Morgunblaðið - 30.01.2001, Síða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Í DESEMBER síðastliðnum birtist
eftir mig í Morgunblaðinu lítill pistill
þar sem ég kom með margar órök-
studdar en þó sannar fullyrðingar
um ávirðingar kristinnar kirkju fyrr
og síðar.
Fimmtudaginn 4. janúar birtist
síðan í sama blaði tilraun Jóns Vals
Jenssonar guðfræðings til að hrekja
þrjár þessara fullyrðinga sem hann
kallar bábiljur. Bábilja þýðir skv.
Orðabókinni: 1 Hjátrú, hindurvitni,
hégilja 2 bull. Varla getur talist eðli-
legt að nota þetta orð um staðreynd-
ir, þó manni líki þær ekki. Þessi þrjú
atriði eru ekki að mínum dómi aðal-
atriði greinar minnar. Þeim lætur
Jón ósvarað.
1. Það er ekki mín hugmynd né
vitnar neitt um minn hugsunarhátt
eða innræti að Ágústínus hafi verið
hórkarl. Ágústínus skrifaði sjálfur
þrettán binda verk þar sem fram
kom að hann var það að eigin dómi.
Ég er reyndar sjálfur í óvígðri sam-
búð og ólst upp í slíkri sambúð. Það
er rangt að „...engum presti hefur
dottið í hug að kalla lausaleiksbarn-
eign hórdóm...“. Um það vitnar yf-
irbótarganga kirkjunnar manna á
Þingvöllum síðasta sumar. Engin
fordæming var í minni grein í garð
Jóns Loftssonar eða Snorra Sturlu-
sonar.
2. Margir dýfðu penna í blek í fjör-
ugum ritdeilum um túlkun sköpun-
arsögunnar á fyrstu öldum kristn-
innar. Flestir voru á öðru máli en
Ágústínus en hans túlkun varð samt
ofan á þar sem hún hentaði betur
sem kúgunartól á konur og þræla
Rómarveldis. Um þetta geta þeir
sem vilja lesið meira í bók hins
kunna kvennaguðfræðings Elaine
Pagels, Adam, Eve and the Serpent.
3. Það er rétt að kristnir menn
stofnuðu marga háskóla á 12. og 13.
öld. Það breytir hinsvegar ekki því
að á 5. öld lögðu þeir niður síðasta
háskólann sem byggðist á grísku
hefðinni. Þá voru þeir líka mjög
atorkusamir við bókabrennur. Á
þriðju öld brenndi kristinn múgur
bókasafnið í Alexandríu sem þá var
stærsta bókasafn í heimi. Þessu
neita sumir, alveg einsog sumir neita
því að helförin hafi átt sér stað. Þó
áreiðanlega hafi logað glatt í skrauf-
þurrum skræðunum, er þetta einn
þeirra atburða sem gera miðaldirnar
myrkar. Það er líka ástæðulaust að
gleyma háskólunum sem Márar
stofnuðu í Andalúsíu löngu á undan
fyrsta kristna háskólanum. Það var
hjá hinum víðsýnu aröbum sem
kristnir „fundu“ Aristóteles. Arab-
arnir týndu honum aldrei. Síðan hef-
ur ýmislegt fundist sem gætnum
mönnum hefur tekist að bjarga frá
hreinsunareldi kristninnar. Sífellt
kemur betur í ljós hve gífurlega
vinnu kristnir menn hafa lagt í að
falsa söguna, hafa áhif á hana á verri
veg og almennt láta illt af sér leiða.
Sjálf tilvist kirkjunnar sannar að
guð er ekki til, eða er a.m.k. ekki
góður, því góður guð myndi ekki líða
öll þessi illvirki í sínu nafni.
Í grein sinni hefur hinn prestlærði
maður, sem að eigin sögn hefur
gráður frá innlendum og erlendum
háskólum, ýmis orð um persónulega
eiginleika mína. Þar sem við þekkj-
umst ekkert, lýsa þau fyrst og
fremst hugarástandi og hugsunar-
hætti hans þegar hann skrifaði gein-
ina.
Enn með ólund.
FLOSI GUÐMUNDSSON
rafeindavirki,
Stóragerði 11, Reykjavík.
Víst voru
þær myrkar
Frá Flosa Guðmundssyni:
Á UNDANFÖRNUM tíu árum hafa
80 Bretar látist úr þeirri mynd af
Creutzfeldt-Jacob sjúkdómi sem
tengd er kúariðu. Á sama tíma hafa
20.000 Bretar farist í umferðarslysum
og liðlega ein milljón dáið af völdum
reykinga.
Miðað við fólksfjölda samsvarar
þetta því að einn Íslendingur félli frá
á 30 ára fresti vegna kúariðusmits. Á
degi hverjum deyr einn Íslendingur
af völdum reykinga. Það samsvarar
meira en 10.000 manns á 30 árum. Á
Íslandi geisar skæður faraldur reyk-
ingasjúkdóma.
Margir stjórnmálamenn hafa barið
sér á brjóst og blásið sig út vegna inn-
flutnings á nautalundum frá Írlandi.
Sumir þeirra vilja banna aðgang þjóð-
arinnar að ódýrum og góðum erlend-
um matvælum af umhyggu fyrir
heilsufari landsmanna. Af sömu
ástæðu hljóta þeir að velta því fyrir
sér oft á dag hvernig koma megi í veg
fyrir að ungt fólk byrji að reykja.
Hér skal þeim bent á eina leið sem
farin hefur verið vestanhafs: Bannað
er að selja tóbak hverjum þeim sem
lítur út fyrir að vera undir þrítugu án
framvísunar persónuskilríkja. Við
þetta má bæta sjálfsögðum ákvæðum
sem banni að börn selji tóbak, hvort
sem er í verslunum eða sjoppum.
HALLDÓR JÓNSSON
Álfaheiði 16, Kópavogi
Kúariða sett
í samhengi
Frá Halldóri Jónssyni: