Dagur
en hann á von á að tökur hefjist síðar
á árinu og mun myndin að öllum lík-
indum verða tekin á Vestfjörðum.
Þá hlaut Kvikmyndafélag Íslands
15 milljónir fyrir myndina Maður
einsog ég í leikstjórn Roberts I.
Douglas. Myndin verður Reykjavík-
ursaga í anda Íslenska draumsins.
Sama teymi stendur að henni og í
fyrri mynd Róberts og er áætlað að
tökur hefjist í sumar.
Þróun bíómynda
Fimm hlutu styrki til þróunar bíó-
mynda þar sem handrit liggur fyrir,
er þar um að ræða myndirnar Fisk-
ur á þurru landi í leikstjórn Ingu
Lísu Middleton, Bróðir minn í leik-
stjórn Ágústs Baldurssonar eftir
handriti Mikaels Torfasonar, Ginn-
ungasaga eftir handriti Kristínar
Atladóttur, Georg í Mannheimum
eftir handriti Jóns Ármanns Steins-
sonar og Opinberun Hannesar í leik-
stjórn Hrafns Gunnlaugssonar, eftir
handriti hans og Davíðs Oddssonar.
Umsvif í íslenskri kvik-
myndagerð aukast
Níu nýjar kvikmyndir
hlutu vilyrði til fram-
leiðslu við úthlutun
úr Kvikmyndasjóði
Íslands og má því segja
að umsvifin í íslenskri
kvikmyndagerð fari
vaxandi ár frá ári. Heiða
Jóhannsdóttir komst að
því að margt er í bígerð. Hilmar
Oddsson
Baltasar
Kormákur
Friðrik Þór
Friðriksson