Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 47
✝ Vilhelm ÖrnRagnarsson
fæddist á Leifsstöð-
um, Eyjafjarðarsveit,
17. febrúar 1932.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsi Ak-
ureyrar 20. janúar
síðastliðinn. Hann
var sonur hjónanna
Guðríðar Lilju Odds-
dóttur, f. 15.10. 1903,
d. 10.4. 1991, og
Ragnars Brynjólfs-
sonar, f. 17.7. 1904, d.
24.6. 1964. Örn var
fjórði í röð 10 systk-
ina, sem eru í aldursröð: Hrafn-
hildur, f. 1.12. 1924, látin; Hjördís,
f. 29.9. 1929; Valur, f. 10.10. 1930;
Brynja Ólafía, f. 29.9. 1934, látin;
Oddur Víkingur, f. 14.9. 1937;
Ragnar Jökull, f. 15.4. 1939; Guð-
laug Dóra, f. 31.3. 1941, látin;
Hrafn, f. 15.5. 1944; Ingibjörg
Þuríður, f. 20.12. 1947.
Fjölskyldan fluttist að Staðar-
hóli við Akureyri og ólst Örn þar
upp til 12 ára aldurs er fjölskyld-
an fluttist til Reyjavíkur. Á ung-
lingsárum sínum nam hann þar
bifreiðaviðgerðir hjá Ræsi hf. og
flytur þá aftur til Akureyrar. Árið
1965 hóf hann störf hjá Flugmála-
stjórn á Akureyrar-
flugvelli, við örygg-
isgæslu, umhirðu
flugbrautar og
slökkviliðsstörf,
einnig starfaði hann
hjá Flugfélagi Ís-
lands, Flugleiðum og
Norðurflugi.
Slökkviliðsmaður
var hans aðalstarfs-
heiti allt til æviloka
eða í 35 ár. Léttleiki
var eitt af aðal per-
sónueinkennum
Arnar og titlaði
hann sjálfan sig
„brautryðjanda“, vegna reynslu
sinnar við snjóruðning flugbraut-
ar, og þá sagði hann gjarnan sjálf-
an sig „brautgóðan“ á rauna-
stund. Orðheppni hans var rómuð
og hann naut þess að segja frjáls-
lega frá á gamansaman hátt. Erni
var margt til lista lagt, hann var
mjög laghentur og hugmyndarík-
ur, fórst honum einkar vel að
smíða úr járni og skopmyndir
hans voru einstakar. Örn vann við
smíðar sínar í frístundum og sagði
sögur allt til síðasta dags.
Útför Arnar fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Þú, „brautryðjandi“ lífs okkar, ert
nú allur. Nú fennir í þína slóð, en hún
hverfur okkur ekki sjónum. Spor þín
liggja frá okkur til barnabarna þinna,
sem þú unnir svo mjög.
Þú sem kenndir okkur svo margt
og miðlaðir okkur af margþættri
þekkingu þinni, við þökkum þér og
fyrir allar ánægjulegu samveru-
stundirnar sem of langt væri að telja
hér. Það var okkur erfið stund hinn
25. maí á síðasta ári, þegar við feng-
um að vita hversu alvarleg veikindi
þín voru. Æðruleysi þitt í baráttunni
við illvígan sjúkdóm var okkur öllum
styrkur allt þar til yfir lauk hinn 20.
janúar síðastliðinn. Starfsfólk FSA,
lyfjadeildar, og Heimahlynningar
studdi okkur öll í erfiðleikunum og er-
um við þeim innilega þakklát. Megi
guð geyma þig, elsku pabbi, og hugur
okkar systkinanna og mömmu er hjá
þér.
Arnheiður Kristinsdóttir,
Bryndís, Birgir Örn og Ragnar.
Elsku afi minn.
Ég kveð þig með ljóðinu okkar,
sem við vorum svo stolt af.
Assa heitir kvenfuglinn,
kvenfuglinn af erni.
Örn heitir hann afi minn
og Assa er nafn á barni.
Allar góðu stundirnar okkar geymi
ég í hjarta mínu.
Þín
Assa.
„Halló allir, hvað eru margir
heima?“ Þessi orð þín, elsku afi, hafa
heilsað okkur daglega í svo mörg ár.
Þú vildir alltaf vita hvar kallarnir þín-
ir voru og hvað þeir voru að gera. Oft-
ar en ekki kom það í þinn hlut að
sendast með okkur þangað eða þá að
ná í okkur og keyra okkur heim.
Þannig tókst þú þátt í okkar daglega
lífi og skildir svo vel hvað tilveran er
annasöm hjá ungu fólki í dag. Frá-
sagnagleði þinni voru engin takmörk
sett, þú virtist kunna endalausar sög-
ur og höfum við notið þess síðan við
munum eftir okkur. Nú ert þú farinn,
afi, en við munum þig, allar sögurnar
þínar og stundirnar sem við vorum
saman.
Kallarnir þínir,
Rik og Kris.
Þau eru liðin nokkur árin frá því ég
kynntist tengdaföður mínum, honum
Erni Ragnarssyni. Að minnsta kosti
hafa þau liðið hratt og minnt mann á
hve stutt ein mannsævi í rauninni er.
Örn var þessi dæmigerði Akureyr-
ingur í mínum augum. Honum fannst
gott að búa á Akureyri og vildi helst
ekkert vera að þvælast til Reykjavík-
ur að óþörfu.
Hann var einstaklega barngóður
og gaf sér alltaf tíma til að spjalla og
snúast í kringum barnabörnin enda
voru þau öll hænd að afa sínum og
þótti vænt um hann. Góða skapið
hans var alltaf í fyrirrúmi og er mér
sérstaklega minnisstætt. Ég man t.d.
að á fyrstu mánuðunum eftir að ég
kynntist Ragnari syni hans átti hann
það til þegar hann hringdi að spyrja
hvort þetta væri tilvonandi tengda-
dóttir sín og kynnti sig svo sem tilvon-
andi tengdaföður minn, og lagði alltaf
mikla áherslu á þetta tilvonandi. Ég
held nú að mér hafi ekkert fundist um
þessa stríðni hans þá en í dag er
minningin góð.
Örn var mjög handlaginn, síðasta
ár smíðaði hann til dæmis fallega vasa
og ýmis borð úr járni. Hann fékk lýs-
inguna og málin á hlutunum í gegnum
síma og það brást ekki, allt tókst það
mjög vel. Þessir hlutir prýða nú heim-
ili barna hans og eiga eftir að ylja
okkur og minna á hann í framtíðinni.
Nú þegar komið er að leiðarlokum
hjá tengdaföður mínum, þakka ég í
hjarta mínu fyrir allar yndislegu sam-
verustundirnar sem við áttum saman.
Ég veit að nú líður honum betur og að
hann hafi fundið frið.
Drottinn blessi minningu hans.
Brimrún Höskuldsdóttir.
Okkur finnst alltaf svo gaman að
koma til Akureyrar. Þar er svo gott
veður og margt skemmtilegt hægt að
gera. Oftast höfum við farið í stóru
flugvélinni og flogið hátt yfir skýin og
lent svo á flugvellinum hjá honum afa.
Afi tók oftast á móti okkur um leið og
við lentum. Það var svo notalegt. Afi
var alltaf góður við okkur og okkur
þótti svo vænt um hann.
Við ætlum alltaf að muna eftir hon-
um og við vitum að núna líður honum
vel uppi hjá Guði.
Kristrún Heiða og Hugrún Lilja.
Ferð þín er hafin.
Fjarlægjast heimatún.
Nú fylgir þú vötnum
sem falla til nýrra staða
og sjónhringir nýir
sindra þér fyrir augum.
(Hannes Pétursson.)
Eftir aðeins nokkurra mánaða
veikindastríð er svili minn Örn Ragn-
arsson allur. Hann tók á móti dómi
sínum eins og honum einum var líkt,
af einurð og léttleika. Tókst á við
meðferð eins og ekkert væri. Barðist
meðan stætt var en mætti örlögum
sínum beinn í baki.
Ég kynntist Erni fyrst á haustdög-
um 1968, þá óformlega kominn inn í
þessa líka stóru fjölskyldu. Hann tók
mér frá upphafi sem sjálfsagðri við-
bót. Bauð mig hjartanlega velkomna í
Hausalemjaraættina (ættin á að vera
þekkt fyrir þrjósku) eins og hann
kallaði fastafulltrúana í gríni. Ég var
nokkuð fljót að átta mig á hvað hann
meinti og tók þátt í spauginu. Héldum
því raunar til streitu að þannig vær-
um við ekki. Ekki var haft í hámælum
þótt við yrðum eins, er árin liðu.
Örn var mikill hagleiksmaður.
Hann var snillingur þegar bílar áttu í
hlut. Hann smíðaði einnig úr járni s.s.
sófaborð, barnarúm og styttuundir-
stöðu handa fjölskyldumeðlimum.
Þar fór fagmaður, þótt ekki hefði
hann nein próf þar að lútandi.
Örn var fríður maður, dökkur á
brún og brá, hár, grannur og spengi-
legur. Hann var einstakt ljúfmenni og
alltaf stutt í glettnina. Þá kom geisl-
andi grínglampi í augun sem erfitt
var að standast.
Örn og Heiða kona hans voru höfð-
ingjar heim að sækja. Óteljandi
páskafrí og sumarfrí dvöldum við á
heimili þeirra. Það var alltaf jafnsjálf-
sagt að setjast þar að tímabundið.
Hjá þeim sannaðist hið fornkveðna,
„þar sem er hjartarúm, er húsrúm“.
Þá eru ótaldar stundirnar sem við átt-
um í sumarhúsi fjölskyldunnar að Á
við Laxá í Aðaldal. Þar var stundum
brallað fleira en að bleyta færi.
Nú skiljast leiðir að sinni. Ég,
Kristján eiginmaður minn og Þor-
steinn sonur okkar kveðjum Örn
Ragnarsson með virðingu og þökk
fyrir ljúf kynni.
Megi kærleikurinn og ljósið lýsa
Erni á öðru tilverusviði.
Elsku Heiða, Billa, Birgir Örn,
Ragnar, fjölskyldur og aðrir aðstand-
endur.
Ég votta ykkur mína dýpstu sam-
úð.
Minning góðs manns mun að eilífu
lifa.
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjálfr it sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveims sér góðan getr.
(Úr Hávamálum.)
Oddný Dóra Halldórsdóttir.
Brautin hefur verið rudd.
Þetta var þrotlaus vinna síðustu
misseri, með stuttum hvíldum.
„Brautryðjandinn“ er floginn.
Krabbameinið tók af honum völdin og
gerði brautina klára. „Erninum“ varð
ekki varnað flugs. Örn Ragnarsson
hét hann fullu nafni, stundum kallað-
ur „Búddi á Staðarhóli“, sá eini sem
hefur verið titlaður „brautryðjandi“ í
símaskrá. Hann taldi sig vel að nafn-
bótinni kominn; hafði rutt flugbraut-
ina á Akureyri í áratugi!
Örn var sérstakur persónuleiki;
hann fór ekki með gassagangi, hvorki
við vinnu né daglegar þarfir. Ekkert
haggaði rósemi hans. Raunar sagði
hann sjálfur, að það hafi verið fast-
mælum bundið, þegar hann réð sig til
Flugmálastjórnar, að vinna kæmi
ekki til greina! Þetta lýsir kaldhæðn-
islegri kímni brautryðjandans.
Ég þurfti að hitta vinkonur mínar,
„blóðsugurnar“ á rannsóknarstofu
Fjórðungssjúkrahússins í upphafi
aldar.
Þar mætti ég Erni, fagnaði honum,
en mér var brugðið.
Krabbameinið, sem miskunnar-
laust ryður fólki brautir úr lífinu, ótt
og títt, var greinilega á góðri leið með
að gera brautina klára fyrir Örninn.
Það var lítill tími til skrafs, en heim-
sókn mín á rannsóknarstofuna leiddi
til þess, að ég var lagður inn – á deild
brautryðjandans.
–Nei, þú kominn hingað, það hlýtur
að vera einhver misskilningur, því
hér er eingöngu gert við heila og
hjarta, en þú hefur hvorugt, sagði
kappinn þegar við hittumst þar, síðar
sama dag. Svo skáskaut hann á mig
augunum, sem enn höfðu gamla góða
kersknisglampann, og glottið fræga
færðist yfir andlitið. Þetta var enn til
staðar, ásamt gálgahúmornum, en
það var lítið annað eftir af „sjarmörn-
um“ frá Staðarhóli.
– Ég er ögn veikur, hef raunar allt-
af verið veikur, sérstaklega fyrir víni
og konum, eða konum og víni, ég man
ekki lengur hvort var á undan. Von-
andi tekst þeim aldrei að lækna það.
Þeir eru hins vegar að hrekja úr mér
krabbadjöful, sem skaust í mig, sagði
kappinn og benti á stokkbólgna eitla.
Hann taldi lækningu í augsýn, en hún
gæti tekið einhvern tíma. Honum lá
ekkert á, frekar en fyrri daginn.
Örn Ragnarsson hefði orðið sextíu
og níu ára í næsta mánuði. Hann fór
stundum illa með þann tíma sem hann
hafði. Gekk þá nærri sínum, en var
sjálfum sér verstur.
Þá var gott að geta gripið til
kerskninnar, til að bjarga sér frá hyl-
dýpinu. Þegar allt var komið í þrot,
peningarnir búnir og bankastjórinn
barði í borðið, þá sagði Örn af sinni al-
kunnu ró; heyrðu, vinur, ef þú ætlar
að vera með einhver leiðindi, þá fer ég
með „allt“ mitt héðan. Þetta „allt“ var
í raun minna en ekkert, en banka-
stjórinn bjargaði bankanum frá falli!
Hann sá að farsælla væri að leiðbeina
hinum villta út úr skóginum. Ég veit
ekki hvort það tókst fyllilega, enda
var Örn ekki mikið fyrir leiðsögn –
honum leiddist að vera lengi í einu á
beinu, breiðu, brautinni. Og hann
kunni því illa, þegar einhver reyndi að
skaða vinskap hans við Bakkus. Ein-
hverjir höfðu um það orð við kapp-
ann, fyrir áratugum, að margir hefðu
náð að losna við Bakkus eftir heim-
sókn á Freeport. – Nei, fyrr hætti ég
nú að drekka en fara í meðferð, svar-
aði brautryðjandinn, og tilsvarið varð
landsfrægt.
Þegar ég kvaddi spítalann fyrir
tveimur vikum var einnig fararsnið á
brautryðjandanum. Hann var kom-
inn í svarta kápu og skartaði svartri
derhúfu. Mér snarbrá þegar ég sá
múnderinguna; hann var eins og
ímynd dauðans í mínum huga. En
hvert var hann að fara? –Ég hef bæj-
arleyfi, en einungis „ef lífið liggur
við“, sagði kappinn og glotti við tönn.
Nú hefur hann nýtt sér bæjarleyfið,
frelsinu feginn, eins og komið var.
Góða ferð, en hafðu brautina klára
þegar þar að kemur.
Gísli Sigurgeirsson.
Ég vil með örfáum orðum minnast
vinar míns og vinnufélaga, Arnar
Ragnarssonar. Hugurinn leitar tíu ár
til baka er ég hóf störf hjá Flugmála-
stjórn á Akureyrarflugvelli. Ég þurfti
ekki að kvíða því að koma til vinnu á
yfirráðasvæði Arnar, hann tók mér af
einstakri ljúfmennsku. Örn gekk und-
ir nafninu „Brautryðjandinn“ og bar
þann titil með sæmd en í allmörg ár
hafði hann þann starfa að ryðja flug-
brautina auk annarra verkefna. Við
sögðum líka stundum að nr. 1 væri á
vakt og voru það orð að sönnu. Árið
1996 urðum við slökkviliðsmenn og
fengum starfsheitið varavarðstjóri,
þar var Örninn enn fremstur meðal
jafningja.
Starf slökkviliðsmanna á flugvelli
byggir mikið á því vera naskur á veð-
ur og veðrabrigði og ýmsa aðra hluti
er lúta að flugöryggi. Þar var Örn í
sérflokki, hann átti það til að segja
okkur nánast upp á mínútu hvenær
það myndi frysta svo að hægt væri að
gera viðeigandi ráðstafanir og svo var
sama á hverju gekk, það var alltaf
þessi stóíska ró, aldrei neitt vesen og
verkefnin leyst. Örn var mikið nátt-
úrubarn og naut þess að vera við veið-
ar og ekki skemmdi að hann var af-
bragðs skytta, hann átti mikið
byssusafn sem hann lagði mikla alúð
við og var mér góður kennari þó svo
að ég hafi nú aldrei haft dálæti á því
verkfæri en starf míns vegna þurfti
ég að læra á það. Þannig var að hver
og einn starfsmaður fékk viðurnefni
og þau enduðu öll á orðinu þungur,
skömmu eftir að ég byrjaði sendi Örn
mig út á braut til að aflífa særðan
fugl, ég var hálfstressaður og eyddi
nokkrum skotum á fuglinn. Örn hafði
greinilega fylgst með og sagði þegar
ég kom aftur í hús.
Hann hefði aldrei haft sig á loft
með svo mikið blý í sér, blýþungur
minn.
Mér hefur alltaf þótt vænt um
þetta viðurnefni síðan. Einnig er fræg
sagan af honum á gæsaskytteríi, en
hann notaði nánast alltaf riffil, er
hann þurfti tvö skot til að fella fugl-
inn, það fyrra sraukst við hálsinn en
hið síðara beint í hausinn. Þá var
hann spurður er þér farið að förlast
Örn minn? Hann svaraði að bragði
„nei maður getur nú gleymt, ég
gleymdi snúningi jarðar.“ Þó að
stundum blési á móti í lífsins ólgusjó
eins og gengur og eins þessa síðustu
mánuði þegar séð var að ekki ynnist
sigur á þeim illvíga sjúkdóm er hann
barðist við, þá lét hann aldrei deigan
síga, var alltaf samur við sig með
spaugsyrði á vör og skemmtilegar til-
vitnanir en ég veit að hugurinn var
hjá fjölskyldunni en þó einkanlega
hjá litlu afaköllunum hans. Mér
fannst alltaf gaman að heyra hvað
hann naut þess að vera með þeim og
missir þeirra er sannarlega mikill. Ég
er þakklátur fyrir að hafa þekkt þig,
kæri vinur. Þú kenndir mér margt og
ég veit að þegar ég kem og hitti þig
aftur þá hefur þú örugglega brems-
una góða svo að ég fljúgi ekki út í
buskann. Ég votta ástvinum öllum
mína innilegustu samúð á þessum
sorgartímum. Megi algóður Guð
styðja ykkur og styrkja.
Lárus Gunnlaugsson.
ÖRN
RAGNARSSON
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga
er andlát verður í samráði við aðstandendur
Sími 581 3300
allan sólarhringinn — utforin.is
Suðurhlíð 35, Fossvogi
Sverrir
Olsen
útfararstjóri
Sverrir
Einarsson
útfararstjóri
Kistur
Krossar
Duftker
Legsteinar
Sálmaskrá
Blóm
Fáni
Erfidrykkja
Tilk. í fjölmiðla
Prestur
Kirkja
Kistulagning
Tónlistarfólk
Val á sálmum
Legstaður
Flutn. á kistu milli landa
Sjáum um
útfararþjónustu á
allri landsbyggðinni.
Áratuga reynsla.