Morgunblaðið - 15.02.2001, Page 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu í
gær í að fólki í rústum húsa sem
hrundu í jarðskjálftanum sem reið
yfir austurhluta El Salvador í
fyrradag. Að minnsta kosti 237
manns fórust og 1.695 slösuðust í
skjálftanum og óttast er að dán-
artalan hækki.
„Forgangsverkefni okkar er að
bjarga mannslífum,“ sagði Franc-
isco Flores, forseti El Salvador, í
sjónvarpsávarpi. „Verið er að
bjarga börnum og þeim sem eru
enn grafnir í rústunum og flytja
hina slösuðu á sjúkrahús.“
Flores sagði að allt að helm-
ingur húsanna í bænum San Vin-
cente, um 60 km austan við höf-
uðborgina, hefði hrunið og 70-80%
þriggja nálægra bæja, San Emigd-
io, Guadalupe og Verapaz, hefðu
eyðilagst.
Skjálftinn mældist 6,6 stig á
Richters-kvarða og varð nákvæm-
lega mánuði eftir 7,6 stiga jarð-
skjálfta sem varð rúmlega 800
manns að bana í El Salvador.
Hundraða manna er enn saknað
eftir fyrri skjálftann sem varð til
þess að aurskriða féll á eitt af út-
hverfum höfuðborgarinnar, San
Salvador, og eyðilagði þúsundir
húsa.
Jarðskjálftinn í fyrradag varð
klukkan 8.22 um morguninn að
staðartíma og hundruð manna
grófust undir rústum í héruðunum
La Paz, Cuscatlan og San Vicente,
nálægt höfuðborginni. Að minnsta
kosti 2.200 hús eyðilögðust í þess-
um héruðum.
Fólkið er skelfingu lostið
og margir sofa á götunum
Björgunarsveitir héldu leitinni
áfram í rústum íbúðarhúsa, skóla
og kirkna í fyrrinótt og þjóðvarð-
liðar framfylgdu útgöngubanni
sem sett var til að koma í veg fyrir
gripdeildir.
Margir íbúanna á hamfarasvæð-
unum óttuðust fleiri eftirskjálfta
og sváfu á götunum. Aðrir opnuðu
dyr og glugga á húsunum til að
geta forðað sér ef öflugur skjálfti
riði aftur yfir.
„Börnin hafa ekki enn náð sér af
áfallinu sem þau urðu fyrir í fyrri
skjálftanum og óttast að veggirnir
hrynji í hvert sinn sem þau verða
vör við eftirskjálfta,“ sagði einn
íbúanna.
Að minnsta kosti fimm skóla-
börn og kennari þeirra létu lífið
þegar skóli þeirra jafnaðist við
jörðu í þorpinu Candelaria, nálægt
bænum Cojutepeque, um 30 km
austan við höfuðborgina. Fimmtán
önnur börn í þorpinu grófust undir
braki í skjálftanum.
Meira en 60 eftirskjálftar riðu
yfir svæðið í fyrradag og hundruð
skrifstofumanna hlupu í ofboði út
á göturnar. Loka varð skólum þar
sem nemendurnir voru skelfingu
lostnir vegna skjálftanna.
Jarðskjálftans varð einnig vart í
grannríkjunum Hondúras og
Gvatemala. Fjórir biðu bana í San
Salvador en eignatjónið í borginni
var ekki mikið.
Annar öflugur jarðskjálfti í El Salvador á einum mánuði veldur miklu eigna- og manntjóni
Á þriðja
hundrað
manns
lét lífið
San Salvador. Reuters, AP.
AP
Kona lyftir járnplötu úr þaki skóla sem hrundi í bænum Candelaria í El Salvador í jarðskjálftanum á þriðjudag.
!
#
$ # % $ & ' (
!
" ! !!
#$ %&'
()( ' # !*+',
- +. - +.
/ 0/11 . +
2 / 34/11 .
5'' 5 6
TVEIR óbreyttir borgarar voru
við stjórnvölinn þegar bandaríski
kjarnorkukafbáturinn Greeneville
rakst á og sökkti japönsku skóla-
skipi. Með því fórust níu manns.
Skýrði talsmaður bandaríska sjó-
hersins frá þessu í fyrradag. Hafa
upplýsingarnar vakið reiði í Japan.
Conrad Chun, talsmaður Kyrra-
hafsflotans, sagði, að tveimur
óbreyttum borgurum í hópi 16
gesta um borð hefði verið leyft að
taka þátt í æfingu sem fólst í því
að koma kafbátnum hratt upp á yf-
irborðið. Nefndi hann ekki við
hvaða tæki þeir hefðu verið en
lagði áherslu á, að þeir hefðu verið
í umsjón reyndra manna. Eftir
öðrum, en ónefndum, embættis-
manni í varnarmálaráðuneytinu er
haft, að annar gestanna hafi verið
við sjálf stjórntækin en ekkert
benti þó til, að það hefði átt nokk-
urn þátt í slysinu. Þó telja sumir
ekki það ekki útilokað, að nærvera
gestanna hafi truflað athygli
áhafnarinnar.
Alvarlegt kæruleysi
Þessar upplýsingar hafa vakið
reiði í Japan og japönsk stjórnvöld
hafa lýst yfir sérstökum áhyggjum
sínum vegna þeirra. Segja þau og
talsmenn japanskra sjómanna, að
það sé ótrúlegt, að óbreyttum
borgurum, sem ekkert kunni til
verka, skuli hafa verið leyft að
stjórna kafbátnum og það meira að
segja þegar verið var að æfa bratt
ris samkvæmt neyðaráætlun. Lík-
lega hafi tilgangurinn verið sá að
hrífa gestina en sýni um leið alvar-
legt kæruleysi.
Ryoichi Miya, fyrsti stýrimaður
á japanska skólaskipinu Ehime
Maru, sagði í gær, að áhöfnin hefði
fengið lítinn tíma til að koma sér
frá borði eftir að kafbáturinn hafði
rifið botninn undan því að hluta.
Hefði mikið öngþveiti verið um
borð enda hefði enginn áttað sig á
hvað um var að vera fyrr en skipið
var farið að sökkva.
Bandaríkjamenn hafa verið
hvattir til að ná skólaskipinu upp
en talið er, að lík þeirra níu, sem
saknað er, séu enn um borð. Til að
kanna hvort það er unnt hefur
bandaríski sjóherinn sent á vett-
vang fjarstýrðan smákafbát.
Óánægjan með
Mori vex enn
Hugsanlegt er, að slysið verði til
að fella Yoshiro Mori, forsætisráð-
herra Japans, en framkoma hans í
sambandi við það sætir sívaxandi
gagnrýni. Þykir Mori hafa gerst
sekur um hvert klúðrið á fætur
öðru á forsætisráðherraferli sínum
en að hann skyldi halda áfram
golfleik eftir að hann frétti af slys-
inu sl. laugardag er í margra aug-
um korniðsem fyllir mælinn.
Japanskir fjölmiðlar hafa sagt
frá gagnrýni ýmissa stjórnarþing-
manna á Mori og haft er eftir Mah-
ito Nakajima, flokksbróður Moris,
að það gangi ekki lengur, að for-
sætisráðherrann skuli hneyksla
landa sína næstum vikulega. Sam-
kvæmt skoðanakönnunum eru að-
eins 14% Japana sátt við Mori sem
forsætisráðherra.
Japanir reiðir vegna nýrra upplýsinga um árekstur kafbáts og skólaskips
Tveir gestir um
borð voru við
stjórnvölinn
AP
Bandaríkjamenn ætla að nota fjarstýrt köfunartæki til að kanna hvort
unnt er að ná japanska skólaskipinu upp af hafsbotni. Hér er verið að
setja það um borð í skip í Pearl Harbor.
Washington, Tókýó. AP, AFP.
SERBÍUÞING afnam í gær
þær hömlur sem settar voru á
starfsemi fjölmiðla í valdatíð
Slobodans Milosevic, fyrrver-
andi forseta Júgóslavíu, og til
athugunar er að reka þá dóm-
ara sem þjónuðu undir fyrrver-
andi stjórn. Er litið á það sem
undirbúning undir málshöfðun
gegn Milosevic.
Fjölmiðlalögin, sem sett voru
í október 1998, ollu því, að
óháðir fjölmiðlar, sem gagn-
rýndu stjórn Milosevic, voru
dæmdir til að greiða háar sekt-
ir eða þeim lokað. Nú var sam-
þykkt með 142 atkvæðum gegn
47 að afnema lögin.
Þingið ræddi einnig hugsan-
legan brottrekstur dómara,
sem tóku við beinum fyrirskip-
unum frá stjórn Milosevic, og
fyrir því lá einnig að skipa aftur
í embætti 16 dómara sem voru
reknir í fyrra fyrir að gagnrýna
ósjálfstæði dómskerfisins. Þá
er fyrirhugað að skipa nýja
saksóknara og búa með því í
haginn fyrir réttarhöld yfir Mi-
losevic. Eru sakargiftirnar
stríðsglæpir og spilling.
Hart hefur verið lagt að
Júgóslavíustjórn að framselja
Milosevic stríðsglæpadóm-
stólnum í Haag en hún vill, að
hann verði dæmdur í Serbíu.
Sumir telja þó ekki útilokað, að
hann yrði framseldur að því
búnu.
Fjöl-
miðlalög
Milosevic
afnumin
Belgrad. AP.