Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 45
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ 50 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 45
„VÍSINDAMENN
hafa skýrt frá því að
þeir hafi fundið erfða-
vísi sem ræður því
hvort krabbameins-
frumur mynda mein-
vörp. Talið er að upp-
götvunin muni leiða
til þess að þróuð verði
lyf sem koma í veg
fyrir að meinvörp
myndist og væri þá
unnt að lækna allar
tegundir krabba-
meina.“ Þessi frétta-
klausa er uppspuni,
en kemur þó líklega
ekki ókunnuglega fyr-
ir sjónir. Það líður
varla sú vika að fjölmiðlar flytji
ekki einhverja slíka frétt og er oft
og tíðum harla erfitt fyrir sérfræð-
inga að átta sig á hvað þarna er á
ferðinni, hvað þá almennan lesanda
eða hlustanda. Slíkur fréttaflutn-
ingur vekur reyndar margar
spurningar, t.d. hvað er á bak við
þær, hvort þær skilja nokkuð eftir
hjá þeim sem heyrir eða les eða
hvort menn eru kannski bara alveg
hættir að taka eftir þeim eða taka
mark á þeim. Sannleikurinn er sá
að framfarir í vísindum og rann-
sóknum verða ekki í heljarstökkum
eins og oft mætti ætla af fréttun-
um. Á bak við hverja slíka frétt er
yfirleitt margra ára, jafnvel ára-
tuga, vinna, sem margir hafa komið
að, bæði í beinni samvinnu og ekki
síður í þeirri óbeinu samvinnu allra
vísinda þar sem menn
fylgjast vel með, henda
á lofti hugmyndir, að-
laga að sínum, og
skiptast á skoðunum í
tímaritum og á ráð-
stefnum. Þá getur ver-
ið erfitt að mæla ná-
kvæmlega hver lagði
mest af mörkum, flest
framlög skipta máli og
hafa þokað þekking-
unni áfram. Einn virk-
ur þátttakandi á þessu
alþjóðlega leiksviði vís-
indanna er Rann-
sóknastofa Krabba-
meinsfélagsins í
sameinda- og frumulíf-
fræði sem nú er að hefja fimm-
tánda starfsár sitt. Hugmyndin að
stofnun hennar á rætur í því mikla
starfi og þeim upplýsingum sem
safnað hefur verið hjá Krabba-
meinsskránni. Tengsl rannsókna-
stofunnar við Krabbameinsskrána
hafa ávallt verið náin og farsæl og
má nefna sem dæmi að nú er verið
að leggja lokahönd á stórt rann-
sóknarverkefni sem styrkt hefur
verið sl. fjögur ár af bandarískum
rannsóknasjóði sem stofnaður var
sérstaklega til að styrkja rann-
sóknir á brjóstakrabbameini. Í
þessu verkefni er kannað hvort
ákveðnir umhverfisþættir eða lífs-
mynstur, svo sem reykingar eða
lengd brjóstagjafar, geti tengst
eiginleikum brjóstakrabbamein-
sæxlis og þá sérstaklega stökk-
breytingum í svokölluðu p53 geni,
en fyrri rannsóknir okkar hafa sýnt
að æxli sem bera slíka stökkbreyt-
ingu eru illvígari en önnur. Hafin
er vinna að næsta stóra verkefni
sem styrkt er af sama bandaríska
sjóði. Þeirri rannsókn er ætlað að
ná til allra íslenskra kvenna sem
hafa greinst með brjóstakrabba-
mein og eru á lífi og beinist að því
að kanna samspil áhættuþátta úr
umhverfinu við arfgenga áhættu
sem tengist svokölluðum brjósta-
krabbameinsgenum, BRCA1 og
BRCA2. Það er ekki algengt að
bandarískir sjóðir veiti svo stóra
styrki til rannsókna utan Banda-
ríkjanna. Þótt brjóstakrabbamein
hafi alltaf verið meginviðfangsefni
rannsóknastofunnar höfum við
reyndar komið víðar við. Kannski
hafa einhverjir tekið eftir að rann-
sóknastofunnar var getið nýlega í
sjónvarpsþætti sem fjallaði um
rannsóknir lyfjafræðinga á efnum
úr íslenskum fléttum. Það hefur
sýnt sig að nokkur efni, m.a. úr
fjallagrösum, hafa verulega vaxtar-
hemjandi verkun á krabbameins-
frumur ræktaðar í flöskum. Ekki
dettur okkur í hug að halda því
fram að framleiðsla krabbameins-
lyfja úr fjallagrösum sé á næsta
leiti, en vissulega eru þetta spenn-
andi niðurstöður og við leyfum okk-
ur auðvitað að vona að þær muni
einhvern tíma leiða til þróunar á
lyfjum og það hvetur okkur til að
halda áfram rannsóknunum.
Á undanförnum árum hafa orðið
miklar sviptingar á starfsvettvangi
rannsókna í líf- og læknisfræði með
tilkomu líftæknifyrirtækja og hefur
sú þróun nú haldið innreið sína hér-
lendis. Þá er von að menn hugsi
kannski sem svo að þar með sé ekki
þörf lengur fyrir rannsóknastofur í
háskólum eða hjá sjálfstæðum
stofnunum. Því er þó í raun þver-
öfugt farið því að fyrirtækin hafa
einmitt mikla þörf fyrir samvinnu
við öflugar háskólastofnanir. Næg-
ir að nefna tvennt sem dæmi, fyr-
irtækin einbeita sér flest af miklum
krafti að tiltölulega afmörkuðum
viðfangsefnum sem hafa sprottið
upp úr háskólarannsóknum, og vel-
gengni fyrirtækjanna byggist að
langmestu leyti á góðu starfsliði
sem oft hefur fengið þjálfun sína
við háskólastofnanir. Titill þessa
greinarkorns er spurning. Trúlega
finnst aldrei nein allsherjarlausn á
krabbameinsgátunni, til þess er
krabbamein allt of flókið og fjöl-
þætt fyrirbæri. Sífellt batnandi lífs-
líkur þeirra sem greinast með
krabbamein eru þó órækur vitnis-
burður um það að stóraukin þekk-
ing hefur skilað árangri. Þar hefur
Rannsóknastofa Krabbameins-
félagsins í sameinda- og frumulíf-
fræði átt hlut að máli og kannski
kristallaðist framlag hennar og
gildi þess hvað best á einum eft-
irmiðdegi í desember sl. þegar ung-
ur vísindamaður, Steinunn Thorla-
cius, varði doktorsritgerð sína við
læknadeild Háskóla Íslands. Rit-
gerð Steinunnar fjallaði um rann-
sóknir sem hún vann að hér á rann-
sóknastofunni um árabil og fjölluðu
um skilgreiningu á geni sem leiðir
til aukinnar hættu á brjóstakrabba-
meini, BRCA2, og síðan mat á því
hversu mikil hættan er hjá þeim
sem hafa erft stökkbreyttt eintak.
Steinunn hafði áður hlotið marg-
víslega viðurkenningu fyrir rann-
sóknir sínar og birt greinar í þekkt-
um tímaritum á borð við The
Lancet. Annar andmælandinn við
doktorsvörn Steinunnar var Mary-
Claire King, frá Bandaríkjunum,
einhver virtasti vísindamaður
heims á sviði rannsókna á erfða-
fræði brjóstakrabbameins. Það var
mikill heiður fyrir Háskóla Íslands
og Krabbameinsfélagið að hún
skyldi gefa sér tíma til að vinna
þetta verk og segir e.t.v. meira en
mörg orð um það álit sem verk
rannsóknastofunnar njóta.
Lausn
krabbameins-
gátunnar?
Mikið starf er unnið á rannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands.
Helga M.
Ögmundsdóttir
Höfundur er yfirlæknir og for-
stöðumaður rannsóknarstofu
Krabbameinsfélagsins í sameinda-
og frumulíffræði.
Sannleikurinn er sá, segir Helga M.
Ögmundsdóttir, að framfarir í vísindum
og rannsóknum verða ekki í heljarstökk-
um, eins og oft mætti ætla af fréttunum.
Ertu
meðvitaður
um gæði
Sjáðu merkið