Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 53
ÉG SKRIFA þetta laugardags-
morguninn 13. janúar. Regnið bylur
á þakinu og vindurinn sveigir trén.
Rokið er hið sama og um þetta leyti
í fyrra en þó er munur á. Í fyrra var
úrkoman í formi snævar með geysi-
legum snjó og sköflum, en nú rignir
kærkominni vætu, sem þvær bíla,
glugga og götur. Þegar við hjónin
ókum eftir eyðinu út í Hliðsnes í
morgun fuku þaraflyksur á bílinn
og skeljasandurinn gerði sig líkleg-
an til að skafa lakkið af honum, en
fjaran í vestanverðium Hafnarfirði
var þakin ljósum skeljasandi. Selur
lá á steini í Skógtjörninni, hinn ró-
legasti þó gæfi yfir hann. – Þegar
við fórum þarna um fyrir fimm dög-
um var Skógtjörnin frosin og lagn-
aðarís á Hafnarfirðinum vestan-
verðum. Þegar heim kom, flögruðu
nokkrir snjótittlingar í birkitrján-
um og létu ekki rokið fipa sig á flug-
inu. Bóndi minn sagði: „það er bara
vor í lofti“. Það er nokkuð mikil
bjartsýni, þó hitinn á mælinum sýni
sjö stig. Þótt hlýtt væri í veðri,
gæddum við okkur á sjóðheitri vetr-
arsúpu, þegar inn kom.
Lambakjöts-
vetrarsúpa
1½ kg fituheinsað súpukjöt
1 msk. salt (eða meira)
2 tsk. hvít eða svört piparkorn
1 msk. þurrkaðar súpujurtir (má
sleppa)
2 lárviðarlauf
1 1/2 lítri vatn
400 g kartöflur
200 g gulrætur
1 stór púrrulaukur
fersk steinselja
1. Fituhreinsið kjötið að mestu,
skerið í bita en látið beinin vera í.
Brúnið á þurri pönnu.
Stráið salti yfir kjötið og setjið í
pott. Hellið sjóðandi vatni yfir.
2. Afhýðið kartöflurnar, skerið í
sneiðar og setjið saman við. Setjið
lárviðarlauf og súpujurtir út í og
sjóðið við hægan hita í 60 mínútur.
3. Skafið gulræturnar, skerið í
sneiðar og setjið út í. Kljúfið púrru-
laukinn, klippið frá dekkstu grófu
endablöðin, látið kalt vatn renna inn í
hann og hreinsið vel, skerið síðan í
þunnar sneiðar og setjið út í. Sjóðið
leggina af steinseljnni með. Sjóðið
þetta í súpunni í 15 mínútur til við-
bótar.
4. Hellið í skál eða berið fram í
pottinum. Klippið steinselju yfir.
Hnetubrauð
500 g hveiti
2 tsk. salt
1 msk. þurrger
1 dl matarolía
3½ dl fingurvolgt vatn úr krananum
1 dl saxaðar val- eða pecan-hnetur
1 eggjarauða + 1 tsk. vatn til að
pensla brauðin með.
Notið hrærivél með hnoðara ef hægt
er.
Setjið hveiti, salt og þurrger í
skálina, bætið síðan olíunni og volga
vatninu út í og hrærið eða hnoðið
deig. Leggið disk ofan á skálina og
látið lyfta sér í kæliskáp í 12 tíma
eða lengur. Líka má láta þetta lyfta
sér á eldhúsborðinu mun skemur,
svo sem 2-3 klst.
Saxið hneturnar frekar fínt, setj-
ið saman við deigið og hnoðið smá-
stund á eldhúborðinu.
Skiptið deiginu í tvennt, fletjið
hvorn bút örlítið út, vefjið saman
langsum. Leggið á bökunarpappír,
samskeyti snúi niður. Skerið nokkr-
ar raufar í brauðið með beittum
hnífi. Hafið snögg, örugg handtök.
Penslið brauðin með eggjarauð-
unni. Leggið stykki yfir þau og látið
lyfta sér í 20-30 mínútur.
Hitið bakaraofn í 210°C,
blástursofn í 195°C og bakið brauð-
in í 25-30 mínútur.
Leggið stykki yfir brauðin með-
an þau eru að kólna.
Vetrarsúpa
og brauð
„Hvað er vetrarsúpa?“ Kristín Gestsdóttir segir
það vera sjóðandi heita matarmikla súpu,
þykka af grænmeti.
Matur og matgerð
ÞJÓNUSTA
Getum tekið að okkur verkefni.
Fagmennska í fyrirrúmi.
Símar 698 2523 og 554 3716.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Viðtöl bæjarfulltrúa
Athugið að sú breyting verður á áður
auglýstum viðtölum bæjarfulltrúa Kópavogs,
að fimmtudaginn 1. febrúar kl. 18.00 mun
Ármann Kr. Ólafsson verða til viðtals í stað
Gunnars I. Birgissonar. Viðtalstími Flosa
Eiríkssonar verður óbreyttur.
Bæjarstjóri
KÓPAVOGSBÆR
TILKYNNINGAR
Járnamenn geta bætt við sig
verkefnum.
Upplýsingar í síma 898 9475.
Jarðvinnuútboð
Eykt ehf. auglýsir eftir tilboðum í jarðvinnu á
Grjóthálsi 5, Reykjavík (viðbygging).
Um er að ræða uppgröft á lausum jarðvegi
u.þ.b. 4.000 m3, fleygun eða sprengingar um
4.000 m3 og fyllingu 1.700 m3.
Gögn verða afhent á skrifstofu Eyktar Skeifunni
7, frá og með fimmtudeginum 1. janúar 2001.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl 14.00
þriðjudaginn 6. febrúar 2001.
Eykt ehf.,
byggingaverktakar.
ÝMISLEGT
Diskótek Sigvalda Búa
Tek að mér öll böll og uppákomur.
Allar græjur og tónlist fylgja.
Diskótek Sigvalda Búa,
nýtt símanúmer er 898 6070.
STYRKIR
Styrkur
til tónlistarnáms
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar mun
á þessu ári veita íslenskum söngvurum styrki
til framhaldsnáms erlendis.
Einn eða fleiri styrkir verða veittir.
Umsóknir, með upplýsingum um námsferil
og framtíðaráform, sendist fyrir 15. febrúar
nk. til:
Söngmenntasjóður Marinós Péturssonar,
c/o Haukur Björnsson,
Íslensku óperunni,
Ingólfsstræti,
101 Reykjavík.
Umsókninni fylgi hljóðritanir og/eða önnur
gögn sem sýna hæfni umsækjenda.
Endurnýja skal eldri umsóknir.
Úthlutun úr
Menningarsjóði
Borgarbyggðar árið 2001
Stjórn Menningarsjóðs Borgarbyggðar auglýsir
hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Sjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja menn-
ingarmál í Borgarbyggð.
Æskilegt er að með umsókninni fylgi bókhalds-
uppgjör síðasta árs, eða starfsárs, og áætlun
um nýtingu styrksins ásamt greinargerð.
Að loknu starfsári afhendist sjóðsstjórn grein-
argerð um nýtingu styrksins.
Umsóknir skulu berast stjórn Menningarsjóðs
Borgarbyggðar, Borgarbraut 11, Borgarnesi,
fyrir 20. febrúar nk.
Borgarnesi, 28. janúar 2001.
Stjórn Menningarsjóðs
Borgarbyggðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
DULSPEKI
Völva vikunnar
verður með per-
sónulega ráðgjöf
í gegnum síma,
þar sem stuðst er
við næmni og
innsæi.
Einnig skráðar niður pantanir
fyrir einkatíma og fyrirlestra.
Sími 908 6500.
Sigríður Klingenberg.
EINKAMÁL
Pennavinur
Eftir nokkrar
skemmtilegar
ferðir til Íslands
langar mig til að
kynnast íslenskum
karlkyns penna-
vini til að deila með menningu,
skoðunum og áhugamálum.
Endilega skrifið á ensku til;
Voeker Ellerman, Niewedder
weg 7, 49179 Venne, Germany.
KENNSLA
Keramiknámskeið
á Hulduhólum hefjast í febrúar.
Upplýsingar í síma 566 6194.
Steinunn Marteinsdóttir.
FÉLAGSLÍF
FJÖLNIR 6001013019 II
HLÍN 6001013019 VI
Hamar 6001013019 I þorraf.
AD KFUK, Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Steinunn Jóhannesdóttir, fyrsta
íslenska konan sem gerist kristni-
boði. Steinunn Pálsdóttir segir
frá.
Hugleiðing: Valgerður Gísladótt-
ir, kristniboði.
Allar konur velkomnar.
Minnum á árshátíð KFUM og
KFUK sem verður föstudaginn 2.
febrúar kl. 19.00. Miðaverð kr.
3000. Skráning í s. 588 8899 eða
á skrifstofa@krist.is eigi síður en
miðvikudaginn 31. janúar.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá Mod-
ernus ehf. vegna truflana á vefsetrinu
mbl.is að kvöldi 26. janúar:
„Modernus ehf. vill biðja lesendur
mbl.is afsökunar á truflunum sem
urðu á vefsetrinu föstudagskvöldið
26. janúar sl.
Modernus ehf. hóf að mæla notk-
unina á mbl.is laugardaginn 20. janú-
ar sl. með þar til gerðum hugbúnaði,
sem fyrirtækið er að prófa þessa dag-
ana. Fyrirtækið reyndist ekki ráða
yfir vélaafli til þess að mæla hina
geysimiklu umferð, sem mbl.is fær.
Við aftengingu hugbúnaðarins, um kl.
22:30 á föstudagskvöldið, olli einföld
stafsetningarvilla því, að í stað þess
að leiða umferðina framhjá Modern-
us.is með skriftinni „mbl=dummy“
var skrifað „mbl=dummyy“ (2 y) í
þar til gert forrit.
Notendur Netscape 4.76 urðu fyrir
þeirri óskemmtilegu reynslu að fá
villutilkynningu Modernus.is upp á
skjáinn í stað forsíðu mbl.is þegar
þeir reyndu að opna vefinn. Þetta er
eins neyðarlegt fyrir okkur og hugs-
ast getur, en svona fór þetta. Vefset-
ur mbl.is á hér enga sök að máli,
ábyrgðin liggur alfarið hjá Modernus
ehf.“
Villa olli
truflun á
vefsetrinu
mbl.is
INNLENT