Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 65

Morgunblaðið - 30.01.2001, Page 65
ÞEGAR Maria Callas komfyrst fram á sjónarsviðið,dró hún að sér athygli allsheimsins með furðulegu aðdráttarafli einstakrar framkomu og sérstakrar raddar. Dulúð skap- aðist og umvafði þessa einstöku prímadonnu sem margir telja mestu óperusöngkonu frá upphafi – kon- una sem varð goðsögn þegar í lif- anda lífi – konuna sem ræður ríkj- um í ímynd almennings á óperuheiminum – konunnar sem hristi upp í hefðbundnu áliti manna á óperulistinni. Nærföt til sölu Goðsagnarinnar Maríu Callas var óbeint minnst nýlega, 23 árum eftir dauða hennar, þegar uppboð á eign- um hennar fór fram í París. Hús- gögn, skartgripir og ýmsar flíkur voru til sölu og komu aðallega frá tveimur söfnurum, aðdáendum söngkonunnar. Hárlokkur úr Maríu, sem fór á um milljón krónur, var á meðal 417 minjagripa sem seldust fyrir rúmar 100 milljónir króna. Uppboðið var haldið í beinni út- sendingu á Netinu og aðdáendur um víða veröld tóku þátt í því auk þess sem Drouot-Montaigne uppboðs- húsið á Champs-Elysees var troð- fullt. Uppboðið hófst laugardaginn 2. desember sem margir segja af- mælisdag prímadonnunnar, aðrir segja hana fædda hinn þriðja eða fjórða. Allavegana fæddist Maria Anna Sophia Cecilia Kalogero- poulou í New York árið 1923 og var dóttir grískra innflytjenda sem höfðu viljað son og gleymdu því að skrá dótturina. Eftir skilnað for- eldranna flutti María aftur til Grikk- lands ásamt mömmu sinni þar sem litli ljóti andarunginn varð að svani. „Hvað er rödd? Ég er kona og það er það sem skiptir máli,“ sagði María. Sextán ára kom hún fyrst fram í tónlistarháskólanum í Aþenu og lagði þar með grunninn að einum undraverðasta frama sem um getur í óperuheiminum. Hún fluttist aftur til New York árið 1945 en hún náði ekki frama fyrr en hún kom fram á Ítalíu. Þá skaust hún upp á stjörnu- himininn og var sífellt beðin um að syngja hjá stærstu óperuhúsum heims. Þybbna unglingsstúlkan varð að grannri prímadonnu og þvílíkri tískudrottningu að á sjötta áratugn- um dró hún að sér fleiri blaðamenn en sjálf Elizabeth Taylor. Á ferl- inum báðu áhrifamestu tískuhönn- uðir heimsins, m.a Yves-Saint Laur- ent og Chanel, Maríu um að klæðast hönnun sinni. Sægrænt Christian Dior maga- belti var á meðal fjölda persónu- legra hluta og nærklæða sem safn- ararnir tveir seldu á uppboðinu, en gríska María Callas stofnunin keypti þrettán nærklæði söngkon- unnar sem forsvarsmenn hennar segist munu brenna í virðingarskyni við minningu söngkonunnar. Pían- istinn Robert Sutherland, sem spil- aði undir hjá Maríu í fimm ár, segist mjög sorgmæddur yfir að sjá svo persónulega hluti vinkonu sinnar til sölu. Óhemjuskapur og varnarleysi Ástir Maríu og ofsafengin sam- bönd hennar við karlmennina í lífi hennar komu best fram í furðulegu samblandi óhemjuskaps og varn- arleysis sem hún opinberaði í túlk- unum sínum. Tilfinningar hennar á sviði voru svo hráar og einlægar að mörgum áhorfendum hreinlega leið illa af því að sjá hana um leið og rödd hennar smaug inn í sál þeirra og bergmálaði þar. Fyrsti maðurinn í lífi hennar var Giovanni Battista Meneghini, far- sæll iðnrekandi, mun eldri en María. Hann féll fyrir hinni ungu, óþekktu söngkonu og þau giftust árið 1949. Giovanni dýrkaði Maríu og hún blómstraði í sambandinu. Hann gaf henni m.a heillagripinn hennar, málverk af hinni heilögu fjölskyldu, árið 1947, daginn áður en hún söng í fyrsta sinn í óperunni í Veróna. Hún geymdi það ætíð í búningsherberg- inu sínu á meðan á sýningunum stóð og á seinni árum neitaði hún að syngja ef málverkið var ekki til staðar, og eitt sinn lét hún sækja það með einkaþotu til Mílanó áður en hún steig á svið í Vín. Málverkið seldist fyrir rúmar 10 milljónir á uppboðinu. Þrátt fyrir mikinn aldursmun var samband þeirra hjóna mjög gott í tíu ár þar til María féll kylliflöt fyrir gríska skipakónginum Aristoteles Onassis. Callas og Onassis helltu sér út í mjög áberandi ástarsamband frá sumrinu 1959, þegar María og Giovanni voru gestir á lystisnekkju Aristotelesar. María varð sárlega ástfangin af Grikkjanum heillandi og þau voru brátt álitin hið full- komna glamúrpar. Þrátt fyrir tvímælalausa ást á Maríu fann Aristóteles þörf hjá sér til að viðhalda orðspori sínu sem safnari frægra kvenna, og giftist Jackie Kennedy, fyrrverandi for- setafrú Bandaríkjanna, án þess að láta Maríu vita. Niðurlægð og auð- mýkt hörfaði María inn í sig og varð að raunverulegum einbúa í íbúð sinni í París þar sem hún dó úr hjartaáfalli 16. september 1977, að- eins 54 ára. Hjartað brást hinni miklu dramadrottningu, og vinir hennar segja hana hafa dáið úr ást- arsorg. „Rétt áður en hún dó var hún mjög sorgmædd... Eftir dauða Aristótelesar fann hún enga ástæðu hjá sér til að lifa lengur,“ segir Sutherland undirleikarinn hennar. María skildi eftir sig aragrúa ein- lægra aðdáenda, sem kallaðir eru „Ekkjur Callas“ og rúmlega 700 þeirra pöntuðu sæti á uppboðinu umtalaða. Dramadrottningin mikla í einu uppáhaldshlutverkinu sínu, Madame Butterfly.Nýlega var gefinn út diskur með þeim aríum Maríu sem mest hafa hljómað í kvikmyndum og sjónvarpi. Tískudrottningin Callas vildi líkjast Audrey Hepburn. rödd? Hvað er Ég er kona! FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2001 65 VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 4543-3700-0034-8865 4507-4100-0006-6325 4548-9000-0056-2480 4543-3700-0027-8278 4507-4500-0028-0625 4507-2800-0004-9377                                  !  "# "$% & '    ()( )$$$

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.