Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 46

Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 46
MINNINGAR 46 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ✝ HólmfríðurKristjánsdóttir fæddist á Steinsstöð- um Öxnadal 1. sept- ember 1907. Hún andaðist á hjúkrun- arheimilinu Skóg- arbæ 22, janúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Kristján Þorsteinsson, f. 5. júní 1851, d. 5. maí 1935 og Bergrós Er- lendsdóttir, f. 28. júlí 1882, d. 27. júlí 1971. Systkini Hólmfríðar voru Halldóra Þóra, f. 30. júlí 1905; Tryggvi Rósmund- ur, f. 21. september 1906; Hörður, f. 5. mars 1910 og Sigursteinn, f. 28. apríl 1916. Eru þau öll látin. Eftirlifandi eiginmaður Hólm- fríðar er Jón Guðmundsson, f. 10. mars 1919. Börn þeirra eru: 1) Sverrir Geir, f. 4. janúar 1950, eiginkona hans var Guðrún Skarphéðinsdóttir, látin. Börn þeirra eru Erla Jóna og Skarp- héðinn Kristinn. Sambýliskona Sverris er Rannveig Sigurgeirs- dóttir. 2) Ásdís, f. 14. desember 1951, eiginmaður hennar er Þorleifur Gíslason. Börn þeirra eru Jón Þór og Eyrún. Áður átti Hólmfríður Garðar, f. 2. maí 1935, faðir Ari Hallgrímsson. Eiginkona Garðars er Ingibjörg Jóns- dóttir. Börn þeirra 1) Guðrún, eigin- maður Max Dager. Barn þeirra er Ingi- björg Iris Mai Svala. 2) Friðrik, börn hans eru Vilborg Hrönn, móðir Anna Vígsteins- dóttir, Ívar Sveinn, Lára Björg og Þórbergur, móðir þeirra Kristín Ívarsdóttir. Sambýliskona Frið- riks er Guðmunda Þorbjarnar- dóttir. 3) Fríða, sambýlismaður Odd Stenersen. Börn þeirra eru Eydís og Davíð. 4) Sigríður, eig- inmaður Bogi Sigurðsson. Börn þeirra eru Garðar og Birna Magnea. Útför Hólmfríðar fer fram frá Laugarneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hún er ekki há í loftinu þar sem hún klifrar upp Brekkuna, dökk á brún og brá og horfir greindum augum á heiminn. Yfir vaka stjörn- ur og tungl. Leiðin liggur að æsku- heimilinu Hömrum í Eyjafirði. Öxnadalurinn ekki langt undan, en þó svo órafjarri. Spurningar koma upp í huga hennar: Skyldu sömu stjörnur og tungl skína á torfbæinn í túnfætinum á Steinsstöðum? Og skín ástarstjarna enn yfir Hraun- dranga? Það var ekki sökum skorts á ást og kærleika foreldranna sem henni var komið í fóstur hjá góðu fólki í öðrum nærliggjandi hreppi. Kröpp kjör réðu því að fækka varð í heimili. Sú telpa sem þarna fór varð seinna amma mín. Ég þreyttist aldrei á að hlusta á sögur úr bernsku ömmu. Frásögnin var oft- ast alvörugefin, ekki laus við bit- urleika, og hvati til æ fleiri spurn- inga um örlög hennar. Sér til varnar og okkur báðum til skemmtunar brá hún því oft á þann leik að venda sínu kvæði í kross. Alvörunni og bitur- leikanum bauð hún byrginn með markvissum og kankvísum áhlaup- um skopgáfunnar. Eftir varð heim- ur óleystra ráðgátna sem rýmdi andstæður og þversagnir, bros og tár. Þrátt fyrir uppvöxt í sveit í út- jaðri Akureyrar var hún borgar- barn. Sveitalíf var í hennar augum einangrað og snautt. Borgin var vettvangur framfara, hagvaxtar og véla. Ekkert fékk ömmu til að að- hyllast sveitarómantík og löngun til fornra búskaparhátta. Fáum hef ég kynnst höldnum svo ástríðufullri vorþrá. Vorið veitti henni djúpa hamingju og þá andaði suðrið sæla aftur vindum þýðum. Blessuð birtan streymdi gegnum falleg augun og vermdi og lýsti hverja sellu. Fjöllin skiptu litum, blómin skutu upp kollunum, fuglar tístu. Þá var lífið fullkomnað. Hún talaði um fóstru sína á Hömrum full lotningar og þakklæt- is. Sama gilti um athafnamiklar fjöl- skyldur á Akureyri þar sem hún var til heimilis með ungan son sinn og vann þar sem stofustúlka um árabil. Þeir tímar voru indælir, urðu henni mikils virði og hún bjó að þeirri reynslu og þekkingu allt lífið. Hún varð svo lánsöm að hitta lífsföru- naut sinn og öðlinginn Jón Guð- mundsson á Akureyri. Engan annan veit ég sem gengið hefur börnum í afastað af svo mikilli ástúð. Í Reykjavík voru uppgangstímar. Þau fluttu því til höfuðborgarinnar í Steinagerðið með litlu börnin sín tvö. Ég leit dagsins ljós í næsta húsi, á heimili pabba og mömmu, og amma var ljósmóðurunni til aðstoð- ar. Og það er góð tilfinning að vita að ég var augliti til auglitis við ömmu á fyrstu stund lífsins. Betri aðstoðarljósa var ekki til; snyrti- mennska, nákvæmni, skynsemi og verkvit var ömmu í blóð borið. Hún hafði aðra kosti og dyggðir: Hún var greind, nægjusöm, hæversk og hljóðlát og setti sig ekki á háan hest. Amma var sterk en viðkvæm og henni var gefið mikið næmi. Oft var eins og að hlutirnir kæmu henni ekki á óvart. Hún fann á sér gesta- komur og hafði sterkan grun. Hún var minnug á drauma og taldi þá oft fyrirboða. Stundum hafði hún gam- an af þessu en oft var eins og að það þjakaði hana. Hún var varkár í kynnum og naut sín ekki á manna- mótum meðal ókunnugra. En fjöl- skyldulífið var hennar samastaður. Þar var hún örugg í sessi og faðmur fjölskyldunnar. Aldrei þraut hús- rými og hjá ömmu og afa var allt eins og á lúxushóteli. Uppábúin rúm, skjannahvítt og tandurhreint. Morgunverðarborðið stóð dekkað snemma í morgunsárið, svo beið morgunsopinn, þá hádegisverður og síðdegiskaffi, kvöldverður og að síð- ustu kvöldkaffi og meðlæti fyrir svefninn. Jólahaldið var bæði rammíslenskt og norðlenskt með dýrindis útskorna laufabrauðinu hennar og danskt með svínasteik, nýsoðnu rauðkáli og rice à la mande. Og allt gekk fyrir sig eins og í draumi, amma vann störf sín ósér- hlífin, án skarkala og fyrirhafnar. Veröldin var oft svolítið dönsku- skotin hjá henni ömmu; hugguleg- heit inni í stofu, smákökur og bakk- elsi með kaffinu og skraf upp á heimsvísu. Aldrei hafði hún komið út fyrir landsteinana en hún kunni að vera heimsdama þegar því var að skipta. Vorið bar hún inn í húsið sitt; þar inni var vor og sumar allan ársins hring. Gluggakisturnar svignuðu undan fússíum, rósum, fljúgandi diskum og gardeníu. Hún elskaði blómin og hafði yndi af búrfuglun- um sínum sem tístu og minntu hana á endurkomu vorsins. Og sólskríkj- ur og snjótittlingar rötuðu til henn- ar í leitinni að fræjum og mylsnu. Leiðin átti eftir að liggja til Vest- mannaeyja í nokkur ár. Sennilega þótti ömmu fjarlægðin við fjölskyld- una of mikil eftir að pabbi og mamma fluttu þangað. Það voru for- réttindi að eiga hjartastað hjá afa og ömmu. Félagsskapurinn við föð- ursystkini mín, sem voru nánast jafnaldrar mínir, var líka eftirsókn- arverður. Það var óstjórnleg til- hlökkun þegar amma og afi, Dísa og Sverrir Geir fengu sér labbitúr neð- an úr bæ til okkar fyrir ofan hraun. Við systkinin hlupum til móts við þau og réðum okkur ekki fyrir fögn- uði. Kannski komu þau til að hjálpa til í heyskap eða bara njóta lífsins í sumarblíðunni og drekka kaffi með nýbakaðri suðrænni tertu í grænu grasinu. En Eyjarnar urðu aldrei hjartastaður ömmu. Tíð vond veður, ofsafengin brim og sjóslys tengdi hún kannski lífsbaráttunni á fyrsta áratug fyrri aldar. Sem uppbót færði hún sitt kæra Norðurland í dýrasta tunguskart; fjallstindar gnæfðu, ár liðu um dali, lækir foss- uðu um hlíðar, norðurljósin dönsuðu um himinhvelið, tunglskinið var bjartara en silfur, birkið ilmaði og silungurinn lék. Hún gaf mér heim sem ég hélt einan til í ævintýrum og það var dýrmæt gjöf. Við Max og langömmubarnið Ingibjörg Iris Mai Svala erum henni ævinlega þakklát fyrir kærleikann og alúðina og Skaparanum fyrir að hafa gefið okk- ur ömmu og langan og hamingjurík- an tíma með henni. Megi Guð styrkja sómamanninn hann afa minn, pabba minn og Dísu og Sverri og hugga og hlúa að öllum sem sárt sakna og syrgja kæru ömmu. Guð blessi minningu hennar. Guðrún Garðarsdóttir. Elsku amma. Nú ertu sofnuð og samveru okkar hér lokið. Það kom mér ekki á óvart að þú skyldir ekki kveðja okkur fyrr en allir voru komnir sem áttu þess kost. Þá sofn- aðir þú svo vært og það var svo mik- ill friður yfir þér. Þú ert nú búin að upplifa margt á þinni löngu ævi, sem nánast er heil öld. Margar lífsreynslusögur sagðir þú mér, sem ég gat lært af og kunni betur að meta hvað ég hafði það gott. En margar minningar geymdir þú í huga þínum og hjarta eins og ég geri nú. Það er margs að minnast þegar ég sest niður og hugsa til þín. Enda mikið spjallað í öll þau skipti sem ég dvaldi hjá þér og afa, sem ég gerði svo oft, alveg þangað til ég stofnaði mitt eigið heimili. Ég man nú ekki eftir fyrstu ár- unum en þú hafðir gaman af að rifja upp prakkarastrikin mín frá þeim árum. Ég hef heyrt um þau öll svo oft að mér finnst ég næstum muna eftir þeim. En ein af mínum fyrstu minningum er þegar ég var í heim- sókn hjá þér og þú gafst mér aur til að fara í litlu búðina að kaupa gott. Það var mikil tilhlökkun þegar lítil hnáta skoppaði af stað með aur í lóf- anum. Þegar ég kom til baka spurð- ir þú hvar er gottið þá varð löng þögn og síðan eitt orð „búið.“ Árin liðu og alltaf var jafn gott að koma til þín, þó stoltust hafi ég ver- ið þegar ég kom að sýna þér hann Garðar minn og seinna þegar þú komst að sjá hana Birnu mína. Mikið hef ég alltaf dáðst að dugn- aði þínum og myndarskap og varð mér oft að orði að ungar konur mættu taka þig sér til fyrirmyndar. Enda held ég að ég hafi lengi vel ekki áttað mig á því hve þú varst orðin fullorðin og kannski ekki að furða því það eru ekki margar kon- ur komnar á níræðisaldur sem halda eins myndarlegt heimili og þú gerð- ir. Síðastliðin tvö ár hafði heilsu þinni hrakað er þú fórst að missa sjónina og var það mikil breyting fyrir þig, sem varst annars ótrúlega hress. Þú tókst því með reisn eins og veikindum þínum fram á síðasta dag og hvað þú sýndir mikinn dugn- að er þú ákvaðst að drífa þig til mín í fjölskylduboðið nú á nýársdag. Ég hafði ekki þorað að vona að þú kæmir. Ég var svo glöð og sagði þér að þetta væri besta jólagjöfin sem ég hefði fengið, en þú varst fljót til svars og sagðir að það hefðu þá ekki verið merkilegar gjafir sem ég hefði fengið. En ég veit þó að allir eru þakklátir fyrir að hafa átt þessa kvöldstund með þér. Elsku afi, pabbi, mamma, Dísa, Sverrir og þið öll, guð veri með ykk- ur öllum. Elsku amma, takk fyrir allt og guð blessi þig. Þín Sigríður Garðars (Sirrý). Elsku amma Fríða. Nú ertu kom- in til guðs og englanna og við vitum að þér líður vel núna. Það var alltaf gaman að koma ykkar afa. Þið vor- uð alltaf svo glöð að sjá okkur og alltaf í góðu skapi. Við vissum líka að það var alltaf nammi í bláu skál- inni í skápnum og við biðum alltaf spennt eftir mola. Síðan fórum við að spila því að það voru alltaf til spil. Þegar við heyrðum þig eða afa fara niður vissum við að það var verið að sækja kökur með kaffinu og síðan kallaðir þú á okkur að drekka. Það var ekkert smáflott með kaffinu, alltaf uppáhalds terturnar okkar, kleinur og allskonar smákökur og kex. Elsku amma. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þú verður alltaf hjá okkur í huganum og við geymum minn- inguna um þig í hjarta okkar. Þín langömmubörn, Garðar og Birna Magnea. HÓLMFRÍÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR Erfisdrykkjur 50-300 manna Glæsilegir salir Bræðraminni ehf., Kíwanishúsinu, Engjateigi 11, sími 588 4460. ERFIDRYKKJUR STÆRRI OG MINNI SALIR Borgartún 6 ehf., sími 561 6444 Fax 562 1524 Netfang borgaris@itn.is Útfararþjónustan ehf. Stofnuð 1990 utfarir.is Undirbúningur á útför. Myndir af kistum. Myndir af kórum og söngvurum. Listi yfir sálma. Verð á öllu sem lítur að útför. Símar 567 9110 og 893 8638 runar@utfarir.is Rúnar Geirmundsson útfararstjóri Sími 562 0200 Erfisdrykkjur MORGUNBLAÐIÐ tekur afmæl- is- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Greinun- um er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykja- vík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar grein- ar um sama einstakling takmark- ast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöf- undar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birt- ar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar af- mælisfréttir ásamt mynd í Dag- bók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að hand- rit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi út- prentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er mót- taka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru rit- vinnslukerfin Word og Wordper- fect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.