Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 33

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 33
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 33 LÍFIÐ er leikur hjá hjónunum Lars Erik (Henrik Lykkegaard) og Sonju (Sofie Stougaard). Eru á besta aldri, hann aflakló sem sækir gull í greipar Eystrasaltsins, sem enn er gjöfult. Hún stjórnar líflegum heim- boðum og snurfusar fallega og vel búna heimilið þeirra. Er ekkert að slíta sér út á vinnumarkaðnum því Lars Erik vill að hún sé fín frú. Þau eru sæl og áhyggjulaus, hafa gaman af að lifa og skemmta sér og eru eng- an veginn undirbúin þegar áföllin dynja á þeim. Myndin gerist við upphaf níunda áratugarins þegar fiskveiðistjórnun við Eystrasalt brást seint og hart við ofveiði þjóðanna sem hafið sækja. Fáir fóru verr útúr kvótatakmörk- unum og eyjarskeggjar á Borgund- arhólmi, þar sem ástandið er um margt svipað og í íslenskum byggð- arlögum sem allt sitt eiga undir út- gerð og fiskvinnslu. Lars Erik á erf- itt með að sætta sig við staðreyndir niðurskurðarins, Sonja reynir að bjarga því sem bjargað verður með því að fá sér vinnu hjá nágrannanum. Hleypir það illu blóði í skipstjórann, sem má, ofaná kvótaskerðinguna, horfa á eftir hásetunum axla pokann sinn, einn af öðrum og hverfa til arð- bærari starfa í landi. Erjur hjónanna ágerast, í lokin hafa þau misst flest sem þau áttu. Bornholms stemme er yfirborðs- kennd og tekur ófullnægjandi á ýms- um alvörumálum sem upp koma í dramatískri framvindunni. Ekki síst á sjálfum dauðanum, þegar hann ber að garði. Á hinn bóginn tekst mynd- inni skár að leiða í ljós að það sem mest er um vert í lífinu er ástin, ham- ingjan og traustið. Það sem gefur líf- inu gildi er ekki falt fyrir allan kvóta veraldar. Þegar lífsgleðin víkur er ekkert eftir, dauða hluti má endur- nýja í næstu búð. Það er greinilegt að Bornholms stemme er kvennamynd, í þeim skilningi að það eru konur, þær Lotte Svendsen og Elith Nulle Ny- kjær, sem skrifa og stjórna mynd- inni, sem er byggð á minningum Lotte Svendsen. Sonja er miklum mun skýrari og betur skrifuð persóna en Lars Erik og afstaða hennar fastmótuð. Hún er konan sem brotnar ekki fyrr en síð- ustu óveðursnóttina, þegar hún hef- ur allt gert til að halda saman brot- hættri tilveru hjónanna. Lars Erik er meira í ætt við klisju. Sonja nýtur góðs af styrkri túlkun Stougaards, en Lars Erik verður aldrei trúverðugur fiskimaður. Það stafar að nokkru leyti af nauðrökuðu andlitinu og vel snyrtum höndunum. Það er einfaldlega of mikil rakspíra- lykt af manninum. Að mörgu leyti forvitnileg mynd, en vantar talsvert uppá að ná jarðsambandi. Bornhólmskar kvótaraunir KVIKMYNDIR R e g n b o g i n n D ö n s k k v i k m y n d a v i k a Leikstjóri Lotte Svendsen. Handritshöfundar Svendsen og Elith Nulle Nykjær. Tónskáld Jens Brygman. Kvikmyndatökustjóri Anthony Dodd Mantle. Aðalleik- endur Henrik Lykkegaard, Sofie Stougaard, Muchelle Björn-Andersen. Sýningartími 114 mín. Dönsk. Nordisk Film. Árgerð 1999. BORNHOLMS STEMME 1 ⁄2 Sæbjörn Valdimarsson ÞAÐ var húsfyllir í Bústaðakirkju þegar fyrstu tónleikar Kammermús- ikklúbbsins á nýrri öld voru haldnir. Mikil tilhlökkun var í loftinu því verkin á efnisskránni voru bæði tign- arleg og kröfuhörð og reyndu mjög á listamennina sem fluttu sömu verk á tónleikum í Garðabæ fyrir tæpum tveimur árum við frábærar undir- tektir. Píanókvartett Mozarts frá árinu 1785 er sannkallað tímamóta- verk, því það var eitt hið fyrsta sinn- ar tegundar, samið eftir pöntun frá Vínarútgefandanum Hoffmeister. Mozart skilaði metnaðarfullu og beinskeyttu verki en Hoffmeister gekk illa að selja nóturnar og afpant- aði hann fljótlega tvo aðra píanókvar- tetta sem þeir höfðu samið um (Moz- art kláraði þó annan þeirra um leið og hann lauk við Brúðkaup Fígarós). Kvartettinn er í þremur köflum og hefst á ákveðnum og tilþrifamiklum áttundum líkt og vaxandi óveður sé í nánd. Alls eru þrjú meginþemu sem ganga í gegnum þennan kafla og eru laglínurnar sterkar og eftirminnileg- ar. Hægi kaflinn er í sónötuformi og hreyfist ekki mikið en er þó mjög fagur með skrauti og flúri, eins og þriðji og síðasti kaflinn sem er í senn tignarlegur og bjartur. Það verður að segjast að ekki náðist stemmning í verkið og vantaði þar skarpari línur og heildarsvip. Þá var píanóið helst til of sterkt en hafa ber í huga að kvartettinn var saminn með forte- píanóið í huga. Eftir hlé var komið að píanókvart- ett op. 25 frá árinu 1861 en hann samdi Brahms 28 ára gamall. Clara Schumann lék á píanóið í fyrsta flutningnum og daginn eftir birtist í blöðunum í Hamborg mjög jákvæð gagnrýni þar sem tónlist unga mannsins þótti gefa fögur fyrirheit. Kvartettinn er nánast sinfónískur í mikilleik sínum og það kemur því ekki á óvart að Schönberg, sem var mikill Brahms-aðdáandi, hafi um- skrifað hann fyrir hljómsveit. Schön- berg gaf þær ástæður fyrir útsetn- ingu sinni að verkið væri alltof sjaldan leikið og píanóleikarinn yf- irgnæfði yfirleitt strengina („...því betri sem píanistinn er því háværari er hann...“) en gestir Kammermús- ikklúbbsins þurftu ekki að hafa áhyggjur af því. Strax frá því að fyrsta stefið var kynnt til sögunnar voru áheyrendur sem og í leiðslu, svo glæsilegur og samstilltur var leikur listamannanna. Hver kafli var snilldarvel útfærður. Sá fyrsti þrunginn spennu og drama- tík, millispilið í öðrum kafla létti lund með fjöri sínu, hægi kaflinn var mjög fallega mótaður og sveiflaðist sann- færandi en það var í fjórða og síðasta kaflanum sem túlkunin reis hæst. Til að ná fram sígaunatöfrunum í honum þarf hraðinn að stigmagnast til að ná hámarki í niðurlaginu og var endir- inn sérlega áhrifamikill ekki síst fyrir ákveðni Gerrits og galdur Guðnýjar. Það brutust út mikil fagnaðarlæti meðal tónleikagesta sem hafa eflaust hugsað að nær hjarta tónskáldsins væri erfitt að komast. Verður þessi flutningur lengi í minnum hafður. Vonandi fáum við að heyra fleiri verk Brahms frá Gerrit, Guðnýju, Helgu og Gunnari og er það einlæg ósk mín að hljómar píanókvartettsins op. 60 fylli sal Bústaðakirkju fyrr en síðar. Jóhannes Ágústsson Spenna og dramatík í Bústaðakirkju TÓNLIST B ú s t a ð a k i r k j a Fjórðu tónleikar á 44. starfsári Kammermúsikklúbbsins. Á efnisskrá: Mozart-Píanókvartett í g-moll, K.478, Brahms-Píanó- kvartett í g-moll, op. 25. Flytjendur: Gerrit Schuil píanó, Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Helga Þórarinsdóttir víóla, Gunnar Kvaran selló. Sunnudagur 21. janúar. KAMMERTÓNLEIKAR FJÖLMENNI heiðraði minningu Eyþórs Stefánssonar tónskálds með komu sinni til hátíðardag- skrár í Sauðárkrókskirkju sl. þriðjudagskvöld, en þann dag voru hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Formaður sóknarnefndar, Gest- ur Þorsteinsson, bauð gesti vel- komna, og rakti í stuttu máli störf Eyþórs, en starfsvettvangur hans var alla tíð á Sauðárkróki. Kom fram að störf Eyþórs fyrir kirkj- una hófust þegar hann, ellefu ára gamall, hóf að syngja með kirkju- kórnum. Síðar varð hann organisti og stjórnandi kirkjukórs og spannaði því starfstími hans í þágu kirkju og safnaðar alls um sextíu ár. Ey- þór var alla tíð mikilvirkur á sviði æskulýðs- og menningarmála. Hann var einn af aðalhvata- mönnum þess að Leikfélag Sauð- árkróks, hið yngra, var stofnað og allt fram á síðari hluta áttunda áratugarins var hann einn af aðal- leikurum félagsins. Hann annaðist einnig uppsetningu á fjórða tug verka fyrir félagið. Sagði Gestur að það væri sókn- arnefndinni ljúf skylda, í samvinnu við kirkjukórinn, tónlistarskólann og leikfélagið, að heiðra minningu Eyþórs Stefánssonar, svo mikil- virkur sem hann hefði verið í tengslum við allar þessar stofn- anir. Sr. Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar, ávarpaði samkom- una, og ræddi einnig um mik- ilvægi lífsstarfs Eyþórs fyrir það skagfirska samfélag sem hann helgaði starfskrafta sína um svo langt skeið. Eyþór var kjörinn heiðursfélagi bæði Ungmenna- félagsins Tindastóls og Leikfélags Sauðárkróks, en síðast en ekki síst var hann kjörinn heiðursborgari Sauðárkróks árið 1997, þegar fagnað var hundrað ára byggð á Sauðárkróki. Rakti sr. Gísli meðal annars per- sónulegar minningar sínar af sam- skiptum við tónskáldið. Hann nefndi sérstaklega þegar Eyþór, kominn um nírætt, teinréttur en kvikur í spori, þó nánast blindur, flutti hópi eldri borgara að Löngu- mýri hvert ljóðið af öðru. Að loknum ávörpum komu félagar úr leikfélaginu og kirkju- kórnum og fluttu blandaða dag- skrá. Var þar um að ræða sam- antekt Jóns Ormars Ormssonar um Eyþór. Lesarar með Jóni voru þau Sigríður Kristín Jónsdóttir og Bragi Haraldsson. Kirkjukórinn flutti lög Eyþórs ásamt einsöngv- urunum Sigurdrífu Jónatansdóttur og Jóhanni Má Jóhannssyni og hljómsveit. Var flytjendum öllum, svo og stjórnendum, þeim Rögnvaldi Val- bergssyni organista og stjórnanda kirkjukórsins og Jóni Ormari Ormssyni, stjórnanda dagskrár leikfélagsins, þakkað með lang- vinnu lófataki. Eitt hundrað ár frá fæðingu Eyþórs Stefánssonar tónskálds Morgunblaðið/BB Kirkjukór Sauðárkrókskirkju flutti lög Eyþórs Stefánssonar ásamt hljómsveit. Mikilvirkur á sviði æsku- lýðs- og menningarmála Sauðárkrókur. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.