Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 15.02.2001, Qupperneq 1
38. TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 15. FEBRÚAR 2001 GEORGE W. Bush Bandaríkjafor- seti fordæmdi í gær harðlega stigvax- andi ofbeldi í Mið-Austurlöndum og hvatti Ísraela og Palestínumenn til að slíðra sverðin. Átta Ísraelar létust, sjö hermenn og einn óbreyttur borg- ari, og 21 særðist, þar af þrír lífs- hættulega, þegar palestínskur öku- maður ók á strætisvagnabiðstöð í bænum Azur, sunnan Tel Aviv, í gær- morgun. Bush sagðist hafa hringt í Ehud Barak, starfandi forsætisráð- herra Ísraels, og vottað honum sam- úð sína vegna málsins. Þá hringdi Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Yasser Arafat, leið- toga Palestínumanna, og hvatti hann til að reyna að stilla til friðar. Árásin í gær er sú mannskæðasta á Ísraela í fjögur ár. „Ég sá látið fólk með opin sár á handleggjum, höfði og fótleggjum. Það var hræðilegt,“ sagði vitni að slysinu í Azur. Ökumaðurinn, Khalil Abu Olbeh, sem leiðtogar Pal- estínumanna segja að hafi með árás- inni verið að bregðast við ofbeldi Ísraela undanfarið, flúði af vettvangi eftir að hafa ekið á fullri ferð inn í hóp Ísraela. Hann náðist nokkrum kíló- metrum frá slysstað eftir að lögregl- an hófu skothríð með þeim afleiðing- um að hann ók á vörubíl. Olbeh, 35 ára, fimm barna faðir, særðist illa og var fótleggur fjarlægður af honum. Atvikið „eðlileg viðbrögð“ við ofbeldi Ísraelska útvarpið fékk í gær upp- hringingu frá manni sem sagði Ham- as-samtökin bera ábyrgð á verkinu. Að sögn fjölskyldu mannsins, sem vann fyrir ísraelskt rútufyrirtæki við keyrslu á Palestínumönnum frá Gaza-svæðinu til vinnu í Ísrael, var hann ekki í neinum tengslum við Hamas. Að sögn bróður hans, Huss- ein, hafði hann tekið dráp ísraelskra hermanna á palestínskum börnum mjög nærri sér. „Atvikið í gær voru eðlileg viðbrögð.“ Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna, sagði að árásin væri svar við stigvaxandi hernaðaraðgerðum af hálfu ísraelska hersins „sem hafa bein áhrif á tilfinningar allra Palest- ínumanna“. Síðar í gær sagðist hann vera á móti öllu ofbeldi. Starfandi forsætisráðherra Ísra- els, Ehud Barak, sagði árásina við- bjóðslega. Ísraelar lokuðu Vestur- bakkanum og Gaza-svæðinu í kjölfar hennar. Ariel Sharon, væntanlegur for- sætisráðherra Ísraels, sagði að hert öryggisgæsla í Ísrael yrði forgangs- verkefni undir stjórn hans. Ekki hafa fleiri Ísraelar látist í árás Palestínumanna síðan 1997. Þetta er einnig mannskæðasta árás síðan átökin milli Ísraela og Palest- ínumanna brutust út í septemberlok. Um 400 manns hafa látist í þeim, þar af 330 Palestínumenn. Undanfarna daga hefur ofbeldi heldur aukist og talsmaður Hamas, Ismail Abu Shan- ab, var loðinn í svörum þegar hann var spurður að því hvort Hamas bæri ábyrgð á ódæðinu. Palestínskur ökumaður ók rútu á hóp Ísraela Bush fordæmir árásina harðlega Azur. AP, AFP. AP Sjálfboðaliðar úr röðum rétttrúaðra gyðinga mættu til að hreinsa til á slysstað í gær. FRAMFARAFLOKKURINN tapar fylgi í nýrri skoðanakönnun sem birt var í gær en var gerð áður en afleiðingar ásakana um kynferðislegt ofbeldi skullu á flokknum af fullum krafti. Lars Kristian Helming, meðlimur í Framfaraflokknum, sagði í gær að hann myndi gefa lögreglunni í Bergen upp- lýsingar um nöfn níu manns sem hafa verið beittir kynferðislegu ofbeldi innan flokksins. Um er að ræða sjö konur og tvo karlmenn, en áður höfðu komið fram sautján ára stúlka sem segir Terje Sø- viknes, fv. varaformann flokksins, hafa nauðgað sér og 21 árs kona, Cathrin Rustøen, sem segir ónafn- greindan frammámann í flokknum hafa nauðgað sér. Í fyrsta skipti í marga mánuði mælist stuðningur við Framfaraflokkinn undir 20% en flokkurinn hef- ur sl. hálfa árið mælst annar stærsti flokkur Nor- egs. Verkamannaflokkurinn fer hins vegar yfir 30% í fyrsta sinn síðan sl. haust. Skoðanakönnunin var gerð fyrir Dagbladet og norska ríkisútvarpið, NRK, dagana 9.-12. febrúar. Hneykslismálin hafa því ekki áhrif nema að litlu leyti. Búist við enn meira fylgistapi á næstunni Samt sem áður minnkar fylgi Framfaraflokksins um 1,7% og er búist við að skoðanakannanir sem birtar verða í dag muni sýna enn frekara fylgistap. Hægriflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkur Nor- egs með 17,7% fylgi. Helming var yfirheyrður á lög- reglustöðinni í Bergen í gær. Hann er meðlimur í flokknum og hefur hjálpað þeim sem halda því fram að þeim hafi verið nauðgað eða þeir verið beittir ein- hvers konar kynferðislegu ofbeldi innan flokksins. Hann studdi m.a. Cathrin Rustøen sem greindi frá því á fundi flokksins sl. laugardag að sér hefði verið nauðgað af frammámanni í flokknum. Á þriðjudagskvöld bað formaður Óslóardeildar Framfaraflokksins, Chim Kjølner, um lausn frá skyldustörfum, vegna orðróms um að hann hefði nauðgað Cathrin Rustøen. Kjølner vísar ásökunum á bug. Maður í norska Framfaraflokknum nafngreinir níu fórnarlömb til viðbótar Flokkurinn tapar fylgi Ósló. Morgunblaðið. „ÉG er mikill aðdáandi hennar, hún á skilið athygli, ekki satt?“ var svar ungs Hollendings við spurningunnni hvers vegna hann hefði nefnt tölvuvírus eftir rússnesku tennisstjörnunni Önnu Kournikovu. Hollending- urinn sem handtekinn var í gær vissi að sögn lögreglu ekki hvað hann var að gera þegar hann setti vírusinn af stað til milljóna tölvunotenda um heim all- an. Yfirvöld leystu mann- inn úr haldi þegar í gær og sögðu brotið ekki þess eðlis að þau hefðu heimild til að halda honum lengur. Sak- sóknari mun ákveða síðar hvort hann verður sektaður eða lát- inn sæta fangavist. Maðurinn gæti átt á hættu allt að fjög- urra ára fangavist. Ekki var greint frá nafni hans í gær en hann mun búa í bænum Sneek, 100 km norðaustur af Amst- erdam. Sérstök tölvusveit hollensku lögreglunnar hafði ekki hug- mynd um að sökudólgurinn væri hollenskur en sænska fyr- irtækið Atremo mun hafa kom- ist á slóð hans og greint FBI, bandarísku alríkislögreglunni, frá. Maðurinn gaf sig hins veg- ar sjálfur fram áður en hún greip til aðgerða. „Þegar hann gerði sér grein fyrir því sem hann hafði gert ákvað hann í samráði við foreldra sína að fara til lögreglunnar.“ Margfaldaðist hratt Tennisormurinn, eins og vír- usinn er nefndur, fór að berast milli tölva víðsvegar um heim á mánudagskvöld og þar sem hann margfaldast mjög hratt og sendir sjálfan sig áfram í tölvupósti olli hann sums staðar miklu álagi á tölvupóstkerfi fyr- irtækja með þeim afleiðingum að vefþjónar biluðu eða mjög hægði á tölvupóstsamskiptum. Viðtakendur tölvuormsins fengu tölvupóst sem sagði að þeim hefði borist mynd af rússneska tennisleikaranum Önnu Kournikovu. Þegar reynt var að opna viðhengið til að sjá myndina sendi ormurinn sjálfan sig á öll netföng í netfangaskrá tölvunnar. Ormurinn mun þó einungis hafa getað þetta í tölvupóstforritinu Outlook frá Microsoft. Fákunnandi tölvuþrjótur Gaf sig fram Amsterdam. AP. Anna Kournikova ÞÝSKA stjórnin samþykkti í gær að leggja fram frumvarp um endur- skoðun vinnulöggjafarinnar, sem sniðið er að kröfum verkalýðshreyf- ingarinnar. Atvinnurekendur og efnahagssérfræðingar leggjast ein- dregið gegn frumvarpinu og segja herta vinnulöggjöf vera það síðasta sem Þýskaland þurfi á að halda um þessar mundir. Endurskoðun vinnulöggjafarinn- ar hefur valdið miklum deilum í Þýskalandi undanfarnar vikur. Ágreiningur ríkir milli vinnumála- ráðherrans, Walters Riester, sem var áður verkalýðsforingi, og Werners Müller efnahagsmálaráð- herra, sem vill að frumvarpinu verði breytt til hagsbóta fyrir minni fyrirtæki. Kanslarinn, Ger- hard Schröder, styður sjónarmið Riesters og hefur það vakið upp getgátur um að Müller muni segja af sér. Dregur úr sveigjanleika Núgildandi lög um vinnumál, sem eru frá árinu 1972, kveða á um rétt launþega til að stofna nefndir til að gæta hagsmuna sinna á vinnustað, en til hagsmuna telst allt frá því að tryggja niðurgreiddar máltíðir til eftirlits með samninga- gerð og réttar til að andmæla upp- sögnum. Með endurskoðun laganna verður lágmarksfjöldi þeirra starfs- manna, sem nauðsynlegur er til að gera kröfu um stofnun hagsmuna- nefndar, lækkaður. Fyrirtækjum er einnig gert skylt að gefa starfs- mönnum sínum leyfi til að sækja fundi hagsmunanefnda og nefnd- irnar munu auk þess fá veigameira ráðgjafarhlutverk þegar kemur að uppsögnum. Samtök atvinnurekenda hafa lagst á eitt um að gagnrýna frum- varpið og segja það draga úr mögu- leikum fyrirtækja á að bregðast við sveiflum á mörkuðum og gera minni fyrirtæki tregari til að ráða nýtt starfsfólk. Einnig er óttast að breytingarnar muni draga úr áhuga fjárfesta á þýskum fyrirtækjum. Frumvarp um herta vinnulöggjöf í Þýska- landi veldur deilum Atvinnu- rekend- ur æfir Berlín. AP.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.