Morgunblaðið - 30.01.2001, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GARRY Kasparov vann Corus-
mótið í Wijk aan Zee þriðja árið í
röð. Hann hafði vinningsforskot á
heimsmeistarana tvo fyrir síðustu
umferð og eftir fjöruga skák í henni
við Michael Adams, sem lauk með
jafntefli, tryggði hann sér sigur á
mótinu. Taflmennska hans var var-
kárari en oft áður og ekki eins mikið
af sóknarskákum. Þrátt fyrir það er
þessi sigur honum afar kærkominn,
sérstaklega þegar tekið er tillit til
ófara hans í einvíginu gegn Kramn-
ik í haust.
Aðrir keppendur stóðu í skugg-
anum af snillingnum frá Bakú, en
þó ekki eins mikið og vanalega.
Alexei Shirov hafði forystuna
lengst af en í síðustu umferðunum
var líkt og allur vindur væri úr hon-
um. Vladimir Kramnik lenti í þriðja
sæti ásamt Vassili Ivansjúk, en
hinn nýi heimsmeistari samtaka
Kasparovs var mistækur og tölu-
vert frá sínu besta. FIDE-heims-
meistarinn, Viswanathan Anand,
fór taplaus í gegnum mótið. Þegar
þrjár umferðir voru eftir var ekki
fyrirsjáanlegt að Indverjanum knáa
tækist að blanda sér í baráttuna um
efstu sætin, enda hafði taflmennsk-
an verið afar rólyndisleg og langt
frá því að vera sannfærandi. Þá
virðist sem hann hafi vaknað af
værum blundi og honum tókst að
vinna síðustu þrjár skákirnar.
Reyndar er merkilegt að allir sigrar
hans voru gegn heimamönnum og
er eftirfarandi skák frá lokaumferð-
inni. Hvítt: Viswanathan Anand
Svart: Loek Van Wely 1. e4 c5 2.
Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5.
Rc3 a6 6. Be3 e5 Hér er 6...Rg4 orð-
inn feikilega vinsæll leikmáti en
textaleikurinn er einnig traustur. 7.
Rb3 Be6 8. Dd2 Be7 9. f3 O-O 10. O-
O-O Dc7 11. g4 Hc8 Mikið kapp-
hlaup verður jafnan þegar kóngarn-
ir hafa fengið skjól hvor á sínum
vængnum. Í þessari peðastöðu
skiptir hins vegar gríðarlega miklu
máli hvernig framvindan á d5-reitn-
um verður. Ef hvítur nær þar tang-
arhaldi er svartur dæmdur til að
verjast í erfiðri stöðu.
12. Kb1 Rbd7 Ekki gekk upp að
opna taflið strax upp með 12...d5
þar sem eftir 13. exd5 Rxd5 14.
Rxd5 Bxd5 15. Dxd5 Dxc2+ 16. Ka1
Ba3 17. Bc1 verður hvítur sælum
manni yfir. 13. Df2 b5 14. g5 Rh5
15. h4 b4?! Hugsanlega var skyn-
samlegra að leika 15...Hab8 og und-
irbúa í framhaldinu Rd7-b6-c4. 16.
Rd5 Bxd5 17. Hxd5 a5 18. Bh3 a4
19. Rc1 Hcb8?! Væntanlega var 19...
a3 betra og beittara. Í framhaldinu
situr svartur uppi með hartnær tap-
að tafl. 20. Bg4! Rf4 21. Bxf4 exf4
22. Bxd7! Síðustu leikir hvíts
hafa sýnt að hann skilur stöðuna af-
burðavel þar sem hann hefur skynj-
að þær breytingar sem orðið hafa á
henni og skipt upp á veikum mönn-
um sínum fyrir sterka menn and-
stæðingsins. Texta-
leikurinn innsiglar
örlög svarts sökum
þess að í framhaldinu
verður riddarinn al-
gjör ofjarl biskupsins.
22...Dxd7 23. Dd2!
Hb5 24. Re2 Hc8 25.
Rxf4 b3 26. cxb3 axb3
27. a3 Hc2 28. Dd3
Hb8 29. Hd4! Rýmir
d5-reitinn fyrir ridd-
arann sem gerir út-
slagið. 29...Bf8 30.
Rd5 Hf2 31. De3 Hg2
32. Hd2 Hg3 Svartur
hefur ekki viljað
skipta upp á þessum
hrók en í stað þess lendir hann í
hremmingum þar sem honum reyn-
ast allar bjargir bannaðar.
33. Df2! Hh3 34. Hhd1! og svart-
ur gafst upp enda getur ekkert
komið í veg fyrir að hvítur leiki
næst 35. Rf4 og hrókurinn á h3 fell-
ur.
Skjár einn vinnur sinn
fyrsta skáksigur á firmamóti
Grandrokks
Sjónvarpsstöðin Skjár einn er
ekki gömul, en hefur eigi að síður
komið töluvert við sögu í skáklífinu
hér á landi. Þar má t.d. nefna beinar
útsendingar frá skákmótum og at-
hyglisvert viðtal Egils Helgasonar
við Kasparov. Nú hefur Skjár einn
bætt um betur og unnið sinn fyrsta
sigur á skákmóti. Þetta gerðist á
sterku og skemmtilegu firmamóti
sem Skákfélag Grandrokks stóð
fyrir á laugardaginn. Það var Björn
Þorfinnsson sem tefldi fyrir Skjá
einn og var hann óstöðvandi eftir
tap í fyrstu umferð fyrir Tómasi
Björnssyni, sem telfdi fyrir Essó.
Eftir þetta fékk Björn 7½ vinning í
umferðunum átta sem eftir voru.
Esso lenti í öðru sæti með sjö
vinninga og var Tómas Björnsson
eini keppandinn sem slapp taplaus
gegnum mótið. Í þriðja sæti varð
Strik.is sem tefldi fram Róberti
Harðarsyni, sem hlaut sex og hálf-
an vinning. Verðlaunahafarnir
fengu vegleg bókaverðlaun frá
JPV-forlagi: Ísland í aldanna rás,
Undir bárujárnsboga og ævisögu
SteinsSteinarr.
Alls tóku um þrjátíu fyrirtæki
þátt í mótinu og voru aðstæður hin-
ar bestu enda var tækifærið notað
til að taka í notkun tíu nýjar tölvu-
klukkur frá Skákhúsinu og glæsileg
taflsett.
Í fjórða til sjöunda sæti með sex
vinninga voru Margeir Pétursson
ehf. (Bragi Þorfinnsson), Morgun-
blaðið (Lenka Ptácníková), Gammel
Dansk (Einar K. Einarsson) og
Orkuveita Reykjavíkur (Ingólfur
Gíslason). Í 8.–14. sæti með fimm
vinninga voru Nýja bókafélagið
(Grímur Grímsson), Lögfræðistofa
Kristjáns Stefánssonar (Helgi Jón-
atansson), Hreinsunardeild gatna-
málastjóra (Halldór Garðarsson),
Skákhúsið (Valgarður
Guðjónsson), Kögun
(Arnar Ingólfsson), Víf-
ilfell (Sveinbjörn Jóns-
son) og VISA-Ísland
(Ólafur Kjartansson).
Auk Lenku Ptácní-
ková, sem er alþjóðleg-
ur skákmeistari
kvenna, tóku tvær af
liðskonum ólympíuliðs-
ins þátt í mótinu. Guð-
fríður Lilja Grétars-
dóttir tefldi fyrir Stöð 2
og tapaði nokkuð óvænt
í fyrstu umferð fyrir
Loga Bergmann Eiðs-
syni, fréttamanni á
Sjónvarpinu, sem var einn af mörg-
um góðum gestum á mótinu. Lilja
stóð sig hins vegar með miklum
sóma og sama gerði Íslandsmeistari
kvenna, Harpa Ingólfsdóttir.
Harpa tefldi fyrir Mál og menn-
ingu, sem sigraði einmitt á síðasta
firmamóti Grandrokks. Auk þeirra
fyrirtækja, sem þegar hafa verið
nefnd, tóku þessi þátt í mótinu:
Endurvinnslan (Birgir Berndsen),
Ingvar Helgason (Sindri Guðjóns-
son), Mátturinn og dýrðin (Jakob
Bjarnar Grétarsson), Eskill (Ragn-
ar Magnússon), Maxims (Ómar
Jónsson), Doc.is (Jóhann Fjalldal),
ÍAV (Páll Gunnarsson), Bravo St.
Pétursborg (Harri Honkanen), Ís-
landssími (Logi Bergmann), Bjart-
ur (Helgi Hauksson), Innn (Sigurð-
ur H. Jónsson), JPV-forlag
(Kristinn Guðjónsson). Þá veittu
Reykjavík.com og Grandrokk
mótinu sérstakan stuðning. Í mót-
stjórn voru Hrafn Jökulsson, Ró-
bert Harðarson og Einar K. Ein-
arsson.
Jón Viktor og Sigurbjörn
efstir fyrir síðustu umferð
Jón Viktor Gunnarsson og Sig-
urbjörn Björnsson eru efstir á
Skákþingi Reykjavíkur þegar einni
umferð er ólokið. Þeir hafa báðir
fengið 8 vinninga. Stefán Kristjáns-
son er næstur þeim með 7½ vinn-
ing. Björn Þorfinnsson, Davíð
Kjartansson og Guðni Stefán Pét-
ursson koma svo þar á eftir með 7
vinninga. Í tíundu og næstsíðustu
umferð urðu úrslit þessi á efstu
borðum:
Sigurður Steindórss. – Jón V. Gunnarss.
0:1 Sigurbj. Björnss. – Róbert Harðars. 1:0
Stefán Kristjánss. – Arnar Gunnarss. 1:0
Guðni S. Péturss. – Björn Þorfinnss. ½:½
Davíð Kjartanss. – Páll A. Þórarinss. 1:0
Guðjón Valgarðss. – Sævar Bjarnas. 0:1
Ólafur Í. Hanness. – Benedikt Jónass. 0:1
Lenka Ptácníková – Dagur Arngrímss.
½:½ Sigurður Ingas. – Jón Á. Halldórss.
0:1 Ingvar Jóhanness. – Helgi E. Jónat-
anss. ½:½
Í síðustu umferð mætir Jón Vikt-
or Gunnarsson Guðna Stefáni Pét-
urssyni, Sigurbjörn Björnsson
mætir Stefáni Kristjánssyni og
Björn Þorfinnson mætir Davíð
Kjartanssyni. Röð efstu manna fyr-
ir lokaumferðina er þessi:
1.-2. Jón Viktor Gunnarsson og Sigurbjörn
Björnsson 8 v.
3. Stefán Kristjánsson 7½ v.
4.–6. Björn Þorfinnsson, Davíð Kjartans-
son og Guðni Stefán Pétursson 7 v.
7.–12. Sigurður P. Steindórsson, Benedikt
Jónasson, Róbert Harðarson, Sævar
Bjarnason, Arnar E. Gunnarsson og Jón
Árni Halldórsson 6½ v.
o.s.frv.
Að leiðarlokum
Daði Örn Jónsson
Helgi Áss Grétarsson
Kasparov
SKÁK
W i j k a a n Z e e
CORUS-SKÁKMÓTIÐ
13.–28.1. 2001
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til
samkeppni um bestu skóla- og
bekkjarvefina á Skólatorginu. Sam-
keppnin stendur til loka yfirstand-
andi skólaárs og Tæknival veitir
verðlaun þeim skólum og bekkjum
sem eiga bestu vefina, þrenn verð-
laun í hvorum flokki. Verðlaunin
eru m.a. ferðatölvur frá Compaq,
stafrænar myndavélar og litaprent-
arar frá Epson og tölvusmásjá fra
IntelPlay.
Tæknival gaf öllum grunnskólum
landsins Skólatorgið að gjöf við
upphaf skólaársins. Nú þegar hefur
um helmingur skólanna tekið vef-
útgáfukerfið í notkun og í ljósi þess
hvað skólarnir hafa tekið Skólatorg-
inu vel er þessari verðlaunasam-
keppni hleypt af stokkunum. Einnig
er litið á samkeppnina sem skref í
áframhaldandi þróun Skólatorgsins
en allir skólar og bekkjarkennarar
sem nota vefútgáfukerfi Skólatorgs-
ins eiga þess kost að taka þátt í
keppninni.
Allir þátttakendur í verðlauna-
samkeppninni þurfa að skrá vefi
sína í samkeppnina á þjónustuvef
Skólatorgsins, skolatorg.is. Skrán-
ingin hefst 1. febrúar og stendur til
1. apríl. Æskilegt er að skrá vef
þátttökuskóla eða bekkjar sem fyrst
því dregnir verða út nokkrir glaðn-
ingar á skráningartímabilinu, 20.
febrúar, 10. mars og 1. apríl, og því
eiga þeir sem skrá sig snemma
meiri möguleika á vinningi. Eftir að
skráningu lýkur 1. apríl gefst vef-
farendum færi á að greiða atkvæði
um besta skóla- og bekkjarvefinn á
Skólatorginu. Niðurstaða þeirrar
kosningar verður höfð til hliðsjónar
við vinnu dómnefndar sem gengur
frá endanlegu vali á bestu skóla- og
bekkjarvefjunum og tilkynnir úrslit
í upphafi næsta skólaárs. Í dóm-
nefndinni eru Jónína Bjartmarz,
formaður landsamtakanna Heimili
og skóla, sem er formaður, Jóna
Pálsdóttir, sérfræðingur í þróunar-
deild menntamálaráðuneytisins, og
Gunnar Salvarsson, kynningarstjóri
Tæknivals. Nánari upplýsingar um
keppnina er að finna á heimasíðu
Skólatorgins.
Samkeppni um bestu
vefi Skólatorgsins
INNLENT