Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 55
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 55
brún
kuklú
tar
Gefa
náttú
rlega
n lit
á 2 tí
mum
Lykta
rlaus
ir
Engir
flekk
ir
Þurrk
a ekk
i húð
ina
LÍNUR eru loks farnar að skýrast
um hið fyrirhugaða fimimót Morg-
unblaðsins og Gusts sem halda á í
Reiðhöll Gusts í Glaðheimum. Upp-
hafleg dagsetning mótsins, 24.
febrúar, reyndist ekki góður kostur.
Bárust allnokkrar kvartanir um að
þetta væri full snemmt af stað farið
og var því ákveðið að leita að nýjum
degi. Fæðingahríðir nýrrar dag-
setningar urðu nokkuð langar og
erfiðar en endirinn varð sá að laug-
ardagurinn 10. mars varð fyrir val-
inu.
Keppt í þremur flokkum
Keppni mun hefjast fyrir hádegi
og standa væntanlega fram eftir
degi en um kvöldið verða úrslit í
meistaraflokki og verðlaunahafar í
keppnis- og frístundaflokki munu
sýna verkefni sín. Ákveðið hefur
verið að veita fimm verðlaun í
hverjum flokki en auk þess verða
veitt sérstök verðlaun fyrir tónlist
en skilyrt er að allir keppendur ríði
verkefnin undir tónlistarflutningi.
Óskað er eftir því að hver og einn
keppandi í keppnis- og frístunda-
flokki komi með tónlist að eigin vali.
Heimilt verður að blanda saman
lögum, sem gefur meira svigrúm að
láta tónlistina falla vel að þeim
hraða og takti sem riðið er á. Verð-
launaveitingin snýst einmitt um að
tónlistin sé valin af smekkvísi, hún
falli vel að verkefninu og að skipt-
ingar, ef notuð er blönduð tónlist,
verði sem nákvæmastar.
Þá er einnig fyrirhugað að veita
einu pari í hverjum flokki sérstök
verðlaun fyrir klæðnað, snyrti-
mennsku og samræmi milli manns
og hests. Það eru sem sagt vel
snyrtur hestur og knapi – prúðleiki
hests hefur áhrif og vel klæddur
knapi sömuleiðis. Verða ein slík
verðlaun veitt í hverjum flokki.
Rykið dustað af B-fiminni
Skráning hefst frá og með deg-
inum í dag og lýkur klukkan 20
fimmtudaginn 1. mars nk. og þurfa
væntanlegir keppendur að greiða
3.000 krónur í tryggingagjald sem
síðan verður endurgreitt um leið og
keppandi hefur lokið keppni. Kepp-
endur í meistaraflokki þurfa jafn-
framt að skila inn verkefni því sem
þeir hyggjast sýna fyrir 1. mars.
Skráning og frekari upplýsingar er
að hægt að fá í síma 896 6753 en
auk þess er hægt að senda fyr-
irspurnir á vakr@mbl.is.
Verkefnin sem keppendur þurfa
að leysa af hendi eru í meistara-
flokki frjáls fimi samkvæmt reglum
LH. Keppendur í keppnisflokki fá
að glíma við gamla B-fimi-verkefnið
sem er meðal annars að finna í bók
Eyjólfs Ísólfssonar, „Á hestbaki“,
þar sem fylgja með skýringateikn-
ingar.
Frístundaflokkur mun leysa af
hendi verkefni sem heitir A2 og er
það ásamt frjálsri fimi aðgengilegt á
heimasíðu Landssambands hesta-
mannafélaga, www.lhhestar.is.
Einnig er hægt að fá á skrifstofunni
keppnisreglur samtakanna í bók
sem er mjög góður kostur fyrir þá
sem hyggja á frekari þátttöku í
keppni á árinu í öðrum greinum.
Einstaklings- og liðakeppni
Auk þess að vera keppni ein-
stakra para (knapi og hestur) verð-
ur boðið upp á keppni liða sem í
verða þrír keppendur og verða allir
að keppa í sama flokki. Liðakeppni
getur boðið upp á aukna spennu
auk þess sem hvert lið getur æft
saman og liðsmenn aðstoðað hver
annan. Ein verðlaun verða veitt í
hverjum flokki fyrir liðakeppni en
lágmark er að þrjú lið taki þátt í
hverjum flokki.
En nú er sem sagt hægt að byrja
á fullu að æfa fimina. Fróðlegt væri
að fá upplýsingar um námskeið þar
sem kennd verður fimi á þessum
tíma fram að móti og verður þá sagt
frá því hér í hestaþættinum og eins
á hestasíðunni á mbl.is.
Þýskur fimireiðmaður
á leiðinni
Þá má það fljóta með að vænt-
anlegur er til landsins um miðjan
febrúar þýskur fimireiðmaður,
Christoph Müller, sem meðal ann-
ars hefur unnið sér það til ágætis að
vera farinn að ríða fljúgandi stökks-
kiptingar á íslenskum hesti sem
hann á og heitir Muggur frá Bakka-
koti. Fyrir einu og hálfu ári birtust
myndir og viðtal við þennan unga
og snjalla knapa í hestaþætti Morg-
unblaðsins. Christoph mun dvelja
hér á landi í níu daga og kenna
mönnum kúnstirnar í Hestamið-
stöðinni Hindisvík í Mosfellsbæ.
Fimi Morgunblaðsins og Gusts
Verkefnin klár
og skráning hafin
Í frístundum hefur Christoph Müller dundað sér við að kenna hesti sín-
um, Muggi frá Bakkakoti, ýmislegt í fimiæfingum sem fáir eða engir
hafa gert og má þar nefna fljúgandi stökkskiptingar.
Bakpoki
aðeins 1.600 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is