Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 42

Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 42
UMRÆÐAN 42 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ FYRIR fáeinum dögum var komin upp á vinnuborð stjórn- enda Reykjavíkur- borgar skýrsla ein mikil með tillögum um breytingar á al- menningssamgöngum á höfuðborgarsvæð- inu. Margan manninn rak í rogastans við lestur skýrslunnar og upp í hugann kom einkavæðingartilraun Sjálfstæðisflokksins árið 1994 sem flestu öðru fremur kostaði flokkinn borgina í kosningunum sem fram fóru það ár. Því fer fjarri að nokkuð sé við það að athuga að úttekt sé gerð á almenningssamgöngum og ræddar leiðir til að bæta þær. En í ljósi mjög afdráttarlausra yfirlýsinga forsvarsmanna í borginni um að ekki standi til að einkavæða þessa þjónustu vekur það furðu að fram skuli reidd skýrsla sem er einn samfelldur lofsöngur um einka- væðingu og minnir um mjög margt á skrifin og skýrslugerðirnar frá 1994. Tillögur kynntar starfsmönnum Ekki nóg með það. Höfuðtillag- an í skýrslunni og sú sem kynnt hefur verið starfsmönnum er að stofnað verði sjálfstætt fyrirtæki þar sem „samþykktir og aðrir inn- viðir“ verði „með sem líkustum hætti og í hlutafélagi“. Engin endanleg ákvörðun mun hafa verið tekin um framhaldið en efni skýrslunnar er með þeim hætti að það á erindi á síður dag- blaða. Tíunduð eru dæmi erlendis frá – einkum frá Danmörku – um kosti þess að hluthafar stýri fyrirtækj- um af þessu tagi; í þeim sé stjórn- in skilvirkari en þar sem hún er ofurseld „pólitískri stjórnun og af- skiptum“. Kostur þessarar skýrslu er heið- arleiki og hreinskilni. Þannig er viðurkennt að vagnstjórar sem starfa beint hjá sveitarfélagi séu „eins og búast má við“ almennt ánægðari með sinn hlut en hinir sem hafa verið einkavæddir. Sparað á kostnað launafólks Engum ætti að þurfa að koma þetta á óvart. Þannig er gerð- ur samanburður á al- menningssamgöngum í Óðinsvéum í Dan- mörku og Álaborg en í þann samanburð er ofangreind tilvitnun sótt. Í Óðinsvéum er starfsemin rekin af sveitarfélaginu þar sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar þurfa að axla ábyrgð á þjón- ustu, rekstri og mannahaldi. Í Álaborg hefur starf- semin hins vegar verið einkavædd. Tilkostnaðurinn af rekstrinum er sagður mun meiri í fyrrnefnda dæminu en í hinu síðara. Skýring- arnar eru taldar vera helstar þess- ar:  hærri grunnlaun vagnstjóra  hærri álögur á laun  meiri orlofsréttindi (samsvarar 5 vinnudögum á ári)  óþægindaálag meira (talið jafn- gilda 10 vinnudögum á ári)  meiri bakvaktaviðbúnaður  hærri verkstæðiskostnaður  dýrari yfirstjórn  meiri tilkostnaður vegna veik- inda  hjá sveitarfélaginu er mönnum ekki gert að matast í eigin vinnutíma Á lakari kjörum, en með þjónustulund Fram kemur í skýrslunni að erf- iðleikum geti verið háð hjá fyr- irtækjum að manna vagnstjóra- stöður. Þannig er upplýst í viðtölum sem skýrsluhöfundur hef- ur átt við forsvarsmenn HT í Kaupmannahöfn (sem er í eigu sveitarfélga á höfuðborgarsvæðinu og heldur utan um rekstrarþjón- ustuna – sem er boðin út á mark- aði) að iðulega reynist torvelt að manna vagnstjórastöður. En, svo vitnað sé orðrétt í skýrsluna: „Þeir væru hins vegar markvisst farnir að miða á það að sækja sitt vinnuafl t.d. til stór- markaða, þar sem oft væru þjón- ustulundaðir starfsmenn á mun lakari kjörum en í boði væru hjá strætisvagnafyrirtækjunum.“ Margoft kemur fram að almenn- ingssamgöngur í Reykjavík og grannbyggðunum eru í kreppu. Farþegum fækkar og rekstrar- kostnaður er mikill. Þá kreppu eiga stjórnmálamenn að horfast í augu við og finna á henni lausn. Í því samhengi er vissulega eftir- sóknarvert að leita leiða til að samhæfa og bæta þjónustukerfið á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Eðlilegt er að þrennt sé haft að leiðarljósi: Að þjónustan batni; að reksturinn verði hagkvæmari og að breyting- arnar séu til hagsbóta fyrir þá starfsmenn sem veita þjónustuna. Ljóst er að á dögum einkabílism- ans eiga almenningssamgöngur nokkuð undir högg að sækja hjá þjóð sem býr við rysjótt veðurfar. Stjórnmálamenn axli ábyrgð Eina færa leiðin til að bæta kerfið og fjölga farþegum er að bjóða upp á ódýran, helst ókeypis ferðamáta. Þetta kostar peninga og ábyrga stjórn kjörinna fulltrúa. Þá ábyrgð eiga þeir að axla en ekki víkjast undan henni með því að breyta rekstrarformi eins og einkavæðing er stundum kölluð þegar þörf þykir að finna henni fínar umbúðir – helst ógagnsæjar. Einkavæðingardraugurinn endurvakinn hjá SVR? Ögmundur Jónasson Samgöngur Í ljósi yfirlýsinga um að ekki standi til að einkavæða almennings- samgöngur vekur það furðu Ögmundar Jónassonar að fram skuli reidd skýrsla sem er lof- söngur um einkavæð- inguna. Höfundur er formaður BSRB. MIKIÐ hefur verið ritað um dóm Hæsta- réttar í máli Öryrkja- bandalagsins. Pétur Blöndal alþingismaður reit grein í Mbl. 30. des. sem hann kallaði einskylda – fjölskylda – samskylda. Ég þakka honum fyrir þá grein sem er fyrir margra hluta sakir fersk og at- hygli verð eins og við mátti búast af Pétri. Við erum að mörgu leyti sammála og Pétur vill greinilega skoða heild- aráhrif málsins en mér finnst nokkuð vanta upp á að allir þættir séu dregnir fram. Dæmi Péturs um hátekjumann með 400 þ.kr. á mánuði er ekki heppilegt vegna þess að þar erum við komin frá aðalvandamálinu sem eru þau sem líða skort. Hæstiréttur hefur enda lýst því yfir að tekjutenging sé heimil. Það er hins vegar skýlaust mannrétt- indabrot þegar fólk telur sig ekki geta notið þeirra réttinda sem hjú- skaparlögin veita vegna fátæktar. Ég er ekki sammála Pétri að dóm- ur Hæstaréttar veiki stöðu fjölskyld- unnar, fremur gleðst ég yfir því að dómur Hæstaréttar verður til þess að alþingismenn eru knúnir til þess að setjast vandlega yfir málavexti í heild sinni og móta nýja löggjöf. Sannfæring mín er sú að þess sé full þörf. Huga þarf að afkomu og réttindum þeirra sem minnst mega sín þó að það falli ekki beint undir dóminn og síðan einnig að móta þá lög- gjöf sem gilda á um hornstein þjóðfélagsins, fjölskylduna. Þá mun vissulega reyna á þá jafnvægislist sem stjórnmálamenn verða að axla. Ég held að guðfræðingar og trúf- astir kirkjugestir víða um land telji að viðmiðunarmörk sem notuð hafa ver- ið til margvíslegrar tekjutengingar séu allt of lág. Það er skoðun okkar að þjóðfélagið geti vel hækkað þau og endurspeglast það viðhorf í nýlegum skoðanakönnunum. Sérlega fagna ég að Pétur Blöndal skuli benda á hugmyndafræði krist- innar trúar sem aflvaka trygginga- kerfanna og grundvöll að siðfræði vestrænna þjóða. Fjölskyldan er ein- mitt mjög þýðingarmikil í augum kristinna manna og Pétur nefnir hana sem elsta tryggingakerfið: „Hún þyk- ir svo sjálfsögð og um hana gildir svo mikið af óskrifuðum reglum sem fólk drekkur í sig með móðurmjólkinni að hún er nánast hluti af mannlífinu og því ósýnileg. Nú er að verða þar breyting á.“ Hér kveður Pétur rétt að orði en herða má þó á síðustu orð- unum að nú er orðin breyting á. Við getum heldur ekki búist við því að sið- ferðisleg gildi gangi milli kynslóða með móðurmjólkinni eða einhvern veginn af sjálfu sér. Þau kosta þvert á móti mikla vinnu og eru uppeldisat- riði þar sem heimili, kirkja og skóli þurfa að leggjast á eitt. Alþingismenn bera þar einnig ábyrgð. Við á okkar dögum lifum nýja tíma og getum ekki búist við því að fólk gangi í hjónaband til þess eins að þjóna Guði sínum. Það er að mestu leyti liðin tíð þótt þing- menn virðist ekki allir hafa áttað sig á því. Hafi fólk ekki fjárhagslegan ávinning af því að ganga í hjónaband þá sleppa margir því einfaldlega. Það er barnaskapur af sjálfstæð- ismanni með peningavit og fer illa saman við hagræðingu markaðs- hyggjunnar að búast við því að öryrki gangi í hjónaband og missi við það tvo þriðju hluta af tekjum sínum sem þó eru varla fyrir nauðþurftum. Þó get ég huggað Pétur með því að slík dæmi eru enn til en þá er um algera undantekningu að ræða. Algengara væri að viðkomandi færi fram á skiln- að og þekkjum við það vel prestarnir. Nú er svo komið löggjöf um fjöl- skylduna hér í landi að um hana gilda í rauninni fjórir flokkar. Þeir eru: 1. hjónaband, 2. skráð sambúð, 3. óskráð sambúð sambýlisfólks sem hefur sama lögheimili, 4. sambýlisfólk sem hefur sömu fjölskylduhagi og fyrri flokkar en eru skráð með hvort sitt lögheimilið. Vill hið háa Alþingi kalla þessi sambúðarform 1., 2., 3. og 4. flokks fjölskyldur? Hvers vegna höfum við fjóra flokka og jafnmargar reglur um fjölskylduna? Mitt svar við því er að þetta séu afleiðingar af ákvörðunum alþingismanna og sveit- arstjórnarmanna um tekjutengingar á mörgum sviðum löggjafar sem og aðgengi að dagvistun fyrir börn. Þegar talað er um að dómur Hæstaréttar snerti einungis minni hluta öryrka þarf fyrst að svara því hvað margir öryrkjar séu í 4. flokki vegna þessara aðstæðna. Lög eru gagnslítil nema það sé hægt að fram- fylgja þeim. Svo er það einmitt með þessa fjóra flokka að það er ekki auð- velt að greina þá í sundur eða sanna með lögregluvaldi hvaða flokki fólk skuli tilheyra. Mitt sjónarmið er, og ég veit ekki betur en það sé sjónarmið kristinna manna almennt, að nægilegt sé að hafa þarna tvo flokka: Hjónaband og einstaklinga. Margt bendir nú til þess að óraunhæft sé að verða að mismuna fólki eftir hjúskaparstétt og minn- umst þess að mannréttindi eru per- sónubundin. Alþingismenn þurfa að horfast í augu við þetta og svara því m.a.: Hvað er skráð sambúð og hvernig er hún til komin? Getur verið að um sé að ræða 2. flokks hjónaband sem nýt- ur einhverra réttinda en tekur ekki á sig skyldur? Sjálfur tel ég nauðsyn- legt að hjúskaparlöggjöfin nái yfir sem flestar fjölskyldur svo mikilvæg- ar sem þær eru allri velferð fólks og þjóðfélaginu öllu. Ég óttast ekki að fjölskyldan verði nokkru sinni „rúin verkefnum og hætta sé á því að hún dagi uppi eins og aðrar hlutverka- lausar stofnanir“ en vissulega er full þörf á að huga að þeim hugsjónum sem einar gefa menningunni gildi og á Pétur Blöndal þakkir skildar fyrir að benda á þann sannleik. Gjarnan mætti heyrast meira af umræðu í þá veru á hinu háa Alþingi. Fjölskylda og Alþingi Úlfar Guðmundsson Öryrkjadómur Margt bendir nú til þess, segir Úlfar Guðmundsson, að óraunhæft sé að verða að mismuna fólki eftir hjúskaparstétt. Höfundur er sóknarprestur á Eyrarbakka og prófastur í Árnessprófastsdæmi. Í MORGUNBLAÐINU 23. janúar gerir Hjörleifur Guttormsson, fyrr- um alþingismaður og ráðherra, að umtalsefni hækkun sjávar vegna vermandi lofttegunda (svokallaðar gróðurhúsalofttegund- ir) af manna völdum. Hann bendir á, að lík- legt sé, að sjávarborð kunni að hækka af þess- um sökum um heilan metra á nýrri öld frá því sem nú er. Hjörleifur beinir spjótum sínum að landfyllingarmönnum við Eiðisgranda og skerjaflugvallarmönn- um hinum megin Sel- tjarnarness, og er spurn, hvort skipuleggj- endur þessara fram- kvæmda átti sig á hvað hnattverming (á ensku: Global warming) beri með sér. Orð Hjörleifs fá aukið vægi af því að á forsíðu Morgunblaðsins er sama dag fjallað um nýja skýrslu Samein- uðu þjóðanna um hnattvermingu og að hún sé „Alvarlegri en talið var“, – en hin tilvitnuðu orð eru fyrirsögn Morgunblaðsins. Í fréttinni segir, að samfélög á láglendum eyjum gætu verið í hættu og er dæmi tekið af Maldíveyjum á Indlandshafi. Nú er Seltjarnarnesið að vísu ekki eyja, en það hefur þó engu að síður verið talið bæði „lítið og lágt“. Eftir lestur Morgunblaðsins þenn- an dag (23.1.) kom mér í hug frásögn Sigurðar í Görðunum af landbreyt- ingum við Skerjafjörð á hans tíð. Ævi- saga Sigurðar, sem Vilhjálmur S. Vil- hjálmsson færði í letur (Norðri 1952), er góð heimild um horfna tíð í Reykja- vík, þótt stutt sé og mætti vera betur rituð. Sigurður Jónsson í Görðunum var fæddur við Skerjafjörð 1865. Hann hafði búið þar alla tíð, stundað sjó, gert út og rekið búskap, eða í tæp- lega 90 ár, þegar saga hans var færð í letur. Á bls. 16 lýsir hann skeri (Klapparhjallur), sem enn stóð á sín- um stað „og þó ekki nærri því eins mikið upp úr sjó og áður“. Á sömu blaðsíðu nefnir Sigurður að áður hafði verið grasivaxnir hólmar í Skerjafirði, en nú finnst þar enginn gróður á skerjunum“. Sigurður segir, að sumir telji, að land hafi sigið í Skerjafirði, en sjálfur áleit hann, að land hefði „frem- ur eyðst smátt og smátt við flæðarmál en að það hafi sigið“ (bls. 16). Hvort sem land hefur eyðst við flæðarmál, eins og sú gamla sjóhetja í Görðunum taldi, eða það hefur beinlínis sigið, er að minnsta kosti víst, að land hefur horfið í og við Skerja- fjörð. Hafa landfylling- armenn, hvorir sínu megin við Seltjarnar- nes, hugleitt þetta í ljósi nær öruggrar vissu um síhækkandi sjávarstöðu á næstu áratugum? Mér er spurn, engu síð- ur en Hjörleifi. Flutningur Reykja- víkurflugvallar (hann er einungis að litlu leyti í Vatnsmýrinni) út á skerin í Skerjafirði er aðeins ein af misjafn- lega gáfulegum hug- myndum um flutning vallarins – og óneitan- lega tekur flugvöllur í Skerjafirði sig vel út í sjónvarpinu! Ég hef búið í meira en 30 ár í næsta nágrenni flugvallarins og mér hefur fundist hann góður granni. Þar er yf- irleitt hljóðlátt og kyrrt á nóttum, um helgar sem aðra daga, ólíkt sumum öðrum miðborgarsvæðum. Þá hefur tilvist vallarins verið sem vörn gegn hvimleiðri sjónmengun af völdum há- hýsa eða verslanakringla. Að slepptri tilfinningasemi hef ég ekki heldur lát- ið sannfærast um að völlurinn sé bet- ur kominn annars staðar – og ekki fremur af Stefáni Ólafssyni, prófess- or, í Morgunblaðinu 24.1. en öðrum. Af öllu samanlögðu finnst mér því sem skoðanir samgönguráðherra og hans manna komi best heim við mín- ar. Hækkun sjávar og skipulag Þorkell Jóhannesson Höfundur er prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Hnattverming Ég hef búið í meira en 30 ár í næsta nágrenni flugvallarins, segir Þorkell Jóhannesson, og mér hefur fundist hann góður granni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.