Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 30.01.2001, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 63 DAGBÓK Fermingarmyndatökur Vertu ekki of sein að panta fermingarmyndatökuna í vor. Nokkrir dagar þegar upppantaðir. Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207 Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020 PARASVEITAKEPPNI Bridssambands Íslands fór fram um síðustu helgi með þátttöku 24 sveita. Þetta mót nýtur mikilla vin- sælda, eins og góð þátt- taka ber vitni um. Spilaðar voru 7 umferðir af 16 spila leikjum og raðað eftir Monrad-kerfi, þannig að efstu sveitir spiluðu alltaf innbyrðis. Sveit Ljósbrár Baldursdóttur vann með nokkrum yfirburðum, hlaut 148 stig, eða 21.14 að meðaltali úr leik. Makker Ljósbrár var Ásmundur Pálsson, en með þeim spiluðu Esther Jakobs- dóttir og Sverrir Ár- mannsson. Þau Esther og Sverrir urðu efst í svoköll- uðum fjölsveitaútreikningi, skoruðu 1.14 IMPa að meðaltali í spili. Þrjár sveitir voru jafnar í öðru til fjórða sæti: Ritarar og smiðir, Anna Ívarsdóttir og Jacqui McGreal, allar með 127 stig. Vestur gefur; NS á hættu. Norður ♠ ÁKD ♥ ÁK6432 ♦ Á8 ♣ D7 Vestur Austur ♠ 83 ♠ 10752 ♥ D975 ♥ G ♦ G1075 ♦ 9432 ♣832 ♣G654 Suður ♠ G962 ♥ 108 ♦ KD9 ♣ÁK109 Hér er spil úr fjórðu umferð, þar sem sigur- sveitin vann 20 IMPa á al- slemmusveiflu: Vestur Norður Austur Suður – Ásmundur – Ljósbrá Pass 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 4 tíglar Pass 5 lauf Pass 5 tíglar Pass 6 spaðar Pass 7 spaðar Allir pass Á hinu borðinu höfðu NS sagt 7 hjörtu og farið tvo niður, en Ásmundur og Ljósbrá komst í bestu al- slemmuna, sjö spaða. Ljósbrá fékk út lauf, svo hún þurfti ekki að hafa mikið fyrir spilinu. Eitt annað par spilaði og vann sjö grönd, annaðhvort með laufútspili eða með svín- ingu fyrir gosann. Sjö spaðar eru þó betri en gröndin, því ef trompið fellur 3–3 má reyna að frí- spila hjartað með trompun áður en laufið er prófað. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson STAÐAN kom upp á Corus- ofurskákmótinu í Wijk aan Zee í Hollandi sem lauk fyr- ir stuttu. Rússinn Alexand- er Morozevich (2745) hafði hvítt gegn heimamanninum og gömlu kempunni Jan Timman (2629). Bóheminn mikli frá Niðurlöndum hafði haft yfirburðastöðu lengst af en gaf andstæðingi sínum nú tækifæri til að bjarga sér fyrir horn. 42. Dxg8+! Kxg8 43. He8+ Kg7 44. Rh5+ gxh5 45. Hxf3 Hxb6 45...Hxf3 hefði leitt svartan í ógöngur þar sem eftir 46. bxa7 sæti hann uppi með tapað tafl. 46. He7 Hf6 47. Hh3 Hgf4 48. Hh2 a6 49. He8 H4f5 50. Hg2+ Kh7 51. Hc8 h4 52. Kg1 h3 53. Hgg8 h2+ 54. Kxh2 Hxf2+ 55. Hg2 og hvítum tókst um síðir að halda jafntefli. Lok- astaða mótsins varð þessi: 1. Garry Kasparov 9 vinningar af 13 mögulegum. 2. Visw- anathan Anand 8½ v. 3.–4. Vladimir Kramnik og Vas- sili Ivanchuk 8 v. 5.–7. Alex- ei Shirov, Alexander Mo- rozevich og Michael Adams 7½ v. 8. Peter Leko 6½ v. 9. Veselin Topalov 5½ v. 10.– 11. Loek Van Wely og Alex- ei Fedorov 5 v. 12.–13. Ser- gei Tiviakov og Jeroen Piket 4½ v. 14. Jan Timman 4 v. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik Árnað heilla STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú átt auðvelt með að fá aðra á þitt band en þótt fólk vilji fylgja þér áttu oft erfitt með að eignast nána vini. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fljótfærnislegar ákvarðanir geta valdið erfiðleikum svo þú skalt fara þér hægt og kynna þér alla málavexti áður en þú framkvæmir nokkuð. Naut (20. apríl - 20. maí)  Reyndu að fá sem mest út úr þeim tíma sem þú átt með vin- um og vandamönnum. Nú hafa persónulegu málin for- gang og krefjast athygli þinn- ar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er alltaf gott að eiga hauk í horni, sérstaklega þegar erf- iðleikar steðja að því betur sjá augu en auga og margar hendur vinna létt verk. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Það vilja allir hlaða á þig ábyrgð en þú þarft að gera þér grein fyrir því hvar mörk- in liggja og aðeins taka það að þér sem þú vilt og getur sinnt. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Það er miklu auðveldara að starfa í vingjarnlegu and- rúmslofti og þess vegna verð- ur þú að leggja þitt af mörkum eins og aðrir. Vertu sveigjan- legur og gamansamur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Einhver á vinnustað þínum er með nefið niðri í þínum per- sónulegu málefnum og þú ert efins um tilgang hans. Hlýddu eðlisávísun þinni í þeim efn- um. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Vertu varkár í fyrstu kynnum því yfirborðið blekkir oft og því er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig þegar um ókunnugt fólk er að ræða. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sá sem nú fer mest í taugarn- ar á þér veit hreinlega ekkert af því. Gerðu honum grein fyr- ir málavöxtum af fullri einurð en líka tillitssemi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þótt þú viljir innst inni ekkert að aðrir séu að halda upp á þín afrek skaltu nú brjóta odd af oflæti þínu og leyfa samstarfs- mönnunum að fagna með þér. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Óþolinmæði er aðeins til bölv- unar og þess vegna skalt þú leggja kapp á að halda ró þinni, sérstaklega þegar á bjátar og þú sérð enga leið út úr ógöngunum. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Fæst orð hafa minnsta ábyrgð og þú mundir seint fyrirgefa sjálfum þér ef þú yrðir til þess að ljóstra upp viðkvæmu leyndarmáli. Tillitssemi er lykilorðið. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt aðrir geti talað hraðar en þú því oft er það svo að þeir gaspra mest sem minnst hafa að segja. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 80 ÁRA afmæli. Átt-ræður er í dag, þriðjudaginn 30. janúar, Jó- hann Hjartarson, húsa- og mublusmíðameistari, Sól- heimum 20, Reykjavík. Eig- inkona hans er Sigríður Jónsdóttir frá Vatnsnesi. Þau eru stödd á Hótel Green Field á Gran Canaria á Kan- aríeyjum S. (00) 928-774030, fax. (00) 928-774032. Ljósmynd/Sissa BRÚÐKAUP. Gef- in voru saman 8. júlí sl. í Hallgríms- kirkju af sr. Sig- urði Þór Sigurðs- syni Ása Ólafs- dóttir og Þórir Sigurðsson. Ljósmynd/Sissa BRÚÐKAUP. Gef- in voru saman 22. júlí sl. í Háteigs- kirkju af sr. Krist- ínu Þórunni Tóm- asdóttur. Gerður Eva Guðmunds- dóttir og Frosti Heimisson. LJÓÐABROT Heimurinn og ég Þess minnist ég, að mér og þessum heimi kom misjafnlega saman fyrr á dögum. Og beggja mál var blandið seyrnum keimi, því báðir vissu margt af annars högum. Svo henti lítið atvik einu sinni, sem okkur, þessa gömlu fjandmenn, sætti að ljóshært barn, sem lék í návist minni, var leitt á brott með voveiflegum hætti. Það hafði veikum veitt mér blessun sína og von, sem gerði fátækt mína ríka. Og þetta barn, sem átti ástúð mína, var einnig heimsins barn – og von hans líka. Og við, sem áður fyrr með grimmd í geði, gerðum hvor öðrum tjón og falli spáðum, sáum það loks í ljósi þess, sem skeði, að lífið var á móti okkur báðum. Nú ölum við ei lengur beiskju í barmi né byrgjum kala neinn í hjörtum inni, því ólán mitt er brot af heimsins harmi og heimsins ólán býr í þjáning minni. Steinn Steinarr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.