Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 30

Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ inni þótt um það séu skiptar skoðanir meðal borgarbúa hvort það sé skynsamlegt eins og fram kemur í þeirri kosningabaráttu sem hafin er vegna atkvæðagreiðslunnar 17. mars. Það skiptir þó máli fyrir marga Reykvíkinga hvert völlurinn fer, hvort hann færi langt í burtu eða yrði áfram á höfuðborgarsvæðinu. Unnt yrði að nýta Vatnsmýrina til uppbyggingar og skiptir þá ekki máli hvaða kostur yrði fyrir valinu, þar yrði hægt að koma fyrir blandaðri byggð íbúa og atvinnurekstrar, að einhverju leyti í tengslum við háskólann og miðbæinn. Ráðgjaf- ar svæðisskipulagsins, Nes-Planners, telja unnt að byggja 5.000 íbúðir og aðstöðu fyrir 5.000 starfsmenn á flugvallarsvæðinu. Samkvæmt því gæti risið þarna 11–12 þúsund manna byggð. Samtök um betri byggð hafa verið með hug- myndir um mun þéttari byggð á svæðinu. Flug- völlur í Skerjafirði hefði þann augljósa kost að flutningur flugsins þangað myndi ekki breyta að ráði aðgengi fólks af landsbyggðinni að stjórnsýslu og þjónustu í höfuðborginni og að- gengi notenda hans á höfuðborgarsvæðinu yrði nánast óbreytt. Staðsetning hans á öðrum stöð- um á höfuðborgarsvæðinu eða við það yrði held- ur síðri út frá því sjónarmiði. Hins vegar má líta svo á að grundvallarmunur sé á staðsetningu flugvallarins þar og að flytja flugið alveg til Keflavíkurflugvallar því það myndi skerða verulega aðgang þeirra íbúa landsbyggðarinnar sem nota innanlandsflugið, að stjórnsýslumið- stöð landsins. Það sama gildir um þá höfuðborg- arbúa sem nota innanlandsflugið, flesta þeirra skiptir miklu máli hvort flugið verður áfram á höfuðborgarsvæðinu eða fært til Keflavíkur. Í skýrslu sem Stefán Ólafsson prófessor vann fyrir borgina og áður hefur verið vitnað til er lagt mat á alla fimm kostina út frá efnahags- legum og samfélagslegum þáttum. Valkostirnir þrír utan Vatnsmýrar koma mun betur út úr því mati en kostirnir tveir í Vatnsmýri. Þannig kom Hvassahraunsflugvöllur best út. Hann taldist oftast vera mjög góður eða góður kostur en aldrei sá lakasti. Keflavíkurflugvöllur kom næstbest út og þá flugvöllur á Lönguskerjum. Í skýrslu Stefáns er vakin athygli á marg- víslegum ávinningi Reykjavíkurborgar af að geta nýtt Vatnsmýrina til annarra hluta og auka þannig tekjur sínar meira en mögulegt er með núverandi notkun landsins. Skerjafjörður kostar 7–10 milljarða aukalega Bygging og rekstur flugvalla heyrir undir samgönguráðuneytið og Alþingi fer með fjár- veitingarvaldið. Er því rétt að rifja upp orð sam- gönguráðherra um þær flugvallarhugmyndir sem hér eru reifaðar. Sturla Böðvarsson hefur sagt hreint út að engin áform séu uppi um að byggja nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið, ekki komi til greina að leggja í þá fjárfestingu. Flugið verði því flutt til Keflavíkurflugvallar, að loknu skipulagstímabilinu, ef stjórnendur höf- uðborgarinnar leggist gegn áframhaldandi rekstri Reykjavíkurflugvallar í Vatnsmýri. Fyrir nærri þremur áratugum kom Trausti Valsson skipulagsfræðingur fram með þá hug- mynd að búa til eyju á Lönguskerjum og Hólm- um í Skerjafirði og flytja Reykjavíkurflugvöll þangað. Samtök um betri byggð og Vatnsmýrin hf. hafa fylgt þessari hugmynd eftir vegna áhuga á að nýta Vatnsmýrina undir íbúðar- byggð og Hrafn Gunnlaugsson gerði henni eft- irminnileg skil í Reykjavíkurkvikmynd sinni. Raunar gerði Hrafn ráð fyrir millilandaflugi stórra flugvéla sem ekki gengur á þessum stað. Borgarverkfræðingur fékk Almennu verk- fræðistofuna til að gera lauslega áætlun um flugvöll í Skerjafirði og borgarverkfræðingur og Borgarskipulag hafa fjallað um möguleikann í skýrslu um landfyllingar. Í skýrslu Almennu verkfræðistofunnar er áætlað að kostnaður við flugvallargerðina sé á bilinu 12,4 til 19,9 millj- arðar kr. Borgarverkfræðingur hefur í saman- burði valkosta talið að lægri mörkin væru nær sanni, miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir, og áætlað kostnað við flugvallargerðina 13.370 milljónir kr. Vekur hann athygli á því að aukakostnaður við að byggja flugvöll úti í sjó miðað við flugvöll á góðu flugvallarstæði á landi sé á bilinu 7,5 til 10,5 milljarðar kr. Það er 8,6 milljörðum dýrara að byggja nýjan völl á Lönguskerjum en byggja upp aðstöðu Reykjavíkurflugvallar á núverandi stað í Vatns- mýrinni, hlutfallslega er sá kostur liðlega 80% dýrari. Ef notaðir eru núvirðisreikningar Flug- málastjórnar er munurinn hlutfallslega mun meiri, Lönguskerin eru 156% dýrari en Reykja- víkurflugvöllur. Í skýrslu verkfræðistofunnar kemur fram að engar veðurathuganir hafa verið gerðar í firð- inum en talið er mögulegt að uppfylla kröfur til flugs með tveimur flugbrautum. Þorgeir Páls- son flugmálastjóri slær því föstu að nýtingar- hlutfall flugvallar í Skerjafirði yrði meira en á Reykjavíkurflugvelli vegna stefnu brautanna og vel yfir alþjóðlegum viðmiðunum. Ekki hafa heldur farið fram athuganir á há- vaða frá flugumferð um flugvöllinn eða athug- anir á sjávarsetinu í firðinum. Telur Almenna verkfræðistofan að margt bendi til þess að um- ferð um flugvöllinn valdi lítilli hljóðmengun þegar austur-vestur-brautin er notuð. Það sama sé aftur á móti ekki hægt að segja um norður-suður-brautina. Ef hún stefni austan við Valhúsahæðina, sem virðist heppilegast, verði veruleg hljóðmengun í íbúðarhverfum á Sel- tjarnarnesi og vestast í Reykjavík. Einnig verði hávaðamengun í íbúðarhverfum á Álftanesi og eru Bessastaðir sérstaklega tilgreindir þar. Byggð hefur verið vöruhöfn í Kópavogi og er innsiglingin um Skerjafjörð. Almenna verk- fræðistofan telur útilokað að hafa óhindraðar siglingar til Kópavogshafnar ef flug á að vera án takmarkana um flugvöll í Skerjafirði. Borgar- verkfræðingur segir hreint út í skýrslu vegna svæðisskipulagsins að flug og skipaumferð rek- ist svo á, að annaðhvort verði Kópavogshöfn eða hugmynd um flugvöll á Skerjafirði að víkja. Verkfræðistofan skoðaði einnig aðrar tillögur um staðsetingu vallar í Skerjafirði, meðal ann- ars undan Álftanesi og eina vestan Álftaness, en þar væri hægt að koma fyrir flugvelli sem ekki hindraði siglingar til Kópavogshafnar. Á landi getur Valhúsahæð á Seltjarnarnesi verið hindr- un fyrir NS-braut vallarins en unnt er talið að leggja þá braut með stefnu austur fyrir hæðina sem er talið heppilegra en að leggja hana vestur fyrir. Eins og þetta lauslega mat verkfræðing- anna á hljóðmengun frá umferð um nýjan flug- völl í Skerjafirði sýnir yrði óhjákvæmilega tals- vert flug yfir íbúðarbyggð á höfuðborgar- svæðinu en í skýrslu Stefáns Ólafssonar kemur fram það mat að það gæti verið minna en er á núverandi flugvelli í Vatnsmýri. Fuglar og tæring Niðurstaða verkfræðinganna verður að telj- ast neikvæð. Þannig kemur fram í skýrslu Stef- áns Hermannssonar borgarverkfræðings og Ólafs Bjarnasonar yfirverkfræðings til sam- vinnunefndar um svæðisskipulag höfuðborgar- svæðsins að ekki verði með lauslegri athugun fundin rök sem réttlæta frekari skoðun á flug- vallargerð í Skerjafirði, heldur verði leitað ann- arra lausna varðandi flutning Reykjavíkurflug- vallar ef til þess kæmi. Þessu til viðbótar má nefna efasemdir stjórnenda flugfélaganna um að heppilegt sé að stunda flugrekstur frá flug- velli úti í sjó. „Hugmyndir um flugvelli úti í sjó eru um margt skemmtilegar, en menn virðast gleyma því að selta hefur mikil áhrif á málm- tæringu sem er eitt helsta vandamálið í viðhaldi flugvéla. Það þarf ekki annað en að standa í fjöruborðinu og horfa út á fjörðinn í góðum vindi til þess að sjá sjávarlöður ganga yfir sker- in. Annað vandamál með slíka velli er aukin ís- ingarhætta vegna raka og bleytu sem reikna verður með á vellinum,“ segir Jón Karl Ólafs- son, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. Magnús Guðmundsson, fyrrverandi flug- stjóri sem meðal annars flaug sjóflugvélunum á sínum tíma, telur að ekki sé heppilegt að hafa flugvöll úti í sjó. Hann segir að töluverð sjóselta sé á Reykjavíkurflugvelli og hún sé örugglega enn meiri þarna úti. Seltan hafi áhrif á flug- vélar, valdi tæringu og auknu viðhaldi. Nefnir hann að einn sjóbátanna hafi alltaf verið við bauju úti á Skerjafirði og hafi orðið að taka hann reglulega í land til þess að skola af honum. Þess ber að geta að reiknað er með að flugskýlin verði úti á Skerjafjarðarflugvelli, verði hann byggður. Ævar Petersen fuglafræðingur telur algjört glapræði að gera flugvöll á uppfyllingum. Um- ferð um hann verði alltaf varasöm vegna fuglanna. Víða séu vandamál með fugla við flug- velli sem byggðir eru við árósa og ekki á þau bætandi. Hann segir að mikill munur sé að þessu leyti á að vera með flugvöll uppi á landi og úti í sjó. Fuglarnir fljúgi hátt yfir landið en lágt yfir sjóinn og setjist á eyjar og sker. Telur hann öruggt að hópar af fuglum myndu stöðugt fljúga lágt yfir flugbrautirnar og setjast á þær og þeir myndu valda hættu fyrir flugumferðina, ekki síst stóru mávarnir á vorin og haustin. Mikil röskun umhverfis Til þess að byggja heilan flugvöll úti í Skerja- firði þarf mikla landfyllingu, eða 83 hektara þegar við fyllingu undir brautir hefur verið bætt landi undir flughlöð, flugstöð, flugskýli, vegtengingu og bílastæði því að verkfræðing- arnir telja óraunhæft að ætla að hafa flugstöð og önnur þjónustumannvirki uppi á landi vegna þess hversu langa leið þarf þá að aka flugvél- unum. Um það bil 13 milljónir rúmmetra af efni þarf í fyllinguna, þar af er reiknað með 11 millj- ónum rúmmetra af skeljaefni sem dælt yrði af hafsbotni og einni milljón rúmmetra af grjóti úr námum á höfuðborgarsvæðinu. Reiknað er með að brautirnar þurfi að vera í að minnsta kosti fimm metra hæð yfir sjó. Fram kemur í grein Ólafs Pálssonar verkfræðings í Morgunblaðinu fyrir skömmu að brautirnar verða að vera mun hærri, þær þurfa að standa á að minnsta kosti tíu metra hárri fyllingu. Ráðgjafar svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, Airport Research Center og Línuhönnun, hafa talið unnt að leggja nýjan flugvöll fyrir innanlandsflugið í landi eyðibýlisins Hvassahrauns í Vatnsleysustrandarhreppi, sunnan Hafnarfjarðar, og gert frumdrög að fyrirkomulagi slíks vallar. Svona kynni flugvöllurinn að líta út samkvæmt tölvuteikningu á ljósmynd sem Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar hefur gert fyrir Morgunblaðið eftir þessum hugmyndum. Völlurinn yrði utan við bæjarmörk Hafnarfjarðar, sunnan við Reykjanesbrautina, um það bil fjórum kílómetrum vestan við álverið í Straumsvík, sem sést fyrir miðri mynd. Einnig sést yfir Hafnarfjörð og Reykjavík og stóran hluta höfuðborgarsvæðisins. Esjan er í baksýn. Þess ber að geta að staðsetning vallarins á myndinni er ónákvæm.          0 %    1        !"# %# ,-+& .* /!! !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.