Morgunblaðið - 15.02.2001, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIÐ UBS
Warburg, sem er móðurfyrirtæki
PaineWebber, hefur hætt við að fá
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkja-
forseta, til að flytja ræðu á væntan-
legri ráðstefnu um fjárfestingar í
New York. Annð stórfyrirtæki í fjár-
málaheiminum, Morgan Stanley
Dean Witter, bað nýlega viðskipta-
vini sína afsökunar á að hafa greitt
Clinton 100 þúsund dollara, um 8,5
milljónir króna, fyrir að flytja ræðu.
Vaxandi reiði ríkir nú meðal demó-
krata vegna umdeildra náðana for-
setans á síðasta degi valdaskeiðsins í
Hvíta húsinu og annarra hneykslis-
mála sem tengjast fjárreiðum for-
setahjónanna, þ. á m. gjafa sem þau
tóku með sér úr embættisbústaðnum
en hafa nú skilað að einhverju leyti.
Repúblikaninn og öldungadeildar-
þingmaðurinn Arlen Specter segist
efast um að náðanirnar hafi verið lög-
legar og gaf jafnvel í skyn að til
greina kæmi að þingið legði fram
ákæru á hendur forsetanum fyrrver-
andi. Aðrir segja að repúblikanar
verði að gæta sín á því að fara ekki of-
fari í málinu, þá gæti samúð almenn-
ings snúist á sveif með Clinton.
Þingnefndir ræða náðanir
Meðal þeirra sem forsetinn náðaði
19. janúar var fjármálamaðurinn
Marc Rich, en fyrrverandi eiginkona
hans, Denise Rich, er þekkt fyrir
rausnarleg framlög í sjóði demó-
krata, glæsilegar veislur og stuðning
við Clinton og eiginkonu hans,
Hillary Rodham Clinton. Rich var á
sínum tíma sakaður um einhver um-
fangsmestu skattsvik og fjársvik í
sögu landsins en flúði áður en réttað
var í málinu og hefur síðan verið bú-
settur í Sviss. Dómsmálanefnd öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings tók
málið fyrir í gær og nefnd á vegum
fulltrúadeildarinnar er einnig að
kanna málavexti.
Beiðni um náðun þarf að vera lögð
fyrir sérstakan embættismann í
dómsmálaráðuneytinu. Roger
Adams, er gegndi embættinu áður en
repúblikanar tóku við, skýrði í gær
við yfirheyrslu hjá dómsmálanefnd
öldungadeildar þingsins frá því að
lögfræðingar Hvíta hússins hefðu
hringt í sig kvöldið fyrir embættis-
töku George Bush og tjáð sér að ekki
væri þörf á því að kanna feril nema
tveggja manna á listanum yfir þá sem
lagt væri til að yrðu náðaðir. Var
Rich annar þeirra en ekki var tekið
fram að hann hefði flúið land heldur
sagt að varla væri hægt að afla mik-
illa upplýsinga um mennina vegna
þess að þeir „hefðu dvalist árum sam-
an erlendis“.
Adams sagðist hafa komist að því
hjá alríkislögreglunni, FBI, að Rich
væri flóttamaður. Hann sagðist hafa
faxað samantekt um meint afbrot
Rich til embættismanna Clintons.
Adams var þá beðinn um að senda
þeim það sem hann hefði fengið hjá
FBI. Sjálfur undirritaði Adams skjöl
um náðunina eftir 20. janúar en seg-
ist aðeins hafa verið að afgreiða málið
af hendi ráðuneytisins; Clinton hefði
verið búinn að taka ákvörðunina.
Margir áhrifamenn demókrata
segjast vera orðnir þreyttir á enda-
lausum hneykslismálum sem fylgt
hafa Clinton. Þeir eru hvassyrtir um
náðanirnar og efast nú um að hann
verði áfram í forystuliði flokksins
vegna þess að hann sé stöðugt að ger-
ast sekur um athafnir sem erfitt sé að
verja. Sumir gagnrýnendanna eru
gamlir og áður eindregnir stuðnings-
menn Clintons á erfiðum tímum.
„Með því að náða þá sem flúið hafa
(undan réttvísinni) er verið að snúa
öllu á haus í dómskerfinu,“ sagði
Charles Schumer, öldungadeildar-
þingmaður frá New York. Dianne
Feinstein, öldungadeildarþingmaður
frá Kaliforníu, sagðist hafa áhyggjur
„ekki einvörðungu vegna náðunar
Rich heldur margra annarra“ sem
Clinton náðaði á síðasta embættis-
degi sínum.
Patrick Leahy frá Vermont segist
vera ósamþykkur þeirri ákvörðun
forsetans að náða Rich. Barney
Frank, sem er fulltrúadeildarþing-
maður frá Massachusetts og studdi
ákaft Clinton er reynt var að víkja
honum úr embætti vegna Lewinsky-
málsins, gagnrýnir Clinton harka-
lega, að sögn The Washington Post.
„Þetta veldur honum tjóni og
minnkar líkurnar á að hann geti unn-
ið fyrir málstað sem hann trúir á,“
sagði Frank.
Aðrir benda á að athygli fólks og
fjölmiðla beinist eingöngu að Clinton
og vandræðum hans en ekkert að
mikilvægum málum sem demókratar
reyni að koma á framfæri. Þannig
hafi blaðamannafundur þeirra um
væntanlegar skattalækkanir Bush
forseta og gagnrýni á tillögur hans
fallið í skuggann af Rich-málinu.
Ónafngreindur aðstoðarmaður hjá
þingflokki demókrata í fulltrúadeild-
inni var bálreiður.
„Það skiptir engu hvað við gerum,
svarta skýið sem fylgir Clinton fylgir
okkur eftir hvert sem við höldum,“
sagði maðurinn. „Maður lærði að
sætta sig við þetta meðan hann var
forseti ... en nú þegar hann er hættur
þurfum við samt að fást við þetta.
Þingmennirnir eru löngu búnir að fá
sig fullsadda af þessu.“ Annar sagði
að mörgum fyndist sem Clinton hefði
svikið þá sem hefðu á sínum tíma
hætt miklu til að styðja hann og það
minnsta sem hann hefði getað gert
væri að hætta með reisn.
Svar Clintons öldunga-
deildarþingmanns
Denise Rich hefur að sögn gefið
um 450.000 dollara, um 38 milljónir
króna, til að stofna bókasafn er kennt
verður við Clinton. Einnig hefur hún
látið 1,1 milljón dollara, 94 milljónir
króna, renna til flokkssjóðs demó-
krata og að minnsta kosti 109 þúsund
dollara, rúmar níu milljónir króna, í
sjóði Hillary Rodham Clinton er hún
barðist fyrir því að ná kjöri sem öld-
ungadeildarþingmaður fyrir New
York.
Forsetafrúin fyrrverandi og nú-
verandi þingmaður hefur að sögn
fjölmiðla verið spurð um álit sitt á
náðun Rich en svörin hafa þótt und-
arleg. Hún segist ekki hafa skoðun
málinu og ekki hafa haft á því neina
skoðun.
Demókratar segja að Bill Clinton hefði átt að reyna að skilja við embættið með reisn
Kvarta undan
„svarta skýinu“
sem elti þá enn
Reuters
Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, í blökkumannahverfinu
Harlem í New York. Hann hefur nú hætt við að leigja dýra skrifstofu við
Miðgarð í borginni, sem mjög var gagnrýnt og kallað bruðl með skattfé
en kannar hvort annað og ódýrara húsnæði í Harlem henti sér.
New York, Washington. AP.
NEFND háttsettra fulltrúa frá Evrópusam-
bandinu (ESB) hóf á þriðjudag viðræður við
ráðamenn í Úkraínu um öryggismál, fjöl-
miðlafrelsi og samskipti landsins við Vest-
urlönd. Efnt hefur verið til fjöldamótmæla
undanfarnar vikur í landinu gegn Leoníd
Kútsjma forseta sem sagður er reyna að
bæla niður gagnrýni á stjórnvöld með öllum
ráðum, hann láti jafnvel myrða andstæðinga
sína. Forsetinn segir að ásakanirnar séu lið-
ur í samblæstri óþekktra aðila gegn sér en
kröfur um afsögn hans hafa notið mikils
stuðnings. Í yfirlýsingu Kútsjma og forseta
þingsins segir að mótmælin ógni öryggi rík-
isins og notaðar verði „allar leyfilegar að-
ferðir til að kveða niður slíkar aðgerðir“.
Enn eitt stjórnmálahneykslið í Úkraínu
leit dagsins ljós á þriðjudag en þá var Júlía
Tímosénkó, fyrrverandi aðstoðarforsætis-
ráðherra, handtekin og sökuð um smygl og
skjalafals. Hún er fertug og sögð hafa komið
undan hundruðum milljóna dollara sem hún
hafi grætt með því að falsa skjöl um gaskaup
í Rússlandi. Áður hafði Tímósénkó verið sök-
uð um að hafa staðið fyrir því að rúmur millj-
arður dollara, um 90 milljarðar króna, var
fluttur ólöglega úr landi.
Stjórnarandstaðan hefur birt upptökur af
samtölum þar sem forsetinn virðist leggja á
ráðin um morð á blaðamanninum Georgí
Gongadze er gaf út blað á rússnesku og
gagnrýndi Kútsjma óspart. Höfuðlaust lík
blaðamannsins fannst í nóvember í skógi
skammt frá höfuðstaðnum Kíev en hann
hvarf í september. Hafði verið reynt að gera
líkið óþekkjanlegt með því að hella yfir það
sýru en vegfarandi tók eftir handlegg sem
stóð upp úr moldinni.
Á myndbandinu, sem öryggisvörður tók
upp án vitundar forsetans, sést Kútsjma
ræða við helstu ráðgjafa sína, fara svívirðing-
arorðum um Gongadze og virðist krefjast
þess að þaggað verði niður í honum. Ekkja
Gongadze krafðist þess í gær að saksóknarar
viðurkenndu að líkið væri af Gongadze eins
og DNA-rannsóknir munu þegar hafa leitt í
ljós með nær ótvíræðum hætti.
Sérfræðingar eru ekki sammála um sönn-
unargildi myndbandsins umrædda en sýnd
hafa verið fleiri þar sem forsetinn virðist
taka við mútum og skipuleggja fölsun á at-
kvæðatölum. Er blaðamaður breska blaðsins
Financial Times ræddi við Kútjsma vísaði
hann því eindregið á bug að hann hefði gefið
skipun um að myrða manninn þótt hugsan-
legt sé að hann hafi minnst á blaðamanninn í
samtali. Segir hann að myndbandið hafi verið
falsað og á bak við fölsunina séu „vel skipu-
lögð öfl“ sem ráði yfir miklu fé. Líklega hafi
verið skeytt saman mörgum myndskeiðum
og útilokað sé að öryggisvörðurinn hafi verið
einn að verki. „Enn sem komið er get ég ekki
sett fram neina kenningu um hvað vakir fyrir
þeim sem stóðu fyrir þessu,“ segir forsetinn í
viðtalinu. „Er ekki hugsanlegt að þeir hafi
fyrst tekið upp einhver ummæli um Gong-
adze en síðan myrt hann?“ spurði forsetinn.
Hann segist þó vera viss um að samsærið
hafi ekki verið skipulagt af stjórnvöldum í er-
lendu ríki. Kútsjma bendir á að morðmálið
minni svo mikið á hvarf sjónvarpsfrétta-
manns í Hvíta-Rússlandi sl. sumar að aug-
ljóst sé að þar hafi samsærismenn fengið
hugmyndina. Stjórnarerindrekar í Minsk,
höfuðstað Hvíta-Rússlands, hafa gefið í skyn
að Rússar kunni að hafa átt aðild að hvarfi
fréttamannsins.
Úkraínumenn eru rúmar 50 milljónir.
Efnahagsmál eru þar í miklum ólestri, fátt
hefur verið gert til að koma á markaðsskipu-
lagi, m.a. vegna andstöðu kommúnista og
þjóðin er ein af hinum fátækustu í Evrópu.
Um fimmti hluti íbúa Úkraínu er rússnesku-
mælandi.
Meðal sendimanna ESB eru Javier Solana,
talsmaður sambandsins í utanríkis- og varn-
armálum. Talið er hugsanlegt að nefndar-
menn muni ræða mál Gongadze.
Úkraínumenn hafa látið í ljós óskir um að
fá aðild að Heimsviðskiptastofnuninni, WTO
og eiga allmikið samstarf við Atlantshafs-
bandalagið eins og Rússland og fleiri fyrr-
verandi sovétlýðeldi. Ótryggt ástand í stjórn-
málum Úkraínumanna hefur lengi valdið
áhyggjum vestrænna þjóða en landið hefur
notið sjálfstæðis frá því að Sovétríkin hrundu
1991.
Fundur með Pútín
Á mánudag áttu Kútsjma og Vladímír Pút-
ín Rússlandsforseti fund í borginni Dnépró-
petrovsk í Úkraínu. Úkraínumenn eru háðir
Rússum um olíu og skulda þeim mikið en
hafa átt í deilum við þá um afnot Rússa á
flotabækistöðinni Sevastapol á Krímskaga.
Fundur forsetanna gekk þó vel og voru und-
irritaðir samningar um samstarf á sviði orku-
mála og fleiri sviðum. Þykir Pútín með fund-
inum hafa sýnt Kútsjma stuðning í deilum
forsetans við stjórnarandstæðinga en margir
Úkraínumenn óttast nú að Rússar noti tæki-
færið og efli áhrif sín í landinu. Rússar hafa
lengi reynt að koma í veg fyrir að Úkraínu-
menn auki samvinnu sína við Vesturveldin.
„Við hyggjumst starfa með Kútsjma þrátt
fyrir pólitísk vandamál,“ sagði Pútín á blaða-
mannafundi eftir viðræðurnar. „Mikilvæg-
sasta markmiðið er að endurreisa efnahags-
leg tengsl ríkjanna sem voru rofin með falli
Sovétríkjanna.“
Rússar reyna að endurvekja gömul tengsl við Úkraínu og efla áhrif sín í landinu
Kútsjma forseti á
í vök að verjast
vegna morðásakana
Reuters
„Kútsjma, hvar er Gongadze?“ stendur á myndunum en á sunnudag kröfðust þúsundir
manna þess, að Kútsjma segði af sér vegna ásakana um, að hann bæri ábyrgð á hvarfi og
dauða blaðamannsins. Enn fleiri tóku þátt í mótmælunum í gær.
Kíev. AP, AFP.