Morgunblaðið - 15.02.2001, Side 34
NÚ standa yfir æfingar hjá
Freyvangsleikhúsinu í Eyja-
fjarðarsveit á verki Woody All-
ens „Bullets over Broadway“
og verður það frumsýnt laug-
ardaginn 24. febrúar. Verkið
hefur ekki verið sýnt hér á
landi áður og er unnið eftir
samnefndri kvikmynd. Leik-
ritsgerð/þýðingu önnuðust
Hannes Blandon og Ármann
Guðmundsson að frumkvæði
Freyvangsleikhússins.
Verkið gerist á bannárunum
í New York og fjallar um leik-
ritaskáld sem þráir glæstan
frama á Broadway en vill jafn-
framt vera hugsjónum sínum
trúr. Hann neyðist til að gera
ýmsar málamiðlanir til að koma
verkinu á fjalirnar og kemst þá
að raun um að heimurinn sem
hann býr í er miklu harðari en
hann hafði órað fyrir. Skyndi-
lega er hann kominn í félags-
skap við mafíuna, ungar gjálíf-
isglyðrur og ýmsar útgáfur af
misjafnlega erfiðum leikurum.
Einkalíf hans verður jafnframt
sífellt flóknara.
„Bófaleikur á Broadway“, en
það er hið íslenska heiti verks-
ins, er viðamikið og fjörugt
verk,“ segir Helga Ágústsdótt-
ir hjá Freyvangsleikhúsinu,
„kryddað ótrúlegum uppákom-
um, dramatík og kímni, dansi
og tónlist.“
Leikendur eru vel á annan
tug og spanna aldursbilið 17–65
ára.
Leikstjóri er Hákon Jens
Waage.
Íslands-
frumsýning
í Freyvangi
LISTIR
34 FIMMTUDAGUR 15. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÝNING Magnúsar er bæði sýni-
leg utan af götunni og innan úr
fremri sal gallerísins. Þrjár voldugar
viftur þyrla upp hvítum frauðkorn-
um sem sitja ofan á saltbreiðum. Úr
hátölurum í fremra herberginu ber-
ast stormhljóð. Það ýlir og hvín svo
hrollur fer um sýningargesti. Tíma-
setning Magnúsar er sérlega mark-
sækin þegar haft er í huga hvernig
veðursældin hefur leikið við okkur
það sem af er vetri. Eflaust hefði
verkið verið áhrifaminna ef veðrátt-
an hefði verið í ætt við fjúkið inni í af-
girtum sal gallerísins.
Það sem keyrir upp verk Magn-
úsar er ekki síst sú togstreita þjóð-
legs minnis og gervilegrar útfærslu
sem felst í verkinu. Móðurást Jón-
asar Hallgrímssonar varð fleiri
myndlistarmönnum hugleikin, svo
sem Ásgrími Jónssyni árið 1902. En í
staðinn fyrir að halda sig við róm-
antíska lýsingu á framvindu lífsins
þar sem barnið snýr andlitinu mót
rísandi sól tekur Magnús kaldhæðn-
ari pól í hæðina og gefur til kynna að
veðrahamurinn sé eins konar alleg-
orísk táknmynd af frera og frost-
marki listalífsins hér á hjara verald-
ar.
Fjúkið er í sálu okkar og varnar
því að við getum kallast á þegar
verstu hryðjurnar hitta okkur.
Magnús lætur að því liggja að hérna
norður við heimskautsbaug safnist
fyrir doði og drep eins og díoxín í
kéti bjarndýrsins. En hann sér jafn-
framt í storminum hreyfanleik þann
sem fær listamanninn til að afhjúpa
sig gagnvart umheiminum. Að þessu
leyti er fjúkið hans ekki óskylt pæl-
ingu Ásmundar Ásmundssonar í
skipaninni Sumar er tími, vetur er
rými.
Að þessu leyti ganga báðir út frá
staðháttum og umhverfi, og vísa til
þeirra margræddu kenninga að mað-
urinn sé ekki bara það sem hann læt-
ur í sig heldur jafnframt þorrinn sem
hann þreyr. Léttleikinn bakvið
snjalla sviðsmynd Magnúsar ætti að
hjálpa okkur að skoða dramatíska
staðhætti íslensks umhverfis með
æðruleysi og gamansemi. En ekki
einasta blákalda staðhætti heldur
jafnframt mannlegt samfélag hér á
klakanum með von um hressilega
þíðu.
MYNDLIST
g a l l e r i @ h l e m m u r . i s
Til 4. mars. Opið fimmtudaga til
sunnudaga frá kl. 14–18.
BLÖNDUÐ TÆKNI –
MAGNÚS SIGURÐARSON
Fýkur
yfir
hæðir
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Hluti af Stormi, skipan Magnúsar Sigurðarsonar í galleríi@hlemmur.is.
Halldór Björn Runólfsson
ÁGÚSTA Kristófersdóttir listfræð-
ingur flytur erindi í fjölnotasal Lista-
safns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu í dag, fimmtudag,
kl. 17.30. Fyrirlesturinn nefnist
Svartir kassar – um fyrstu skref
módernismans í íslenskri húsagerð.
Efnið tengist lokaritgerð hennar frá
listsögudeild Háskólans í Lundi sem
fjallar um aðlögun „funksjónalískr-
ar“ húsagerðar að íslenskum að-
stæðum eins og hún birtist byggð-
inni í Norðurmýrinni, fyrsta
íbúðarhverfi Reykjavíkur sem
byggðist utan Hringbrautar á árun-
um 1936–40. Ágústa starfar sem
safnvörður við byggingarlistardeild
Listasafns Reykjavíkur. Fyrirlest-
urinn er liður í sameiginlegri fyrir-
lestraröð um hönnun og byggingar-
list sem Arkitektafélag Íslands,
Listasafn Reykjavíkur og Norræna
húsið standa saman að.
Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Kristinn
Ágústa Kristófersdóttir flytur erindi í Hafnarhúsinu í dag.
Fyrirlestur um húsagerð
SÖNGSVEITIN Drangey heldur
sína árlegu þorratónleika í félags-
heimilinu Drangey, Stakkahlíð 17,
á sunnudag. Húsið verður opnað kl.
14.30. Píanóleikari er Ólafur Vignir
Albertsson og stjórnandi Snæbjörg
Snæbjarnardóttir. Ungir söngnem-
endur Snæbjargar munu einnig
koma fram.
Söngsveitin Drangey ásamt söngstjóranum Snæbjörgu Snæbjarnardóttur.
Þorratón-
leikar í
Drangey
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6
Sýningu Jóns Adólfs Steinólfsson-
ar á tréskurðarverkum lýkur nú á
sunnudag.
Gallerí Stöðlakot er opið daglega
frá kl. 14–18.
Sýningu lýkur
FYRSTU tónleikar vorannar-
innar hjá Jazzklúbbnum Múlan-
um verða í kvöld, fimmtudags-
kvöld, kl. 21, með tónleikum
Tríós Sigurðar Flosasonar þar
sem hann, Jón Páll Bjarnason
gítarleikari og Gunnar Hrafns-
son bassaleikari leika klassíska
standarda í persónulegri túlkun.
Þær breytingar hafa verið
gerðar á tónleikahaldi Múlans
að framvegis verða tónleikarnir
á fimmtudögum í stað sunnu-
daga áður. Jafnframt hafa tón-
leikarnir verið færðir aftur á efri
hæð Húss málarans í Banka-
stræti, en þar hafa verið gerðar
verulegar breytingar á húsnæð-
inu.
Nú hefur verið sett upp röð
tónleika til enda maímánaðar og
er hægt að skoða dagskrána á
vefsíðu Múlans http://www.jazz-
is.net/mulinn. Ennfremur er
hægt að óska eftir að fá frétta-
bréf Múlans í hverri viku með
því að senda beiðni á netfangið
Mulinn@jazzis.net.
Aðgangseyrir á tónleikana er
kr. 1.200, en 600 fyrir nema og
eldri borgara.
Múlinn aftur
á Sólon
BALLETTINN Spartakus
verður sýndur í bíósal MÍR,
Vatnsstíg 10, nk. sunnudag kl.
15. Tónlistina við ballettinn
samdi armenska tónskáldið
Aram Khatsatúrjan um miðja
síðustu öld og var verkið frum-
flutt árið 1956. Kvikmyndin var
gerð nokkrum árum síðar og
stóðu fremstu listamenn Bolsh-
oj-leikhússins í Moskvu þar að
verki. Danshöfundar og stjórn-
endur voru Vadím Derbenjev og
Júrí Grígorovits. Í aðalhlutverk-
um eru Vladimír Vassilijev, Nat-
alía Bessmertovna, Maris Liepa
og Nína Tímofejeva.
Aðgangur að sýningunni er
ókeypis.
Spartakus í
bíósal MÍR
♦ ♦ ♦