Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 40

Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 40
UMRÆÐAN 40 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ M enn hafa gert sér stórkostlegar hugmyndir um borgarskipulag í gegnum tíðina. Fáar þeirra hugmynda virðast hafa borist hingað upp, nema í brotum. Það er vissulega hug- mynd að dreifa byggðinni um all- ar koppagrundir en útfærslan verður þá líka að taka til hluta eins og almennilegra almennings- samgangna. Það er líka hugmynd að búa til nýjan miðbæ en að hafa hjarta hans steinsteypt neyslu- musteri lýsir algeru skilnings- leysi á eðli borgarsamfélagsins. Það var að vísu aldrei nein skipu- lagshugmynd á bak við það að setja flugvöll niður í Vatnsmýr- inni, það hentaði bara hernum á sínum tíma, en andleysi og vilja- leysi vanans hefur léð hon um eitthvert dularfullt inntak sem villir mönnum nú sýn á aug- ljósa hluti. Og einmitt þannig er svo mörgu farið í þessari borg. Hlut- irnir hafa bara æxlast einhvern veginn, fyrir tilviljun og ófull- burða hugmyndir. Reykjavík hef- ur vaxið upp úr þorpinu sem bærinn var fyrir skemmstu með ógnarlegum hraða og dreift úr sér eins og illgresi. Það er eins og aldrei hafi verið staldrað við til að hugsa og horfa yfir sviðið í heild. Stefnan hefur einfaldlega verið að planta hverfum austur af borginni, teygja hana og toga eins og mögulegt er upp á hóla og heiðar með sífellt fleiri myrkra- bilum á milli og sífellt meiri um- ferðarþunga og sífellt meiri mengun og sífellt fleiri slysum – og sífellt óljósara skipulagi og andborgar(a)legum afleiðingum. Borgin er að hverfa í hverfi, eins og Úlfhildur Dagsdóttir hefur bent á, miðjan er lömuð, ekki lengur til staðar eða villt úti í jaðri. Líklega hafa skipulagsfröm- uðir Reykjavíkur verið undir áhrifum frá hugmynd bandaríska arkitektsins Franks Lloyds Wrights um „víðáttuborgina“ eða „Broadacre City“ sem hann kynnti í skýjakljúfaborginni New York árið 1935. Samkvæmt henni átti hver og einn borgari að fá út- hlutað að minnsta kosti einni ekru lands. Þetta átti að gefa heimilinu aukið vægi en það átti að verða grunnur siðmenning- arinnar og stjórnvöld áttu ein- ungis að sjá um skipulag land- svæða og uppbyggingu á almennri aðstöðu. Hugmyndin þótti í upphafi fjarstæðukennd en hafði síðan mótandi áhrif á upp- byggingu hinna flatneskjulegu og menningarsnauðu úthverfa í Bandaríkjunum um og upp úr miðri öldinni sem samanstanda af misstórum einbýlishúsum með misstórum görðum með mis- stórum sundlaugum og svo gríð- arstór vöruhús og enn stærri „moll“ í nágrenninu ásamt einu bíói. Flestir sem kynnst hafa líf- inu í slíkum samfélögum eru sennilega sammála um að það sé ekki eftirsóknarvert. Hinar öfgarnar eru svo sem engu skárri. Franski arkitektinn, málarinn, rithöfundurinn og heimspekingurinn, Le Corbusier, setti fram hugmynd sína um „samtímaborgina“ árið 1922. Hugmyndin gekk út á gríðarlega samþjöppun íbúðarbyggðar í skýjakljúfum sem skipað væri í reglulegar raðir. Þetta sagði Le Corbusier ekki vera framtíð- arborgina heldur borg samtíma síns og vildi hann láta reisa hana á hægri bakkanum í París eftir að búið væri að ryðja byggðinni sem þar væri fyrir í burtu. Hug- myndin hafði mikil áhrif, ekki síst sá þáttur hennar sem fjallaði um að reisa háhýsi í eða við garða, en höfundurinn fékk ekki mörg skipulagsverkefni út á hana. Það hefði svo sem ekki skaðað þótt Reykjavík hefði smitast svo- lítið af hugmynd Le Corbusier. Meginvandi borgarinnar tengist hinni vanhugsuðu dreifbýlis- stefnu sem borgarskipulagið hef- ur fylgt. Stærstu slysin hafa orð- ið á síðastliðnum fjörutíu árum eða við uppbyggingu úthverfanna í Breiðholti, Árbæ og Grafarvogi. Þessi hverfi hafa vaxið eins og æxli utan á borginni og engin leið virðist vera að stöðva útbreiðslu þeirra. Á meðan heldur umferð- ar- og mengunarvandi áfram að hlaðast upp með sífellt auknum fórnarkostnaði. Og það stendur heima að þegar í óefni er komið eru loksins allir sammála um að finna þurfi lausn innan tíðar. Við- horfsbreytingin sést vel á því að menn eru meira að segja hættir að hlæja að hugmyndum um neð- anjarðarlest eins og silfurmað- urinn Egill Helgason benti á um helgina. Þessi fjörutíu ár, sem verður sennilega minnst sem hnign- unarskeiðs borgarinnar, hefur miðborgin legið óbætt hjá garði. Verslun hefur flust inn í Kringl- una og sjálfsagt mun Smárinn fækka bæjarverslunum enn. Sömuleiðis hefur verið mikill hörgull á íbúðarhúsnæði. Þetta horfir þó til betri vegar. Af aug- ljósum öryggis- og skipulags- ástæðum mun flugvöllurinn að öllum líkindum fara innan tíðar eftir að borgarbúar hafa greitt um það atkvæði í mars. Gefst þá loksins tækifæri til að þétta byggð í miðbænum og breyta þessari ræmu í alvöru borg- arkjarna þar sem umtalsverður fjöldi fólks býr. Mun þetta vænt- anlega hleypa nýju lífi í borgina. Í framhaldi má gera ráð fyrir að önnur eyðilönd í nágrenni mið- borgarinnar verði sett í byggð, svo sem eyjarnar á sundinu eins og Hrafn Gunnlaugsson lagði til í meistaraverki sínu. Þar væri hægt að sameina kosti borgar og sveitar eins og enski hraðritarinn og skipulagshugsuðurinn Eben- ezer Howard talaði um í hug- mynd sinni um „garðaborgina“ (Garden Cities of To-morrow, 1898). Reykjavík hefur oft verið sögð sameina þessa kosti en þá hefur verið horft fram hjá því að eig- inlegt borgarlíf er einungis að finna á ræmunni sem kölluð er miðborg. Aðrir en ræmubúar hafa varla upplifað annað en ein- hvers konar sveitahverfa- samræmi. Úti í eyjum mætti þróa nokkurra þúsunda manna byggð sem væri í náinni snertingu við náttúru eyjanna og miðborg- arlífið. Mikilvægast er þó að með þessu mætti draga úr miðflótta- krafti borgarinnar sem einkenndi uppbyggingu hennar alla síðustu öld. Þétting borgar Meginvandi borgarinnar tengist hinni vanhugsuðu dreifbýlisstefnu sem borgarskipulagið hefur fylgt. VIÐHORF Eftir Þröst Helgason SÚ mikla umræða, sem orðið hefur síð- ustu daga um einstæð og alkunn bréfaskipti milli forsætisnefndar Alþingis og forseta Hæstaréttar, sem fram fóru síðdegis 23. janúar, er, þegar á heildina er litið, gagn- leg fyrir lýðræðið í landi okkar enda þótt tilefnið sé dapurlegt. Hún styrkir réttarvit- und almennings og skerpir sýn okkar allra á þá grundvallarþætti stjórnskipunar okkar sem við eigum að búa við að réttum lögum – og getum kraf- ist að fá að búa við – jafnframt því sem hún ætti að vera til þess fallin að veita þeim mönnum aðhald sem helst þurfa á því að halda. Hún hefur m.a. dregið athygli þjóðfélagsþegnanna að nauðsyn þess, að þrígreining vald- þátta stjórnskipunarinnar sé ætíð virt – ekki einungis í orði heldur einnig á borði – þannig að sjálfstæði dómstólanna fái m.a. notið sín en á því sjálfstæði, auk faglegrar hæfni dómaranna, grundvallast það traust sem almenningur verður að geta borið til þeirra. Þá er og vel ef um- ræðan getur leitt til réttarfarsum- bóta í fyllingu tímans. Vönduð stjórnarskrá og vel mann- aðir dómstólar, sem búa við sjálf- stæði gagnvart löggjafar- og fram- kvæmdarvaldi, eru máttarstólpar lýðræðisins framar öllu öðru. Því miður veldur smæð samfélags okkar því, að umræðan um þetta „bréfamál“ – sem er að mestu leyti lögfræðilegs og stjórnfræðilegs eðlis – verður a.m.k. öðrum þræði flokks- pólitísk, jafnvel með keim af lýð- skrumi. Mikilvægt er hins vegar, að umfjöllun um sendibréfamálið sé haldið fullkomlega aðgreindri frá hinni heitu og hatrömmu stjórnmála- umræðu sem verið hefur uppi um al- kunnugt dómsmál, nýsett lög og frumvarp til þeirra laga sem urðu til- efni til þess bréfs forsætisnefndar Alþingis sem olli svo hörðum við- brögðum. Við málefnalega umræðu um bréfaskiptin frægu ættu menn að forðast allt „dægurþras og ríg“. Bréfaskiptin – með „eldfimu“ efni sínu og framkvæmd við þær sér- stöku aðstæður, sem um var að ræða – bera með sér dómgreindarskort þeirra, er að þeim stóðu, og opinbera um leið þverbrest í stjórnkerfi okk- ar, sem krefst lagfæringar. Að vísu má segja, að hvergi í lög- um sé lagt ótvírætt bann við því, að fulltrúar löggjafarvaldsins sendi frá sér bréf af því tagi, sem raun ber vitni um, enda þótt þeim hefði átt að vera umtals- verð leiðbeining í því al- kunna ákvæði 25. gr. laga um meðferð einka- mála, að dómstólar verði ekki krafðir álits um lögfræðileg efni nema að því leyti sem nauðsynlegt er til úr- lausnar um ákveðna kröfu í dómsmáli. En ekki verða allar hegðun- ar- og samskiptareglur orðaðar í lögum, eins þótt mikilvægar séu, og vitaskuld ber öllum þeim, sem valdastöður skipa, að læra og virða höfuðreglur stjórnskipunar okkar, skráðar jafnt sem óskráðar – og afla sér traustrar ráðgjafar þegar eigin þekkingu þrýtur. Niðurstaða mats á því, hversu alvarlegt athæfi forsæt- isnefndar Alþingis var, ræðst í raun réttri af því, hvaða viðmið við viljum nota, t.d. hvort við viljum fremur miða við þær „leikreglur“, sem gilda meðal hámenningaþjóða með gróna lýðræðishefð að baki, heldur en hegðunarmynstur valdhafa meðal ýmissa þjóða (flestra okkur fjar- lægra) sem tiltölulega skammt eru komnar á þróunarbraut sinni til nú- tímalegra stjórnarhátta. Á hinn bóg- inn megum við umfram allt ekki leita langt yfir skammt að heppilegum fyrirmyndum varðandi þær kröfur sem við hljótum að gera til handhafa dómsvaldsins í landi okkar. Þar má aldrei horfa til annars en þess er best gerist meðal langsiðaðra þjóða: Dómstólarnir í landi okkar mega ekki láta undan þrýstingi frá þeim ráðamönnum sem fara með aðra þætti ríkisvaldsins. Réttsýni og dóm- greind verða ætíð að einkenna störf allra dómara, hvort heldur sem er héraðsdómara eða hæstaréttardóm- ara, og þessir varðmenn lýðræðisins mega síst af öllu dotta á verði sínum. Hið vanhugsaða efni svarbréfs for- seta Hæstaréttar einkennist m.a. af furðulegri fljótfærni og undanláts- semi og ber með sér óvæntan dóm- greindarskort. Hið sama gildir um undirbúning og ráðagerð innan rétt- arins um sendingu bréfsins. Vitan- lega bar enga nauðsyn til að senda bréf, þessa efnis, frá Hæstarétti og allt tal um „stjórnskipulegt neyðar- ástand“ eða þ.u.l. er víðs fjarri sann- leikanum. Goluþyt í þingsölum verð- ur ekki líkt við stjórnlagakreppu! Alþingismenn eiga að geta unnið sitt starf og lokið sínum málum án „happasendinga“ eða „forsendinga“ af þessu tagi og ég hygg að þeim sé vel treystandi til þess. Þá er m.a. óskiljanlegt, að bréfið skuli hafa ver- ið sent í andstöðu við allmarga dóm- ara réttarins, eins og opinberast hef- ur, og ekki er enn upplýst hvort þeir dómaranna, sem lögðust gegn send- ingunni, hafi engu að síður getað tek- ið undir efni bréfsins. Þá hafa nú komið fram alvarlegar fullyrðingar um, að einn þeirra hæstaréttardóm- ara, sem mælti gegn sendingu bréfs- ins, hafi engu að síður tjáð sig efn- islega, símleiðis, gagnvart trúnaðarmönnum framkvæmdar- valdsins um „öryrkjadóminn“ marg- umtalaða, sem hann tók þátt í að semja, og lýst túlkun sinni á þeim dómi. Ef lausmælgi af þessu tagi yrði sönnuð (sem alls óvíst er hvort verða muni, enda skal hér ekki lagður neinn dómur á trúverðugleika þess- ara fullyrðinga um símtöl dómarans) væri einnig um fáheyrt atvik að ræða sem fæli að sínu leyti í sér jafnfrá- leita breytni þess dómara og gildir um samningu og sendingu umrædds svarbréfs forseta Hæstaréttar til Al- þingis. Í dómsmáli, þar sem reyna myndi á stjórnskipulegt gildi hinna nýsamþykktu laga sem sett voru í kjölfar „öryrkjadómsins“, væri þessi dómari þá að sjálfsögðu jafnvanhæf- ur til meðferðar þess máls og allir þeir starfsbræður hans, fjórir að tölu auk sjálfs forseta réttarins, sem stóðu að hinu alræmda sendibréfi. Svo mikið er víst, að ekki horfir friðvænlega um stöðu og starfsemi Hæstaréttar Íslands við þessar óvenjulegu aðstæður og þrúgandi spenna hlýtur nú m.a. að setja svip- mót á samstarf og samskipti dóm- aranna innbyrðis. Dómstóllinn hefur beðið alvarlegan hnekki í hugum fjöl- margra manna, sem áður báru traust til hans, og alllangan tíma getur tek- ið að endurvinna það traust. Réttur- inn hefur veitt sjálfum sér áverka sem því einungis verður græddur til fulls að nærfærni, mannskilningi, framsýni og fagmennsku sé beitt en þess er að vænta, að smám saman muni skapast víðtæk samstaða um heppileg úrræði í þá veru meðal lög- lærðra manna jafnt sem stjórnmála- manna og alls almennings. Enn af bréfum Páll Sigurðsson Hæstiréttur Ef lausmælgi af þessu tagi yrði sönnuð, segir Páll Sigurðsson, væri um fáheyrt atvik að ræða. Höfundur er prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands. ÞÆR sviptingar sem að undanförnu hafa staðið um Hæstarétt Íslands gefa tilefni til að hugleiða, hvort gera megi lagabreytingar, sem annars vegar varða starfshætti rétt- arins og hafa það mark- mið að styrkja stöðu hans og sem hins vegar miðast við að mæta þörfum fyrir skjótar úrlausnir um stjórn- skipulegt gildi laga. 1. Dómar réttarins, einkum í viðurkenning- armálum, eru alltof oft óskýrir, þannig að hreinlega getur verið vandasamt að sjá um hvað hefur verið dæmt. Dóm- urinn í máli Öryrkjabandalagsins, sem alþjóð er nú orðinn sæmilega kunnur, er gott dæmi um þetta. Fleiri dæmi eru vel þekkt frá und- anförnum misserum, svo sem fyrri dómurinn um fiskveiðileyfin frá des- ember 1998. Ég held að ein rík ástæða fyrir þessum annmörkum á dómunum sé sú, að dómararnir eru að semja sín í milli um textana. Eðli- leg viðleitni er að ná saman um niðurstöð- una og þá vill kannski einn dómari fá ákveðið atriði, sem honum finnst skipta máli, inn í forsendurnar, meðan annar telur eitthvað annað skipta sköpum. Textinn í heild getur þá orðið ómarkviss og jafnvel orðið ósam- ræmi milli efnisatriða. Ég legg til að við þessu verði brugðist með því að láta dómarana greiða skrifleg at- kvæði. Þá ber hver dómari einn ábyrgð á sínu atkvæði. Þetta myndi gerast þannig, að á dómarafundi eftir mál- flutning, þegar séð er hvernig landið liggur innan hópsins, yrði einum (úr meirihluta, ef dómur virðist ætla að verða skiptur) falið að semja sínar forsendur fyrir niðurstöðunni. Við samningu þeirra myndi hann að sjálfsögðu njóta vitneskju sinnar um röksemdir og afstöðu annarra dóm- ara, sem fram kunna að hafa komið, en dómsforsendurnar yrðu allt að einu hans eins. Hann einn myndi rita nafn sitt undir. Hinir dómararnir myndu síðan með skriflegum at- kvæðum taka afstöðu til niðurstöðu þess fyrsta. Þeir sem fallast á hana geta vísað að öllu leyti til forsendna hans eða gert þær athugasemdir sem þeir kjósa að gera. Hinir, sem lenda í minnihluta í skiptum dómi, gera á sama hátt grein fyrir sínum forsendum með textum sem þeir ein- ir bera ábyrgð á. Þessi skipan þekkist erlendis. Til dæmis er þetta í meginatriðum sá háttur, sem hafður er við hæstarétt Noregs. Hæstiréttur Bandaríkjanna Til styrktar Hæstarétti Jón Steinar Gunnlaugsson Lagabreytingar Ég tel tímabært að menn hugi að lagabreyt- ingum af þessu tagi, segir Jón Steinar Gunn- laugsson, til þess m.a. að styrkja réttinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.