Morgunblaðið - 30.01.2001, Side 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 57
FUNDUR þingflokks og varaþing-
manna Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, Reykjavík, hefur
sent frá sér eftirfarandi ályktun:
„Fundur þingflokks og varaþing-
manna Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs lýsir þungum
áhyggjum vegna þess álitshnekkis
sem æðstu valdastofnanir landsins
hafa orðið fyrir í tengslum við ör-
yrkjamálið svonefnda.
Framganga ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar og framkoma við öryrkja
hefur enn dýpkað gjána milli núver-
andi handhafa framkvæmdavaldsins
og almennings í landinu.
Virðing Alþingis hefur síður en svo
vaxið eins og ríkisstjórnin og meiri-
hluti hennar hafa haldið á málum
gagnvart þinginu.
Hæstiréttur landsins hefur þó
greitt sjálfum sér, sjálfstæði sínu og
virðingu, þyngsta höggið með hinu
einstæða bréfi forseta réttarins. Þótt
bréfið breyti engu um hið umdeilda
frumvarp ríkisstjórnarinnar, sem nú
er illu heilli orðið að lögum, er bréfleg
íhlutun Hæstaréttar í meðferð um-
deilds lagafrumvarps á lokastigi um-
fjöllunar þess á Alþingi svo alvarleg-
ur hlutur að óhjákvæmilegt er að
bregðast við því. Vandséð er hvernig
Hæstiréttur getur endurheimt virð-
ingu og traust eftir það sem á undan
er gengið að óbreyttri skipan og for-
ystu.
Þingmenn og varaþingmenn
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs hafa á fundi sínum í dag
rætt með hvaða hætti megi bregðast
við og efla á nýjan leik traust almenn-
ings á stjórnskipun og æðstu stofn-
unum. Ekki síst er brýnt að tryggja
sjálfstæði og hlutleysi dómstóla, að
eingöngu fagleg sjónarmið ráði skip-
an dómara og að aðgreining fram-
kvæmdavalds, löggjafarvalds og
dómsvalds sé virt. Fundurinn ákvað
að þingflokkur Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs myndi á fyrsta
þingfundi eftir yfirstandandi
fundahlé leggja fram tvö þingmál
þessu tengd.
Tillögu til þingsályktunar um at-
hugun á því að stofna hér á landi
stjórnlagadómstól eða stjórnlagaráð.
Frumvarp til laga um að tillögur
dómsmálaráðherra um skipan
hæstaréttardómara skuli bera undir
Alþingi. Þar skulu þær hljóta stuðn-
ing minnst tveggja þriðju hluta þing-
manna til að ná fram að ganga.“
VG segir æðstu
valdastofnanir hafa
orðið fyrir álitshnekki
NÝR skyndibitastaður, Hjá Trulla,
var opnaður á Selfossi á miðviku-
dag 24. janúar á Tryggvagötu 8.
Eigendur staðarins eru Sigurjón
Ólafsson matreiðslumaður og Lára
Traustadóttir. Staðurinn er inn-
réttaður í eldra húsi þar sem eig-
endurnir áforma að opna stærri
veitingastað með vorinu undir heit-
inu Laufás, eftir húsi sem bar það
nafn og stóð aftan við núverandi
hús. Hjá Trulla rúmar 19 manns í
sæti á háum stólum og þar er gest-
um boðið upp á úrval af skyndibita-
fæði, hamborgurum, samlokum og
síðar meir stærri réttum, en
skyndibitastaðurinn og veitinga-
staðurinn við hliðina munu nýta
sama eldhúsið sem innréttað er inn
af veitingastöðunum. „Skyndibita-
staðurinn er byrjunin en síðan
munum við höfða til sem flestra
varðandi framboð á veitingum,“
sagði Sigurjón Ólafsson mat-
reiðslumaður. Hjá Trulla verður
opinn klukkan 11-22 alla daga.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
Erla Dan Jónsdóttir starfsmaður, Sigurjón Ólafsson og Lára Trausta-
dóttir, eigendur hins nýja skyndibitastaðar Hjá Trulla.
Nýr skyndibitastaður
opnaður á Selfossi
Selfossi. Morgunblaðið.
Á STJÓRNARFUNDI Landssam-
bands kúabænda, sem haldinn var
sl. laugardag, 27. janúar, var eft-
irfarandi samþykkt gerð: „Stjórn
Landssambands kúabænda hefur
ákveðið að boða til fulltrúafundar í
samræmi við ákvæði 6. greinar
samþykkta Landssambands kúa-
bænda. Meginefni fundarins verður
staða og framvinda NRF-verkefn-
isins. Fundurinn hefst í Súlnasal
Hótel Sögu kl. 11, þriðjudaginn 6.
febrúar næstkomandi. Gert er ráð
fyrir að fundinum ljúki síðdegis
sama dag.“
Kúabændur
halda full-
trúafund
Fræðslufundur
um jóga á
meðgöngu
FÉLAG áhugafólks um heimafæð-
ingar heldur fræðslufund miðviku-
daginn 31. janúar kl. 20 í menningar-
miðstöðinni Gerðuberg.
Á dagskrá verður kynning á starfi
félagsins. Auður Bjarnadóttir jóga-
kennari mun ræða um jóga á með-
göngu og í fæðingu. Á fundinum
gefst tækifæri til að koma með fyr-
irspurnir um heimafæðingar og ný-
útkominn bæklingur félagsins um
heimafæðingar mun liggja frammi.
Allir áhugasamir velkomnir.
Námskeið
fyrir börn
og foreldra
NÁMSKEIÐIÐ Börn eru líka
fólk verður í Foreldrahúsinu
að Vonarstræti 4.b í byrjun
febrúar.
Námskeiðið er ætlað börn-
um 6-12 ára og foreldrum
þeirra.
Unnið er með foreldrana og
börnin hvor í sínu lagi. Er það
ætlað fyrir börn sem hafa bú-
ið við ofvirkni, athyglisbrest,
alkóhólisma, fíknisjúkdóma
og geðrænvandamál eða óör-
yggi af ýmsum toga innan
fjölskyldu sinnar. „Hópnum
er ekki ætlað að fást við
heimilislíf barnanna eða tak-
ast á við vandamál foreldra
þeirra. Börnunum er kennt að
vandamálin eru ekki þeim að
kenna, að þau geta ekki
breytt aðstæðum eða bætt
þær, þau geta lært að takast
á við þær á uppbyggilegan
hátt og kosið sér jákvætt
hlutverk,“ segir í fréttati-
kynningu.
Skráning og allar nánari
upplýsingar eru í Foreldra-
húsinu.
ForeldrahúsiðFundur um
nágranna-
vörslu í
Hafnarfirði
FUNDUR á vegum Hverfafélags
Setbergs og Mosahlíðar um ná-
grannavörslu verður haldinn þriðju-
daginn 30. janúar í Setbergsskóla
kl. 20.30. Hverfafélagið hefur áður
látið útbúa bæklinga um málið og
dreift í hús en nú verða jafnframt
sett upp götuskilti, í samráði við
Hafnarfjarðarbæ, til að vekja at-
hygli á málinu.
Þetta er hluti af því að gera íbúa
hverfisins sér meðvitandi um þær
forvarnir sem felast í samstöðu og
reyna þannig að gera Setbergs og
Mosahlíð að eins öruggu íbúðar-
hverfi og framast er unnt, segir í
fréttatilkyningu. Á fundinum mun
Hverfafélagið kynna átakið, fyrr-
greindur bæklingur mun liggja
frammi, götuskiltið verður kynnt
auk þess sem gestir sækja fundinn.
Meðal þeirra verða Magnús Gunn-
arsson bæjarstjóri en að auki verða
þarna fulltrúar tryggingafélaga,
lögreglunnar og öryggisþjónustu-
fyrirtækja sem munu kynna for-
varnir gegn innbrotsþjófum, stöðu
mála í hverfinu og sýna þá þjónustu
sem í boði er. Áætlað er að fund-
urinn standi til kl. 22 en kaffi verður
á staðnum.
S
p
a
ce
-s
a
v
e
r
Þrektækjadeild
Skeifunni 11, S ími 588 9890
STOFNAÐ 1925
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali
landsins af þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
515
T A K T U Á M E Ð 515
Bjóðum aðeins gæðatæki frá heimsþekktum framleiðendum og fullkomna varahluta- og viðgerðaþjónustuVisa- og Euro raðgreiðslur
kr. 136.163.-
Stgr. 129.355,-
Rafdrifin göngu/hlaupabraut
Hraði 0-13 km/klst. Fjaðrandi bretti sem
minnkar álag á liðamót. Vandaður tölvumælir
sem sýnir: Hraða, tíma, vegalengd, púls og
kaloríubrennslu. Hægt að leggja saman
og hæðarstilla.
Stærð: L.154 x Br.66 x H.128 cm
K
O
R
T
E
R
♦ ♦ ♦
www.mbl.is