Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 29

Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 29 STÓRÚTSALA Skipholti 35 - sími 553 5677 Opið kl. 10-18 Opið laugardagakl. 10-14 Gardínuefni frá 100 kr. metrinn Rúmteppaefni á 995 kr. metrinn Öll jólaefni á 200 kr. metrinn Stórísar, blúndur, vóal og kappar 20—70% afsláttur F já rmá la fö l l i n Sumi f Count i f Subto ta l Sumproduct Lookup P ivo t tab les o . f l . Kennari er Baldur Sveinsson sem meðal annars hefur gefið út veglega bók um Excel, sem fylgir með í námskeiðinu. Baldur Sveinsson Bíldshöfði 18, sími 567 1466 EXCEL Framhaldsnámskeið Hnitmiðað námskeið fyrir fjármálastjóra og þá sem auka vilja við þekkingu sína í Excel. Farið er í gerð fjárhags- og rekstraráætlana og kynnt hin ýmsu reikniföll sem nota má til hagræðingar við útreikninga. ÞAÐ er einkennilegt hvað illa gengur hjá innlendum dagskrár- stjóra Sjónvarpsins að finna hvar neðri mörk þess liggja sem kalla mætti viðmiðun um útsendingarhæft efni. Á sunnudagskvöldið var sýnd stuttmynd er nefndist Eitur. Sjálf- sagt kæmi aðstandendum myndar- innar best ef allir létu sem myndin hefði aldrei verið sýnd en þar sem hún var sýnd í Sjónvarpi allra lands- manna, og það á besta útsendingar- tíma, verður ekki hjá því komist að leggja til með henni nokkur orð. Myndin er tileinkuð karlhormón- inu testósterón og segir frá rithöf- undi sem vinnur að bók sinni og á erf- itt með að halda gangandi sam- bandinu við sambýliskonu sína á sama tíma. Þau hætta saman og byrja aftur saman og hætta svo aftur saman. Fyrir bregður litlum dreng á hlaupum á víðavangi. Í lokin samein- ast rithöfundurinn og litli drengur- inn; líklega sama persóna, gott ef hann er ekki búinn að finna litla drenginn í sér með þessu hjartnæma myndskeiði. Talsvert hugvit hefur verið lagt í myndvinnslu á þessu verki en allt að einu er sagan sundurlaus og óáhuga- verð, persónurnar óljósar og texti þeirra klisjukenndur og tilgerðarleg- ur. Sennilega hefði myndin skánað við að sleppa töluðum texta og gera úr þessu myndfrásögn eingöngu. Nektar- og samfaraatriði bættu engu við frásögnina og ekki laust við að á köflum væru þau fremur klúr en list- feng. Sjálfsagt er það þó smekks- atriði. Til að bæta gráu ofan á svart var leikurinn í myndinni fyrir neðan allar hellur, áhugamennska í sinni verstu mynd þar sem algjörir ama- törar eru að reyna að leika eins og at- vinnumenn. Virtust jafnvel standa í þeirri trú að þeim hefði tekist það. María Rut Reynisdóttir var þó sjón- armun betri en Ólafur Jóhannesson en það er bitamunur en ekki fjár. Vafalaust hafa höfundar þessarar myndar gengið til verks af heilum hug og af öllum mistökum má draga nokkurn lærdóm. Þó hefði mátt ætla að búið væri að kanna þau mistök of- an í kjölinn að leiknar myndir verða ekki gerðar án til þess kunnandi leik- ara. Enn fremur að tæknileg kunn- átta kemur hvorki í stað né bætir upp vanhugsaðan söguþráð eða ónýtan leik. Einu sinni var íslenskum kvik- myndagerðarmönnum legið á hálsi fyrir lélega tæknivinnslu. Hér blasti hið gagnstæða við og var það reyndar einna forvitnilegasti þáttur myndar- innar. Stærstu mistökin við þessa mynd og sýningu hennar í sjónvarpinu skrifast þó á innlendan dagskrár- stjóra en hann hefði átt að hafa dóm- greind til að bera til að gera annað af tvennu; hafna sýningu myndarinnar alfarið eða setja hana á dagskrártíma við hæfi og kynna hana þannig að ljóst væri að forráðamenn sjónvarps- ins væru ekki endanlega búnir að tapa glórunni. Eitur, ekki meira eitur SJÓNVARP S t u t t m y n d Handrit: Helgi Sverrisson og Ólafur Jóhannesson. Leikstjórn: Helgi Sverrisson.Kvikmyndataka: Björn Sigurðsson. Klipping: Ólafur Jóhannesson. Hljóð: Ragnar Santos. Leikarar: Ólafur Jóhann- esson, María Rut Reynisdóttir, Ómar Ragnarsson, Jón Proppé o.fl. EITUR Hávar Sigurjónsson Morgunblaðið birtir hér ljós- myndir af fjórum verkanna en þeim sem gefið geta upplýsingar í málinu er bent á að snúa sér til lögreglu. EKKERT hefur spurst til grafík- verkanna sex sem stolið var úr sýn- ingarsal Íslenskrar grafíkur í Hafn- arhúsinu fyrir rúmum hálfum mánuði. Voru þau hluti af sýning- unni Brum 2001 sem nemendur af öðru og þriðja ári í Listaháskóla Ís- lands stóðu fyrir. Verk eftir Sævar Jóhannesson. Verk eftir Guðfinnu Hjálmarsdóttur. Verk eftir Ólaf Stefánsson. Verk eftir Olgu Pálsdóttur. Stolnu verkin ófundin RITHÖFUNDARNIR Böðvar Guðmundsson og Guðjón Arn- grímsson eru meðal fyrirlesara á nýju kvöldnámskeiði hjá Endur- menntunarstofnun Háskólans um Vesturheimsferðir Íslendinga í lok 19. aldar og fram undir fyrri heimsstyrjöld. Á námskeiðinu, sem hefst 7. febrúar, verður lögð áhersla á að skoða sjálfsmynd og hugmyndir Vestur-Íslendinga og Íslendinga um sögu vesturfara, og horft til þess hvernig afkomendum land- nemanna reiddi af, til dæmis á bókmenntasviðinu. Aðdragandi þess að 15-20 þúsund Íslendingar fluttust vestur um haf verður skoðaður og kynnt segulbandasafn með vestur-íslenskum munnmæla- sögum. Þá verður sagt frá sendibréfum og öðrum heimildum, svo sem dag- bókum, fjallað um daglegt líf, landnám og fyrstu árin vestra, og greint frá öflugri bókmennta-, blaða- og tímaritaútgáfu. Sérstak- lega verður fjallað um höfuðskáld Vestur-Íslendinga, Stephan G. Stephansson. Umsjón með námskeiðinu hefur Gísli Sigurðsson íslenskufræðingur á Árnastofnun. Aðrir fyrirlesarar eru sagnfræð- ingarnir Helgi Skúli Kjartansson, Davíð Ólafsson, Sigurður Gylfi Magnússon og Vigfús Geirdal, bókmenntafræðingarnir Viðar Hreinsson og Guðrún Björk Guð- steinsdóttir og Anne Brydon mannfræðingur frá Wilfrid Laur- ier-háskólanum í Waterloo. Námskeiðinu lýkur með heim- sókn á Vesturfarasetrið á Hofsósi. Námskeið um Vesturheims- ferðir Íslendinga  MANNSLÍF í húfi – Saga Slysa- varnafélags Íslands er eftir Einar Arnalds. Saga Slysavarnafélags Ís- lands er hér sögð í máli og myndum. Félagið varð á skömmum tíma ein öflugasta félagshreyfing landsins. Síðustu árin hafði félagið 90 vel bún- um og þjálfuðum björgunarsveitum á að skipa. Haustið 1999 samein- uðust Slysavarnafélag Íslands og Landsbjörg, landssamband björg- unarsveita og Slysavarnafélagið Landsbjörg varð til. Þar með höfðu allir sem störfuðu á þessum vett- vangi snúið bökum saman til að vinna að sameiginlegum mark- miðum. Útgefandi er Mál og mynd. Bókin er 492 bls., í stóru broti. Á fjórða hundrað ljósmyndir, teikningar og kort eru í bókinni. Verð: 5.900 kr. Nýjar bækur Gunnar Friðriksson, fyrrverandi for- seti SVFÍ, áritar bókina.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.