Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 9

Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 9 Ljósakrónur Bókahillur Borðstofustólar Íkonar Borðstofusett í úrvali Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977. Útsölulok 40-70% afsláttur Verð áður Verð nú Skyrtur 6.990 3.495 Rúllukr.peysur 6.790 3.395 Vaxjakkar 22.790 11.395 Jakkapeysur 13.690 6.845 Jakkar 28.490 14.245 Kápur 33.990 16.995 Golfjakkar 11.390 3.417 Golfbuxur 7.990 2.397 Mikið úrval af mohairpeysum Kringlunni - Sími 581 2300 Verð áður Verð nú Bómullarpeysur 3.390 1.695 Buxur 5.990 3.800 Buxur 5.990 2.995 Peysur 8.990 4.495 Úlpur 16.990 8.495 Jakkar 22.790 11.395 Leðurjakkar 34.990 24.493 Golfblússur 7.990 2.397 Ullartreflar 2.300 1.150 Á horni Laugavegs og Klapparstígs sími 552 2515 Sígild verslu n Funkis stólar og sófasett í úrvali ÚTSALA Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík , sími 562 2862 Síðasta vika 20% aukaafsláttur Hverfisgötu 78, sími 552 8980 Útsala Síðustu dagar útsölu 40% aukaafsláttur Opið laugardag frá kl. 10-16 STJÓRN Heilbrigðisstofnunarinnar íÍsafjarðarbæ samþykkti sl. mánu- dag að ganga til samninga við Ís- lenska erfðagreiningu um flutning heilsufarsupplýsinga úr sjúkra- skrám í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði. Nokkur ágreiningur var í stjórninni um afgreiðsluna. Magdalena Sigurðardóttir, formað- ur stjórnarinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hún hefði lát- ið bóka að hún vildi fresta afgreiðslu málsins þar til samkomulag lægi fyr- ir á milli Læknafélags Íslands og ÍE. Magdalena sagðist telja mikilvægt að sátt væri á milli lækna og og ÍE um samþykki sjúklinga við flutningi gagna í grunninn en meirihluti stjórnarinnar hefði samþykkt að ganga til samninga við ÍE. Læknaráð lýsti einróma stuðningi við samstarfið Læknaráð Heilbrigðisstofnunar- innar hafði áður lýst einróma stuðn- ingi við samstarfið við ÍE og mun það vera í fyrsta skipti sem læknaráð heilbrigðisstofnunar lýsir sig sam- þykkt slíkum samningum um aðgang að sjúkraskrám til flutnings í gagna- grunninn. Að sögn Magdalenu liggja fyrir drög að samningi sem eru í meginat- riðum sambærileg þeim samningum sem ÍE gerði við níu heilbrigðis- stofnanir í desember sl. Viðræður standa yfir á milli ÍE og fjölda annarra heilbrigðisstofnana. Að sögn Haraldar Flosa Tryggva- sonar, framkvæmdastjóra starf- rækslunefndar gagnagrunnsins, stendur nú yfir önnur samningalotan í framhaldi af þeim samningum sem ÍE gerði í desember sl. Ganga þær viðræður ágætlega og kvaðst Har- aldur gera ráð fyrir að niðurstaða gæti legið fyrir fljótlega en þar er einkum um að ræða stærstan hluta heilsugæslustöðva á landinu. Heilbrigðisstofnunin á Ísafirði ætlar að semja við ÍE Stjórnarformaður vildi bíða samkomulags ÍE og LÍ RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt- að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða að tillögu Val- gerðar Sverrisdóttur iðnaðarráð- herra. Í frumvarpinu er lagt til að iðn- aðarráðherra, í samráði við fjár- málaráðherra og sameigendur ríkis- sjóðs í Orkubúi Vestfjarða, verði falið að undirbúa stofnun hluta- félagsins. Stofna skal félagið eigi síð- ar en 1. júní nk. Þegar hlutafélagið hefur verið stofnað mun stjórn þess undirbúa yfirtöku á rekstri Orkubús Vestfjarða, t.d. með ráðningu fram- kvæmdastjóra, starfsmanna og samningum við Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins um áframhaldandi aðild starfsmanna að lífeyrissjóðn- um. Þegar þessu er lokið getur hlutafélagið yfirtekið starfsemi Orkubús Vestfjarða. Í kjölfar stofnunar hlutafélagsins verða teknar upp viðræður við ein- stök sveitarfélög um kaup ríkisins á hlutum þeirra í Orkubúi Vestfjarða hf. Eignarhluti ríkissjóðs er í dag 40% en eignarhlutir sveitarfélag- anna nema samtals 60% og skiptast þeir í samræmi við íbúatölu hverju sinni. Orkubú Vestfjarða Stefnt að stofn- un hlutafélags fyrir 1. júní DILBERT mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.